
4 minute read
JÓN JÓNSSON SAMDI LAG FYRIR FÓTBOLTAMÓTIN Í EYJUM
Hvernig stóð það til að þú samdir lag fyrir fótboltamótin í Vestmannaeyjum?

Advertisement

Fyrir rúmu ári síðan minntist Sigga Inga hjá ÍBV á það að gaman væri að gera lag sem myndi virka fyrir pæju- og peyjamótin. Við tókum það ekkert lengra en svo spilaði ég á kvöldvökunni í fyrra hjá strákunum og bullaði eitthvað lag á staðnum sem peyjarnir svo héldu bara áfram að öskursyngja. Þá var ekki aftur snúið og við Sigga ákváðum að ég myndi semja lag fyrir mótin í ár. Og að sjálfsögðu er viðlagið það sama og varð til á sviðinu síðasta sumar.
Hvert sóttir þú innblástur fyrir lagið?
Ég í raun lokaði bara augunum og sá sjálfan mig fyrir mér sem ungan gutta á þessu geggjaða móti. Svo fannst mér líka gaman að kíkja á lög sem hafa verið gerð fyrir HM í knattspyrnu. Það skýrir af hverju það eru svona margir kaflar þar sem við syngjum bara O - þannig geta jú allir sungið með, líka þeir sem kunna ekki texta. Pálmi Ragnar, vinur minn, sem m.a. annars gerði Power með Diljá hjálpaði mér að gera lagið svona stórt og kraftmikið enda hentar það vel á þessum stóru og kraftmiklu mótum.
Er eitthvað sem þú vilt segja að lokum?
Njótið þess að spila leikina en njótið þess líka að gera alls konar skemmtilegt með vinum ykkar og vinkonum. Styrkið böndin ykkar á milli og búið til minningar sem vara að eilífu. Takk fyrir að hlusta á lögin mín og vera svona skemmtileg þegar ég stíg á sviðið.
A Er Gefandi Og Gaman A Starfa
Me Skemmtilegu F Lki Sem Er
Tilb I A Gera Allt Fyrir F Lagi Sitt
Hafdís Eggerts ásamt Drífu komu aðeins seinna inn. Í upphafi þegar stelpumótið var að byrja árið 1990 hét það Pæjumót, en breytist síðan í gegnum tíðina og heitir í dag eins og allir þekkja TM mót.
Drífa Kristjánsdóttir var ein af þeim sem sat í kvennaráði Þórs þegar það var starfandi ásamt því að hafa líka verið í stjórn Pæjumótsins í mörg ár eins og TM mótið hét hér áður fyrr. Við fengum Drífu í smá spjall til þess að ræða aðeins hvernig skipulag og undirbúningur fyrir svona stór mót var hér áður fyrr og heyra um alla vinnuna sem var á bak við alla þessa gleði sem mótin eru.

