
1 minute read
Starfsaldur
by Hagkaup
Hár starfsaldur meðal ótal margra af okkar frábæra starfsfólki í 64 ára sögu fyrirtækisins er eitthvað sem við erum gríðarlega stolt af.
Á árshátíðum heiðrum við starfsfólk okkar sérstaklega með gjöfum og lófaklappi þegar það á starfsaldursafmæli sem telur á heilum tug. Ófáir snillingar hafa starfað hjá okkur út starfsævina og fyrir þeirra framlag erum við óendanlega þakklát.
Í dag starfa tæplega 30 einstaklingar hjá Hagkaup með yfir 20 ára starfsreynslu.
Á toppnum tróna tvær drottningar, Bergþóra Skarphéðinsdóttir (Begga) í Hagkaup Smáralind og Dröfn Snæland í Hagkaup Garðabæ. Þær hafa báðar starfað hjá Hagkaup í rúm 35 ár, eru framúrskarandi í sínu starfi og skínandi gott dæmi um dýrmætan mannauð okkar hjá Hagkaup.
