
Mjólkur- og hnetulaus

7:00 - 9:00
11:30 - 13:00 17:30 - 18:30
Morgunmatur - hafragrautur, morgunkorn, brauð og ávextir
Píta með buffi, kál, tómatar, agúrka, pítusósa og ofnbakaðir kartöflubátar
Kjúklingur, franskar, salat og kokteilsósa

7:00 - 9:00
10:45 - 11:30


Morgunmatur - hafragrautur, morgunkorn, brauð og ávextir
Tortilluhlaðborð með kjúkling, papriku, agúrku, tómötum, káli, osti og salsasósu
Morgunmatur er í skólunum
Hádegis- og kvöldmatur eru í Höllinni við Strembugötu












Góðir siðir fyrir iðkendur á Eyjablikksmótinu
Ég er stundvís og mæti á réttum tíma í leiki.
Ég er jákvæður og í góðu skapi í leikjum, því mérfinnst gaman.
Ég mótmæli ekki því sem dómarinn/þjálfarinn segir.
Ég kem kurteislega fram við mótherja/samherja, því ég vil að þeir komi vel fram við mig.
Ég legg mig alltaf 100 % fram.
Ég þarf bæði að kunna að vinna og tapa.
Ég hjálpa samherjum eins og ég get á æfingum, í leikjum og hvar sem er.
Ég geng vel um búningsklefa, íþróttasali og skólahúsnæði.
Ég er í íþróttum fyrir sjálfan mig, af því að það er hollt og skemmtilegt.
Ég reyni alltaf að vera félaginu og mínum nánustu til sóma, innan vallar sem utan.

Ég ber virðingu fyrir fararstjóra/þjálfara og hlýði fyrirmælum þeirra í keppnisferðum.






Góðir siðir fyrir foreldra á Eyjablikksmótinu
Hrósið öllum leikmönnum meðan á leik stendur, ekki aðeins ykkar barni.
Hvetjið börnin bæði þegar vel gengur og þegar á móti blæs.
Berið virðingu fyrir störfum þjálfarans.
Lítið á dómarann sem leiðbeinanda barnanna, ekki gagnrýna ákvarðanir hans.
Gerið hóflegar kröfur til barnanna um árangur.
Verið félaginu og barni ykkar til sóma. Við erum fyrirmyndir barnanna.


Barnaskóli
FH
Fjölnir
Fram
Fylkir
Grótta
HK
Hörður
ÍR
KA/Þór
Selfoss
Stjarnan
Valur
Skólinn er hnetulaus vegna bráðaofnæmis
Skólinn opnar kl. 17:00 föstudag







Hvert félag fær stofu/stofur til umráða sem það skal sjá um að halda hreinum meðan á mótinu stendur. Verði einhverjar skemmdir ber félagið ábyrgðina. Muna einnig að henda öllu rusli eftir sig út í gáma.



Borð, stólar og annar borðbúnaður sem er í stofum, ekki færa hann til.
Allt á að vera hljótt í skólum frá klukkan 22:30 Í hverri stofu verður að vera fararstjóri. Keppendur mega aldrei vera einir í stofunum, hvorki að nóttu né degi.
Öll hlaup á göngunum eru stranglega bönnuð og boltar eru bannaðir innan dyra.
Fararstjórum skal bent á það að útidyr eru opnanlegar innan frá, keppendur geta því hæglega læst sig úti eftir að skólanum hefur verið lokað á kvöldin. Athugið að hafa allar hliðarhurðar læstar, hurðin að framan er opin til klukkan 23:00. Það er verið að hugsa um öryggi ykkar með því að hafa lokað. Annars er það á ykkar ábyrgð ef eitthvað kemur fyrir.
Öllum bílum skal lagt á bílastæði við skólana, ekki á skólalóð.
Alla skó skal geyma í anddyri skólanna. Keppendur geta haldið á skónum sínum í stofurnar. Það á enginn að ganga á útiskóm um ganga skólanna.
Skólarnir eru aðeins ætlaðir þátttakendum á mótinu.
Meðferð áfengis, tóbaks og vape er stranglega bönnuð í skólunum.
Ef einhver er úti eftir klukkan 23:00 þarf hann að hringja í fararstjóra og láta hleypa sér inn, ekki húsvörð eða annað gæslufólk.
Athugið við brottför að sópa, ganga vel frá stofunum og henda rusli í gáma.
Góða ferð heim!






