

Traust

Endurskoðun og ráðgjöf ehf starfar á sviði
endurskoðunar og bókhalds ásamt skattaráðgjöf til fyrirtækja og einstaklinga.
Við leggjum metnað okkar í að veita faglega og umfram allt persónulega þjónustu.
Traust og persónuleg þjónusta
Endurskoðun og ráðgjöf ehf starfar á sviði
endurskoðunar og bókhalds ásamt skattaráðgjöf til fyrirtækja og einstaklinga.
Garðatorgi 7 • 210 Garðabær Sími 544 8989 • cpa@cpa.is • www.cpa.is
Við leggjum metnað okkar í að veita faglega og umfram allt persónulega þjónustu.



Garðatorgi 7 • 210 Garðabær
Sími 544 8989 • cpa@cpa.is • www.cpa.is
HÁTÍÐARKVEÐJA FORMANNS FYLKIS
Á liðnu ári hafa gleði og kraftur ríkt í starfi Íþróttafélagsins
Fylkis þótt ýmis mikilvæg mál hafi legið þungt á félaginu á árinu sem er að líða.
Nú líður senn að jólum og nýtt ár og nýjar áskoranir við sjóndeildarhringinn fyrir félagið. Nýjum áskorunum fylgja nýir sigrar fyrir íþróttafélagið Fylki, en hér er tæpt á því helsta sem er ofarlega í huga stjórnarmanna í aðalstjórn Fylkis.
Á íbúafundi í Árbæjarskóla, sem nýr borgarstjóri efndi til síðastliðið vor kom skýrlega fram að málefni Fylkis eru íbúum Ártúnsholts, Árbæjar, Seláss og Norðlingaholts mjög hugleikin. Borgarstjóri fékk þau skilaboð að borgin þyrfti að jafna aðstöðumál íþróttafélaga í borginni svo ekki væri verið að mismuna börnum og unglingum eftir búsetu.
Aðalstjórn Fylkis tekur undir áhyggjur íbúa varðandi aðstöðumál félagsins, enda liggur það fyrir að Fylkir hefur setið eftir þegar kemur að uppbyggingu íþróttamannvirkja á síðustu árum. Áhyggjur aðalstjórnar Fylkis snúa ekki að því að uppbygging eigi sér stað hjá öðrum félögum heldur lýtur að stefnuleysi borgaryfirvalda og því hve lítið er í raun að marka vilyrði og loforð borgarinnar um uppbyggingu íþróttamannvirkja, en dráttur á efndum borgarinnar hefur í raun leitt til mismunar gagnvart börnum og unglingum.
Árið 2017 gerðu Reykjavíkurborg og Fylkir samning um að félagið afhenti borginni landsvæði við Hraunbæ. Svæði þetta hafði þá verið æfingasvæði knattspyrnudeildar Fylkis í tugi ára. Fyrir landið átti Fylkir að fá hlutdeild í söluverði lóðanna og skyldi það ganga til að bæta aðstöðu þess. Jafnframt var í samningnum samið um aðalknattspyrnuvöll félagsins og gerð stúku við hann. Í kjölfar samningsins tók til starfa vinnuhópur skipaður fulltrúum Fylkis og Reykjavíkurborgar. Vinnuhópur þessi vann tillögur að uppbyggingu á aðstöðu Fylkis, sem lágu fyrir haustið 2019 og skilað var til borgaryfirvalda. Helstu tillögur voru þær að byggt yrði hús við Fylkisveg til að bæta félagsaðstöðu félagsins sem er nánast engin í dag ásamt aðstöðu knattspyrnudeildar varðandi búningsklefa o.fl. Hús þetta átti að vera risið árið 2020. Stækka eða byggja skyldi nýtt fimleikahús en af því hefur enn ekki orðið, þótt borgin hafi fyrir nokkrum árum sett stækkun þessa í efsta sæti varðandi uppbyggingu íþróttamannvirkja í borginni. Einnig kom fram í tillögunum að byggja þyrfti hálft knatthús fyrir árið 2022 ásamt byggingu nýs

