1 minute read

Erfiðir gestir

Gestir geta stundum verið ósáttir og því verið æstir eða ókurteisir, fyrir því geta verið fjölmargar ástæður. Þá geta einnig komið gestir sem eru í annarlegu ástandi. Mikilvægt er að sýna yfirvegun og vera lausnamiðuð þegar slíkar aðstæður koma upp.

Gott er að hafa eftirfarandi þætti í huga til að auka færni, sjálfsaga og öryggi í samskiptum.

Advertisement

1. Við hlustum á gesti og þarfir þeirra.

2. Við látum ekki reiði eða ókurteisi gesta hafa áhrif á okkur í starfi.

a. Við tökum reiði ekki persónulega.

b. Við erum kurteis og höldum ró okkar.

3. Við reynum að setja okkur í spor gests og sýna skilning og virðingu.

4. Við komum til móts við gesti eins vel og hægt er.

5. Við breytum vandamálum í tækifæri.

6. Við munum að þetta er samvinna svo við hikum ekki við að fá samstarfsmann eða yfirmann til að taka við ef við treystum okkur ekki til að halda áfram eða brjóta upp ferlið.

a. Oft er gestur rólegri þegar næsti starfsmaður tekur við.

This article is from: