
1 minute read
Þrjár milljónir til Krabbameinsfélagsins
by Hagkaup
Þjóðin lagðist á eitt í söfnunarátaki Krabbameinsfélagsins. Hagkaup tók virkan þátt í söfnuninni en forsvarsmenn afhentu félaginu ávísun upp á þrjár milljónir króna sem söfnuðustu í verslunum okkar.
Í byrjun október stóð Hagkaup fyrir söfnun þar sem viðskiptavinum bauðst að styrkja átakið með því að bæta 500 krónum við innkaup sín sem runnu til söfnunarinnar og Hagkaup lagði aðrar 500 krónur í mótframlag.
Söfnunin stóð yfir í viku og það stóð ekki á viðskiptavinum Hagkaups sem styrktu átakið um 1,5 milljón krónur. Hagkaup lagði sömu upphæð á móti og söfnuðust því alls þrjár milljónir.
Sigurður Reynaldsson framkvæmdastjóri Hagkaups sagðist vera gríðarlega þakklátur viðskiptavinum Hagkaups sem styrktu átakið með þessum hætti. Sagði hann þetta bera merki um samstöðuna sem ríkir varðandi Krabbameinsfélagið sem sinnir einstöku starfi.