íþróttahúss fyrir körfubolta, handbolta og blak sem skyldi rísa árið 2025. Engin þeirra mannvirkja sem komu fram í umræddri skýrslu hafa risið, hvað þá verið tekinn skóflustunga að þeim. Reykjavíkurborg hefur ekki farið eftir sínum eigin tillögum sem komu fram í skýrslunni og virt að vettugi ítrekaðar óskir aðalstjórnar Fylkis um að koma þessu tillögum í farveg. Á landinu sem Fylkir samdi um að láta borginni eftir hafa nú risið nokkur fjöleignahús með yfir 200 íbúðum. Reykjavíkurborg hefur þannig ekki aðeins fengið landið frá Fylki, heldur einnig fengið greiðslu fyrir það frá þriðja manni á meðan Fylkir og iðkendur íþrótta hjá félaginu sitja eftir með óviðunandi aðstöðu og aðstæður. Það eina sem gengið hefur eftir eru endurbætur á aðalknattspyrnuvelli Fylkis og bygging stúku við hann, þar sem félagsmenn og velunnarar Fylkis lögðu mikla vinnu fram án endurgjalds. Í fyrrnefndri skýrslu kom einnig fram að Fylkir myndi þjónusta nýtt Höfðahverfi þegar það myndi byggjast upp enda er það eina svæðið sem liggur vel að núverandi hverfi félagsins. Það er talið mjög mikilvægt fyrir fjölgreinafélag eins og Fylki að vera með íbúafjölda að lágmarki 20.000 til að hafa styrk og getu til að bjóða upp á gott og fjölbreytt starf. Borgin tók hins vegar þá ákvörðun að „nýtt“ íþróttafélag yrði sett inn á þetta svæði sem reyndar er starfandi á öðrum stað í borginni með 20.000 íbúa á bak við sig. Þetta félag væri þá komið með 40.000 manna hverfi meðan Fylkir er áfram með rúmlega 10.000. Þessu hefur aðalstjórn Fylkis mótmælt harðlega við Reykjavíkurborg enda mun þessi ákvörðun hafa mjög neikvæð áhrif á félagið til framtíðar. Þessi mál standa fyrir dyrum á næstu mánuðum og inn í næsta ár.
Ég óska öllum hverfisbúum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Björn Gíslason, formaður Fylkis
KÖRFUKNATTLEIKSDEILD FYLKIS
Sumarið er tíminn þar sem framfarir eiga sér stað, leikmenn vinna með veikleika sína og stoppa ekki. Við héldum fjögur sumarnámskeið í körfunni í sumar og um 100 krakkar tóku þátt. Næsta sumar er stefnt að því að bjóða uppá æfingar fyrir eldri krakka/ leikmenn með öðru sniði en hin hefðbundnu sumarnámskeið svo endilega fylgist með því.
Tímabilið 2023-24 var árangrsíkt bæði innan sem utan vallar. Inni á vellinum náðu þónokkrir aldurshópar að vinna sig uppí B deildina. 18 leikmenn Fylkis tóku þátt í úrvalsbúðum KKÍ, fleiri en nokkru sinni fyrr. Þjálfararnir okkur héldu áfram að mennta sig og tóku þátt í tuttugu KKÍ og ÍSÍ námskeiðum sem leikmenn okkar munu njóta góðs af en samstarf okkar við Dohop hefur gert þetta kleift og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.
Utan vallar hefur ný stjórn verið að finna sig í nýjum hlut verkum. Við höldum áfram að fjárfesta í framtíð körfuknattleiksdeildarinnar og í haust voru keyptar nýjar færanlegar körfur í Fylkishöllina sem gerir okkur kleift að hafa þjálfunina í Fylkishöllinni mun fjölbreyttari en áður.
Ferðasaga Stráka úr Fylki Körfubolta: Eurocamp ævintýri í Englandi.
Nýlega fóru strákar úr Fylki körfubolta í ógleymanlega ferð til Englands þar sem þeir tóku þátt í Eurocamp æfingabúðum í körfubolta.

Ævintýrið hófst snemma morguns þegar hópurinn mætti á Keflavíkurflugvöll ekki seinna en klukkan 5:00 til að tékka sig inn. Ferðalagið til Englands gekk vel og eftir lendingu klukkan 11:45 var strax farið í að ná í farangur og síðan tók við lestarferð til Portsmouth.
Í Portsmouth fengu strákarnir tækifæri til að slaka á, skoða umhverfið, og heimsækja verslunarmiðstöðvar. Kvöldmaturinn var tekinn á veitingastað og eftir það var farið í heimsókn í Tívoli sem er staðsett nálægt hótelinu. Fyrsta kvöldið var frábært og lagði grunninn að þeirri frábæru ferð sem framundan var.
Nýja tímabilið fer mjög vel af stað, hið fjórða eftir endurvakningu körfuknattleiksdeildarinnar. Nýjir þjálfarar hafa bæst í hópinn og framtíðin er björt!
Fylkir fór í fyrstu ferð klúbbsins til útlanda, þar sem sex leikmenn úr 9.-10. flokki fóru á Eurocamp í Portsmouth í ágúst 2024. Eurocamp búðirnar voru settar á laggirnar af Laszlo Nemeth og þrjár körfuboltabúðir hans í Dundee, Barrow og Portsmouth hafa verið starfræktar í 27 ár sem gerir þær að elstu körfuboltabúðum Evrópu.


Laugardagur 2. ágúst. Dagurinn hófst með morgunverði á hótelinu áður en hópurinn tók lest til London um klukkan 9:00. Dagurinn var tileinkaður skoðunarferðum um höfuðborgina þar sem strákarnir fengu að upplifa öll helstu kennileiti borgarinnar. Strákarnir uðru vitni að vinalegum mótmælum í hjarta London, en eftir góðan dag í London var aftur farið með lest til Portsmouth. Strákarnir voru smá spenntir yfir því að vera að fara í alþjóðlegar æfingabúðir í körfubolta.
Sunnudagur 4. ágúst Eftir morgunverð var farið í frekari verslunarleiðangra, ef einhver þurfti að kaupa vatn, eða orkustykki eða annan varning áður en æfingavikan hæfist. Um klukkan 16:00 byrjaði fjörið. Þar sem ,,prufur” fóru fram eða ,,Tryouts” þar sem þeir voru metnir eftir hvítum, gulum eða grænum hóp, eftir því hvar þeir voru staddir.




