
5 minute read
ÚTGÁFU- OG KYNNINGARMÁL
by Rannís
RANNÍS VEFURINN
Mikil og stöðug umferð mælist jafnan ár hvert á vefsíðu Rannís, www.rannis.is. Gestir voru rúmlega 73.000 árið 2019 og heimsóknir töldust um 180.000. Enski hluti Rannís vefsins, en.rannis.is, fær einnig töluverðar heimsóknir. Árið 2019 voru gestir enska hlutans um 20.000 og heimsóknir rétt tæplega 28.000.
Á vefsíðu Rannís geta notendur nálgast allar upplýsingar um starfsemi og þjónustu stofnunarinnar. Vefurinn er uppfærður daglega og á forsíðu eru reglulega settar inn nýjar fréttir, auglýsingar um umsóknarfresti og úthlutanir og upplýsingar um ýmsa viðburði á vegum Rannís. Áhersla er lögð á að leit sé skilvirk og aðgengileg fyrir notandann. Hægt er að kalla fram upplýsingar á einfaldan og öruggan hátt um alla sjóði og verkefni í umsýslu Rannís, næstu umsóknarfresti og þá viðburði sem eru á döfinni. Vefurinn er því öflug gátt inn í starfsemi stofnunarinnar.
Nokkrir sérvefir tengjast ákveðnum verkefnum í umsýslu Rannís. Sem dæmi má nefna vef Vísindavöku (visindavaka.is) og vef Erasmus+ áætlunarinnar (erasmusplus.is). Erasmus+ vefurinn er systurvefur Rannís vefsins og deilir með honum leitarvél, fréttum og viðburðum. Gestir Erasmus+ síðunnar voru rúmlega 21.000 á árinu og heimsóknir á vefinn voru um 37.000.

Mikil og stöðug umferð mælist jafnan ár hvert
á vefsíðu Rannís, en þar geta notendur vefsins nálgast allar upplýsingar um starfsemi stofnunarinnar og þá þjónustu sem hún veitir.

MIÐLUN UPPLÝSINGA OG NÝSKÖPUN
Rafræn kynning og notkun samfélagsmiðla spila stórt hlutverk í samskipta- og kynningarstarfi Rannís. Samfélagsmiðlarnir Facebook og Instagram voru nýttir til að auka sýnileika, koma skilaboðum á framfæri, opna fyrir samskipti og styðja við virkni heimasíðunnar. Mest áhersla er þar lögð á Facebook en má þar helst nefna Facebooksíðu Rannís, en einnig aðrar Facebook-síður á vegum Rannís svo sem síður Tækniþróunarsjóðs, Nýsköpunarsjóðs námsmanna og Vísindavökunnar og einnig Erasmus+ Menntaáætlun ESB, Erasmus+ Evrópu unga fólksins, eTwinning Ísland, EPALE Ísland, Creative Europe Desk á Íslandi og Europass Ísland. Einnig voru beinar útsendingar á Facebook og tíst frá nokkrum viðburðum Rannís til dæmis Vísindavöku og Framadögum. Streymt var frá Vorfundi Tækniþróunarsjóðs, Nýsköpunarþingi, Rannsóknaþingi og kynningarfundi um Loftslagssjóð.
Reglulega eru sendar út tilkynningar á póstlista Rannís en hann telur um 3.000 manns sem skipt er niður í sjö ólíka markhópa eftir áhugasviðum áskrifenda. Hægt er að skrá sig á póstlistann á vefsíðu Rannís. Alls voru sendar út 50 tilkynningar á póstlistann árið 2019 eða rétt rúmlega ein á viku.
Á Facebook-síðu Rannís eru birtar ýmsar fréttir úr starfsemi Rannís, svo sem upplýsingar um viðburði, umsóknarfresti, námskeið, kynningar og verkefni sem framundan eru.
Á árinu var gerður fjöldi myndbanda sem voru ætluð til deilingar á samfélagsmiðlum. Í tengslum við Vísindavöku voru gerð myndbönd til kynningar á samfélagsmiðlum, auk þess sem viðburðarmyndband og stutt viðtöl voru tekin á Vísindavökunni sjálfri. Í tengslum við Erasmusdaga 2019 voru valin verkefni sem þóttu skara fram úr við að tryggja þátttöku þeirra sem hafa færri tækifæri í alþjóðasamstarfi og í samfélaginu í heild og myndbönd gerð fyrir hvert þeirra.Verkefnin komu úr fimm undirflokkum Erasmus+ áætlunarinnar og auk þess voru gerð myndbönd fyrir eTwinning og Evrópumerkið (Europan Language Label). Myndböndin voru frumsýnd við hátíðlega athöfn á Erasmusdögum og þau er einnig að finna á Erasmus+ Íslandi rásinni á youtube.com. Einnig voru gerð myndbönd í tengslum við Nýsköpunarþing þar sem frumkvöðlar sögðu frá reynslu sinni og hugmyndum um sjálfbærni, hönnun og nýsköpun.
Fjögur myndbönd voru sýnd á Nýsköpunarþingi

