Hús feðra minna - Sandra Ósk Júníusdóttir

Page 9

I Skýring Samúels frænda Ég á tvo feður. Til að fullnægja kröfum sannleikans ætti ég vissulega að eiga fimm, en félagarnir urðu sammála um að útnefna Pétur og Jóbald hina raunsönnu feður og gera þá Samúel, Gilbert og Lilla Johnson að eins konar frændum. Ég var getinn og fæddur í ósköp venjulegu heimskautasambandi. Móðir mín var hviklynd stúlka af Tununerkiut ættbálkinum, eða eins og Samúel frændi útskýrði það fyrir mér síðar; hún hafði stórt hjarta og mjög heitt hjarta, sem svo auðveldlega hafði rúmað alla fjölskylduna. Ég fæddist sumardag einn á þriðja áratugnum. Móðir mín annaðist mig í sjö vikur en þá safnaði hún saman sínu stóra og gjafmilda hjarta og skenkti það skinna­kaupmanni, Moisise að nafni, sem einmitt þá átti leið um svæði félaganna. K ­ amíkupósturinn sagði að

Drengur

Teikning: Jón Jónsson

HÚS FEÐRA MINNA I

|9


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Hús feðra minna - Sandra Ósk Júníusdóttir by Tækniskólinn - Issuu