Eftir nokkurra tíma æfingu fékk hópurinn kvöldmat með öðrum þátttakendum áður en undirbúningur fyrir komandi daga hófst. Það kvöldið fóru allir snemma í háttinn til að vera vel úthvíldir fyrir fyrsta æfingadag.
Mánudagur 5. - Föstudagur 9. ágúst Það má segja að hvern dag frá mánudegi til föstudags var skipulagið svipað: Dagurinn hófst með morgunverði, og síðan var farið á æfingu sem stóð yfir frá klukkan
9:00 til 21:00. Fyrri hluta dagsins fengu strákarnir tækifæri til að klæðast eigin íþróttafötum en fyrir leiki dagsins var notaður búningur sem þeir fengu afhentan í búðunum. Eurocamp er einstakur viðburður þar sem hver leikmaður fær að æfa í hópi sem er sérstaklega valinn miðað við hæfileika þeirra, til að hámarka reynslu þeirra. Hver leikmaður tók þátt í þremur æfingum og spilaði tvo leiki á dag. Þegar vikunni leið, fengu sumir strákanna tækifæri til að spila fyrir All-Star liðið, og síðan fyrir International liðið þar sem þeir kepptu í tveimur leikjum á dag.



Laugardagurinn 10. ágúst Þann laugardag tóku strákarnir síðasta morgunverðinn á hótelinu áður en þeir lögðu af stað í lestina til flugvallarins. Ferðin var ógleymanleg í alla staði, þar sem strákarnir fengu ekki aðeins að bæta hæfileika sína á vellinum, heldur einnig að kynnast nýjum vinum og skapa minningar sem munu endast ævilangt.
Þakklæti og
Framtíðaráætlanir Yfirþjálfari Fylkis, David Patchell, gerði strákunum kleyft að taka þátt í þessu frábæra ver kefni. Fyrirhugað er að halda aftur út á næsta ári og þegar er nærri uppselt í þá ferð. Þetta var sannarlega einstakt tækifæri fyrir unga leikmenn til að þróa hæfileika sína og upplifa alþjóðlegt körfuboltaævintýri.
Meistaraflokkurinn er að byrja tímabilið betur en síðustu ár og er heldur betur að blanda sér í toppbarráttuna. Eftir tap í jöfnum leik í fyrsta leik tíma bilsins vann liðið næstu fjóra leiki og sýndi að liðið ætlar sér að reyna að fara upp um deild. Það bættist vel í hópinn í sumar en liðið vill meina að þetta sé stærsti meistaraflokkur landsins, 25 strákar eru búnir að vera að mæta á æfingar fyrstu mánuðina. Adam Elíasson sem þjálfaði liðið síðustu ár steig til hliðar og viljum við þakka honum fyrir vel unnin störf. Stjórnin réð Víking Goða Sigurðarson til að taka við liðinu. Hann er að koma aftur í þjálfun eftir nokkurra ára pásu en hann kemur úr Val.
Með þessari byrjun, fjárfestingum frá félaginu og metnaðinum sem er kominn í hópinn þá er liðið sannfært um að við getum farið að horfa upp í fyrstu deildina á allra næstu árum.
Það er orðið of langt síðan að Fylkir átti samkeppnishæft lið í körfubolta og nú er kominn hópur af fólki í liðið og í kringum
það sem er staðráðið í að breyta því!
Takið 10. april frá fyrir körfuboltafjáröflunina...Bingó!




ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ FYLKIR KYNNIR
KOMANDI
VIÐBURÐI UM JÓL OG ÁRAMÓT
FLUGELDASALA
Flugeldasala Fylkis og Hjálparsveitar skáta verður sem fyrr í nýju áhorfendastúkunni við Fylkisvöll dagana 28.-31. desember.
DESEMBER
20
ÍÞRÓTTAFÓLK FYLKIS
Jólakaffi fyrir félagsmenn 20. desember kl. 12:00 í Fylkishöll þar sem tilkynnt verður um val á íþróttafólki Fylkis fyrir árið 2024
Öll velkomin í “dásamlega” skötuveislu mánudaginn 23. desember frá kl. 11:30-14:00 í Fylkishöll. Verð 4.900 kr. SKÖTUVEISLA 23
DESEMBER
DESEMBER
30
FLUGELDABINGÓ
Allir velkomnir í Flugeldabingó Fylkis í umsjón hins gallharða stuðningsmanns Hjálmars Arnar. Bingóinu sem er tvískipt hefst kl. 17:00 fyrir fjölskyldur og 19:00 fyrir fullorðna í Fylkishöll.

Fylkisbrennan verður á sínum stað ásamt glæsilegri flugeldasýningu við Rauðavatn 31. desember.
Handknattleiksdeild Fylkis mun bjóða uppá að sækja jólatré heim í póstnúmeri 110. Nánari upplýsingar koma á heimasíðu okkar þegar nær dregur.
Herrakvöld Fylkis verður haldið föstudaginn 17. janúar. Veislustjóri, ræðumaður, málverkauppboð, frábærir skemmtikraftar, vel súrt og ekki súrt þorrahlaðborð. Flott í jólapakkann fyrir herrann.
Íþróttafélagið Fylkir óskar öllum félagsmönnum og fjölskyldum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
ATH: Allar nánari upplýsingar verða settar á heimasíðu Fylkis, www.fylkir.is þegar nær dregur
KARATEDEILD FYLKIS
Karatedeild Fylkis hefur verið að starfa í 37 ár og leggur áherslu á jákvæða og uppbyggilega þjálfun undir handleiðslu reynsluríkra þjálfara. Deildin er með þeim stærstu karatedeildum á Íslandi og geymir einnig stærsta karatesalinn á Íslandi og af Norðurlöndunum.
Skipulagðar æfingar í karate hófust haustið 1987 og var æft í félagsmiðstöðinni Ársel og var þá í upphafi æft karatestíllinn Sanku Do Kai. Formleg stofnun kartedeildar Fylkis var árið 1996 en deildin hafði starfað í skjóli aðalstjórnar um nokkurt skeið. Þetta ár var Fylkishöll byggð og starfsemi karatedeildar flutt þangað. Þá tók Halldór Svavarsson við þjálfun en hann var jafnframt landsliðsþjálfari og margfaldur Íslands- og Norðurlandameistari. Þá var skipt yfir í karatestílinn Goju Ryu. Pétur Freyr Ragnarsson tók síðan við yfir þjálfunina árið 2004 og lét af störfum í maí þessa árs. Núverandi formaður er Elías Guðni Guðnason.


