GIRÐINGAR
Einn daginn hættum við vinnu fyrr en endranær. Úti við Hafursá eru menn að lagfæra skógræktargirðinguna og endurnýja nokkurn hluta hennar. Við skulum skreppa þangað. Það á að sýna okkur hvernig verkið er unnið og hvernig svona girðingar eigi að vera. Við eigum sem sé að kynnast flestu sem lýtur að skógrækt.
Við Hafursá
Ljósm.: óþekktur
Girðingar skal vanda vel því að þær eiga að standa lengi. Fyrst þarf að velja besta girðingarstæðið, því næst útvega gott efni og í þriðja lagi setja niður trausta hornstaura og máttarstólpa á réttum stöðum. Þá er net og gaddavír strengt á þessa staura en grennri staurar reknir niður á eftir og girðingin einnig reist á þá. Skógræktargirðingar eru rúmur metri á hæð, sjaldan yfir hundrað metrar milli máttarstólpa og tíu metrar á milli venjulegra staura. En á milli þeirra eru negldar tvær renglur á girðinguna til að treysta hana. Ganga þarf sérstaklega vel frá hlið-, máttar- og hornstólpum. 45