Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja
Velkomin til Eyja!
Ágæti gestur Við hjá Vestmanneyjabæ, eins og Eyjamenn allir, erum alltaf jafn stolt og glöð þegar ÍBV íþróttafélag heldur sín knattspyrnumót á hverju sumri. Þetta eru stórverkefni sumarsins á íþróttasviðinu: TM mótið og Orkumótið í Eyjum. Mikil vinna og undirbúningur liggur að baki hjá félaginu, sem og öllum þeim þátttakendum sem mótin sækja. Enda eru þessi mót í flestum tilvikum hápunkturinn á sumrinu hjá þeim iðkendum og þjálfurum sem sækja okkur heim. Þetta árið hefur undirbúningurinni verið með öðrum hætti, annað árið í röð hjá
öllum vegna Covid-19. Það er þó mikið gleðiefni fyrir alla þessa fjölmörgu iðkendur að mótin fari fram eins og í fyrra og hefur ÍBV lagt sig allt fram við það að fylga öllum þeim leiðbeyningum og reglum sem einkenna lífið okkar í dag. Sem betur fer horfir nú til betri vegar í þeim efnum. Eyjamenn eru þekktir fyrir að taka vel á móti gestum og það er alltaf sérstök upplifun fyrir krakkana, nánast eins og að fara til útlanda, þegar farið er um borð í Herjólf og siglt til Eyja. ÍBV leggur alltaf mikinn metnað í að mótin gangi vel fyrir sig og með samstilltu átaki allra þeirra sem koma beint eða óbeint að mótunum hefur þetta gengið ótrúlega vel. Í raun má segja að bæjarbúar allir séu virkir þátttakendur í mótunum. TM mótið fer fram í 32. sinn í ár og þátttakendur hafa aldrei verið fleiri en nú. Félagið heldur nú 38. Orkumótið, sem var fyrirmynd annarra sumarmóta. Jákvæð upplifun af Eyjum, ásamt leikgleði og hæfilegu keppnisskapi, er það sem gerir mótin að minningum sem fyrnast seint og eru alltaf svo verðmætar.
TM Mótsblaðið 2021 Útgefandi: ÍBV Íþróttafélag Ábyrgðarmaður: Sigríður Inga Kristmannsdóttir Ritstjóri: Guðmundur Tómas Sigfússon Ljósmyndir: Sigfús Gunnar Guðmundsson Hafliði Breiðfjörð
Fyrir okkur hér í Eyjum eru þetta tvær af stærstu ferðamannahelgum sumarins, enda foreldrar og fjölskyldur dugleg að fylgja krökkunum sínum til leiks. Þetta er einmitt stór hluti af töfrum mótanna: það er ekki síður skemmtilegt að vera foreldri eða fylgdarmaður og sjá og upplifa gleðina sem skín úr hverju andliti. Þetta sumar verður öðruvísi hjá okkur öllum en það er jákvætt að börnin geta stundað sína íþrótt og keppni. Eftir erfiðan vetur er það tilhlökkunarefni. Vestmannaeyjar hafa upp á margt að bjóða fyrir mótsgesti og ég efast ekki um að þú, sem og aðrir gestir mótanna, eigið góðar stundir framundan á okkar fallegu eyju. Hafðu í huga að þetta er upplifun og þetta er ævintýri sem vert er að njóta. Verum til fyrirmyndar innan sem utan vallar og förum að fyrimælum. Munum að virða þær sóttvarnareglur sem eru í gildi, við erum öll almannavarnir. Góða skemmtun! Íris Róbertsdóttir Bæjarstjóri
Mótsnefnd: Sigríður Inga Kristmannsdóttir, mótsstjóri siggainga@ibv.is / 869-4295 Haraldur Pálsson, framkvæmdastjóri ÍBV haraldur@ibv.is / 899-7996 Sigfús Gunnar Guðmundsson, gjaldkeri sigfus@ibv.is / 481-2060 Guðmundur Tómas Sigfússon mot@ibv.is / 857-2498 Daníel Geir Moritz, dómaramál danielgeirmoritz@gmail.com / 868-5460
ÝMSAR UPPLÝSINGAR Bátsferð Öllum þátttakendum er boðið í bátsferð með bátnum Halkíon frá Rib-Safari. Brottför er frá sömu bryggju og Herjólfur leggst að, nema austan megin, við hliðina á Tanganum. Báturinn hefur nokkuð stífa áætlun, þannig að hópar þurfa að vera tilbúnir á bryggju tímanlega áður en ferð hefst. Bátsferðin tekur ca. 30 mín, farin er ferð út í Klettshelli.
Kæligámur Þau félög sem þurfa meira kælirými en það sem býðst í gistingu er bent á að við erum með kæligám á bryggjunni merktan með ÍBV merki. Gámurinn er fjórði gámur, frá hliði Eimskips. Hann er læstur með talnalás, lykilnúmerið fyrir lásinn er 2861
Bílastæði Fá bílastæði eru á mótssvæðinu en einnig er hægt að leggja bílum við íþróttahús og Þórsheimili. Mikilvægt er að halda akstursleiðum á stæðunum í kringum vellina opnum til að sjúkrabíll eigi greiðan aðgang. Lögregla hefur eftirlit með svæðinu og grípur til þeirra úrræða sem þeir kjósa ef bílum er ólöglega lagt, skapa hættu eða loka mikilvægum leiðum.
Landsleikir Landsleikir eru á föstudagskvöld kl. 18:30 á Hásteinsvelli, spilaðir eru tveir leikir á sama tíma og gilda samanlögð úrslit úr báðum leikjum. Þjálfari tilnefnir fulltrúa síns félags og tilkynnir mótsstjórn, tveim tímum fyrir leik lætur þjálfari leikmann vita um þátttöku. Miðað er við að hvert félag eigi sinn fulltrúa í leiknum. Leikmenn keppa í sérstökum “Landsliðs” og “Pressuliðs” búningum sem eru gerðir sérstaklega fyrir þennan leik. Að leik loknum mega leikmenn eiga búningana sína.
Félagsfáni Öll félög mæta með félagsfána síns félags og flagga honum sjálf á fánastangir við Týsvöll, og taka hann síðan niður áður en haldið er heim á leið.
Matur Allar máltíðir, morgunmatur, hádegismatur og kvöldmatur verða í Höllinni við Strembugötu nema grillveislan á laugardagskvöldi verður fyrir utan Týsheimilið.
Rútuferðir Rútuferðir verða frá bryggju í gistingu á miðvikudag og frá gistingu á bryggju laugardag fyrir þá sem hafa óskað eftir því, rúturnar byrja að ganga klukkutíma fyrir brottför Herjólfs á laugardag. Reglulegar rútuferðir verða á matartíma. Frá Íþróttamiðstöð (fánastöngum við Illugagötu) upp í Höll og til baka aftur. Rútan mun ganga stanslaust þennan hring á matmálstímum.
Verðlaun í mótslok Á laugardegi keppa lið í 8 liða mótum. Sigurlið í hverju móti fá afhentan bikar og leikmenn gullpening. Leikmenn liðs í 2. sæti hvers móts fá afhenta silfurpeninga. Lið mótsins, valdir 10-12 bestu leikmenn mótsins að mati dómara fá sérstaka viðurkenningu. Prúðasta liðið á mótinu utan vallar, fær bikar. Tekið er mið af framkomu hópsins hvarvetna, “hópur” eru allir leikmenn félagsins, þjálfarar, fararstjórar og foreldrar. Háttvísi verðlaun KSÍ, dómarar velja prúðustu liðin í hverjum leik. Allir keppendur fá þátttökupening.
Sjúkravakt Á skrifstofu ÍBV er hægt að nálgast plástur, klaka ofl. fyrir minniháttar meiðsli. Ef grunur er um alvarlega áverka skal alltaf hringja í 112. Tapað/fundið Allir óskilamunir sem verða eftir á mótssvæðinu, meðan á mótinu stendur, enda í íþróttahúsinu/sundlauginni, eins það sem verður eftir í skólunum þegar mótinu er lokið, síminn þar er 488-2400.
