Stefna og verkefni 2015-2016

Page 1

STEFNA & VERKEFNI 2015–2016

HLUTL ÆGNI  TRÚVERÐUGLEIKI  ÞJÓNUSTA


STEFNA & VERKEFNI

2015–2016

HLUTVERK

STEFNA

Hagstofan vinnur hlutlægar hagskýrslur, hefur forystu um samhæfingu hagtalna, stundar rannsóknir og stuðlar þannig að upplýstri umræðu og faglegum ákvörðunum

Hagstofa Íslands stefnir að því að: • Uppfylla þarfir innanlands fyrir tölfræði­legar upplýsingar um efnahagsmál, samfélagsmál, fyrirtæki og rekstur fyrirtækja • Starfsemin sé í samræmi við alþjóðlegar ­skuldbindingar

FRAMTÍÐARSÝN Hagstofan er framsækin miðstöð hagskýrslugerðar sem stendur jafnfætis þeim hagstofum í Evrópu sem eru til fyrirmyndar

• Tryggja gæði opinberra hagtalna á Íslandi með sömu leiðum og fram koma í meginreglum evrópskrar ­hagskýrslugerðar

Hagstofan er góður og eftirsóttur vinnustaður sem einkennist af skilvirkni og sveigjanleika

• Tryggja öryggi upplýsinga þannig að þær séu aðgengilegar en fullnægi þó kröfum um persónuvernd og falli ekki í rangar hendur

GILDI Hlutlægni — Trúverðugleiki — Þjónusta

Verkefni 2015–2016 • Móta stefnu um samskipti við ytri hagsmunaaðila • Koma á samstarfsvettvangi með öðrum framleiðendum og eigendum stjórnsýsluskráa og gera samninga við gangaveitendur • Kynna ríkisstofnunum og sveitarfélögum lögbundna tilkynningarskyldu þeirra við breyting­ar eða gerð nýrra stjórnvaldsskráa • Endurskoða hlutverk notendahópa • Innleiða gæðaskýrslur og birta opinberlega • Koma á fót rannsóknarráði og stuðla að því að starfsfólki sé heimilt að rannsaka gögn Hagstofunnar • Koma á reglulegum mælingum á svarbyrði • Skjala aðferðir við árstíðaleiðréttingar

• • • • • • • • • • •

Skjala aðferðir við að hindra rekjanleika Stefna um endurskoðun hagtalna Koma á vottuðu stjórnkerfi upplýsingaöryggis Kanna kosti vefsköfunar við öflun gagna til hagskýrslu­gerðar Móta miðlunar- og samskiptastefnu Ná betur til almennings Koma á nýjum vef Skýra hagtölur betur út í útgáfum og fréttatilkynningum Efla tengsl við fjölmiðla Kanna notkun samfélagsmiðla við miðlun og samskipti við notendur Bæta vinnuumhverfi


MARKMIÐ Þekkja þarfir notenda og vinna náið með hagsmunaaðilum Hagstofa Íslands hefur frumkvæði að reglulegum samskiptum við notendur til að öðlast betri skilning á þörfum þeirra og til að geta betur mætt þörfum ólíkra hópa. Áhersla er lögð á góð samskipti við gagnaveitendur, meðal annars til að auka skilning á gæðum stjórnsýslugagna. Hagstofan tekur forystu í skipulegu samstarfi við aðra framleiðendur. Markvisst samstarf við hagsmunaðila eykur skilning á þörfum þeirra og leiðir í ljós gagnkvæman ávinning.

Bæta miðlun og samskipti Hagstofan leitast við að ná til breiðs hóps notenda og leggur áherslu á að ná til almennings og fjölmiðla. Stefnt er að því að bæta aðgengi að hagtölum og öðru efni með markvissri notkun á upplýsingatækni. Kynningar­fundir og aðrir viðburðir geta verið gagnlegir til að kynna starfsemi Hagstofunnar. Leitast skal við að nýta það form miðlunar og þá tækni sem best á við hverju sinni. Hagstofan mætir þörfum notenda um hagtölur og lagar sig að breyttum þörfum þeirra. Betra vinnuumhverfi

Tryggja gæði og réttar aðferðir Hagstofa Íslands gefur út hagtölur og veitir þjónustu í samræmi við þarfir notenda þar sem gæði eru höfð í fyrir­rúmi. Áhersla á gæði er nauðsynleg til þess að viðhalda trausti og til að tryggja forystuhlutverk í hagskýrslugerð. Í samfélagi þar sem er ofgnótt upplýsinga á að vera hægt að treysta því að hjá Hagstofunni séu birtar hlutlægar og traustar upplýsingar. Tryggja öryggi upplýsinga Hagstofan tryggir öryggi upplýsinga með stjórnkerfi sem byggist á ISO27001 sem er alþjóðlegur staðall um upplýsinga­öryggi. Ytri vottun á stjórnkerfið verður komin í upphafi árs 2016. Meðferð trúnaðarupplýsinga er vönduð og örugg. Nýta nýjar gagnalindir til að bæta gæði og minnka svarbyrði Hagstofa Íslands metur svarbyrði reglulega og leggur áherslu á að draga úr henni með því að samræma betur og hagnýta eigin gagnasöfn, nýta stjórnvaldsskrár, beita nýjustu tækni við gagnaöflun og með viðeigandi aðferðafræðilegum lausnum.

Mikilvægt er að stuðla að starfsánægju og bættri líðan starfsmanna, þannig verður Hagstofan eftirsóknarverður og fjölskylduvænn vinnustaður. Gott vinnuumhverfi stuðlar að ánægju starfsmanna og aukinni framleiðni. Hagstofan leitast við að styðja starfsmenn til að sækja sér aukna fræðslu með það að markmiði að auka færni þeirra og gefa þeim kost á að þróast í starfi. Bætt upplýsingaflæði og opin skoðanaskipti milli starfsmanna og stjórnenda sitja í fyrirrúmi. Hagstofan stuðlar að því að aðbúnaður á vinnustað uppfylli kröfur, sé að­laðandi og að starfsmönnum sé gefinn kostur á heilsu­eflingu Efla rannsóknir Hagstofan leggur áherslu á uppbyggingu rannsóknarstarfs og samstarf við rannsóknasamfélagið. Öflug rannsóknarstarf styður við hagtölugerð og gerir Hagstofunni kleift að stuðla að upplýstri stefnumótun og umræðu. Þá er uppbygging rannsókna mikilvægur liður í að gera stofnunina að eftirsóknarverðum vinnustað. Gerður er skýr greinarmunur á rannsóknum og hagskýrslugerð í starfsemi stofnunarinnar.


Grunnurinn að stefnu Hagstofu Íslands er eftirfarandi lög og reglur: • Lög nr. 163/2007 um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð • Reglugerð ESB nr. 223/2009 um ­evrópska hagskýrslugerð • Grundvallarreglur um opinbera ­hagskýrslugerð í ríkjum ­Sameinuðu þjóðanna • Meginreglur í evrópskri hagskýrslugerð

HAGSTOFA ÍSLANDS BORGARTÚNI 21A 105 REYKJAVÍK

SÍMI  528 1000  /  BRÉFASÍMI  528 1099 WWW.HAGSTOFA.IS  /  UPPLYSINGAR@HAGSTOFA.IS


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.