Sportkarate stílinn sem við æfum núna var fyrst innleiddur formlega árið 2009 en hafði verið hægt og bítandi í innleiðingu frá 2004. Þetta er vegan þess að sama ár var sportkarate stofnað í Álaborg, Danmörku, af bræðrunum


































Allan og Tommy Busk ásamt Thomas Bjuring. Allan var landsliðsþjálfari Íslands frá 2002-2007. Sportkarate er ákveðin bylting í karateheiminum þar sem hann byggist eingöngu á kumite hluta karatesins, en karate skiptist í kata og kumite. Kata er gólfæfing þar sem barist er við ímyndaðan andstæðing en í kumite er keppt í bardaga við annan andstæðing. Þessir tveir hlutar hafa verið að fjarlægjast meira og meira í seinni tíð og er öll þjálfun orðin markvissari fyrir annaðhvort kata eða kumite. Andri Sveinsson fór út í nám til Álaborgar árið 2004 og til að æfa með Allan og félögum í Sportkarate við bestu hugsanlegu aðstæður. Andri var úti í fimm ár og tileinkaði sér þennan nýja stíl. Andri flutti svo heim eftir nám árið 2009 og hjálpaði við að innleiða Sportkarate í Fylki. Andri var jafnframt sá fyrsti ásamt einum öðrum í heiminum til að ná svarta beltinu í þessum nýja karatestíl. Núna í Fylki eru sex einstaklingar á Íslandi með svarta beltið í Sportkarate. Andri er fyrrum landsliðsþjálfari og þjálfar nú 6-9 ára hópinn okkar og elítuna okkar.
Haustið 2010 var bylting í húsnæðismálum karatedeildar og þá fengum við afhent Mesthúsið sem fékk heitið Fylkissel. Þangað flutti karatedeildin ásamt fimleikadeildinni. Þetta er án efa stærsti og flottasti karatesalur á öllum Norðurlöndunum og þótt víðar væri leitað.
Hægur en greinilegur stígandi hefur verið í barna- og unglingastarfi deildarinnar og er árángur á mótum mjög góður. Fylkir hefur verið íslandsmeistarar í kumite 8 ár í röð árin 2014-2022 og íslandsmeistarar unglinga í kumite 13 ár í röð 2001-2019. En árið 2023 og núna 2024 urðum við aftur íslandsmeistarar unglinga.
Karatedeildin á einnig frábært landsliðsfólk sem hefur og er að standa sig gríðarlega vel á alþjóðlegum mótum og stórmótum á borð við smáþjóðameistara, NM, EM, og HM. Og eigum við Norðurlandameistara og þó nokkra smáþjóðameistara

Litun og plokkun - Húðhreinsun - Andlitsbað - Sogæðanudd
BÍLASALA - SÍMI 517 4500






Handsnyrting - Fótsnyrting - Förðun - Nudd - Vax
SNYRTISTOFAN DIMMALIMM
Hraunbæ 102a, 110 Reykjavík Sími 557 5432 dimmalimm@dimmalimm.is www.dimmalimm.is

Einnig á karatedeildin fjóra Fylkiskarla ársins og þrjár Fylkiskonur ársins. Einnig á Fylkir karatekarl ársins 1998, 1999, 2000, 2001, 2006, 2015, 2018 og 2023 og svo karatekonu ársins 2017 og 2018.
Karatedeildin reynir að hafa þó nokkra viðburði til að koma saman og skemmta okkur, t.d. með pizzaveislum eftir mót, foreldraæfingar, útileigur, jólaböll, gistinætur og bíókvöld og einstaka keppnisferðir erlendis. Pizzaveislan er án efa sú vinsælasta. Deildin býður upp á æfingar fyrir alla aldurshópa! Það er sko aldrei of seint að byrja. Öll eru velkomin!
Sjálfstraust - Virðing - Félagsskapur fylkirkarate Sportkarate Iceland fylkirkarate










