
1 minute read
Söfnun til mæðrastyrksnefndar
by Hagkaup
Mæðrastyrksnefnd eru samtök sem styðja við einstæða foreldra, öryrkja, eldri borgara og fjölskyldur með matar- og fataúthlutunum auk ýmissa styrkja sem veita efnalitlu fólki á Íslandi nauðsynlega aðstoð og úrræði.
Hagkaup hefur verið stoltur styrktaraðili
Mæðrastyrksnefndar í áratugi og í desember 2022 söfnuðust tvær milljónir í söfnun sem Hagkaup stóð fyrir í verslunum sínum.
Viðskiptavinum var boðið að bæta 500 krónum við innkaup sín og Hagkaup bætti öðru eins við.
Mæðrastyrksnefnd hefur í gegnum tíðina unnið ómetanlegt starf sem við viljum standa vörð um.
Skipulagsmál Hagkaups og Oreo
Söngkonan og kvikmyndagerðarkonan Sylvía Erla Melsteð stóð fyrir skipulagsátaki í samvinnu við Hagkaup og mbl.is sem felst í því að efla lestur, heimanám, hreyfingu og minnka skjánotkun hjá börnum í grunnskólum landsins í september 2022.

Sylvía Erla greindist sjálf með lesblindu undir lok 9. bekkjar og kom upp aðferðum til þess að læra og halda sér við efnið. Hún segir skipulag vera lykilinn í því að ná árangri. Hugmyndin að skipulagsbókinni kviknaði eftir fyrirlestrarröð í grunnskólum landsins um lesblindu. Sylvía fann strax mikinn áhuga hjá börnum varðandi skipulagið sem hún kom sér upp og vildi leggja sitt á vogaskálarnar til þess að hvetja börn áfram í skólanum. Oreo, hundurinn hennar Sylvíu, hefur vakið mikla eftirtekt og skipar hann stóran sess í verkefninu.
Átakið stóð yfir í tuttugu daga og fór skráning fram úr björtustu vonum. Grunnskólabörn tóku þátt og var keppni á milli grunnskóla landsins, skólinn sem safnaði flestum stigum fékk þann titil að vera best skipulagði skólinn auk þess að fá glaðning frá Oreo. Markmiðið var fyrst og fremst að fá sem flesta til þess að taka þátt, hafa gaman og fá börn til þess að njóta sín við lestur, heimanám og hreyfingu.
Spilað til góðs til styrtkar