#VIÐERUMÁRBÆR
56
1967-2023
ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ
FYLKIR KYNNING Á STARFSEMI ALLRA DEILDA INNAN FÉLAGSINS
VETUR
2023-2024 GLEÐI - VIRÐING - METNAÐUR
Traust
og persónuleg þjónusta
Endurskoðun og ráðgjöf ehf starfar á sviði endurskoðunar og bókhalds ásamt skattaráðgjöf til fyrirtækja og einstaklinga.
Traust
Við leggjum metnað okkar í að veita faglega og umfram allt persónulega þjónustu.
og persónuleg þjónusta
Endurskoðun og ráðgjöf ehf starfar á sviði endurskoðunar og bókhalds ásamt skattaráðgjöf til fyrirtækja og einstaklinga. G a r ðmetnað a t o r g i 7okkar • 2 1 0í að G a veita r ð a b æfaglega r Við leggjum og S í m i 5 4 4 8 9 8 9 • c p a @ c p a . i s • w w w. c p a . i s umfram allt persónulega þjónustu.
FOSSBERG
Garðatorgi 7 • 210 Garðabær S í m i 5 4 4 8 9 8 9 • c p a @ c p a . i s • w w w. c p a . i s
IÐNAÐARVÖRUR OG VERKFÆRI
2
Íþróttafélagið Fylkir - Kynning deilda vetur 2023-2024
Gleði - Virðing - Metnaður
HUGLEIÐINGAR FORMANNS FYLKIS Aðstaðan er undirstöðuatriði Starf Íþróttafélagsins Fylkis hefur aldrei verið eins blómlegt og nú. Boðið er upp á starf fyrir nánast allan aldur og fjölbreytnin er mikil. Félagið er með starfsemi í sjö íþróttagreinum og mjög svo öflugt starf fyrir eldri borgara, sem margir hafa eflaust tekið eftir í fjölmiðlaumfjöllun undanfarnar vikur. Þær greinar sem Fylkir heldur nú úti eru blak, fimleikar, karate, handbolti, knattspyrna, körfubolti og rafíþróttir.
Forsendur íþróttastarfsins Forsenda þess að halda úti öflugu og fjölbreyttu starfi er að góð aðstaða sé til staðar. Aðeins þannig er iðkendum greiði gerður og möguleikar til nýliðunar auknir. Félagið hefur átt samstarfi við Reykjavíkurborg um uppbyggingu á aðstöðu félagsins. Vel hefur tekist til varðandi glæsilegan keppnisvöll félagsins í knattspyrnu svo dæmi séu nefnd, en betur má ef duga skal. Nú stefnir félagið á að stækka Fylkisselið, sem mun gjörbreyta aðstöðunni fyrir fimleika, karate, rafíþróttir og eldri borgara starf Fylkis. Árið 2017 undirritaði Íþróttafélagið Fylkir samning við Reykjavíkurborg um framtíðar uppbyggingu á aðstöðu félagsins. Í framhaldinu var settur á fót starfshópur Reykjavíkurborgar, Fylkis, ÍBR og ÍTR, sem hafði það að markmiði að greina stöðu félagsins og setja upp áætlun um uppbyggingu á aðstöðu Fylkis. Hópurinn skilaði skýrslu haustið 2019 þar sem fram kom að það þyrfti að fara í ákveðin verkefni til að félagið gæti haldið áfram að vaxa og þjónusta hverfisbúa með fullnægjandi hætti. Þar var helst rætt um byggingu félagsaðstöðuhúss sem þegar hefur verið hannað, m.a. með aðstöðu fyrir knattspyrnudeild félagsins, þ.e. búningsklefum, aðstöðu fyrir þjálfara, dómara o.fl. Núverandi aðstaða stenst ekki þær kröfur sem gerðar eru til slíkrar aðstöðu nú til dags. Með nýrri aðstöðu yrði einnig félagsheimili Fylkis, en í dag á Fylkir ekkert félagsheimili eins og öll önnur íþróttafélög. Þá hafa þreifingar verið um að koma fyrir bókasafni, sem staðsett verði í félag-
#viðerumÁrbær
saðstöðuhúsinu. Þannig yrði til íþrótta-og menningarmiðstöð hverfisins, en eins og öllum Árbæingum er kunnugt um er Árbæjarlaug í næsta nágrenni. Einnig var í skýrslunni talað um mikilvægi þess að byggja íþróttahús fyrir körfubolta- og blakdeild Fylkis og ásamt hálfu yfirbyggðu fjölnotahús, sem myndi koma sér vel fyrir knattspyrnuna m.a. Óhætt er að segja að nú sé þörfin á þessum innviðum orðin mikil og bind ég vonir við að á næstu mánuðum fari samstarf Fylkis og Reykjavíkurborgar á skrið. Að mínu mati er komið að Árbænum í uppbyggingaráformum borgarinnar hvað íþróttaðstöðu varðar.
Taktu þátt! Að lokum minni ég á að hjá Fylki er mjög öflugt sjálfboðaliðastarf og hvet ég þá sem hafa áhuga á að taka þá í skemmtilegu starfi að setja sig í samband við skrifstofu Fylkis eða senda tölvupóst á netfangið fylkir@fykir.is. Ég hvet foreldra sömuleiðis til að kynna sér starfsemi Fylkis á heimasíðu þess en einnig er hægt að senda fyrirspurnir á sama netfang. Jólahátíðin nálgast og ég minni á flugeldasöluna, Fylkisbrennuna, áramótabingóið og áramótakaffið, þar sem tilkynnt verður um val á íþróttafólki Fylkis 2023. Ég óska öllum hverfisbúum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Björn Gíslason, formaður Íþróttafélagsins Fylkis.
Íþróttafélagið Fylkir - Kynning deilda vetur 2023-2024
3
KÖRFUKNATTLEIKSDEILD FYLKIS Síðasta tímabili lauk með frábærum árangri og komst 10. flokkur m.a. í úrslit í sinni deild sem var frábær árangur á öðru starfsári eftir endurvakningu körfuknattleiksdeildarinnar. Eftir tímabilið gátu iðkendur einbeitt sér að því að bæta færni sína og hvergi betra tækifæri til þess en á fjórum sumarnámskeiðum sem við héldum um sumarið. Námskeiðin buðu upp á gestaþjálfara, stöðvar, keppnir, leiki og fleira. Iðkendur tóku vel í þetta og mættu 124 á námskeiðin. Við ætlum að halda áfram að byggja á þeim sterka grunni sem lagður hefur verið og stefnum að því að byggja upp starfið í gegnum yngri flokkana og fjárfesta þannig í framtíð deildarinnar. Deildin er á sínu þriðja tímabili og bættist við í vetur minnibolti 6-7 ára . Við erum að nálgast 100 iðkendur sem er mikilvægur áfangi fyrir körfuboltann hjá Fylki. Við tökum vel á móti hverjum sem er og hvetjum alla til að koma og prófa körfubolta! Þjálfarateymið hefur stækkað með vaxandi fjölda iðkenda og við státum af 4 nýjum og drífandi þjálfurum í ár sem auðga körfuboltastarfið ennþá frekar. Þeir eru metnaðarfullir og reyndir sem mun skila sér í enn frekari ánægju og getuaukningu hjá iðkendum.
Takið 22. mars frá fyrir fyrstu körfuboltafjáröflunina ...Bingó! 2022-2023: Fyrsta tímabilið hjá meistaraflokknum. Fyrsta árið hjá liðinu gekk nokkuð vel meðað við að hópurinn var að spila í fyrsta sinn saman. Hópurinn small vel saman og sáum við framfarir hjá liðinu seinni hluts tímabilsins.
2023-2024: Hópurinn er aðeins breyttur í ár og nokkrir nýir leikmenn komnir í liðið, flottur og efnilegur hópur. Við byrjuðum tímabilið ekki nógu sterkt en stefnum bara uppávið. Ég er mjög bjartsýnn fyrir framtíð meistaraflokks og er viss um að við munum byggja upp gott lið sem mun keppa í efstu deildunum í framtíðinni. Það verður spennandi að fylgjast með yngri iðkendum okkar næstu árin og sjá uppaldna Fylkiskrakka í meistaraflokki Fylkis í framtíðinni. Adam Elíasson og David Patchell þjálfarar
Fyrir stuttu tryggðum við okkur fyrsta styrktaraðilasamninginn deildarinnar með aðila sem að deilir markmiðum okkar og framtíðarsýn. Dohop mun verða aðalstyrktaraðili körfuboltans næstu tvö tímabil og hjálpa deildinni að vaxa og eflast. Elstu flokkarnir okkar eru að fara í sína fyrstu ferð til útlanda þegar sex leikmenn úr 9.-10. flokki munu fara til Eurocamp Portsmouth í ágúst 2024. Eurocamp búðirnar voru stofnaðar af Laszlo Nemeth og þrjár körfuboltabúðir hans í Dundee, Barrow og Portsmouth hafa verið starfræktar í 27 ár sem gerir þær að elstu körfuboltabúðum Evrópu. 4
Íþróttafélagið Fylkir - Kynning deilda vetur 2023-2024
Gleði - Virðing - Metnaður
#viðerumÁrbær
Íþróttafélagið Fylkir - Kynning deilda vetur 2023-2024
5
FIMLEIKADEILD FYLKIS Hjá fimleikadeild Fylkis fer fram öflugt starf fyrir iðkendur á öllum aldri. Deildin er með ungbarnafimi alla laugardagsmorgna fyrir börn 1–2 ára sem hefur heldur betur slegið í gegn og er alltaf langur biðlisti inn í hópana á hverri önn. Þrír hópar eru í boði og opnar fyrir skráningu í ungbarnafimi fyrir vorönn 2024, föstudaginn 15. desember. Námskeiðið er í 12 vikur og byrjar laugardaginn 13. janúar. Þjálfari í ungbarnafimi er Zsuzsanna Oláhné. Æfingar fyrir 3–5 ára er á sunnudagsmorgnum og eru þar þrír hópar í boði. Íþróttaskólinn er mjög vinsæll og er alltaf fullt í alla hópa og langur biðlisti. Kennslunni er skipt upp eftir aldri yngstu börnin er kl. 9:30, miðhópur kl. 10:30 og elstu börnin kl. 11:30. Æfingar byrja sunnudaginn 14. janúar 2024, opnað verður fyrir skráning föstudaginn 15. desember 2024. Þjálfarar eru Óðinn, Guðný og Guðrún Ósk. Börn geta byrjað í fimleikum 5 ára , síðasta árið í leikskóla. Deildin býður upp á marga hópa fyrir börn á öllum aldri og öllum getustigum. Ekki er lögð aðaláhersla á keppni í sumum hópum þannig að þau börn sem vilja vera í fimleikum en ekki keppa geta verið með. Deildin er með grunnhópa fyrir byrjendur, framhaldshópa, undirbúninghópa og keppnishópa. Hóparnir eru byggðir eins upp fyrir stráka og stelpur. Allar skráningar fyrir vorönn opnar föstudaginn 15. desember tekið er vel á móti öllum og þau sem aldrei hafa veirð í fimleikum er leyft að koma og prófa. Deildin byrjaði með hópfimleika á síðasta ári og er sá hópur alltaf að eflast þar sem mikil þörf er á að halda út hóp sem er með fjölbreyttar æfingar og henta öllum aldri. Fimleikar fyrir alla, læra og hafa gaman. Parkour er fyrir alla bæði stelpur og stráka. Parkourdeild Fylkis bíður upp á parkour æfingar allt frá 6 ára upp í 16 ára og eldri. Parkour er íþrótt sem gengur út á það að finna áskoranir í umhverfi sínu sem reyna á styrk, jafnvægi, lipurð og þor. Þessar áskoranir felast oft í hreyfingum á borð við 6
Íþróttafélagið Fylkir - Kynning deilda vetur 2023-2024
stökk, veggjahlaup, hindranastökk, sveiflur og nákvæmnislendingar. Parkour er fyrst og fremst utandyraíþrótt en gott er að æfa tækni fyrst innandyra í vernduðu umhverfi áður en farið er með æfingar út. Á parkour æfingum í Fylki leggja þjálfarar áherslu á gleði og árangur hvers einstaklings fyrir sig. Þar sem parkour er ekki keppnisíþrótt keppa iðkendur aðeins við sjálfa sig, fara á sínum hraða og er frekar gefið hrós fyrir þap að leggja sig fram fremur en fyrir að skara fram úr. Nemendur fá að að kynnast aðferðafræði parkour þegar kemur að því að komast yfir hindranir og styrkja með því líkama og sjálfstraust. Betri borgara leikfimin hefur heldur betur slegið í gegn hjá fimleikadeild Fylkis. Nú á haustönn eru 160 iðkendur skráðir og eru að meðaltali 110 manns að mæta á æfingar. Mjög mikil ánægða er hjá iðkendum og skilar það miklum framförum hjá þeim öllum. Deildin er með ball tvisvar á ári bæði á vorönn og haustönn. Kennt er í tveimur hópurm á mánudögum og miðvikudögum. Hópur 1 10:00 –11:00 og hópur 2 11:00 –12:00. Æfingar eru byggðar upp með styrktaræfingum, liðleika, jafnvægi Aerobic danssporum og endað með þreki og teygjum. Eftir æfingar erum við með kaffi og meðlæti og spjöllum saman yfir góðum kaffibolla. Laugardaginn 15. desember verður jólaskemmtun fyrir eldri borgara Fylkis. Allir eru velkomnir 65+ og verða miðar seldir í Fylkisseli þar sem leikfimin fer fram. Miðaverð er kr. 5.500 með mat, veislustjóra, skemmtikrafti og fordrykk. Og að sjálfsögðu verðum við með happddrætti með stórglæsilegum vinningum. Fimleikadeild Fylkis óskar öllum iðkendur, forráðamönnum og öðru Fylkisfólki gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári og hlökkum við til að sjá alla okkar iðkendur svo og nýja iðkendur á nýju ári. ÁFRAM FYLKIR. Guðrún Ósk Jakobsdóttir Formaður fimleikadeildar Fylkis.