Sjö myndbönd voru gerð fyrir Erasmusdaga

Talsvert var gefið út af prentuðu kynningarefni fyrir viðburði og til að kynna sjóði og áætlanir. Stefna Rannís til 2025 var gefin út á prenti bæði á íslensku og ensku. Einnig kom Ársskýrsla Rannís fyrir árið 2018 út. Að auki voru reglulega birtar auglýsingar í blöðum og á vefmiðlum þar sem vakin var athygli á viðburðum og auglýst eftir umsóknum um styrki.
SÝNILEIKI Í FJÖLMIÐLUM
Starfsemi Rannís var vel sýnileg í fjölmiðlum árið 2019. Alls var fjallað um Rannís í yfir 1000 fréttum/greinum. Þar af voru 694 á netmiðlum, 283 í prentmiðlum og 26 í sjónvarpi/útvarpi. Þetta er töluverð aukning á umfjöllun í fjölmiðlum frá árinu áður, einkum á netmiðlum. Einnig fengu fréttir af Rannís talsverða útbreiðslu á Facebook. Vísað var í nafn Rannís tæplega 16.110 sinnum á árinu og er það um 44% aukning frá fyrra ári. Það sem helst vekur athygli fjölmiðla eru stórar úthlutanir til ákveðinna verkefna, svo sem úr Tækniþróunarsjóði, Rannsóknasjóði, Erasmus+, Barnamenningarsjóði Íslands, Jafnréttissjóði Íslands og úthlutun Listamannalauna. Í tengslum við það beinast þá sjónir fjölmiðla að framúrskarandi verkefnum sem unnið hafa styrki úr sjóðum sem heyra undir Rannís. Einnig vekja athygli viðburðir á vegum Rannís svo sem Vísindavaka, Rannsóknaþing, Nýsköpunarþing, Vorfundur Tækniþróunarsjóðs, Erasmusdagar og veiting viðurkenninga eins og Hvatningaverðlauna Vísinda- og tækniráðs, Viðurkenninga fyrir vísindamiðlun, Nýsköpunarverðlauna Íslands og Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands. Áhugavert er að fréttir sem sneru að Loftslagssjóði, sem er nýr sjóður í umsýslu Rannís, og loftslagsmálum fengu sérstaka athygli á árinu.
Árið 2019 vou nærri 27.000 heimsóknir á vefinn FaraBara.is

Upplýsingastofa um nám erlendis rekur vefsíðuna FaraBara.is ásamt Sambandi íslenskra námsmanna
erlendis (SÍNE). FaraBara veitir upplýsingar um námsmöguleika erlendis. Nærri 27.000 gestir heimsóttu síðuna á árinu sem er sami fjöldi og heimsótti síðuna árið áður en þá var metfjöldi heimsókna frá því vefsíðan var stofnuð. Einnig kynnti Rannís Upplýsingastofuna 27 sinnum í menntaskólum, háskólum og fleiri stofnunum á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Upplýsingastofan veitir upplýsingar og aðstoðar viðskiptavini í gegnum síma, tölvupóst og með því að taka á móti fólki í viðtöl. Samskiptin fara aðallega fram í gegnum tölvupóst. Algengustu spurningarnar sem bárust Upplýsingastofunni á árinu sneru að námi í Danmörku og Bretlandi og svo um TOEFL enskuprófið, en Upplýsingastofa um nám erlendis er ein af örfáum aðilum sem lánar æfingagögn fyrir prófið.

Viltu víkka sjóndeildarhringinn, auka færni þína og reynslu?
Kynntu þér allt það sem Erasmus+ og Nordplus styrktaráætlanirnar hafa upp á að bjóða.


Nánari upplýsingar má finna á: www.erasmusplus.is og www.nordplusonline.org