KNATTSPYRNUDEILD FYLKIS
Mikil gróska einkenndi starf knattspyrnudeildar Fylkis á árinu 2024. Á vegum Barna- og unglingaráðs eru nú u.þ.b. 620 iðkendur frá 8. flokki og upp í 2. flokk. Í samræmi við stefnu knattspyrnudeildar Fylkis fram til 2028 hefur verið haldið áfram að samtvinna uppeldishlutverk og afreksstarf Fylkis. Á árinu 2024 hefur náðst mjög marktækur árangur á þessum tveimur sviðum og sem dæmi má nefna eftirfarandi:
• Samskiptavandamál – marktækt minna áberandi en á síðustu árum
• Afreksstarf - u.þ.b. 24 iðkendur taka nú þátt í skipulögðu afreksstarfi
• 12 leikmenn Fylkis voru valin yngri landslið Íslands á árinu og 10 valin í úrvalshópa
• Fjölgun iðkenda – afgerandi skref stigin með samstarfi við leikskóla í Fylkishverfunum
• Bikarmót Fylkis – hafa aldrei gengið betur, sem dæmi tóku tæplega 2700 iðkendur þátt frá 22 félögum á Fylkissvæðinu í mótunum í október
Um árangur meistaraflokka Fylkis í Bestu deildum karla og kvenna er óþarft að fjölyrða hér. Sammerkt með báðum liðum er að frammistaða í mörgum leikjum var mjög öflug án þess þó að það skilaði þeim úrslitum sem stefnt var að. Niðurstaðan 2024 varð sú að bæði lið féllu niður í Lengjudeild þar sem hörð keppni bíður á næsta ári. Þessi niðurstaða er að sjálfsögðu vonbrigði en við viljum líka taka skýrt fram að við munum ekki dvelja við þessa niðurstöðu 2024 heldur erum við ákveðin í að draga af henni lærdóm. Undirbúningur fyrir næsta ár er hafinn og það er mikill hugur í okkar herbúðum. Þjálfari kvennaliðs Fylkis hefur ráðinn Bjarni Þórður Halldórsson og í teyminu verða auk Bjarna m.a. þau Elías Hlynur Lárusson, aðstoðarþjálfari, Sonny Lárusdóttir, markmannsþjálfari og Arnór Gauti Brynjólfsson, styrktarþjálfari.
Þjálfari karlaliðs Fylkis hefur verið ráðinn Árni Freyr Guðnason og í teyminu auk Árna verða m.a. Kristófer Sigurgeirsson sem hefur tekið að sér starf aðstoðarþjálfara auk annnarra verkefna og Arnór Gauti sem mun annast styrktarþjálfun.
Í lok október var aðalfundur knattspyrnudeildar Fylkis haldinn. Almennt getum við með stolti sagt að bæði á vettvangi stjórnar og í ráðunum þremur ríkir áfram stöðugleiki þar sem langsamlega flest fólk í stjórn og ráðum hefur gefið kost á sér áfram til sjálfboðaliða starfa fyrir knattspyrnudeild Fylkis. Auk þessa teljum við okkur sérlega lánsöm að nýtt fólk hefur nú gefið kost á sér til starfa fyrir knattspyrnudeildina.
Starf Knattspyrnudeildar Fylkis er mikilvægt fyrir samfélagið í Árbæ. Við leggjum áherslu á að framlag sjálfboðaliða er nauðsynlegt til að starfið geti haldið áfram að þróast og dafna. Við þökkum kærlega þeim sem stigið hafa til hliðar á undanförnum mánuðum fyrir þeirra framlag en heitum því að taka vel á móti nýju fólki. Við skorum á öll sem eru áhugasöm um starfsemi Fylkis að gefa færi á sér í gefandi og skemmtilegt starf knattspyrnudeildar. Margar hendur vinna létt verk.











Útgefandi og ábyrgð: Íþróttafélagið Fylkir - Ritnefnd: Hörður Guðjónsson og Kristján Gylfi Guðmundsson Auglýsingasöfnun: Öflun EHF - Ljósmyndir: Frá deildum félagsins. Umbrot: KT10 - Prentun: Litróf/Prenttækni
-
Gleði - Virðing - Metnaður
FLUGELDA SALA

HANDKNATTLEIKSDEILD FYLKIS
Öflugt barna- og unglingastarf er í handboltanum í Fylki en með rúmlega 200 iðkendum æfa reglulega undir handleiðslu reyndra þjálfara og yngri aðstoðarjálfara. Iðkendur deildarinnar eru frá fimm ára aldri en þegar iðkendur ganga upp í 4. flokk 14 ára þá tekur við samstarfsverkefni Fylkis og Fjölnis allt upp í meistaraflokk.
Æfingarnar deildarinnar fara fram í Fylkishöll og Norðlingaskóla. Þá æfa hin sameinuðu lið Fylkis og Fjölnis í Fylkishöll og Egilshöll.
Markmið handboltans í Fylkis er að bjóða upp á verkefni fyrir alla þá krakka sem vilja æfa handbolta. Áhersla er lögð á gleði og leik í yngstu flokkunum en aukin tækni og leiksskilningur þegar iðkendur eldast.
Yngri flokkar Fylkis taka þátt í nokkrum helgarmótum yfir veturinn. Eldri flokkar í samstarfinu spila í þremur lotum yfir veturinn þar sem leikið er ýmist á heimavelli eða útivelli.
Yngri flokka starf Fylkis síðustu ár hefur skilað upp leikmönnum í meistaraflokka Fjölnis karla og kvenna. Einnig hafa ungir og efnilegir leikmenn sem eru að koma upp úr starfi Fylkis verið kallaðir inn á landsliðsæfingar yngri landsliða.
Alli krakkar sem hafa áhuga á að prófa handbolta eru velkomnir á æfingar hjá Fylki. Hægt er að kynna sér æfingatöflurnar á heimasíðu félagsins.








Gleðileg jól og farsælt komandi ár.