Gleði - Virðing - Metnaður
#viðerumÁrbær
Íþróttafélagið Fylkir - Kynning deilda vetur 2023-2024
7
BÍLASALA - SÍMI 517 4500
Gleðilegt sumar! Litu n og
plokkun - Húðhreinsun - Andlitsbað - Sogæðanudd
Handsnyrting - Fótsnyrting - Förðun - Nudd - Vax
SNYRTISTOFAN DIMMALIMM Hraunbæ 102a, 110 Reykjavík Sími 557 5432 dimmalimm@dimmalimm.is www.dimmalimm.is
8
Íþróttafélagið Fylkir - Kynning deilda vetur 2023-2024
Gleði - Virðing - Metnaður
ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ FYLKIR KYNNIR
KOMANDI VIÐBURÐI UM JÓL OG ÁRAMÓT ER
DESEMB
28 29 30 31 FLUGELDASALA DESEMB
ER
DESEMBER
DESEMBER
Flugeldasala Fylkis og Hjálparsveitar skáta verður sem fyrr í nýju áhorfendastúkunni við Fylkisvöll dagana 28.-31. desember. DESEMB
23
ER
DESEMB
29
ER
DESEMB
31
ER
DESEMB
31
ER
JANÚAR
7
JANÚAR
19
SKÖTUVEISLA
Öll velkomin í “dásamlega” skötuveislu. Verð og aðrar upplýsingar koma á fylkir.is þegar nær dregur.
FLUGELDABINGÓ
Allir velkomnir í Flugeldabingó Fylkis í umsjón hins gallharða stuðningsmanns Hjálmars Arnar sem hefst kl. 17:00 í Fylkishöll. Að þessu sinni er Bingóinu tvískipt fyrir börn og fullorðna.
ÍÞRÓTTAFÓLK FYLKIS
Áramótakaffi fyrir félagsmenn 31. desember kl. 12:00 í Fylkishöll þar sem tilkynnt verður um val á íþróttafólki Fylkis fyrir árið 2022
FYLKISBRENNAN
Fylkisbrennan verður á sínum stað ásamt glæsilegri flugeldasýningu við Rauðavatn 31. desember.
JÓLATRÉÐ SÓTT
Handknattleiksdeild Fylkis mun bjóða uppá að sækja jólatré heim í póstnúmeri 110. Nánari upplýsingar koma á heimasíðu okkar þegar nær dregur.
HERRAKVÖLD FYLKIS
Herrakvöld Fylkis verður haldið föstudaginn 19. janúar. Veislustjóri, ræðumaður, málverkauppboð, frábærir skemmtikraftar, vel súrt og ekki súrt þorrahlaðborð.
Flott í jólapakkann fyrir herrann.
