Æskan og skógurinn - Sóley Guðmundsdóttir

Page 31

JARÐVEGUR OG GRÓSKA Skógurinn er töfraheimur sem margir láta sér nægja að hrífast af en færri hafa kynnt sér. Við skulum enn ganga út í skóg, virða fyrir okkur blóm og grös, fræðast um líf þeirra og sambúð þeirra við skóginn. Frjómoldin er ein mesta auðlind hvers lands. Hún er kvik af lífi. Þar eru heimar ótal tegunda af smádýrum, gerlum og sveppum. Þessar lífverur breyta leifum plantna og dýra í næringu handa nýjum gróðri og stuðla að aukinni frjósemi. Þar sem hlýju og skjóls nýtur, búa þessar lífverur við betri lífskilyrði en á berangri og því eykst frjósemin á slíkum stöðum. Ef til vill er brýnna fyrir Íslendinga en nokkra aðra þjóð sem fæst við skóg­rækt að gera sér grein fyrir þessu því að landið liggur langt í norður­vegi og má heita skóglaust eins og nú er komið. En þegar skógarnir hurfu, þvarr skjólið sem þeir veittu og jafn­framt minnkaði frjósemi landsins og gróð­ur­breyting­ar fylgdu í kjölfar­ið. Við þurfum að hafa þetta í huga og velja um sinn til skóg­ræktar þá staði, svæði eða hér­uð sem hag­stæð­ust eru fyrir trjágróður. Slíkir staðir eru margir eins og reynslan hefur þegar sannað. Við skulum drepa á nokkuð atriði sem miklu máli skipta þegar land er valið til skógræktar: Tré vaxa yfirleitt betur í halla en á flatlendi. Þar seytlar súrefnisríkt jarðvatn í sífellu um efstu lög jarðvegsins, flýtir fyrir rotnun jurtaleifa og þar verður jarðvegur frjór og gljúpur. Trén þurfa skjól fyrir þurrustu vindáttinni. Helst ætti að velja trjálundum stað í halla mót suðvestri þar sem staðhættir leyfa. Undir hömrum er skjól og bergið varpar frá sér hita, jafnvel eftir sólsetur.

29


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.