Sund Frítt er í sund gegn framvísun þátttökuarmbands þrisvar sinnum yfir mótið. Úrslit Ef leiðrétta þarf úrslit þá þarf að koma þeim skilaboðum til Sigfúsar eins fljótt og auðið er í síma 481-2060 eða sigfus@ibv.is
Karl Kristmanns Umboðs- og heildverslun ehf.
Velkomnar til Vestmannaeyja!
Stelpur við óskum ykkur góðs gengis á TM Mótinu
Karl Kristmanns ehf // Ofanleitisvegi 15-19 // 900 Vestmannaeyjum Sími: 481-1971 // GSM: 897-1172 // tölvupóstur hkk@eyjar.is
Edith Kristín Krisjánsdóttir TM Mótsbikarinn, í landsliði TM Mótsins og í úrvalsliði mótsins 2020
Besta tilfinning í heimi! Hvað var skemmtilegast á síðasta TM Móti? Að keppa með liðinu og vera með stelpunum allt mótið. Gerðuð þið eitthvað annað en að spila fótbolta? Við fórum í sund, bátsferð, á kvöldvöku, spiluðum upp í skóla og fórum í ísferð eftir úrslitaleikinn. Hvernig var að vinna úrslitaleikinn? Það var besta tilfinning í heimi. Mér leið bara geggjað vel eftir leikinn. Ég myndi vilja upplifa þessa helgi aftur. Hvernig var að spila landsleikinn? Það var rosalega mikil rigning og það var erfitt að spila leikinn út af því en það var samt mjög gaman. Náðiru að kynnast einhverjum stelpum úr öðrum liðum? Já við kynntumst kannski ekki alveg en töluðum samt við margar stelpur.
Uppáhalds: Bíómynd: Engin, margar skemmtilegar Matur: Pasta carbonara Drykkur: Icetea
Lag: Mörg góð Samherji: Allar uppáhalds Lið: Breiðablik App: Snapchat
Ertu með einhverja rútínu fyrir leik? Ég borða vel og tímanlega fyrir alla leiki og reyni að hreyfa mig eitthvað á leikdegi t.d. fer ég oft í göngutúr til að liðka mig. 3 hlutir sem þú gerir á hverjum einasta degi: Ég hreyfi mig, borða ristað brauð og bursta tennur
Gangi ykkur vel stelpur!
Póley gjafavöruverslun Bárustíg
8
.
.
www poley is
AFÞREYING Það er fjölbreytt afþreying í Vestmannaeyjum sem gestir mótsins geta nýtt sér á milli leikja. Eldheimar Eldheimar er gosminjasafn, þar er hægt að fræðast um eldgosið á Heimaey 1973 og Surtseyjargosið 1963. Frítt er fyrir keppendur í fylgd með fullorðnum (fullorðnir borga inn).
Golfvöllur Golfvöllur Vestmannaeyja er 18 holu golfvöllur, hann er talinn einn af óvenjulegustu en jafnframt skemmtilegustu völlum landsins. Herjólfsdalur Skemmtilegt útivistarsvæði með aparólu, tjörn og landnámsbæ.
SEA LIFE Trust Fiskasafn þar sem hægt er að sjá lifandi fiska, Lunda og ýmis sjávardýr ásamt mjöldrunum Litlu hvít og Litlu grá.
Sund Sundlaug Vestmannaeyja er með skemmtilegt útisvæði, klifurvegg, rennibrautir, trampólín rennibraut, heita potta ofl.
Sagnheimar Sagnheimar er byggðasafn, þar sem hægt er að fræðast meðal annars um Tyrkjaránið, Þjóðhátíð, Mormóna ofl. sem tengist sögu Vestmannaeyja. Frítt er fyrir keppendur í fylgd með fullorðnum (fullorðnir borga inn).