Byggingavöruverslunin þín í Árbænum


Fegurð sem gefur gleði Jólatilboð

Gler Fín sýrumeðferð 19.000kr
Lúxus handsnyrting 15.000kr
Djúphreinsun andlitsbað 19.000kr
Gjafabréf besta gjöfin



RAFÍÞRÓTTADEILD FYLKIS
Rafíþróttadeild Fylkis verður áfram með öflugt starf á nýju ári í samstarfi við Esports Coaching Academy.
Rafíþróttir eru frábært tækifæri fyrir ungmenni til að efla sig sem einstaklinga og kynnast jafnöldrum í gegnum tölvuleikja áhugamálið.
Vetrarönn 2024 hefur gengið einstaklega vel hjá Rafíþróttadeild Fylkis. Við erum með fimm hópa og alls 40 iðkendur. Hóparnir eru eftirfarandi:
• Blandaður 8-10 ára, hópur 1 og hópur 2
• Blandaður 11-13 ára, hópur 1 og hópur 2
• Fortnite hópur 10-14 ára
Rafíþróttadeild Fylkis heldur úti hágæða rafíþróttastarfi sem uppfyllir alla þá gæðastaðla sem rafíþróttir standa fyrir.
Í lok september var þörf að bæta við tveimur nýjum hópum vegna mikillar aðsóknar, þar sem biðlistar voru farnir að myndast. Í kjölfarið var nýr þjálfari ráðinn sem sér nú um þessa tvo nýju hópa.
Á vetrarönninni hafa verið haldin tvö Kia rafíþróttamót, það fyrra haldið í Arena Gaming og það seinna haldið í
Next Level Gaming í Egilshöll, þar sem Ásmundur Einar Daðason, ráðherra mennta-, barna- og íþróttamála var viðstaddur og krýndi sigurvegara. Þessi reglulegu mót hafa afar jákvæð áhrif á iðkendur, foreldra og starfið almennt. Mikil ánægja ríkir með framlag Rafíþróttasambands Íslands við skipulag og framkvæmd mótanna. Rafíþróttirnar halda áfram að vaxa og fjölmörg mót eru framundan.
Skráning á vorönn hefst 12. desember á Sportabler, en æfingataflan verður birt fljótlega í framhaldinu ásamt æfingaplani fyrir hvern hóp.
Ekki missa af þessu tækifæri í hinum spennandi heimi rafíþrótta, vertu hluti af hreyfingu sem er sífellt að endurnýja framtíð rafíþrótta.
Markmið Rafíþróttadeildarinnar eru:
1. Að bjóða upp á skipulagt starf fyrir börn og unglinga þar sem þau geta stundað rafíþróttir undir handleiðslu þjálfara.
2. Að stuðla að jákvæðri tölvu upplifun.
3. Að hjálpa iðkendum að hugsa vel um líkama og sál.
4. Að efla félagslegan og siðferðislegan þroska.
5. Að iðkendur læri undirstöðuatriðin í þeim leik sem það æfir.
6. Að iðkendur hafi ánægju af rafíþróttum.
7. Að búa til atvinnufólk í faginu sem leyfa ekki tölvum að stjórna lífinu sínu.
8. Að efla félagsfærni og valdefla þau sem eru mikið ein heima að spila.
9. Að búa til félagsmenn.
10. Að vera með öflugt meistaraflokkastarf.
Nánari upplýsingar um starfsemi deildarinnar, hafðu samband á netfangið patrekur@eca.gg
















Miðasala

#viðerumÁrbær
Veislustjóri
Nánar síðar
Nánar síðar
Matseðill
Fjölmennum á glæsilegt og skemmtilegt HERRAKVÖLD
með góðum vinum og Fylkismönnum.
Verð aðeins
Borðapantanir á fylkir@fylkir.is
BLAKDEILD FYLKIS
Blakdeild Fylkis býður upp á reglulegar blakæfingar fyrir breiðan aldur eða allt frá 10 ára til áttræðs. Barna og unglingastarfið gengur vel hjá okkur. Rúmlega þrjátíu krakkar á aldrinum 10-16 ára æfa blak undir handleiðslu Valgeirs Valgeirssonar, sem er reyndur þjálfari og landsliðsmaður. Fylkir fór með U14 lið og U16 lið á fyrri hluta Íslandsmóts yngri flokka í Kópavogi í október síðastliðnum. Allir iðkendur stóðu sig með prýði og skemmtu sér vel á mótinu. Fyrirhugað er að fara á fimm önnur mót með öll liðin okkar í U12, U14 og U16 í vetur en mótin verða haldin víðs vegar um landið.
Markmiðið með fullorðinsblakinu er andleg og líkamleg lýðheilsa sem fæst með reglulegri hreyfingu í góðra vina hópi. Í fullorðins blakinu æfa um 80 manns á öllum aldri þar sem yngsti iðkandinn er 19 ára og sá elsti 75 ára. Fylkir heldur úti kvennaliði í 1. deild, 3. deild og 4. deild auk þriggja karlaliða í 1. deild, 2. deild og 3. deild. Metnaður og góður liðsandi einkennir öll liðin.
Bæði 1. deildar liðin okkar keppa staka leiki yfir allan veturinn í 7 liða deildum, ýmist á heimavelli eða útivelli. Karlaliðið keppir auk þess á þremur mótaröðum á Íslandsmóti BLÍ. Neðri deilda liðin okkar (2. og 3. deildar liðin) keppa á þremur mótaröðum á Íslandmóti BLÍ yfir veturinn sem eru haldin á höfuðborgarsvæðinu eða á hinum ýmsu stöðum úti á landi. Fyrsta mótið var í byrjun nóvember en hin verða um miðjan janúar og mars. Blakdeild Fylkis mun einmitt halda mótið fyrir 2. og 3. deild karla 14.-16. mars í Fylkishöllinni. Hvetjum við íbúa hverfisins að leggja leið sína í Fylkishöllina og fylgjast með leikjum þá helgi og taka inn fjörið sem fylgir blakmótum.
Fylkisliðin taka svo þátt í fjölmörgum skemmtimótum yfir veturinn auk þess við höldum sjálf jólamót 7. desember og svo vormót. Hápunkturinn er svo Öldungamótið sem verður haldið 1.-3. maí á næsta ári, hjá HK í Kórnum í Kópavogi, þar sem um 1.500 blakarar (sem náð hafa 30 ára aldursári) af öllu landinu taka þátt í þriggja daga
blakveislu. Allir eru velkomnir að kíkja við.
Strandblak á Íslandi hefur eflst mjög seinustu ár og æfa og keppa margir úr Fylki reglulega úti yfir sumartímann. Einnig halda margir strandblakstækninni við allt árið með æfingum inni í Sandkastalanum í Árbænum en þar eru einu innistrandblaksvellir landsins. Fylkir tekur þátt í uppbyggingu strandblaksins með því að halda eitt af strandblaksmótum sumarsins.
Mikil eftirspurn hefur verið eftir námskeiði/æfingum fyrir byrjendur í blaki síðustu ár og ákváðum við því að bjóða upp á byrjendablak í haust. Skemmst er frá því að segja að námskeiðið hefur slegið í gegn og æfa um 30 konur vikulega.
Heyrið endilega í okkur ef áhugi er fyrir að æfa blak og hvetjum við sérstaklega krakka og unglinga til að kíkja á æfingarnar í Árbæjarskóla en upplýsingar um æfingatöflur má finna inni á fylkir.is.


















