
1 minute read
LÍÐUR VEL Í ÁRBÆNUM
HVERNIG LEGGST KOMANDI
TÍMABIL Í ÞIG OG HVAÐ TEKUR
Advertisement
ÞÚ MEÐ ÞÉR Í ÞETTA TÍMABIL
FRÁ SÍÐASTA TÍMABILI?
Tímabilið leggst mjög vel í mig. við tökum með okkur sjálfstraust og skipulag.
VERÐA MIKLAR ÁHERSLUBREYTINGAR Á MILLI TÍMABILA
OG TELUR ÞÚ AÐ ÞÚ HAFIR NÁÐ
AÐ MÓTA LIÐIÐ EFTIR ÞÍNU
HÖFÐI ÞENNAN TÍMA SEM ÞÚ
HEFUR VERIÐ HJÁ OKKUR?
Já það verða alltaf áherslubreytingar á milli tímabila þá sérstaklega þegar þú kemur úr Lengjudeild ínní Bestu deildina. Við gátum leyft okkur í fyrra að spila öflugan sóknarleik þar sem við tókum áhættur í spili. Í ár þurfum við að vera miklu agaðaðari í varnaleiknum og leggja meira á okkur þar. Allt tekur sinn tíma en við erum á réttri leið með liðið.
HVERNIG HEFUR UNDIRBÚNINGUR FYRIR TÍMABILIÐ
GENGIÐ OG HVER ERU MARKMIÐ LIÐSINS FYRIR TÍMABILIÐ?
Undirbúiningur hefur verið mjög góður, leikmenn hafa lagt mikið á sig i vetur. Við höfum æft mjög mikið og þetta hefur verið krefjandi fyrir alla. Markmið liðsins verða alltaf að leggja sig fram með Fylkishjartað að leiðarljósi og gera vel í öllum leikjum svo leikmenn og þjálfarar geti sagt eftir leiki “Ég lagði mig 100% fram”. Markmið liðsins eru líka að reyna alltaf að fara eins og langt og hægt er.
HVERNIG HEFUR ÞÉR LIÐIÐ
Í ÁRBÆNUM EFTIR AÐ HAFA
TEKIÐ VIÐ LIÐINU FYRIR EINU
OG HÁLFU ÁRI OG HVAÐ
HEFUR ÞÚ TEKIÐ MEÐ ÞÉR
FRÁ FYRRI STÖRFUM?
Mér hefur liðið mjög vel í Árbænum, frábært fólk í kringum Fylki sem stendur saman, bæði þegar vel gengur og þegar illa gengur. Við erum með frábæran leikmannahóp og frábært þjálfarateymi. Það sem ég hef tekið með mér úr fyrri
Það er mjög mikilvægt fyrir Fylki að hafa leikgreinanda eins og störfum er reynsla og þekking. Ég hef lært hvað liðsheild skiptir miklum sköpum í liðsíþróttum og að allir stefni í sömu átt, leikmenn styrkist í mótlætinu en umfram allt njóta og hafa gaman.
Mike. Hann er flottur og ljúfur drengur sem er með allt uppá 10. Hann auðveldar starf þjálfarans og hjálpar mikið með annarri sýn á hlutina.
FÓTBOLTINN HEFUR ÞRÓAST
MIKIÐ UNDANFARIN ÁR OG
RÉÐ FYLKIR FYRR Í VETUR LEIK-
GREINANDA, ER ÞETTA MIKILVÆGT FYRIR LIÐ TIL AÐ NÁ SEM BESTUM ÁRANGRI?
EINHVER LOKAORÐ TIL STUÐNINGSMANNA OKKAR?
Málum Árbæinn og Norðlingaholtið appelsínugult. Ykkar stuðningur skiptir öllu máli, komið og hvetjið strákana ykkar til dáða og myndum geggjaða stemningu, bæði á heimaleikjum sem á útileikjum.
Áfram Fylkir!

Gleði - Virðing - Metnaður
Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari karlaliðs Fylkis