Til minnis 1. Farið gætilega með rætur plantnanna og látið þær hvorki þorna né
sól skína á þær.
2. Geymið aldrei plöntur í umbúðum dægurlangt, hvorki utanhúss né
innan.
3. Hellið aldrei vatni á rætur trjáplantna og dýfið þeim því síður niður
í vatn.
4. Kynnið ykkur nákvæmlega hve djúpt á að setja hverja trjátegund. 5. Greiðið vel úr rótum plantnanna og skerið heldur af þeim lengstu
með beittum hníf en að láta þær bögglast í holunni.
6. Látið ætíð bestu gróðurmoldina falla næst rótunum við plöntun. 7. Farið gætilega með áburð og látið tilbúinn áburð aldrei snerta ræt-
urnar.
8. Skiljið aldrei eftir djúpa laut við plöntuna að plöntun lokinni. 9. Forðist að planta í þurranæðingi eða breyskjuhita. 10. Fylgist vel með vexti plantnanna fyrstu árin eftir plöntun og setjið
nýjar plöntur í stað þeirra sem deyja.
41