Öflugt íþróttastarf
Eins og fyrr segir sat Drífa í kvennaráði þórs í þónokkur ár. Hún sagðist hafa verið í íþróttafélaginu Þór frá barnsaldri þar sem afi hennar var formaður og einn stofnenda félagsins. Síðar tók faðir hennar við sem formaður félagsins og þar af leiðandi voru allir í fjölskyldunni klæddir bláu og hvítu. Seinna fór hún sjálf að starfa í foreldrafélagi Þórs þegar tvíburarnir hennar fóru að æfa fótbolta með félaginu.
Böddi maðurinn hennar varð svo síðar framkvæmdastjóri félagsins. Hún segir að kvennaráðið hafi verið mjög öflugt og í upphafi sátu í því ráði Dollý, Sæsa Vídó, Edda, Eva, Hanna, Sirrý og Selma.
Drífa kom í stjórn Pæjumótsins árið 1993. Þar starfaði hún ásamt öðru frábæru fólki. Síðar bættust fleiri við þar sem mótið stækkaði mikið og fleiri fótboltalið vildu koma til eyja, það kom líka lið frá Færeyjum eitt árið. Þetta varð því fljótt mjög vinsælt mót. Það má segja að kvennaráðið hafi verið allt í öllu og segir Drífa að ráðið hafi verið fyrir alla flokka hjá stelpunum og fóru þær m.a. í keppnisferðir með þeim ásamt foreldrum. Ólíkt því sem er í dag þá var ekki mikil eftirfylgni vegna þess að það var ekki eins einfalt að ferðast hér áður fyrr. Stelpurnar hafi verið mjög duglegar sjálfar í fjáröflunum fyrir sitt lið. Í mörg ár var farið með þær á Gull og Silfurmótið í Kópavogi, Gothia Cup í Svíþjóð og fleiri mót. Þegar Drífa byrjaði að starfa í pæjumótinu í kringum 1993 var Pepsi að verða stærsti styrktaraðilinn. Í því ráði var Maggi Braga, Ingi og Maggi Sig, Dollý, Eva, Hanna, Sæsa Vídó, Selma og Hafdís. Það var mikil vinna fyrir mót og margir foreldrar sem voru duglegir að starfa með ráðinu. Hún segir að auðvitað er alltaf mikil vinna fyrir svona stór mót en áður fyrr fór mikill tími í hluti sem er hægt að leysa í dag með tölvusamskiptum og tölvuvinnu sem ekki var hér áður fyrr. Einnig hafi mótið verið fyrir fleiri flokka en það er í dag. Það var fyrir 2-6 flokk en breyttist síðan í færri flokka og fleiri lið.
Gott skipulag nauðsynlegt
Þegar kemur að skipulagningu og undirbúning fyrir svona stór mót segir Drífa að það sé að mörgu að hyggja. Allt þarf að vera á hreinu til þess að mótið gangi upp t.d. leikja og dómaraplan, ferðir til og frá Eyjum, röðun í skóla, matartíma fyrir liðin sem voru hér áður fyrr í félagsheimili Kiwanis, ferðir í siglingar og rútuferðir, fundi með fararstjórum, einnig þurfti að skipuleggja vaktir í skóla, morgun-, hádegis og kvöldmat. Hún segir að það hafi alltaf verið margir tilbúnir að taka vaktir sama hvort það voru foreldrar, ömmur, afar og margir í Eyjum tilbúnir að aðstoða þau til þess að láta allt ganga upp.
Hún segir að síðustu dagana fyrir mót hafi þau verið meira og minna í Þórsheimilinu langt fram á nótt að græja og gera. Ráðið fór síðan með Herjólfi til Þorlákshafnar daginn fyrir mót og tók á móti liðunum. Þar sem veðurspá var ekki alltaf hagstæð fyrir þau um miðjan Júní var oft mikil sjóveiki og margar af stelpunum höfðu aldrei farið á sjó. Mikil stemming hafi verið hjá þeim í upphafi ferðar sem dvínaði þegar leið á siglinguna. Ráðið hafi verið með klefa í Herjólfi til að ræða við fararstjóra, hvaða skóla ætti að gista í og klára greiðslur fyrir mótið. Gefið var út pæjumótsblað á hverju ári, þar kom fram allt skipulag á dagskrá mótsins ásamt leikjaplani og myndum af liðunum. Margar skemmtilegar myndir af liðunum og viðtöl við fararstjóra, ávarp bæjarstjóra og fleiri góðar greinar. Flokkarnir hafi séð um að dreifa þessu á hvert heimili í Eyjum.
Ótrúlega gefandi að taka þátt í svona starfi

En af hverju að leggja alla þessa vinnu á sig og það í sjálfboðavinnu? Drífa segir: ,,Það er gefandi og gaman að starfa með skemmtilegu fólki sem er tilbúið að gera allt fyrir félagið sitt. Ég veit að mótin ganga vel hjá ÍBV eftir að það var sameinað, en það er að þakka því fólki sem gefur sína vinnu fyrir félagið sitt“.
