1 minute read

BESTI STAÐUR Í HEIMI

HVAÐ ER AÐ FRÉTTA AF LIÐINU OG HVERNIG LEGGST SUMARIÐ Í ÞIG?

Allt virkilega gott að frétta af liðinu, liðið samanstendur núna af góðri breidd með leikmenn á frábærum aldri. Við erum búnir að æfa gríðarlega vel í allan vetur og munum koma í feykilega góðu standi inn í mótið. Sumarið leggst vel í mig og hópinn, við erum fullir tilhlökkunar að byrja mótið og stefnum á að halda dampinum áfram frá því í fyrra og gera töluvert betur í deild þeirra bestu en síðast þegar við vorum þar, við skuldum stuðningsmönnum og okkur sjálfum það.

Advertisement

SEM FYRIRLIÐI HVAÐA SKYLDUR OG ÁBYRGÐ HEFUR ÞÚ?

Það er að leiða með fordæmi og vera leikmaður sem aðrir geta leitað til. Það er að hlúa að mönnum ef illa gengur, halda mönnum á jörðinni þegar vel gengur og almennt að vera góð fyrirmynd fyrir iðkendur Fylkis. Fyrirliði er einnig ákveðin brú á milli leikmannahóps og þjálfara þar sem ýmsar upplýsingar koma frá þjálfara til leikmanna í gegnum fyrirliðann.

HVAÐ ER BEST AÐ BORÐA

FYRIR LEIK?

Hva

HUGSAR ÞÚ ÞEGAR ÞÚ HEYRIR ÁRBÆRINN?

Besti staður í heimi, okkar sveit í borg.

Fylla sig vel af kolvetnum og nóg af vatni. Ég borða pasta og eggjanúðlur nokkrum tímum fyrir hvern einasta leik.

HVAÐ ÚR FÓTBOLTANUM

TEKUR ÞÚ MEÐ ÞÉR ÚT Í LÍFIÐ

Það er margt, fyrsta sem kemur upp í hugann er allur vinskapurinn sem hefur myndast í gegnum tíðina. Einnig er fótboltinn frábær kennari á lífið og kenna manni að takast á við vonbrigði, töp og jafnframt að læra að sigra. Lífið er ekki dans á rósum og allir þurfa að takast á við alls konar verkefni á sinni lífsleið og því er gott að hafa gengið í gegnum ákveðna hluti í fótboltanum.

This article is from: