2 minute read

EIN STÓR FJÖLSKYLDA

HVAÐ ER AÐ FRÉTTA AF LIÐINU OG HVERNIG LEGGST SUMARIÐ Í ÞIG?

Allt gott að frétta af liðinu, vorum að koma heim úr geggjaðri æfingaferð á Campoamor í frábæru veðri og náðum að æfa vel og undirbúa okkur vel fyrir sumarið. Tímabilið leggst mjög vel í mig, við erum með ungan en mjög góðan hóp og ég tala fyrir fleiri en mig sjálfa þegar ég segi að ég hef aldrei verið í jafn samheldnum og góðum liðsanda. Við stefnum hátt og við getum ekki beðið eftir sumrinu.

Advertisement

HVAÐ HUGSAR ÞÚ ÞEGAR ÞÚ HEYRIR ÁRBÆRINN?

Það sem ég hugsa þegar ég heyri Árbærinn er bara ein stór fjölskylda. Fáir staðir sem er betra að vera á en í Árbænum.

SEM FYRIRLIÐI HVAÐA SKYLDUR OG ÁBYRGÐ HEFUR ÞÚ?

Fyrirliði þarf að ná vel til leikmanna og passa að öllum líði vel innan hópsins. Einnig er mikilvægt að fyrirliði drífi hópinn áfram í mótlæti og leiði hópinn í átt að markmiðunum.

Hva Er Best A Bor A Fyrir

LEIK?

Mér finnst best að borða hafragraut í morgunmat og svo oftast pasta og kjúkling yfir daginn. Svo er bananinn klukkutíma fyrir leik mikilvægur.

HVAÐ ÚR FÓTBOLTANUM TEKUR ÞÚ MEÐ ÞÉR ÚT Í LÍFIÐ?

Það að læra að vera hluti af einni heild sem er að vinna saman að markmiðum sínum er klárlega eitthvað sem maður tekur með sér út í lífið og nýtist manni í flest öllu.

HVAÐ ER UPPLEGGIÐ FYRIR MÓTIÐ OG KOMA MIKLAR

ÁHERSLUBREYTINGAR MEÐ NÝJUM ÞJÁLFARA?

Uppleggið fyrir mótið er fyrst og fremst að fara í alla leiki til þess að vinna og halda áfram að bæta okkur í því sem við erum að leggja upp með.

Það koma miklar, jákvæðar breytingar með nýju þjálfarateymi sem allir eru að vinna í að koma inn í sinn leik og það eru allir með fullan fókus á því að Fylkir á að spila í deild þeirra bestu!

HVAÐA ÞRJÁ LEIKMENN TÆKIR

ÞÚ MEÐ ÞÉR Á EYÐIEYJU OG

HVAÐA VERKFÆRI FRÁ WÜRTH

KÆMI MEÐ?

Ég tæki Eygló með þar sem ég veit að ég get ekki fengið leið á því að vera með henni. Svo tæki ég Söru og Tinnu Brá með því ég veit að þær saman munu finna einhverja leið til að ná í mat til að halda okkur góðum. Við mundum taka sög og hamar frá Würth með okkur, það ætti vonandi að nýtast okkur á einhvern hátt.

EF EKKI FÓTBOLTI HVAÐA ÍÞRÓTT MYNDIR ÞÚ STUNDA?

Ég er rosaleg í borðtennis þannig ég held ég væri góð þar ef ég væri ekki í fótbolta.

UPPÁHALDS MINNING Í FYLKISTREYJUNNI?

Ég held ég verði að segja tímabilið 2020 þar sem við lentum í 3. sæti í Pepsi Max deildinni en ég vona að ég muni segja tímabilið 2023 næst þegar ég verð spurð.

HVAÐA LAG SETUR ÞIG Í GÍRINN FYRIR LEIK?

Eitthvað með Stjórninni og ég er góð.

EINHVER LOKAORÐ TIL STUÐNINGSMANNA?

Vonandi koma sem flestir í blíðuna í stúkunni og styðja okkur í sumar. Við stefnum hátt og þurfum að fá ykkur með í það til þess að ná markmiðunum okkar. Hlökkum til að sjá ykkur appelsínugul í stúkunni, við lofum góðri skemmtun.

Eva Rut Ásþórsdóttir

Vörn/Miðja - Aldur: 21

Leikir/mörk: 51/9

Landsleikir: 23 (yngri)

Fyrri lið: Afturelding, HK/Víkingur @evarut_

Áfram Fylkir!

Gleði - Virðing - Metnaður

Evar Rut Ásþórsdóttir

fyrirliði kvennaliðs Fylkis

Eva Rut fyrirliði kvennaliðs Fylkis fagnar marki

Hlökkum

This article is from: