
1 minute read
GOTT ANDRÚMSLOFT
SEM NÝR ÞJÁLFARI FÉLAGSINS, HVERNIG HEFUR ÞÉR TEKIST AÐ
KOMA ÞÉR INN Í HLUTINA OG
Advertisement
HVERNIG LEGGST KOMANDI TÍMABIL Í ÞIG?
Það hefur gengið mjög vel, mikið af kraftmiklu og góðu fólki í kringum félagið og verið tekið afar vel á móti mér.Tímabilið leggst vel í mig. Spennandi tímabil framundan með einstaklega góðum og samheldnum hóp og öflugu þjálfarateymi.
VERÐA MIKLAR ÁHERSLU-
BREYTINGAR Á MILLI TÍMABILA
OG TELUR ÞÚ AÐ ÞÚ HAFIR NÁÐ
AÐ MÓTA LIÐIÐ EFTIR ÞÍNU
HÖFÐI ÞENNAN TÍMA SEM ÞÚ
Nú veit ég lítið um áherslur frá síðasta tímabili en veit þó að liðið var að spila agaðan varnarleik og hleypti inn fáum mörkum.
Ég hef hægt og bítandi verið að koma inn með mína hugmyndafræði, en vissulega þarf lengri tíma til að móta liðið.
HVERNIG HEFUR UNDIRBÚNINGUR FYRIR TÍMABILIÐ
GENGIÐ OG HVER ERU MARKMIÐ LIÐSINS FYRIR TÍMABILIÐ?
Undirbúningstímabilið hefur verið gott, stelpurnar hafa æft vel og ekki látið slæma veðráttu stoppa sig. Nokkrir leikmenn hafa átt í langvarandi meiðslum og eru að koma hægt og bítandi til baka og verða vonandi allar klárar þegar mótið fer af stað.
Það er ekkert launungarmál að Fylkir stefnir á að spila í deild þeirra bestu. Við gerum okkur aftur á móti fulla grein fyrir því að deildin verður sterk og nokkur lið sem munu berjast um efstu tvö sætin.
HVERNIG HEFUR ÞÉR LIÐIÐ
Í ÁRBÆNUM EFTIR AÐ HAFA
TEKIÐ VIÐ LIÐINU OG HVAÐ
HEFUR ÞÚ TEKIÐ MEÐ ÞÉR FRÁ
FYRRI STÖRFUM Í ÞJÁLFUN?
Mér hefur liðið mjög vel, það er einstaklega jákvætt og gott andrúmsloft hjá Fylki og hér er gott að vera.
Öll umgjörð í kringum félagið er til fyrirmyndar og mikið af góðu fólki að leggja sitt af mörkum til að koma Fylki í fremstu röð þar sem félagið á heima.
EINHVER LOKAORÐ TIL STUÐNINGSMANNA?
Sýnið stelpunum stuðning með því að mæta á völlinn í sumar. Áfram Fylkir.
Ég tek fyrst og fremst reynslu og þekkingu frá löngum þjálfaraferli sem nýtist liðinu vonandi sem allra best.
FÓTBOLTINN HEFUR ÞRÓAST

MIKIÐ UNDANFARIN ÁR OG
RÉÐ FYLKIR FYRR Í VETUR LEIK-

GREINANDA, ER ÞETTA MIKIL-
VÆGT FYRIR LIÐ TIL AÐ NÁ SEM
BESTUM ÁRANGRI?
Leikgreining er gríðarlega stór þáttur í knattspyrnuþjálfun í dag. Frábært að fá Michael í teymið okkar, hann er virkilega metnaðarfullur í sínu starfi og verður okkur afar mikilvægur á komandi tímabili.
#viðerumÁrbær
Áfram Fylkir!
Gleði - Virðing - Metnaður
Gunnar Magnús Jónsson þjálfari kvennaliðs Fylkis