Hús feðra minna - Anný Tinna Aubertsdóttir

Page 12

mér, ef um slíkt væri að ræða. Hvað er eiginlega móðir?“ Sam stundi þungan. „Jæja, sagði Pétur það? Sagði hann það í raun og veru? Þá verð ég víst að reyna.“ Hann lagði handlegg um axlir mér og þrýsti mér að sér. „Sjáðu til, pjakkur litli. Við mannfólkið erum ekki eins frábrugðnir öðrum spendýrum og við sjálfir viljum vera láta. Ef út í það er farið, erum við heldur ekki Angut Ljósm.: Lilli nema tvö skref frá trjám frumskógarins. Þú hefur áreiðanlega séð hvernig Angut stekkur stundum á Qaqataq, ekki satt?“ Angut og Qaqataq voru tveir af sleðahundunum okkar og voru oft leidd saman vegna gæða afkvæma þeirra. „Þau eru bara að leika sér,“ sagði ég, „það segir Pétur. Aviaja segir að þau séu að hlæja saman. Það er sennilega eins og þegar ég stekk höfrung yfir Lilla Johnson.“ Sam frændi tók handlegginn af öxlum mér og tók að fægja gleraugun sín. Ég settist á hækjur fyrir framan hann og hélt áfram sigri hrósandi. „En ég er bara miklu duglegri en Angut. Hann bara stendur bakvið Qaqataq og kemst ekki yfir hana. Ég kemst yfir Lilla Johnson í hvert sinn, líka þegar hann er með bein hné.“ Sam frændi hristi höfuðið. „Það getur vissulega líkst höfrungahlaupinu þínu, en þó er það ekki fullkomlega það sama. Sjáðu til, hundarnir hafa ekki áhuga á að komast yfir og það hefur fullorðna fólkið reyndar ekki heldur, ef út í það er farið. Ef þú fylgist vel með Angut og Qaqataq næst þegar þau stökkva hvort á annað, tekur vandlega eftir því sem gerist og hvað það er í raun og veru sem þau

10 | HÚS FEÐRA MINNA I


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Hús feðra minna - Anný Tinna Aubertsdóttir by Tækniskólinn - Issuu