
1 minute read
Fjölmenning
by Hagkaup
Við erum stolt af okkar frábæra og fjölbreytilega hóp starfsfólks. Hjá Hagkaup starfa rúmlega 700 einstaklingar af yfir 40 mismunandi þjóðernum. Við leggjum metnað í að gera öllum jafnt undir höfði þegar það kemur að sanngirni, virðingu og jöfnum tækifærum til að vaxa og dafna í starfi, óháð uppruna, aldri og kyni.
Við styrkjum starfsfólk okkar af erlendum uppruna til íslenskunáms og bjóðum upp á túlk ef þörf krefur þegar mikilvæg samtöl eiga sér stað. Við gerum ekki þá kröfu að allt starfsfólk okkar geti tjáð sig við viðskiptavini á reiprennandi íslensku og trúum því frekar að vinalegt bros og viðleitni til að aðstoða sé gulls ígildi og segi meira en þúsund orð.
Með innleiðingu WorkPlace sem megin upplýsingaveitu starfsmanna opnast sá möguleiki að starfsmenn geta sjálfkrafa þýtt upplýsingar á veitunni yfir á sitt tungumál.
Fjölbreytileiki er eitt af fjórum megingildum í starfsmannastefnu Hagkaups sem við erum stolt af og teljum styrkja okkar dýrmæta mannauð enn frekar.