1 minute read

Markmið sem náðust árið 2022

Markmið að draga úr heildarorkunotkun sem nemur 5% milli ára.

Niðurstaðan varð rúmlega tvöfaldur árangur, eða því sem nemur 10,6%. Við erum í skýjunum með þessa niðurstöðu en höldum ótrauð áfram og setjum markið hærra.

Markmið að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis sem nemur 10% milli ára.

Niðurstaðan varð hvorki meira né minna en 26,6% mili ára, þökk sé fjölgun rafbíla í bílaflota fyrirtækisins.

Bæta úrval heilsutengdra og plöntumiðaðra vara. Úrval okkar af þessum vörum heldur áfram að aukast og viðbrögð viðskiptavina okkar láta ekki standa á sér.

Fjölgun innlendra vörunúmera t.d. með Nýsköpunarsjóð Haga. Á árinu 2022 tók Hagkaup virkan þátt í að koma á framfæri vörum frá nýjum íslenskum smáframleiðendum, meðal annars með því að halda sérstaka þemadaga í verslunum okkar með tilheyrandi kynningum og skemmtilegum uppákomum.

Skipta út freon kælimiðli og fjölga lokuðum kælum í tveimur verslunum á árinu 2022. Við getum stolt sagt frá því að verslanir okkar í Spöng og

Garðabæ náðu þessum áfanga.

Yfirferð á allri vöruframleiðslu Hagkaups og plastnotkun lágmörkuð.

Pappírsumbúðum í stað plastumbúða fjölgaði á árinu 2022, bæði í vörum sem Hagkaup framleiðir og hjá birgjum okkar.

Vefverslun fyrir leikföng og aðra sérvöru. Á árinu 2022 settum við í loftið vefverslun fyrir leikföng og stefnum á að bæta við enn fleiri vöruflokkum á árinu 2023.

Viðhalda eða jafna enn betur hlutfall kynjanna í stjórnendastöðum. Á árinu 2022 og enn þann dag í dag er hlutfall karla og kvenna ennþá jafnt í stjórnendastöðum verslana okkar. 6 karlar og 6 konur.

Áframhaldandi þátttaka í verkefninu Atvinna með stuðningi í samvinnu við Vinnumálastofnun.

This article is from: