12
GV
Fréttir
Rimaskóli vann Miðgarðsmótið - b-sveit Rimaskóla í 2. sæti og Húsaskóli í 3. sæti
Grunnskólamót Miðgarðs í skák var haldið öðru sinni í Egilshöll um miðjan febrúar. Mótið er sveitakeppni á milli grunnskólanna í Grafarvogi og á Kjalarnesi. Í hverju skólaliði eru átta nemendur á grunnskólaaldri. Gríðarlega mikil þátttaka var á mótinu í ár og sendu átta af níu skólum hverfisins lið til keppni, sumir skólar fleiri en eina sveit. Það voru því um 100 nemendur, drengir og stúlkur, sem sátu að tafli og kepptu fyrir skólann sinn. Skipt var í tvo riðla og voru fimm og sex skáksveitir í hvorum riðli. Að lokinni riðlakeppninni var ein úrslitaumferð þar sem teflt var um sæti. A sveit Rimaskóla vann A riðilinn og fékk 37,5 vinninga af 40 mögulegum. Í öðru sæti varð sveit Húsaskóla með 28 vinninga og voru þessir skólar langefstir í riðlinum. Í B riðli vann B sveit Rimaskóla sigur eftir mikla baráttu við sveit Foldaskóla. Í úrslitaleik vann A sveit Rimaskóla B sveit skólans með 5 vinningum gegn þremur og í keppni um
þriðja sætið vann sveit Húsaskóla sveit Foldaskóla líka 5 - 3. Hamraskóli varð í 5. sæti eftir sigur á Klébergsskóla. Ingibjörg Sigurþórsdóttir framkvæmdarstjóri Miðgarðs afhenti nemendum Rimaskóla og Húsaskóla verðlaunapeninga og Rimaskóli hélt glæsilegum farandbikar og fékk annan bikar til eignar. Það er vel til fundið að Miðgarður, þjónustumiðstöð hverfisins, skuli halda utan um framkvæmd keppninnar. Vel var að keppninni staðið að hálfu Miðgarðs á allan hátt, glæsileg verðlaun og allir þátttakendur fengu ókeypis veitingar frá Ölgerðinni Egill Skallagrímsson. Umsjón með framkvæmdinni var í höndum Heru Hallberu Björnsdóttur frístundarráðgjafa Miðgarðs. Eins og áður segir var mótið mjög fjölmennt og líklegasta fjölmennasta skákmót ársins. Mikill skákáhugi er í skólum Grafarvogs og hefur það sýnt sig með góðri frammistöðu á öllum grunnskólamótum sem haldin eru.
A sveit Rimaskóla, fimm stúlkur og þrír drengir með verðlaunagripi mótsins. Á myndinni eru þær Ingibjörg Sigurþórsdóttir framkvæmdarstjóri Miðgarðs og Þorbjörg Lilja Þórsdóttir liðsstjóri Rimaskóla.
Skáksveit Húsaskóla vann þriðju verðlaun með því að sigra Foldaskóla í síðustu umferð.
B sveit Rimaskóla er skipuð miklum efniskrökkum í skáklistinni og lenti í öðru sæti á mótinu. Allir liðsmenn eru á 10. aldursári.
TILBOÐ Í SPÖNGINNI Mikið úrval af GABOR skóm á ótrúlegu verði. Einstakt tækifæri!
www.xena.is
SPÖNGINNI S: 587 0740
Ég um mig Einstök kona Fyrirtækið Ég um Mig heldur námskeið sem er í senn líkamsrækt og fyrirlestrar í sex vikur, tvisvar í viku. Einstaklingur fer í 1 kl tíma í líkamsrækt hjá Heilsuakademíunni í Egillshöll og fær létta næringu á eftir. Konan fær að kynnast ýmsum tegundum af líkamsrækt t.d. joga - þrek-sjálfsvörn ofl. Að lokinni líkamsrækt tekur við fyrirlestur í 1-1,5 tíma þar sem úrvals fagfólk fræðir konurnar um ýmsa þætti sem koma upp eftir skilnað. Námskeiðið ,,Ég um mig.’’: 1. Heilsuakademían Egilshöll: Leikfimi sem styrkir líkamann og veitir útrás. 2. Sálfræðingur: Gréta Jónsdóttir fer yfir sorgarferlið og sjálfsmat. 3. Prestur: Þórhallur Heimisson. Samskipti kynjanna eftir skilnað. 4. Lögfræðingur: Hrefna Friðriksdóttir, Barnaverndastofu. Grunnatriði um hjúskap, sambúð, skilnað, forsjá barna og umgengni. 5. Fjármálaráðgjafi: Garðar Björgvinsson, framkvæmdastjóri Fjármálaþjónustunnar ehf. Hvað hefur kona sem er með fjármálin í lagi tileinkað sér umfram þá sem eiga í erfiðleikum? 6. Uppeldisfræðingur: Ólöf Ásta Farestveit. Uppbygging á sjálfsmati barna. 7. Kvennaathvarfið:. Sigþrúður Guðmundsdóttir, fræðslu- og framkvæmdastýra í kvennaathvarfi. Mörk í samskiptum. 8. Stilisti: Anna og útlitið. Anna F. Gunnarsdóttir og Ósk Aradóttir. Klæðnaður og litgreining. 9. Snyrtistofan Mist: Gyða L. Kristinsdóttir, snyrtifræðingur og föðunarmeistari. Umhirða og snyrting. 10. Helga Braga leikkona: Daður fyrir þig. Það er svo gott fyrir sjálfsmyndina að kunna að daðra og taka við daðri. Njóta þess að vera til. 11. Edda Björgvinsdóttir leikkona: Jákvæðni, húmor og sjálfstyrking. Eitthvað sem allir þurfa. 12. Sigrun Nikulás, sölu- og markaðsstjóri Íslandsflökkurum. Náttúran og ég. Boðið verður upp á barnapössun á staðnum ásamt léttum kvöldverði fyrir börnin fyrir vægt verð. Fyrsta námskeiðið er 10. apríl. Allt eru þetta fagmenn á sínu sviði. Ekki er verið að hugsa námskeiðið sem endanlega lausn fyrir einstakar konur, öllu heldur sem góða byrjun á nýju og betra lífi. Þetta er tækifærið sem þú ert búin að bíða eftir. Skráning fer fram á egummig.is Gyða Laufey Kristinsdóttir og Magðalena Ósk Einarsdóttir.