Íþróttafélagið Fylkir óskar öllum félagsmönnum og fjölskyldum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. ATH: Allar nánari upplýsingar verða settar á heimasíðu Fylkis, www.fylkir.is þegar nær dregur
www.fylkir.is
KARATEDEILD FYLKIS Karatedeild Fylkis hefur verið að starfa í 36 ár og leggur áherslu á jákvæða og uppbyggilega þjálfun undir handleiðslu reynsluríkra þjálfara. Deildin er með þeim stærstu karatedeildum á Íslandi og geymir einnig stærsta karatesalinn á Íslandi og af Norðurlöndunum. Skipulagðar æfingar í Karate hófust haustið 1987 og var æft í félagsmiðstöðinni Ársel og var þá í upphafi æft karatestíllinn Sanku Do Kai. Formleg stofnun kartedeildar Fylkis var árið 1996 en deildin hafði starfað í skjóli aðalstjórnar um nokkurt skeið. Þetta ár var Fylkishöll byggð og starfsemi karatedeildar flutt þangað. Þá tók Halldór Svavarsson við þjálfun en hann var jafnframt landsliðsþjálfari og margfaldur Íslands- og Norðurlandameistari. Þá var skipt yfir í karatestílinn Goju Ryu. Pétur Freyr Ragnarsson tók síðan við yfirþjálfun árið 2004 og lét af störfum í maí á þessu ári. Núverandi formaður er Haraldur Guðmundsson. Sportkarate stílinn sem við æfum núna var fyrst innleiddur formlega árið 2009 en hafði verið hægt og bítandi í innleiðingu frá 2004. Þetta er vegna þess að sama ár var sportkarate stofnað í Álaborg, Danmörku, af bræðrunum Allan og Tommy Busk ásamt Thomas Bjuring. Allan var landsliðsþjálfari Íslands frá 2002-2007. Sportkarate er ákveðin bylting í karateheiminum þar sem hann byggist eingöngu á Kumite-hluta karatesins, en karate skiptist í Kata og Kumite. Kata er gólfæfing þar sem barist er við ímyndaðan andstæðing en í Kumite er barist við andstæðing. Þessir tveir hlutar hafa verið að fjarlægast meira og meira í seinni tíð og er öll þjálfun orðin markvissari fyrir annaðhvort Kata eða Kumite. Andri Sveinsson fór út í nám til Álaborgar árið 2004 og til að æfa með Allan og félögum í Sportkarate við bestu hugsanlegu aðstæður. Andri var úti í fimm ár og tileinkaði sér þennan nýja stíl. Andri flutti svo heim eftir nám árið 2009 og hjálpaði við að innleiða Sportkarate í Fylki. Andri var jafnframt sá fyrsti ásamt einum öðrum í heiminum til að ná svarta beltinu í þessum nýja karatestíl. 10
Íþróttafélagið Fylkir - Kynning deilda vetur 2023-2024
Núna í Fylki eru fimm einstaklingar á Íslandi með svarta beltið í Sportkarate. Andri er fyrrum landsliðsþjálfari og þjálfar nú 6-9 ára hópinn okkar og elítuna okkar. Haustið 2010 var bylting í húsnæðismálum karatedeildar og þá fengum við afhent Mesthúsið sem fékk heitið Fylkissel. Þangað flutti karatedeildin ásamt fimleikadeildinni. Þetta er án efa stærsti og flottasti karatesalur á öllum Norðurlöndunum og þótt víðar væri leitað. Hægur en greinilegur stígandi hefur verið í barna- og unglingastarfi deildarinnar og er árangur á mótum mjög góður. Fylkir hefur verið íslandsmeistarar í Kumite 8 ár í röð og íslandsmeistarar unglinga í Kumite 13 ár í röð þar til 2021. En í ár tókst okkur að taka þann titil til baka. Karatedeildin á einnig frábært landsliðsfólk sem hefur og er að standa sig gríðarlega vel á alþjóðlegum mótum og stórmótum á borð við smáþjóðaleika, NM, EM, og HM. Einnig eigum við Norðurlandameistara og þó nokkra smáþjóðameistara. Einnig á karatedeildin þrjá Fylkiskarla ársins og tvær Fylkiskonur ársins. Einnig á Fylkir karatekarl ársins 1998,1999, 2000, 2001, 2006, 2015 og 2018 og svo karatekonu ársins 2017 og 2018. Karatedeildin reynir að hafa þó nokkra viðburði til að koma saman og skemmta okkur, t.d. með pizzaveislum eftir mót, foreldraæfingar, útileigur, jólaböll, gistinætur og bíókvöld og einstaka keppnisferðir erlendis. Pizzaveislan er án efa sú vinsælasta. Deildin býður upp á æfingar fyrir alla aldurshópa! Það er sko aldrei of seint að byrja.
Okkar hópar eru: ∙ ∙ ∙ ∙
Mini karate (4-5 ára) ∙ 6-9 ára byrjendur 6-9 ára framhald ∙ 10-12 ára Elite (keppnishópur 13 ára og eldri) 18 ára og eldri (fullorðinshópur)
Öll eru velkomin!
Gleði - Virðing - Metnaður
#viðerumÁrbær
Íþróttafélagið Fylkir - Kynning deilda vetur 2023-2024
11
KNATTSPYRNUDEILD FYLKIS Rekstur Knattspyrnudeildar Fylkis gekk í heildina afar vel á árinu 2023. Stjórn deildarinnar hélt áfram á sömu braut og lagt var upp með á fyrra ári þar sem áhersla var lögð á skilvirkni í starfsemi deildarinnar, samfélagslega ábyrgð, fjárhagslega sjálfbærni og að gera starf Fylkis enn sýnilegra en verið hefur fyrir hverfisbúa og stuðningsmenn félagsins. Ráðist var í átak í upphafi ársins með það markmið að fjölga styrktaraðilum og árskortahöfum deildarinnar. Tilgangurinn með þessari vinnu var að breikka tekjugrunn deildarinnar og að auka tekjurnar. Strax í upphafi verkefnisins skynjuðum við mikinn velvilja í garð Fylkis sem meðal annars skilaði okkur samstarfssamningum við rúmlega 40 fyrirtæki sem studdu Fylki í fyrsta sinn á árinu 2023. Þetta er eitt dæmi af mörgum þar sem við beittum okkur á árinu við að auka tekjur og að halda aftur af aukningu útgjalda. Með samstilltu átaki hefur okkur í heildina tekist að snúa við blaðinu frá árinu 2022 þegar rekstur deildarinnar var mjög þungur. Vinnan heldur áfram og undirbúningur fyrir árið 2024 er á fullri ferð.
12
í lok árs eru það 12 stelpur og 12 strákar sem taka þátt í afreksstarfinu en hópurinn tekur reglulega breytingum. Á árinu voru 16 yngri iðkendur Fylkis valin í landslið og úrvalshópa sem er sérlega ánægjulegt. Eitt af allra stærstu verkefnum BUR á árinu voru mót, Gleðistjörnumót Fylkis, fyrir unga iðkendur sem haldin voru á Fylkissvæðinu í október. Mótin drógu að sér u.þ.b. 2.500 iðkendur og 5.000 forráðamenn. Við erum afar stolt af framkvæmd þessara móta sem framhald verður á. Meistaraflokkur karla tók þátt í Bestu deildinni 2023 eftir að hafa sigrað Lengjudeildina 2022. Öllu Fylkisfólki er ljóst að okkar lið tryggði sér endanlega áframhaldandi veru í Bestu deildinni með glæsilegum 5-1 sigri gegn Fram á Würth-vellinum í byrjun október. Umgjörðin á þessum leik var Fylki til mikils sóma, Fylkisfólk fjölmennti á þennan leik og studdi okkar lið kröftuglega eins og í öðrum leikjum undir lok mótsins. Eftir mikil meiðsli lykilmanna og mótlæti sem Fylkir varð fyrir fyrr á tímabilinu þá er niðurstaðan ásættanleg en að sjálfsögðu stefnum við á að gera enn betur á næsta ári.
