Dagskrárrit / Programme Guide 2016

Page 48

SJÁLFBOÐALIÐAR

#REYKJAVIKPRIDE BIRNA HRÖNN BJÖRNSDÓTTIR Hvenær og hvers vegna gerðist þú fyrst sjálfboðaliði hjá Hinsegin dögum? Árið 2004 mætti ég fyrst á fund og hef verið með síðan. Gleðin og stoltið í kringum þessa hátíð var ótrúlegt aðdráttarafl, eiginlega ekki hægt að taka ekki þátt. Við hvaða verkefni hefurðu unnið? Vá! Svo mörg! Plötusnúður og ballhaldari, viðburðaskipulagning, greinaskrif, samfélagsmiðlar, hef tekið á móti erlendum gestum, unnið við stóra sviðið og á opnunarhátíð, við miðasölu, sölu á varningi og margt fleira. Einfalt svar. Hver er uppáhaldsminningin þín frá Hinsegin dögum? Fyrsta skiptið sem ég stóð á hliðarlínunni á Laugaveginum eftir að ég kom út úr skápnum. Ég skammaðist mín ekki lengur heldur dáðist að göngufólki og hlakkaði til að taka þátt sjálf.

48

SÉRHÆFUM OKKUR Í HREINSUN Á VIÐKVÆMUM FATNAÐI


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.