FIMLEIKADEILD FYLKIS
Fimleikadeild Fylkis er á fleygi ferð á uppleið eftir margvísleg tjón.
Covid truflaði svolítið árin 2020 – 2022, mikið brottfall þá sem er skiljanlegt vegna hárra æfingagjalda, síðan kom flóð áramótin 2023 sem skilaði líka miklu brottfalli (líka skiljanlegt). Við verðum í nokkurn tíma að ná okkur eftir þessar hamfarir bæði fjárhagslega svo og iðkendalega séð.
En Iðkendur hjá Fimleikadeildinni eru rúmlega 600 sem við teljum gott miðað við allt og allt.
Iðkendur hafa staðið sig vel á mótum og náð fullt af þrepum, strákunum hefur verið að fjölga og hafa farið í unglingalandslið og í úrtöku hópa hjá FSÍ. Þrátt fyrir að eftir flóðið mikla þá er verri aðstaða til æfingar fyrir þá lengra komnu sem við erum að reyna að bæta úr. Ekki hafa tryggingarnar hjálpað til þar sem áhöld bæði ný og eldri voru afskrifuð næstum að fullu. Held það þekkist ekki erlendis. Eða það heyruð við hjá félögum okkar á hinum norðurlöndunum. En þá spýtum við bara í lófann og höldum ótrauð áfram með okkar frábæru iðkendum.
Íþróttaskólinn fyrir 3 – 5 ára börn er vel sóttur og varð strax fullbókað í alla 3 hópana sem eru á sunnudögum og rúmlega 60 börn á biðlista. Fyrir nokkrum árum bættum við við 3 hópnum og sjáum okkur ekki fært um það að bæta við 4 hópnum alla vega ekki eins og er þótt þörfin sé mikil. Ungbarnafimin fyrir börn 1 – 2 ára er líka ákaflega vinsælt og alltaf allir 3 hóparnir fullir og börn á biðlista, en þessi hópur hefur alveg slegið í gegn og önnur félög farin að gera það sama.
Parkour hóparnir hafa gengið vel og bara fjölgað hjá þessum hópum og erum við búin að opna sér stúlknaparkour. Hópfimleikarnir sem við opnuðum aftur fyrir á vorönninni eftir nokkra ára hlé, sýnir fram á það, að það er nauðsynlegt að hafa fjölbreytta hópa á öllum getustigum þar sem allir geta fundið sig hvort sem þau vilja keppa eða æfa sér til gamans. Einnig erum við búin að opna aftur fyrir fimleika fyrir fullorðn,a það er 16+ og hefur verið góð skráning þar inn.
Eldri borgara leikfimin hefur heldur betur slegið í gegn og er farin að brjóta alla múra í mætingum, og alltaf

HRAUNBÆR 121


verið að bætast í hópinn. Hópurinn æfir á mánudögum og miðvikudögum hópur 1 kl. 10:00 – 11:00 og hópur 2 kl. 11:00 – 12:00 og eru rúmlega 170 manns skráðir hjá okkur sem er alveg met og eru þetta virkilega góðir nemendur. Alltaf glaðir og kátir og gaman að vera innan um Betri borgarana okkar. Við ákváðum það í haust
eftir töluverða umræðu að opna fyrir 3 tímann sem er á föstudögum kl. 10:00 – 11:00 og eru tæplega 70 manns skráð í þann hóp.
Nú þegar árið 2024 er að ljúka ætlum vð að hafa ball fyrir
betri borgara 6 desember og er mjög flott dagskrá hjá okkur. Síðan er jólasýning Fimleikadeildar 9. og 10. desember og slúttum við síðan með jólabingó.
Stjórn fimleikadeildar og þjálfarar óska öllu Fylkisfólki svo og öðrum Gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári og hlökkum til að sjá alla okkar iðkendur á nýju ári.
Guðrún Ósk Jakobsdóttir formaður fimleikadeildar Fylkis. Nóvember 2024.