Starfsemi Barna- og unglingaráðs (BUR) Fylkis gekk vel á árinu þar sem u.þ.b. 550 iðkendur sóttu æfingar hjá deildinni. Starfsemin er gríðarlega umsvifamikil og sem dæmi má nefna að á vegum BUR voru á árinu u.þ.b. 3.000 skipulagðar æfingar og 550 mótsleikir. Við deildina starfa 20 vel menntaðir þjálfarar sem nutu aðstoðar u.þ.b. 10 efnilegra aðstoðarþjálfara. Skipulega hefur verið unnið að því markmiði að auka vellíðan og bæta samskipti iðkenda. Þessi vinna hefur gengið vel og áfram verður haldið á sömu braut. Afreksstarfi deildarinnar var hleypt af stokkunum fyrir rúmum tveimur árum og starfið er enn í mótun. Kjarninn í afreksstarfinu er að með því verkefni erum við að bjóða upp á einstaklingsmiðaða þjálfun fyrir okkar efnilegustu iðkendur á aldrinum 14 – 19 ára. Núna
Meistaraflokkur kvenna endaði í öðru sæti Lengjudeildarinnar, aðeins einu stigi á eftir sigurvegurunum. Fylkisliðið, leikmenn og allt teymið í kringum liðið, sýndi gríðarlega þrautseigju í sumar þar sem keppnin í Lengjudeildinni var mjög jöfn og spennandi. Okkar lið sýndi miklar framfarir frá árinu 2022 og leikurinn gegn Gróttu á Seltjarnarnesi í síðustu umferðinni var stórglæsilegur, bæði var frammistaða liðsins glæsileg en sama gildir um stuðninginn úr stúkunni. Það er því mikil tilhlökkun fyrir Bestu deildunum 2024 meðal knattspyrnufólks Fylkis þar sem Fylkir verður eitt sex félaga sem mun eiga lið meðal þeirra bestu á báðum meistaraflokkum.
Íþróttafélagið Fylkir - Kynning deilda vetur 2023-2024
Gleði - Virðing - Metnaður
Á síðasta ári hófst vinna að stefnumótun Knattspyrnudeildar Fylkis til 2028. Stefnan sjálf og helstu markmið voru kynnt snemma á árinu. Þau sem komu að skilgreiningu markmiðanna (25 talsins) og árangursviðmiða (33 talsins) á fyrsta árinu í þessari vegferð funduðu í nóvember þar sem lagt var mat á frammistöðuna. Skemmst er frá því að segja að við lukum að fullu eða komumst vel af stað í 32 tilfellum af 33 þannig að við lítum stolt um öxl. Næsta skref í stefnumótunar-
#viðerumÁrbær
vinnunni er fundur sem haldinn verður í byrjun febrúar þar sem hópurinn mun rýna og fínstilla markmið stefnunnar sem og endurskoða árangursviðmið. Starf Knattspyrnudeildar Fylkis er mikilvægt fyrir samfélagið í Árbæ. Við leggjum áherslu á að framlag sjálfboðaliða er nauðsynlegt til að starfið geti haldið áfram að þróast og dafna. Við tökum vel á móti nýju fólki og skorum á áhugasöm að gefa færi á sér í gefandi og skemmtilegt starf deildarinnar.
Íþróttafélagið Fylkir - Kynning deilda vetur 2023-2024
13
Útgefandi og ábyrgð: Íþróttafélagið Fylkir - Ritnefnd: Hörður Guðjónsson Auglýsingasöfnun: Öflun EHF - Ljósmyndir: Frá deildum félagsins. Umbrot: KT10 - Prentun: Litróf/Prenttækni 14
Íþróttafélagið Fylkir - Kynning deilda vetur 2023-2024
Gleði - Virðing - Metnaður
bfo.is
Þjónustuverkstæði fyrir eftirtaldar bifreiðar
reynsla – þekking – góð þjónusta
Bifreiðaverkstæði Friðriks Ólafssonar ehf
bfo@bfo.is
BG
BG
S VO
SV
T T UÐ ÞJ Ó NUS
TA
OT TUÐ ÞJÓNUS
TA
SMIÐJUVEGI 22 (GRÆN GATA) · 200 KÓPAVOGI · SÍMI: 567 7360
LÍFIÐ ER YNDISLEGT GUÐ ER GÓÐUR
Litróf
ÁFRAM FYLKIR!
umhverfisvottuð prentsmiðja
Sími 563 6000 · litrof@litrof.is · www.litrof.is
#viðerumÁrbær
Íþróttafélagið Fylkir - Kynning deilda vetur 2023-2024
15
HANDKNATTLEIKSDEILD FYLKIS Handknattleiksdeild Fylkis heldur úti öflugu barna- og unglingastarfi fyrir börn og ungmenni í Árbæ, Ártúni og Norðlingaholti. Markmið okkar í handknattleiksdeildinni er að bjóða upp á fjölbreytileika sem hentar flestum iðkendum og viljum við einnig bjóða vettvang fyrir öll börn til að prófa æfingar og keppni óháð getu og reynslu. Þjálfarar handknattleiksdeildarinnar eru eins og áður góð blanda af reynslumiklum þjálfurum sem hafa þjálfað iðkendur á öllum aldri til lengri tíma og svo erum við einnig stolt af því að styðja unga þjálfara til að taka sín fyrstu skref í þjálfun. Yfirþjálfari ásamt öðrum reynslumeiri þjálfurum eru þeim innan handar og til taks til að leiðbeina. Við hjá Fylki höldum tvö stór handboltamót á hverju tímabili sem iðkendur og foreldrar taka virkan þátt í og nota t.d. sjoppusölu sem fjáröflun fyrir stór verkefni sem framundan eru. Einnig fá iðkendur í 4. flokki tækifæri til að læra að dæma á þessum mótum.
er með aðeins öðruvísi sniði en hin mótin. Markmið allra þessara móta er að taka enn stærri skref í átt að keppnishandbolta en þó með gleðina að leiðarljósi og er það eitt af aðalgildum og markmiðum okkar í handboltanum að þetta á fyrst og fremst að vera gaman enda á að vera skemmtilegt að mæta á æfingu og læra nýja hluti og hitta vini/vinkonur sem eru með sama hugarfar til æfinganna.
