JARÐVEGUR OG GRÓSKA Skógurinn er töfraheimur sem margir láta sér nægja að hrífast af en færri hafa kynnt sér. Við skulum enn ganga út í skóg, virða fyrir okkur blóm og grös, fræðast um líf þeirra og sambúð þeirra við skóginn. Frjómoldin er ein mesta auðlind hvers lands. Hún er kvik af lífi. Þar eru heimar ótal tegunda af smádýrum, gerlum og sveppum. Þessar lífverur breyta leifum plantna og dýra í næringu handa nýjum gróðri og stuðla að aukinni frjósemi. Þar sem hlýju og skjóls nýtur,
Skógur vex best í halla
Ljósmyndari.: Óþekktur
Æskan og skógurinn | 33