Sprangan Sprang er þjóðaríþrótt Vestmannaeyinga. Sprang fellst í því að sveifla sér í kaðli á milli kletta, þeir sem eru óvanir ættu að varast að fara hátt, bara byrja neðst og fara varlega.
Náttúrugripasafnið Einstakt fugla- og steinsafn. Frítt er fyrir keppendur í fylgd með fullorðnum (fullorðnir borga inn). Landlyst Landlyst var byggt árið 1848 og stendur núna í sinni upprunalegu mynd á Skanssvæðinu. Þar hefur verið komið upp læknaminjasafni. Húsið var fyrsta fæðingarheimili á Íslandi byggt árið 1847. Frítt er fyrir keppendur í fylgd með fullorðnum (fullorðnir borga inn). Gönguferðir það er fullt af skemmtilegum gönguleiðum um eyjuna, ef taka á börn með í gönguna þá er auðvelt og skemmtilegt að fara uppá Eldfell og Helgafell. Volcano ATV Skipulagðar fjórhjólaferðir. Brunaðu um eldsvæði Vestmannaeyja með vindinn í hárinu (undir hjálminum), Born to be Wild á lúppu í kollinum og sérfróðan leiðsögumann í eyrunum.
Frisbígolfvöllur Frisbígolfvöllur er 6 holu völlur staðsettur á milli íþróttahússins og Týsheimilisins, skemmtilega krefjandi völlur. Stakkó Stakkó er útivistarsvæði í miðbæ Vestmannaeyja, þar er meðal annars mjög skemmtileg hoppudýna eða svokallaður "ærslabelgur". Kayak & Puffins Það er ekki vitlaust að róa sig niður í kajak og dýfa hausnum, bókstaflega, í fegurð Eyjanna. Sjáðu lunda á klettanöf með fullan gogg af sílum og hlustaðu á sjóinn slá hægan takt á bátshliðinni. Sannkallað zen. Reiðhjólaleiga Leigðu hjól, hjólaðu um á því. Þetta er ekki flókið. Viltu hjóla upp á 120 metra háan höfða eða bara taka túr um bæinn? Leigðu þér hjól og þú ert þinn eigin fararstjóri. Rib Safari Upplifðu Vestmannaeyjar eins á spíttbáti.
Margrét Lára Viðarsdóttir Fyrrverandi landsliðskona:
Njóta þess að æfa og spila Margréti Láru Viðarsdóttur þarf varla að kynna fyrir neinum en hún er ein fremsta knattspyrnukona sem Ísland hefur alið af sér. Hún skoraði ótal mörk og vann marga titla yfir hennar feril sem spannar 20 ár af meistaraflokks fótbolta. Margrét var frábær einnig í yngri flokkunum og blómstraði á Pæjumótunum sem hún fór á fyrir mörgum árum. Hún man vel eftir þeim. „Ég man vel eftir mínum Pæjumótum og fannst alltaf jafn gaman. Þegar ég var yngri þá var Pæjumótið fyrir alla flokka nema 2. og 3. flokk, þannig að ég fékk að fara á ansi mörg mót. Bestu minningarnar eru líklega þegar liðin mín, Týr og síðan ÍBV, unnu mótið sem og einstaklingsverðlaunin sem ég fékk,“ sagði Margrét en hún ólst upp í Vestmannaeyjum. Margrét segir TM-mótið og önnur slík mót vera mikilvæg fyrir þróun íslensks kvennafótbolta. „Klárlega, mjög mikilvægt. Þarna ná stelpurnar að sameina það sem skiptir máli í íþróttum, að mynda góð félagsleg tengsl við liðsfélaga, eða stelpur í öðrum liðum, sem og auðvitað að keppa og hafa gaman.“ Við báðum Margréti að gefa ungum stelpum, sem vilja ná langt í fótbolta ráð:
„Að finna ástríðu fyrir íþróttinni, njóta þess að æfa og spila, setja sér markmið og leggja sig alltaf 100% fram í allar æfingar og keppnir.“ Var Margrét hjátrúafull fyrir leiki? „Nei, ég var ekkert sérstaklega hjátrúafull, nema kannski það að ég var lítið að skipta um búnað eins og skó, legghlífar, hjólabuxur og toppa ef það gekk vel.“ Ferill Margrétar var mjög langur og báðum við hana um að nefna eftirminnilegasta augnablikið frá ferlinum. „Þegar við komumst í fyrsta skipti á EM 2009 með landsliðinu, þá fyrst íslenskra knattspyrnuliða til að komast á lokakeppni.“