Yngstu iðkendahóparnir okkar í handboltanum eru 7.-8. flokkur sem ætlaðir eru fyrir börn í 1.-4. bekk. Allar æfingar þessara flokka fara fram í Norðlingaskóla. Þessir flokkar taka þátt á mótum á vegum HSÍ sem haldin eru jafnt og þétt yfir tímabilið. 7. flokkur tekur þátt í 5 mótum yfir tímabilið og 8. flokkur tekur þátt á 4. Mótin eru leikin með minniboltafyrirkomulagi þar sem þjálfarar liðanna standa inni á vellinum og leiðbeina í báðar áttir. Iðkendur fá þátttökuviðurkenningar fyrir að vera með. Markmið mótanna er að prófa sig áfram í að mæta öðrum liðum og læra leikinn hægt og rólega en umfram allt er mikilvægast að krakkarnir njóti sín og líði vel að mæta á æfingar og á mót.
Yngri flokkarnir okkar halda áfram að fara á mót erlendis en 5. flokkarnir fóru aftur á Partille Cup í Svíþjóð síðastliðið sumar en gott gengi og góð stemning sumarið 2022 kveikti neista í hópnum að fara aftur sumarið 2023 og við fórum út með tæplega 50 krakka sem skemmtu sér konunglega á stærsta handbolta móti heims. Krakkarnir læra mikið í þessum ferðum en það er mikill skóli í því að mæta liðum frá öðrum löndum sem og að vera með erlenda dómara í hverjum leik ásamt því auðvitað að skemmta sér með góðum vinum/vinkonum í útlöndum.
Næsta aldursstig, 5.-6. flokkur, er ætlað börnum í 5.-8. bekk. Allar æfingar þessara flokka fara fram í Fylkishöll. Þessir flokkara taka þátt í Íslands- og bikarmótum HSÍ sem haldin eru jafnt og þétt yfir tímabilið. Fyrstu mót eru í september og þau síðustu í maí. Þessum flokkum er hverjum og einum skipt í 2 árganga, yngra og eldra ár, og leika árgangarnir hver um sig á 6 HSÍ mótum þar sem 5 eru deildarmót á Íslandsmóti og svo er eitt mótið svokallað bikarmót sem 16
Íþróttafélagið Fylkir - Kynning deilda vetur 2023-2024
Þegar komið er í næsta aldursstig þá æfum við og keppum sem sameiginlegt lið Fjölnis/Fylkis en það samstarf var endurnýjað vorið 2023. Samstarf félaganna nær yfir 3.-4. flokk og æfa flokkarnir og keppa bæði í Fjölnishöll í Grafarvogi sem og í Fylkishöll í Árbæ. Samstarfið hefur gengið vel og náum við með þessum hætti góðum fjölda á æfingum og í keppni á Íslandsmóti sem og bikarkeppni HSÍ. Virkt samstarfsráð og gott samtal þvert á bæði félögin er lykilatriði í að halda samstarfinu öflugu.
Við í handboltanum leggjum mikið upp úr því að góður félagslegur andi sé í öllum okkar flokkum og því er sérstök áhersla lögð á að flokkarnir geri félagslega hluti saman utan æfinga, hvort sem það er að hittast í keilu eða fara saman á landsleik í handbolta. Foreldrar iðkenda eru stór hluti í svona starfi og eru foreldrafélög hvers flokks almennt mjög virk í að halda félagslegu boltunum á lofti í góðu samstarfi og samráði við þjálfara hvers flokks. Við hvetjum öll börn til að mæta og prófa - þið eruð öll velkomin á æfingar hjá Fylki.
Gleði - Virðing - Metnaður
#viðerumÁrbær
Íþróttafélagið Fylkir - Kynning deilda vetur 2023-2024
17
RAFÍÞRÓTTADEILD FYLKIS Rafíþróttadeild Fylkis verður með öflugt og endurnýjað starf á nýju ári í samstarfi við Esports Coaching Academy! Rafíþróttir eru frábært tækifæri fyrir ungmenni til að efla sig sem einstaklinga og kynnast jafnöldrum í gegnum tölvuleikja áhugamálið. Í vor verður boðið upp á fjóra æfingahópa sem koma til móts við mismunandi aldur, getu og áhugasvið ungmenna. Í 8-10 og 10-13 ára Mix hópnum er aðal áherslan á að mynda félagsleg tengsl við jafnaldra í gegnum tölvuleiki, prófa nýja leiki og hafa gaman. Í Fortnite og 14-16 ára hóp eru markvissari æfingar þar sem iðkendur vinna að því að bæta sig í ákveðnum leik. Í öllum hópum er líkamleg hreyfing og læra iðkendur um heilbrigða spilunarhætti. Æfingatímar verða lengri sem leyfir okkur að halda betri og heildstæðari æfingar, þar sem nægur tími gefst í upphitun, fræðslu, æfingar og spil. Einnig verða viðburðir eins og mót, æfingaleikir og félagskvöld yfir önnina, sem gefa iðkendum markmið til að vinna að og tækifæri að byggja vináttubönd sem ná út fyrir tölvuskjáinn.
18
Skráning á vorönn er komin af stað á Sportabler, en æfingataflan verður birt fljótlega ásamt æfingaplani fyrir hvern hóp. Ekki missa af þessu tækifæri í hinum spennandi heimi rafíþrótta, vertu hluti af hreyfingu sem er að endurnýja framtíð rafíþrótta.
Markmið Rafíþróttadeildarinnar verða: 1. Að bjóða upp á skipulagt starf fyrir börn og unglinga þar sem þau geta stundað rafíþróttir undir handleiðslu þjálfara. 2. Að stuðla að jákvæðri tölvu upplifun. 3. Að hjálpa iðkendum að hugsa vel um líkama og sál. 4. Að efla félagslegan og siðferðislegan þroska. 5. Að iðkendur læri undirstöðuatriðin í þeim leik sem það æfir. 6. Að iðkendur hafi ánægju af rafíþróttum.
