ÁVARP FORSTÖÐUMANNS Við útgáfu ársskýrslu Rannís að þessu sinni erum við að fást við krefjandi verkefni vegna heimsfaraldursins COVID-19. Við Íslendingar og heimsbyggðin öll stöndum frammi fyrir nýjum áskorunum, kreppu sem virðist dýpri en við þekkjum úr nútímasögunni. Vonandi verður hún skammvinn. Enn á ný erum við minnt á mikilvægi þess að byggja atvinnulíf á sem flestum stoðum til að leitast við að dreifa áhættu sem felst í einsleitni atvinnulífsins. Ferðaþjónustan sem verið hefur drifkrafturinn í hagvexti undanfarin ár, hefur á örskotsstundu misst flugið, en gera má ráð fyrir að afl hennar nái fyrri styrkleika á komandi árum.
á nú á þessum fordæmalausu tímum. Áhersla á fjölbreytni, þróunar- og nýsköpunarstarf auk mikils skilnings á þýðingu og mikilvægi listastarfsemi er augljós. Á miðju ári 2019 var kynnt ný stefna fyrir Rannís þar sem leitast er við að horfa fram til ársins 2025. Framtíðarsýn Rannís er að örva rannsóknir, nýsköpun, menntun og menningu. Þessir þættir gegna lykilhlutverki í að skapa hér á landi fjölbreyttara atvinnulíf sem byggir á sjálfbærni og ekki síst á hugviti og skapandi umhverfi. Stefnumarkandi áherslur í stefnu Rannís eru; að hafa samfélagsleg áhrif, bæta starfshætti, styrkja mannauðinn, styrkja alþjóðastarf og ímynd Rannís og verkefna sem stofnunin stendur fyrir. Í stefnunni eru sett fram rúmlega 20 markmið og þeim tengjast um 40 aðgerðir sem þegar er hafin vinna við og gert ráð fyrir að niðurstöður liggi fyrir á næstu þremur árum.
Það er traustvekjandi að fylgjast með viðbrögðum stjórnvalda við aðstæðunum. Fjárfestingarátakið sem kynnt hefur verið, er okkur starfsfólki Rannís hvatning og eykur trúna á að batinn verði skjótur. Bætt verður verulega í sjóði og verkefni sem Rannís hefur umsýslu með um töluverðar upphæðir svo sem Rannsóknasjóð, Tækniþróunarsjóð og Innviðasjóð auk þess sem til dæmis Nýsköpunarsjóður námsmanna er stórefldur. Sjóðir sem veita stuðning til menningarmála svo sem Listamannalaun, styrkir til atvinnuleikhópa og Tónlistarsjóður fá jafnframt aukið fé til ráðstöfunar. Það er ánægjulegt að hafa tæki og tól til að geta brugðist við með skjótum hætti á þeim mikilvægu sviðum sem stjórnvöld leggja áherslu
Stuðningur hins opinbera til þeirra greina sem Rannís styður við skiptist í meginatriðum í þrjá þætti: Innlenda samkeppnissjóði, réttindasjóði (skattfrádráttur rannsókna- og þróunarverkefna og fyrir erlenda sérfræðinga) og framlög til sjóða, það er alþjóðlegra samkeppnissjóða (evrópskra og norrænna) sem íslenskir aðilar geta sótt í. Allar eru þessar aðgerðir til að takast á við ákveðinn markaðsbrest. Mikilvægt er að litið sé á þessa þætti í samhengi. Skattendurgreiðsla nýtist best þeim sem hafa byggt upp þróunarumhverfi innanhúss eða í samstarfi við aðra, samkeppnissjóðir styðja við
4