Uppáhalds mörkin hennar Margrétar voru með fyrstu og síðustu snertingu Margrétar með landsliðinu. „Þetta er mjög erfið spurning, ætli það sé ekki bara mitt fyrsta landsliðsmark með fyrstu snertingu minni fyrir landsliðið og svo seinasta markið mitt sem var sömuleiðis síðasta snerting mín með landsliðinu.“ Hvernig finnst Margréti Ísland standa samanborið við aðrar þjóðir í knattspyrnu kvenna? „Kvennaknattspyrna í heiminum er á mikilli uppleið og þá sérstaklega í Evrópu. Við stöndum ágætlega miðað við þá framþróun sem er að eiga sér stað þó mín skoðun sé samt sú að við þurfum að gera enn betur ef við ætlum ekki að sitja eftir því framfarirnar í Evrópu eru að
gerast hratt. Við megum ekki sofna á verðinum heldur alltaf að hugsa hvernig við getum bætt okkur, þá félögin í heild sem og leikmennirnir.“ Að lokum spurðum við Margréti hvort það sé eitthvað sem hún hefði óskað sér að 1112 ára Margrét Lára vissi. „Já, það er ótrúlega margt. Ég myndi segja við 11 ára Margréti að hún gæti orðið besti sóknarmaður í Evrópu, að hugsa um endurheimt eins og sjúkraþjálfun, svefn, teygjur, mataræði og slíkt. Svo myndi ég reyna að hamra það inn í hausinn á henni, gæði umfram magn því ég átti það til að æfa og spila alltof mikið af leikjum, með alltof mörgum flokkum í of mörgum íþróttum í einu.“
Uppáhalds:
Bíómynd: Notting Hill Matur: Indverskur Drykkur: Kaffi og Kristall Lag: Fix You Samherji: Ef ég þarf að velja einhvern einn sem er hræðilega erfitt þá vel ég alltaf Elísu systur Lið: Ísland App: Instagram
DAGSKRÁ Miðvikudagur 9. júní 10:45 / 13:15 15:45 / 18:15 18:00 - 20:00
Brottför frá Landeyjahöfn Brottför frá Landeyjahöfn Matur í Höllinni - sjá tímasetningar
Fimmtudagur 10. júní 7:00 - 9:00 8:20 - 12:20 11:30 - 13:30 13:00 - 17:00 16:30 - 18:30 19:00
Morgunmatur í Höllinni - sjá tímasetningar Leikir - riðlakeppni Hádegismatur í Höllinni - sjá tímasetningar Leikir - riðlakeppni Kvöldmatur - sjá tímasetningar Hæfileikakeppni á ÍBV TV
Föstudagur 11. júní 7:00 - 9:00 8:20 - 12:20 11:30 - 13:30 13:00 - 17:00 16:30 - 18:30 18:30 - 19:15 19:30 - 20:15
Morgunmatur í Höllinni - sjá tímasetningar Leikir - riðlakeppni Hádegismatur í Höllinni - sjá tímasetningar Leikir - riðlakeppni Kvöldmatur í Höllinni - sjá tímasetningar Landsleikur - Hópur 1 // Kvöldvaka - Hópur 2 Landsleikur - Hópur 2 // Kvöldvaka - Hópur 1
Laugardagur 12. júní 7:00 - 9:00 8:00 - 11:00 11:30 - 14:30 10:15 - 13:00 15:30 - 17:00 17:15 18:00 17:30 - 19:00 20:00 / 22:00 / 23:55
Morgunmatur í Höllinni - sjá tímasetningar Leikir - riðlakeppni Leikir - riðlakeppni Hádegismatur í Höllinni - sjá tímasetningar Jafningjaleikir Bikarúrslitaleikir Úrslitaleikur um TM Mótsbikarinn Grillveisla við Týsheimilið Brottför með Herjólfi Brottför með Herjólfi
LANDSLEIKUR/KVÖLDVAKA HÓPUR 1 Álftanes Breiðablik Fjarðabyggð Fylkir Grótta Hamar Haukar HK Höttur
ÍR KF/Dalvík KFR KR RKV Þór Ak. Þróttur Vestri
HÓPUR 2 Afturelding FH Fjölnir Fram Grindavík ÍA ÍBV KA Njarðvík
Selfoss Sindri Skallagrímur Snæfellsnes Stjarnan Þróttur R. Valur Víkingur R.
