
2 minute read
Hvar á ég að byrja?
Texti: Ívar Daníel Karlsson
Þetta er því miður sorglega algeng spurning frá þeim sem eru forvitnir um áhugamálið eða langar að prufa að spila. Oft vex fólki það í augum hversu erfitt það er að byrja að spila spunaspil. Það e.t.v. að reglurnar séu of flóknar eða það þurfi að þekkja einhvern sem hefur spilað áður og vera leiddur inn í áhugamálið.
En sannleikurinn er sá að það hefur aldrei verið auðveldara að byrja spila spunaspil en núna. Bæði út af því hversu aðgengileg mörg spilin og kerfin eru orðin en líka með tilkomu internetsins og samfélagsmiðla.
Hér eru nokkur góð ráð um hvert þú getur snúið þér ef þú vilt byrja að spila.
Roleplayers á Íslandi
Facebook hópurinn „Roleplayers á Íslandi“ er frábær staður til að bæði kynna sér áhugamálið, spyrja spurningar og jafnvel finna sér hóp til að spila með. Þar eru einnig oft settar inn fréttir og viðburðir tengdum hlutverkaspilum á Íslandi.
Hlutkesti
Hlutkesti eru samtök spunaspilara á Íslandi sem skipuleggja og halda oft spilamót og aðra viðburði tengdum spunaspilum.
Hlutkesti er einnig með facebook hóp og discord rás þar sem að meðlimir geta spjallað og skipulagt spilahópa eða spilakvöld.
Kauptu bækurnar og byrjaðu að spila
Það er vissulega upphafskostnaður þegar þessi leið er farinn en þetta er líklega auðveldasta og áreiðanlegasta leiðin til að byrja að spila spunaspil.
Þó að reglubækurnar séu vissulega stórar og ógnvekjandi þá er alls ekki gert ráð fyrir því að þú lærir þær utanbókar. Það að gera sér grein fyrir grunn reglunum í grófum dráttum og það að vera með reglubókina við hendina á meðan þú lærir restina á meðan þú spilar er mjög algeng leið til að læra reglurnar í spunaspilum.
Horfa eða hlusta á raunspilunarþætti
Það að horfa eða hlusta á raunspilunarþætti eða hlaðvörp eins og Dimension 20 eða Critical Role er frábær leið til að læra reglurnar í spunaspilum og að sjá hvernig spilun fer fram undir góðum kringumstæðum.
Þetta er bæði góð leið til að læra og einnig skemmtilegt afþreyingarefni. Mikið af reglunum í spilinu eru útskýrðar þegar þær koma first við sögu og spilarar spyrja oft um frekari skýringar á leikreglum frá leikjameistaranum.
Einnig eru sumir raunspilunarþættir með auka efni þar sem að spunameistarinn svarar spurningum, gefur góð ráð, og útskýrir reglur.
Mynd: LadyofHats
Dreki
Sögulega góð prentsmiðja
1974
Nýtt húsnæði
Árið 1974 fluttist prentsmiðjan að Auðbrekku 48 og keypt var m.a. ein af fyrstu offsetprentvélum á Íslandi.
FORVINNSLA PRENTUN FRÁGANGURFORVINNSLA PRENTUN FRÁGANGURFORVINNSLA PRENTUN FRÁGANGURFORVINNSLA PRENTUN FRÁGANGUR SVANS VOTTUN

2000
Nýjar vélar
Á árunum 2000–2007 bættust við fjölmargar nýjar vélar m.a. tvær fjöllita prentvélar, fullkominn forvinnslubúnaður, brotvélar, skurðarlína, hefti- og fræsilína, svo eitthvað sé nefnt.
1967
Litlaprent stofnað
Prentsmiðjuna Litlaprent stofnaði Guðjón Long árið 1967 og var tækjakosturinn ein trukkprentvél sem staðsett var í sumarbústað á Digraneshæð.
1999
Litlaprent flytur á Skemmuveg 4
Sumarið 1999 var ráðist í að kaupa 700 fm húsnæði undir prentsmiðjuna að Skemmuvegi 4 og fluttist prentsmiðjan þangað um haustið.
2012
Litlaprent kaupir Miðaprent Árið 2012 er keyptur helmingshlutur í Miðaprent ehf. sem sérhæfir sig í að framleiða m.a. vörulímmiða á rúllum fyrir matvælaiðnaðinn.
GRAFÍA