Með þessum breytingum er Rafíþróttadeild Fylkis að taka stórt skref í átt að hágæða rafíþróttastarfi sem uppfyllir alla þá gæðastaðla sem rafíþróttir standa fyrir. Með auknum gæðum á starfinu verður Fylkir ekki bara brautryðjandi í auknum gæðum rafíþrótta á Íslandi, heldur einnig fyrirmyndar klúbbur sem horft verður til í vexti rafíþrótta um allan heim.
7. Að búa til atvinnufólk í faginu sem leyfa ekki tölvum að stjórna lífinu sínu.
Íþróttafélagið Fylkir - Kynning deilda vetur 2023-2024
Gleði - Virðing - Metnaður
8. Að efla félagsfærni og valdefla þau sem eru mikið ein heima að spila. 9. Að búa til félagsmenn. 10. Að vera með öflugt meistaraflokkastarf.
#viðerumÁrbær
Íþróttafélagið Fylkir - Kynning deilda vetur 2023-2024
19
Stofnað 1990
Traust fjölskyldufyrirtæki í áratugi Stofnað 1990 æki í áratugi Rúnar Geirmundsson
Þorbergur Þórðarsson
Rúnar Geirmundsson
Þorberg
Traust fjölskyldufyrirtæki í áratugi
Sími · 567 9110 · utfarir@utfarir.is · www.utfarir.is · www.utfarir.is Þorbergur Þorbergur Þórðarsson Þórðarsson Elís Rúnarsson Elís Rúnarsson Sigurður Rúnarsson Rúnar Rúnar Geirmundsson Geirmundsson
Sími · 567 9110 · utfarir@utfarir.is · www.utfarir.is 20
Íþróttafélagið Fylkir - Kynning deilda vetur 2023-2024
Gleði - Virðing - Metnaður
Sigurðu
HERRAKVÖLD
FYLKIS
FÖSTUDAGINN
JANÚAR
19
2024
MÁLVERKAUPPBOÐ HAPPDRÆTTI Veislustjóri
GÍSLI EINARS RÆÐUMAÐUR KVÖLDSINS Nánar síðar
Skemmtikraftar
BJÖRN BRAGI EYÞÓR INGI Matseðill
ÞORRAMATUR & LAMB Fjölmennum á glæsilegt og skemmtilegt HERRAKVÖLD með góðum vinum og Fylkismönnum.
Miðasala #viðerumÁrbær #viðerumÁrbær
Verð aðeins
12.900 kr. Borðapantanir á fylkir@fylkir.is
21 www.fylkir.is
Íþróttafélagið Fylkir - Kynning deilda vetur 2022-2023
BLAKDEILD FYLKIS Blakdeild Fylkis býður upp á reglulegar blakæfingar fyrir breiðan aldur eða allt frá 7 ára til áttræðs. Barna og unglingastarfið fór vel af stað þennan veturinn. Rúmlega tuttugu krakkar á aldrinum 7-15 ára eru að æfa blak. Fylkir fór með eitt U14 lið og eitt U16 lið á fyrri hluta Íslandsmóts yngri flokka í Mosfellsbæ í október sl. og eitt U12 lið á Haustmótið sem haldið var á sama stað. Allir iðkendur stóðu sig með prýði og tóku miklum framförum á mótinu. Eftir áramót stefnum við á Bikarmót á Akureyri og seinni hluta Íslandamótsins í Neskaupstað. Markmiðið með fullorðins blakinu er andleg og líkamleg lýðheilsa sem fæst með reglulegri hreyfingu í góðra vina hópi. Í fullorðins blakinu æfa um 80 manns á öllum aldri þar sem yngsti iðkandinn er 19 ára og sá elsti 74 ára. Fylkir heldur úti kvennaliði í 1. deild, 2. deild og 3. deild auk fjögurra karlaliða í sömu deildum (þar af 2 lið í 2. deild). Metnaður einkennir öll liðin en einnig góður liðsandi.
Fylkisliðin taka svo þátt í fjölmörgum skemmtimótum yfir veturinn auk þess við höldum sjálf jólamót, fyrstu helgina í desember í ár og svo vormót. Hápunkturinn er svo Öldungamótið sem verður haldið um miðjan maí á næsta ári, hjá Aftureldingu í Mosfellsbæ, þar sem um 1.500 blakarar af öllu landinu, sem náð hafa 30 ára aldursári, taka þátt í þriggja daga blakveislu. Strandblak á Íslandi hefur eflst mjög síðustu ár og æfa og keppa margir úr Fylki reglulega úti yfir sumartímann. Einnig halda sumir strandblakstækninni við með æfingum inni í Sandkastalanum í Árbænum en þar eru einu innistrandblaksvellir landsins. Fylkir hélt sitt fyrsta strandblaksmót í sumar með prýði. Fylkir hefur því miður ekki aðstöðu til að taka við byrjendum í fullorðins inniblaki að svo stöddu en við hvetjum krakka og unglinga til að kíkja á æfingarnar í Árbæjarskóla. Upplýsingar um æfingatöflu fyrir krakka og unglinga sem vilja prófa blak er að finna inni á fylkir.is
Í vetur eru 9 lið í 1. deild karla og 12 lið í 1. deild kvenna. Breytingar urðu á leikjafyrirkomulagi 1. deildar þennan veturinn en nú keppa liðin staka leiki ca. einu sinni í mánuði, ýmist á heimavelli eða útivelli, auk þess að taka þátt í þremur mótaröðum. Bæði liðin eru nú þegar búin að fara til Húsavíkur að keppa á fyrstu mótaröðinni sem gekk mjög vel, seinni tvær mótaraðirnar verða spilaðar eftir áramót. Neðrideilda liðin okkar (2. og 3. deildar liðin) keppa hins vegar áfram í þremur mótaröðum yfir veturinn sem eru ýmist haldin á höfuðborgarsvæðinu eða á hinum ýmsu stöðum úti á landi. Það verður kátt í Höllinni 15.-17. mars þegar Fylkir heldur 2. mótaröðina á Íslandmóti BLÍ fyrir 2. deild karla. Hvetjum við íbúa hverfisins að leggja leið sína í Fylkishöllina og fylgjast með leikjum þá helgi og taka inn fjörið sem fylgir blakmótum.
22
Íþróttafélagið Fylkir - Kynning deilda vetur 2023-2024
Gleði - Virðing - Metnaður
#viðerumÁrbær
Íþróttafélagið Fylkir - Kynning deilda vetur 2023-2024
23
BETRI BORGARAR FYLKIS Eldri borgara starf Fylkis, „Betri borgarar“, hefur blómstrað á síðustu mánuðum. Verkefnið, sem snýst um leikfimi fyrir eldra fólk, 65 ára og eldri, undir leiðsögn þjálfara, hefur slegið í gegn og nær nú langt út fyrir raðir Árbæinga. Nú er svo komið að um 150 einstaklingar mæta í hreyfingu tvisvar sinnum í viku í Fylkisselið í Norðlingaholti. Æfingar byggjast upp þannig að byrjað er á léttri upphitun, sem er ganga í salnum og æfingar sem leggja áherslu á vinnu með fætur, axlir og hendur. Léttar dansæfingar taka síðan við ásamt þrek- og teygjustöðvum um allan sal. Unnið er á hverri stöð í 2 mín þar sem tveir til þrír vinna saman. Stöðvavinnan tekur 20 mín. Eftir það eru léttar teygjur og út- og innöndun og passað upp á að fá púlsinn aftur í gott jafnvægi. Undir hljóma ljúfir tónar frá sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar sem kalla jafnan á að stigin séu létt dans-
24
Íþróttafélagið Fylkir - Kynning deilda vetur 2023-2024
spor. Unnið er með jafnvægi, æfingar með boltum, teygjum og léttum leikjum. Eftir æfinguna er alltaf boðið upp á kaffi og (stundum eitthvað með) og létt spjall um lífið og tilveruna. Við höfum fengið afar jákvæð viðbrögð frá okkar þátttakendum og mikið hrós fyrir þetta framtak okkar sem yljar okkur um hjartarætur. Þessi aldurshópur er vissulega misvel á sig komin en uppbygging æfinganna er þannig að þær henta öllum, og eru bæði fyrir fólk í góðu formi og þá sem eiga við einhverja líkamlega kvilla að etja. Æfingar verða í vetur í fimleikahúsi Fylkis í Norðlingaholti á mánudögum og miðvikudögum frá kl. 10:00-11:00 og 11:00-12:00. Skráningar eru hjá fimleikar@fylkir.is. Eða hjá Guðrúnu Ósk í síma 848-6967.
Gleði - Virðing - Metnaður
HÖFÐABAKKA ÞÓRIR ÖRN ÁRNASON LÖGMAÐUR
TANNLÆKNAR HÖFÐABAKKA 9 STYÐJA FYLKI
THORIR@ARNASON.IS
ÁFRAM FYLKIR!
Gleðilega hátíð
Bifreiðaskoðun er eins og jólin - einu sinni á ári
Velkomin í Hádegismóa frumherji.is
#viðerumÁrbær
Íþróttafélagið Fylkir - Kynning deilda vetur 2023-2024
25
EFTIRTALDIR AÐILAR SENDA ÍÞRÓTTAFÉLAGINU FYLKI BARÁTTU- OG JÓLAKVEÐJUR! AB varahlutir ehf.
Gunnar Kristinn Baldursson
Almenna bílaverkstæðið ehf.
H&S Rafverktakar ehf.
Ámundi Halldórsson
Helgi Jón og Hjördís
Benjamín Axel Árnason
Hrönn Ágústsdóttir
Alda M. Magnúsdóttir
Arctic Trucks Ísland ehf. Árbæjarblóm
BGI málarar ehf.
Haukur Halldórsson Hjá Ingvarsson ehf. Höfðakaffi ehf.
Bíl - Pro ehf.
Íslandssmíðar ehf.
Bjössi 16 ehf., vörubílaþjónusta
Jakob Halldórsson
Dalbær sf.
Jón Magnússon
Bílasmiðurinn hf.
Brúskur hársnyrtistofa, s: 587 7900
Ís-spor ehf.
Jón Hilmarsson
Daníel Bergur Gíslason
Jónína Sigurlaug Jónasdóttir
Eðalbílar ehf.
Kemi ehf.-www.kemi.is
Emil Þór Ásgeirsson
Kristján Steingrímsson
Fínka ehf., málningarverktakar
Magni Jónsson
Daníel Gunnarsson
Einar Schweitz Ágústsson Eyþór Guðmundsson
Fjárhúsið - Spekt ehf.
Karl Sigurðsson
Kjartan Stefánsson Kvikna ehf.
Malbikunarstöðin Höfði hf.
GB Tjónaviðgerðir ehf.
Margrét Rós Sigurðardóttir
Guðmundur Pétursson
MIO MIO ehf.
Grettir, vatnskassar ehf.
26
Gunnar Viggósson
Íþróttafélagið Fylkir - Kynning deilda vetur 2023-2024
Meba úr og skart
Gleði - Virðing - Metnaður
Oddgeir Gylfason, tannlæknir Ólafur Björgvin Pétursson
Ólafur Hans Grétarsson, tannlæknir
Tensio ehf.
Tómas Kristinsson
Túnþökuþjónustan ehf.
Ólafur Magnússon
Valdimar Þ. Valdimarsson
PuffinTravel ehf.
Vélvík ehf.
Pétur Haukur Helgason
Verslunartækni ehf.
Pökkun og flutningar ehf.
Z - brautir og gluggatjöld
Rafviðgerðir ehf.
Þór Hauksson
Rafstjórn ehf.
Ragnar Páll Bjarnason
Þorsteinn Bergmann ehf. Þór hf.
Ragnar W Hallbergsson
Ökuskólinn í Mjódd ehf.
Reykjavíkurborg
Jarðval sf.
Reiðskólinn Víðidal ehf. S.Ó.S. Lagnir ehf.
Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja-SSF Skjaldbaka ehf. Straumkul ehf.
Sunna Ólafsdóttir
Tannlæknastofa Elínar Wang
#viðerumÁrbær
Alhliða pípulagnir sf. Laugin ehf.
Logoflex ehf.
Reykofninn ehf.-www.reykofninn.is Suðurverk hf.
Zenus - sófar & gluggatjöld
Vélaverkstæði Hjalta Einars ehf. Bílaleiga Akureyrar
Íþróttafélagið Fylkir - Kynning deilda vetur 2023-2024
27
Gleði - Virðing - Metnaður