Eydís María Waagfjörð Vann TM Mótsbikarinn með Stjörnunni 2019 Var í úrvalsliði TM Mótsins 2019
Geggjað, langar að upplifa aftur! Hvað var skemmtilegast á TM Mótinu? Að keppa og enda sem sigurvegarar. Gerðuð þið eitthvað annað en að spila fótbolta? Við fórum í bátsferð og grilluðum saman. Hvernig var að vinna úrslitaleikinn? Geggjað, langar að upplifa það aftur. Náðiru að kynnast einhverjum stelpum úr öðrum liðum? Já. Ertu með einhverja rútínu fyrir leik? Reyni að borða vel og hugsa jákvætt. 3 hlutir sem þú gerir á hverjum einasta degi: Ég hlæ, knúsa hundinn minn og fer út. Uppáhalds: Bíómynd: The Parent Trap Matur: Grillað lambakonfekt Drykkur: Vatn Lag: Ola Olé
Gangi ykkur vel stelpur!
Samherji: Á svo margar góðar vinkonur í liðinu, get ekki valið á milli Lið: Stjarnan, Manchester United og ÍBV App: Instagram og Snapchat
UMGENGNISREGLUR 1.
Hvert félag fær stofu/stofur til umráða sem það skal sjá um að halda hreinum meðan á mótinu stendur (þar með talin salerni). Verði einhverjar skemmdir ber félagið ábyrgðina. Muna einnig að henda öllu rusli eftir sig út í gáma.
2.
Í hverri stofu verður að vera fararstjóri. Keppendur mega aldrei vera einir í stofunum, hvorki að nóttu né degi.
3.
Borð, stólar og annar borðbúnaður sem er í stofum, ekki færa hann til.
4.
Allt á að vera hljótt í skólum frá klukkan 22:00
5.
Öll hlaup á göngunum eru stranglega bönnuð og boltar eru bannaðir innan dyra.
6.
Fararstjórum skal bent á það að útidyr eru opnanlegar innan frá, keppendur geta því hæglega læst sig úti eftir að skólanum hefur verið lokað á kvöldin. Athugið að hafa allar hliðarhurðar læstar, hurðin að framan er opin til klukkan 23:00. Það er verið að hugsa um öryggi ykkar með því að hafa lokað. Annars er það á ykkar ábyrgð ef eitthvað kemur fyrir.
7.
Öllum bílum skal lagt á bílastæði við skólana, ekki á skólalóð.
8.
Alla skó skal geyma í anddyri skólanna. Keppendur geta haldið á skónum sínum í stofurnar. Það á enginn að ganga á útiskóm um ganga skólanna.
9.
Skólarnir eru aðeins ætlaðir þátttakendum á mótinu.
10.
Meðferð áfengis, tóbaks og vape er stranglega bönnuð í skólunum. Ef einhver er úti eftir klukkan 23:00 þarf hann að hringja í fararstjóra og láta hleypa sér inn, ekki húsvörð eða annað gæslufólk. Athugið við brottför að sópa, ganga vel frá stofunum og henda rusli í gáma. Góða ferð heim!
MÓTSREGLUR 1.
