
1 minute read
Vöxtur í starfi
by Hagkaup
Hjá Hagkaup viljum við af fremsta megni veita okkar starfsfólki forgang og tækifæri til að sækja um lausar stöður áður en við leitum annað. Sú ómetanlega þekking sem reynslumikið starfsfólk býr að nýtist vel á nýjum vettvangi innan fyrirtækisins.
Nánast allir stjórnendur, milli-stjórnendur, deildarstjórar og aðrir sem gegna lykilhlutverki í daglegum rekstri Hagkaups hafa verðskuldað unnið sig upp í þær stöður.
Nýtt starfsfólk hefur því lifandi dæmi allt í kringum sig um þann möguleika að vaxa og dafna í starfi, sé viljinn fyrir hendi.
Einar Pálmi Ómarsson (á myndinni hér til hægri) er eitt af mörgum slíkum dæmum, en hann sinnir mikilvægu hlutverki framleiðslustjóra í framleiðslueldhúsi Hagkaups í Smáralind, þar sem við útbúum daglega holla og góða skyndirétti úr úrvals hráefni, s.s. sushi, smörrebröd, sósur og salöt. Á döfinni er einnig splúnkuný viðbót þar sem Einar og magnaða framleiðsluteymið hans mun bráðlega bjóða upp á spennandi valkosti í veisluþjónustu, undir nafninu ‚Veisluréttir‘. Við hjá Hagkaup höfum spennt sætisólarnar og hlökkum til kynna þessa nýjung fyrir viðskiptavinum okkar.
Samfélagsskýrsla 2022
