VIÐBURÐIR Formaður stjórnar Tækniþróunarsjóðs, Hrund Gunnsteinsdóttir og Sigurður Björnsson, sviðsstjóri rannsókna- og nýsköpunarsviðs Rannís stýrðu fundinum og buðu nýja styrkþega velkomna til samstarfs. Að dagskrá lokinni var boðið upp á lifandi tónlist og fundargestir áttu gott spjall saman um ýmsar hliðar nýsköpunar.
VORFUNDUR TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐS Vorfundir Tækniþróunarsjóðs eru einskonar uppskeruhátíð, þar sem fagnað er árangri allra sem koma að nýsköpun og tækniþróun. Vorfundur Tækniþróunarsjóðs 2019 var haldinn fimmtudaginn 6. júní í Iðnó, undir yfirskriftinni Hringrásarhagkerfið – sjálfbær nýsköpun. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðarog nýsköpunarráðherra, ávarpaði fundinn og Mikko Kosonen, forseti Sitra flutti erindið Finland as a Forerunner in the Circular Economy. Í kjölfarið var boðið upp á pallborðsumræður en þátttakendur í þeim voru Mikko Kosenen, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, Sævar Helgi Bragason, jarðfræðingur og umsjónarmaður sjónvarpsþáttarins Hvað höfum við gert?, Sigrún Hildur Jónsdóttir, einn af stofnendum Klappa og Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs.
ERASMUSDAGAR 2019 Landskrifstofa Erasmus+ á Íslandi hélt ráðstefnu um jöfn tækifæri föstudaginn 11. október í Menntaskólanum í Kópavogi. Ráðstefnan var hluti af Erasmusdögum sem haldnir voru víða um Evrópu til að vekja athygli á öllum þeim góðu verkefnum og starfi sem er styrkt af Erasmus+.
38