Keppt er á minivöllum. Leiktími á fimmtudegi og föstudegi er 2x15 mín. Leikhlé er 3 mín. Leiktími á laugardegi er 2x12 mín. Leikhlé er 2 mín.
2.
Dæma skal eftir reglum KSÍ fyrir 5. flokk 7 manna bolta.
3.
Allir leikir skulu hefjast á því að dómari leiði liðin frá marki við girðingu vallarins að miðju vallarins.
Áður en leikur hefst skulu lið, varamenn og þjálfarar safnast saman fyrir aftan markið fjær áhorfendum. Þegar dómarinn gefur merki skulu liðin ganga í röð inn á völlinn að miðlínu. Fyrirliði fyrstur, þá leikmenn og síðast þjálfari. Á miðlínu skulu liðin raða sér í beina röð á móti áhorfendum og veifa. Fyrirliði næst dómara, leikmenn og þjálfari fjærst. Síðan taka fyrirliðar í höndina á hvor öðrum. Eftir að dómari hefur kastað hlutkesti og fyrirliðar valið, þá skal þjálfari sjá um að kalla varamenn út af vellinum í skiptibox.
4.
Dómari skal ekki hefja leik nema þjálfari og varamenn séu á sínum stað. Varamaður og aðstoðarmenn verða að vera á merktu svæði. Dómari hefur heimild til að stöðva leikinn og leiðrétta stöðuna.
Aðeins þjálfari má vera á hliðarlínu leikvallar. Varamenn og liðsstjórar skulu vera á merktu svæði hægra megin fyrir aftan sitt mark.
5.
Í leikjum er aldrei skráður meiri markamunur en 3 mörk.
6.
Röðun liða eftir árangri í riðlum:
7.
Verði liðin jöfn:
8.
Undanúrslitaleikir og úrslit um verðlaunasæti:
1. stig // 2. Fleiri nettó mörk // 3. Færri mörk fengin á sig // 4. Innbyrðis viðureign // 5. hlutkesti
1. Markamismunur // 2. Ef markamunur er jafn, telst það lið ofar sem hefur fengið færri mörk á sig // 3. Innbyrðis viðureignir // 4. Hlutkesti
A. Verði lið jöfn að venjulegum leiktíma loknum (markajafntefli) vinnur það lið sem skoraði eftir stystan leiktíma í fyrri hálfleik eða seinni hálfleik. Dæmi: Lið A skorar í fyrri hálfleik eftir 3 mín og 45 sek. Lið B skorar í seinni hálfleik eftir 2 mín og 10 sek. Endi þessi leikur jafntefli, þá telst lið B sigurvegari. Aðstæður gætu verið óhagstæðar á annað markið, því verður reglan að gilda fyrir hvorn hálfleik. B. Ef leikur endar með markalausu jafntefli fer fram framlenging 2x5 mín. Ef hún endar með markajafntefli þá gildir regla 8a, ef hún endar með markalausu jafntefli þá skal vítakeppni ráða úrslitum, 5 spyrnur á hvort lið, ef enn jafnt er hlutkesti.
9.
Neiti lið að mæta til leiks eða neiti að spila leik getur það átt á hættu að missa stig eða jafnvel verða dæmt úr leik. Mótanefnd hverju sinni ákveður viðurlög við broti sem þessu.
