Æskan og skógurinn - Alexander Heiðarsson

Page 35

GIRÐINGAR Einn daginn hættum við vinnu fyrr en endranær. Úti við Hafursá eru menn að lagfæra skógræktargirð­ inguna og endurnýja nokkurn hluta hennar. Við skulum skreppa þangað. Það á að sýna okkur hvernig verkið er unnið og hvernig svona girðingar eigi að vera. Við eigum sem sé að kynnast flestu sem lýtur að skógrækt. Girðingar skal vanda vel því að þær eiga að standa lengi. Fyrst þarf að velja besta girðingarstæðið, því næst útvega gott efni og í þriðja lagi setja niður trausta horn­ staura og máttarstólpa á réttum stöðum. Þá er net og gaddavír strengt á þessa staura en grennri staurar reknir niður á eftir og girðingin einnig reist á þá. Skógræktar­ girðingar eru rúmur metri á hæð, sjaldan yfir hundrað metrar milli máttarstólpa og tíu metrar á milli venjulegra staura. En á milli þeirra eru negldar tvær renglur á girð­ inguna til að treysta hana. Ganga þarf sérstaklega vel frá hlið-, máttar- og hornstólpum. Jarðýtur eru stundum notaðar til að jafna girðingar­ stæði svo að auðveldara sé að beita vélknúnum tækjum við verkið og létta flutninga efnis. Ekki þarf að hlaða undir slíkar girðingar. Okkur þótti gaman að sjá vinnubrögð girðingarmann­ anna við Hafursá því að svona vinnu höfðum við ekki áður séð. En hitt þótti okkur merkilegt að þarna voru eingöngu notaðir lerkistaurar úr Hallormsstaðaskógi. Við höfðum einmitt verið að planta lerki og okkur fannst það öðlast meira gildi við þessa sjón. Hvað gæti þjóðin sparað mikið ef hún ræktaði nógan efnivið í girðingastaura í landinu sjálfu, og hvað gætu

margir unglingar fengið sumarvinnu við þessa ræktun? Samt er hið mikilvægasta enn ótalið. Við hugsuðum til allra litlu plantnanna í skóginum. Þær myndu flestar tortímast og aldrei verða að trjám ef landið væri ógirt. Við biðjum því alla að taka höndum saman og muna: •

að loka alltaf hliði á eftir okkur

að klifra ekki að óþörfu yfir girðingar

að klippa aldrei sundur girðingar til þess að kom­ ast leiðar okkar með farartæki.

35


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Æskan og skógurinn - Alexander Heiðarsson by Tækniskólinn - Issuu