Drengur.
Ljósmyndari: Kolbrún Ragnarsdóttir.
ára og hafði um langt skeið fundið fyrir einhverju nýju og sætljúfu sunnan buxnastrengsins, að ég fór að velta fyrir mér leyndardómum tilurðarinnar. Kvöld nokkurt leitaði ég Sam frænda uppi til að fá forvitni minni fullnægt. Þetta var fagurt vorkvöld og Sam sat við ána og þvoði. Hann hafði, Aviöju til sárrar armæðu, ávallt verið mikill áhugamaður um fataþvott. Og af sinni venjulegu hugkvæmni hafði hann smíðað út búnað, dráttarbúnað, sem að minnsta kosti veitti fötunum ákveðinn ferskleika, þótt hann þvægi þau ekki tandurhrein. Úti í miðri ánni var komið fyrir gömlu skipsankeri. Frá ankerinu lá tvöfaldur koparþráður að árbakkanum. Á þræðinum var komið fyrir lykkjum með hálfs meters millibili og í þær var fest skyrtum, buxum, sokkum og hverju því öðru sem þarfnaðist þvottar. Síðan var allt togað út
10 | HÚS FEÐRA MINNA I