ALÞJÓÐLEGT SAMSTARF Alþjóðlegt samstarf á sviði rannsókna, nýsköpunar, menntunar og menningar er umfangsmikið í starfsemi Rannís og mikilvægur þáttur í daglegu starfi. Evrópskt og norrænt samstarf eru stærstur hluti af þessu alþjóðlega samstarfi og hefur hlutverk stofnunarinnar þróast í þá átt að verða helsti þjónustuaðilinn á Íslandi við formlegt alþjóðlegt samstarf. Stofnunin sinnir nú umsýslu með fimm helstu áætlunum sem Ísland tekur þátt í á grundvelli EES-samningsins:
vísindasamfélags í formi beinna styrkja til 236 verkefna úr hinum ýmsu undiráætlunum Horizon 2020. Árið 2019 reyndist vera metár í áætluninni til þessa, en á árinu hlutu 54 verkefni styrk að upphæð alls 28,5 milljónir evra, eða um 3,9 milljarða króna. Þetta þýðir að árangurshlutfall Íslands stóð í 20,18% í árslok, en meðaltalsárangurshlutfall heilt yfir áætlunina er um 12%. Sérstaklega er eftirtektarvert að fylgjast með velgengni íslenskra nýsköpunarfyrirtækja innan undiráætlunar sem ætluð er litlum og meðalstórum fyrirtækjum, 19 slík verkefni voru styrkt á árinu. Einnig reyndist árið árangursríkt á sviði orkurannsókna, auk þess sem jöfn og góð þátttaka var í áætlunum um umhverfismál annars vegar og hins vegar í áætlun um fæðuöryggi, landbúnað og sjávarútveg. Mikilvægt er að hafa í huga, að þrátt fyrir gott gengi íslenskra aðila þegar kemur að styrkveitingum úr alþjóðlegum samkeppnissjóðum eins og Horizon 2020 og fleiri, þá er það ekki síst aðgangur að öflugu samstarfi í rannsóknum og nýsköpun sem skiptir máli fyrir íslenskt samfélag og hefur jákvæð áhrif til lengri tíma.
Helstu áætlanir sem Ísland tekur þátt í á grundvelli EES-samningsins Horizon 2020 rannsókna- og nýsköpunaráætlun Evrópusambandsins Erasmus+ mennta-, æskulýðs- og íþróttaáætlun Evrópusambandsins European Solidarity Corps áætlun Evrópusambandsins um sjálfboðaliða- og samfélagsverkefni Creative Europe menningar- og kvikmyndaáætlun Evrópusambandsins Uppbyggingarsjóður EES rannsóknir og nýsköpun, menntun og menning
Erasmus+ Árið 2019 var metár hvað varðar fjármagn sem úthlutað var og um að ræða töluverða aukningu frá árinu áður. Framkvæmd áætlunarinnar gekk mjög vel og var góð eftirspurn í flestum verkefnaflokkum. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kom í eftirlitsheimsókn um mitt árið, en þetta er í fyrsta sinn á yfirstandandi tímabili sem slík heimsókn á sér stað. Farið var mjög ítarlega yfir starfsemi Landskrifstofu Erasmus+ á Íslandi og hvernig
EVRÓPSKAR SAMSTARFSÁÆTLANIR Horizon 2020 Íslenskt vísinda- og nýsköpunarsamfélag tekur virkan þátt í Horizon 2020 og hefur þátttaka heldur farið vaxandi. Frá því að áætlunin tók gildi árið 2014 og til loka ársins 2019 höfðu ríflega 105 milljónir evra, eða um 14,4 milljarðar íslenskra króna á meðaltalsgengi ársins, fengist til íslensks
30