Þorsteinn Halldórsson Þjálfari A landsliðs kvenna:
Þetta er upplifun, ekki bara fótbolti Þorsteinn er nýtekinn við Alandsliði kvenna og eru stelpurnar að fara í æfingaleiki við Íra í vikunni. Þorsteinn hefur þjálfað Breiðablik undanfarin ár, með frábærum árangri, liðið varð Íslandsmeistari 2015, 2018 og 2020 en tapaði einungis fimm leikjum samtals á öllum þessum þremur tímabilum. Hvernig hefur gengið að koma sér inn í landsliðsþjálfarastarfið? „Það hefur gengið þokkalega vel að aðlagast, ég er auðvitað með fólk með mér sem er vant þessu og ég er eini rookie-inn í þessu. Ég hef fengið góða leiðsögn um það hvernig hlutirnir virka og utanumhald, síðan þarf ég að koma með mitt inn í taktíska pakkann og allt það.“ Breytingarnar eru miklar frá því að vera með Breiðablik, vill Þorsteinn meina. „Maður þarf að undirbúa allt fyrir þessa 8-9 daga, maður lætur ekkert fyrsta daginn líða og fer svo að bregðast við einhverju, maður verður að vera klár í allt. Maður fær líka tíma til að fara á fótboltaleiki, ég nýti tímann minn í það. Ég horfi mikið á fótbolta á leikmenn úti, alla leiki sem ég get, ég horfi einnig á alla efstu deildarleiki hér heima og fer á neðri deildarleiki líka. Maður er líka að stúdera fram og til baka og það er meira þannig hlutir heldur en að vera úti á velli að þjálfa,“ sagði Þorsteinn en landsliðið á leiki við Íra á föstudag
og aftur á þriðjudag. „Írarnir eru með mjög gott lið og voru í raun klaufar að ná ekki 2. sæti í þessum riðli sínum. Þetta verður skemmtilegt, þetta eru ekki mörg verkefni á ári og því verður maður alltaf spenntur fyrir þeim.“ Eru Íslendingar að huga vel að knattspyrnu kvenna samanborið við aðrar þjóðir? „Við erum ágætlega sett, ég held að yngra starfið sé stærra og veigameira heldur en á mörgum öðrum stöðum. Við erum ekki á sama stað gæðalega séð eins og bestu þjóðirnar, þetta er þó misjafnt eftir klúbbum en heilt yfir erum við ágætis leið. Við þurfum alltaf að vera að bæta í, því ef við gerum það ekki þá lendum við á eftir.“ Hvað getum við gert betur? „Við þurfum að fjölga þjálfurum, fitness-þjálfarar, styrktarþjálfarar og leikgreinendur, þessir sem eru í
kringum þjálfarann. Við þurfum að fjölga þjálfurum á yngri, auka gæðin þar, þar eru raunverulegu mestu möguleikarnir okkar. Frá því að við erum með krakka og upp á unglingsárin, við þurfum að ráða góða þjálfara og vera óhrædd við að ráða allra bestu þjálfarana í yngri flokkana líka,“ sagði Þorsteinn en hann tók þó fram að á mörgum stöðum væru færir þjálfarar í kvennaflokkunum. Eru mót eins og TM-mótið ekki mikilvæg fyrir grasrótina kvenna megin? „Þau mót eru nauðsynleg, það muna allir eftir þessum mótum, Blikastelpurnar eru oft að ræða um Símamótið og Pæjumótið, þegar við erum að koma til Eyja eru rifjaðar upp minningar af Pæjumótinu, þannig þær muna alltaf eftir þessu. Þetta er upplifun, ekki bara fótbolti, heldur upplifun í stemningu og móralnum sem er á svona mótum, mikill fjöldi og mikil
gleði. Það er alltaf mikil tilhlökkun þegar þessi mót eru að byrja, þú ert að fara á þetta og undirbúa þetta. Það er það mikil stemning og gleði á þessum mótum að þau gefa krökkum ótrúlega mikið.“ Er Þorsteinn með einhver ráð fyrir stelpur sem vilja ná langt og kannski komast inn í landsliðið? „Það þarf að æfa mikið og leggja mikið á sig, það þarf að fórna fyrir þetta. Þú þarft að forgangsraða fótboltanum hátt, þetta snýst alltaf um það. Það þarf að forgangsraða mjög hátt, nám og svo fótbolti, það er þetta tvennt sem þú þarft að hafa. Þú þarft að sleppa ýmsu sem aðrir sem vilja ekki verða afreksíþróttamenn taka þátt í.“
TM MÓTIÐ 2020
TM MÓTIÐ 2020
Eftirtalin bæjarfélög hvetja selpurnar sínar til dáða:
Garðabær
Reykjanesbær
Seltjarnarnes
Múlaþing