Æskan og Skógurinn, Umbrot eftir Tjörva Valsson

Page 25

STARFAÐ AÐ SKÓGRÆKT Í skólagarðinum skiptist á vinna og fræðsla jöfnum höndum allt sumarið. Komið er fram í ágúst. Reitir okkar eru vel hirtir. Skjólbelti hafa verið klippt, grasfletir slegnir í síðasta sinn og kantar skornir. Á morgun hefst nýr þáttur í náminu. Við eigum að fara í gróðursetningarferð til Austurlands, í Hallormsstaðaskóg en þangað er ferðinni heitið vegna þess að þar er skógrækt á Íslandi lengst á veg komin. Í Hallormsstaðaskógi Hallormsstaðaskógur er við Lagarfljót sunnanvert. Landslag er þar hæðótt og víða nokkuð brattlent. Fjöllin suðaustur af Hallormsstað rísa allt að sex hund­ ruð metra yfir sjávar­­­mál og setja þau all­mikinn svip á land­slagið einkum Hallormsstaða­skóg. Lögurinn, eða Lagarfljót öðru nafni, sígur þarna fram á leið til sjávar. Til að sjá er vatnsfallið líkara firði eða stöðuvatni en venjulegu fljóti. Ískalt jökulvatnið er gulgrænt á litinn og víða er það hyldjúpt. Svo lygn er þessi mikla móða á kyrrum sumardögum og svo mjúkar eru boglínur hennar í víkum og vogum að landslagið allt fær mildan blæ og ljúfan. Á bökkum

23


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Æskan og Skógurinn, Umbrot eftir Tjörva Valsson by Tækniskólinn - Issuu