4 minute read

ÁVARP FORSTÖÐUMANNS

Við útgáfu ársskýrslu Rannís að þessu sinni erum við að fást við krefjandi verkefni vegna heimsfaraldursins COVID-19. Við Íslendingar og heimsbyggðin öll stöndum frammi fyrir nýjum áskorunum, kreppu sem virðist dýpri en við þekkjum úr nútímasögunni. Vonandi verður hún skammvinn. Enn á ný erum við minnt á mikilvægi þess að byggja atvinnulíf á sem flestum stoðum til að leitast við að dreifa áhættu sem felst í einsleitni atvinnulífsins. Ferðaþjónustan sem verið hefur drifkrafturinn í hagvexti undanfarin ár, hefur á örskotsstundu misst flugið, en gera má ráð fyrir að afl hennar nái fyrri styrkleika á komandi árum.

Það er traustvekjandi að fylgjast með viðbrögðum stjórnvalda við aðstæðunum. Fjárfestingarátakið sem kynnt hefur verið, er okkur starfsfólki Rannís hvatning og eykur trúna á að batinn verði skjótur. Bætt verður verulega í sjóði og verkefni sem Rannís hefur umsýslu með um töluverðar upphæðir svo sem Rannsóknasjóð, Tækniþróunarsjóð og Innviðasjóð auk þess sem til dæmis Nýsköpunarsjóður námsmanna er stórefldur. Sjóðir sem veita stuðning til menningarmála svo sem Listamannalaun, styrkir til atvinnuleikhópa og Tónlistarsjóður fá jafnframt aukið fé til ráðstöfunar. Það er ánægjulegt að hafa tæki og tól til að geta brugðist við með skjótum hætti á þeim mikilvægu sviðum sem stjórnvöld leggja áherslu á nú á þessum fordæmalausu tímum. Áhersla á fjölbreytni, þróunar- og nýsköpunarstarf auk mikils skilnings á þýðingu og mikilvægi listastarfsemi er augljós.

Á miðju ári 2019 var kynnt ný stefna fyrir Rannís þar sem leitast er við að horfa fram til ársins 2025. Framtíðarsýn Rannís er að örva rannsóknir, nýsköpun, menntun og menningu. Þessir þættir gegna lykilhlutverki í að skapa hér á landi fjölbreyttara atvinnulíf sem byggir á sjálfbærni og ekki síst á hugviti og skapandi umhverfi. Stefnumarkandi áherslur í stefnu Rannís eru; að hafa samfélagsleg áhrif, bæta starfshætti, styrkja mannauðinn, styrkja alþjóðastarf og ímynd Rannís og verkefna sem stofnunin stendur fyrir. Í stefnunni eru sett fram rúmlega 20 markmið og þeim tengjast um 40 aðgerðir sem þegar er hafin vinna við og gert ráð fyrir að niðurstöður liggi fyrir á næstu þremur árum.

Stuðningur hins opinbera til þeirra greina sem Rannís styður við skiptist í meginatriðum í þrjá þætti: Innlenda samkeppnissjóði, réttindasjóði (skattfrádráttur rannsókna- og þróunarverkefna og fyrir erlenda sérfræðinga) og framlög til sjóða, það er alþjóðlegra samkeppnissjóða (evrópskra og norrænna) sem íslenskir aðilar geta sótt í. Allar eru þessar aðgerðir til að takast á við ákveðinn markaðsbrest. Mikilvægt er að litið sé á þessa þætti í samhengi. Skattendurgreiðsla nýtist best þeim sem hafa byggt upp þróunarumhverfi innanhúss eða í samstarfi við aðra, samkeppnissjóðir styðja við

rannsóknir, þróun og nýsköpun, annars vegar til að efla þann grunn sem er nauðsynleg viðspyrna fyrir framtíðina og jafnframt fyrir sprota- og nýsköpunarfyrirtæki sem eru að byggja upp þekkingu og viðskipti þar sem verulega er gengið á eigið fé við uppbyggingu framtíðarviðskipta. Gæta þarf að því að allir þessir þættir fái þá athygli sem þörf er á.

Alþjóðleg tengsl í öllu þessu starfi eru mikilvæg þegar litið er til þess að meta árangur af starfinu. Hér á landi er til staðar öflugt rannsókna- og þróunarstarf, hvort sem litið er til grunnrannsókna eða nýsköpunar og frumkvöðlastarfs. Mennta- og menningarstarf er ekki síður öflugt og er einstaklega ánægjulegt að sjá framúrskarandi fulltrúa landsins hljóta alþjóðlegar viðurkenningar. Það segir að hér er frjótt umhverfi sem elur af sér yfirburða fólk.

Í þessari ársskýrslu kemur fram hversu vel okkur gengur í Evrópusamstarfi, rannsóknar- og nýsköpunarstarfi, mennta- og menningarstarfi og sókn í skiptinám bæði til og frá landinu. Öflugt alþjóðlegt samstarf á öllum starfssviðum Rannís er mikilvægt, hvort sem er til að læra af og sækja þekkingu og reynslu, deila reynslu og þekkingu, komast á markað eða auðga og gera líf okkar innihaldsríkara.

Áhugavert er að líta til þess að framleiðni starfsfólks hefur aukist á undanförnum árum, umfang sjóða og aðgerða hefur stóraukist, en umfang vinnunnar hefur ekki vaxið í sama mæli. Framleiðni hefur því aukist mikið með aukinni upplýsingatækni og bættu skipulagi.

Það er ánægjulegt að líta til baka yfir árið og sjá hversu umfangsmikið og fjölbreytt starf Rannís er. Starfið er mikilvægt og fjármunir sem sýslað er með fara vaxandi með hverju árinu. Það sem skiptir mestu er að verkefnin og áhrif þeirra lúta að framtíðinni og styrkja getu okkar Íslendinga til að takast á við verkefni sem skipta miklu til framtíðar.

Hjá Rannís starfar öflugur samhentur hópur starfsmanna, sem lítur á það sem sitt verkefni að vera bakhjarl þeirra markhópa sem stofnunin þjónar og sýna lipurð og þjónustulund við framkvæmdina. Vilji og jákvæð viðbrögð starfsmanna nú á tímum heimsfaraldurs til að takast á við aukin verkefni er lofsverð.

Að lokum vil ég þakka starfsmönnum, samstarfsfólki og öðrum sem Rannís á í samskiptum við fyrir gott samstarf á árinu.

Hallgrímur Jónasson, forstöðumaður Rannís

This article is from: