Ársskýrsla Rannís 2019

Page 47

ÚTGÁFU- OG KYNNINGARMÁL RANNÍS VEFURINN Mikil og stöðug umferð mælist jafnan ár hvert á vefsíðu Rannís, www.rannis.is. Gestir voru rúmlega 73.000 árið 2019 og heimsóknir töldust um 180.000. Enski hluti Rannís vefsins, en.rannis.is, fær einnig töluverðar heimsóknir. Árið 2019 voru gestir enska hlutans um 20.000 og heimsóknir rétt tæplega 28.000. Á vefsíðu Rannís geta notendur nálgast allar upplýsingar um starfsemi og þjónustu stofnunarinnar. Vefurinn er uppfærður daglega og á forsíðu eru reglulega settar inn nýjar fréttir, auglýsingar um umsóknarfresti og úthlutanir og upplýsingar um ýmsa viðburði á vegum Rannís. Áhersla er lögð á að leit sé skilvirk og aðgengileg fyrir notandann. Hægt er að kalla fram upplýsingar á einfaldan og öruggan hátt um alla sjóði og verkefni í umsýslu Rannís, næstu umsóknarfresti og þá viðburði sem eru á döfinni. Vefurinn er því öflug gátt inn í starfsemi stofnunarinnar. Nokkrir sérvefir tengjast ákveðnum verkefnum í umsýslu Rannís. Sem dæmi má nefna vef Vísindavöku (visindavaka.is) og vef Erasmus+ áætlunarinnar (erasmusplus.is). Erasmus+ vefurinn er systurvefur Rannís vefsins og deilir með honum leitarvél, fréttum og viðburðum. Gestir Erasmus+ síðunnar voru rúmlega 21.000 á árinu og heimsóknir á vefinn voru um 37.000.

Mikil og stöðug umferð mælist jafnan ár hvert á vefsíðu Rannís, en þar geta notendur vefsins nálgast allar upplýsingar um starfsemi stofnunarinnar og þá þjónustu sem hún veitir.

47


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Ársskýrsla Rannís 2019 by Rannís - Issuu