FYLKIR ER FYRIRMYNDARFÉLAG ÍSÍ
Íþróttafélagið Fylkir ásamt deildum þess fékk viðurkenningu frá ÍSÍ sem fyrirmyndarfélag ÍSÍ 27. september 2024. Félagið hefur unnið að þessu í nokkur ár og því mikið gleðiefni að fá þetta staðfest. Forsvarmenn félagsins eru sannfærðir um að þessi viðurkenning muni hjálpa félaginu og deildum þess í þeim verkefnum sem framundan eru.
Fyrirmyndarfélag ÍSÍ er gæðaverkefni íþróttahreyfingarinnar er snýr að íþróttastarfi. Íþróttafélög og deildir innan félaga geta sótt um viðurkenningu til ÍSÍ að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Þegar viðurkenning hefur verið veitt gildir hún í fjögur ár.

Viðurkenningunni fylgja ýmsir kostir. Handhafar hennar hafa samþykkt stefnur og viðbragðsáætlanir í flestum þeim málum er snúa að íþróttastarfi. Fjölbreytt markmið með starfinu liggja fyrir og það eitt og sér eykur líkur á því að allir sem koma að starfinu með einum eða öðrum hætti rói í sömu átt, félaginu til heilla og framfara.
Siðareglur liggja fyrir, persónuverndarstefna er klár auk stefna í fræðslu- og forvarnarmálum, jafnréttismálum, umhverfismálum og félagsmálum svo eitthvað sé nefnt. Benda má á að sveitarfélög gera í auknum mæli kröfur til íþróttafélaga um að hafa þessa viðurkenningu frá ÍSÍ.


Hérmá sjá forsvarsmenn félagsins ásamt iðkendum og fulltrúum frá ÍSÍ









kl. 11:30-14:00
Í FYLKISHÖLL
Öll velkomin í Skötuveislu
Fylkis, 23. desember.
Boðið verður upp á
sérlega ljúffenga skötu,
tindabykkju, saltfisk
og meðlæti á meðan
birgðir endast.
Fyrst koma - fyrst fá

4.900 kr.
Borðapantanir á fylkir@fylkir.is
eða hjá Sigrúnu í síma 824 0403
EFTIRTALDIR
AÐILAR SENDA ÍÞ RÓTTAF ÉLAGINU
FYLKI BARÁTTU- OG JÓLAKVEÐJUR!
Reykjavík
AB varahlutir ehf
Alda M Magnúsdóttir
Almenna bílaverkstæðið ehf
Apavatn ehf
Arctic Trucks Ísland ehf
Árbæjarblóm
BGI málarar ehf
Biobú ehf, lífrænar mjólkurvörur
Bíl - Pro ehf
Bílamálun Pálmars ehf
Bílasmiðurinn hf
Bjössi 16 ehf, vörubílaþjónusta
Dalbær sf
Daníel Bergur Gíslason
EI Framkvæmdir ehf
Endurskoðun VSK ehf
Fínka ehf, málningarverktakar
GB Tjónaviðgerðir ehf
Grettir, vatnskassar ehf
Guðmundur Pétursson
Gunnar Viggósson
H&S Rafverktakar ehf
Haukur Halldórsson
Hjá Ingvarsson ehf
Hrönn Ágústsdóttir
HS pípulagnir ehf
Höfðakaffi ehf
Ís-spor ehf
Jakob Halldórsson
Jón Magnússon
Karl Sigurðsson
Kemi ehf-www.kemi.is
Kjartan Stefánsson
Kristján Steingrímsson
Lyf og heilsa - við hlustum
Magni Jónsson
Meba úr og skart
MIO MIO ehf
Oddgeir Gylfason, tannlæknir
Olís hf
Ólafur Björgvin Pétursson
Ólafur Hans Grétarsson, tannlæknir
Ólafur Magnússon
Pétur Haukur Helgason
PuffinTravel ehf


Pökkun og flutningar ehf
Rafstjórn ehf
Rafviðgerðir ehf
Ragnar Páll Bjarnason
Ragnar W Hallbergsson
Reiðskóli Reykjavíkur
Rekstrarvörur ehf
Rut Jónsdóttir
S.Ó.S. Lagnir ehf
Sigrún Árnadóttir
Skjaldbaka ehf
Smur- og viðgerðarþjónustan ehf
Straumkul ehf
Tómas Kristinsson
Túnþökuþjónustan ehf
Valdimar Þ Valdimarsson
Z - brautir og gluggatjöld
Kópavogur
Alhliða pípulagnir sf
Jarðval sf
Lyfjaval ehf
Reykofninn ehf-www.reykofninn.is
Suðurverk hf
Zenus - sófar & gluggatjöld
Hafnarfjörður
Vélaverkstæði Hjalta Einars ehf
Grindavík
Ómar Hugi Egilsson
ENN BETRI HRAÐHLEÐSLA Á BÆJARHÁLSI
Það er þægilegt að ná sér í hraðhleðslu
með ON appi eða lykli. Nú geta 6 hlaðið
samtímis á Bæjarhálsi, hratt og vel.
