1 minute read

Íslensk kolsýra og lokaðir kælar

Eitt af stóru málunum sem við höfum verið að vinna í síðastliðin ár er að kolsýruvæða kælikerfi verslana Hagkaups.

Við erum að skipta út freon efninu sem hefur í gegnum tíðina verið aðal kælimiðillinn, en efnið getur verið mjög slæmt fyrir umhverfið og því mikið kappsmál að útrýma því. Við höfum átt frábært samstarf við Kælitækni sem hafa aðstoðað okkur í þessari vegferð. Við getum með stolti sagt frá því að árið 2023 verðum við búin að kolsýruvæða síðustu verslunina okkar og erum þá laus við freon fyrir fullt og allt. Í þessu er tvöfaldur ávinningur, annarsvegar er kolsýran umhverfisvæn og hinsvegar eru kolsýru-kælikerfi ekki eins orkufrek og því mikill orkusparnaður fólginn í því.

Í þessum framkvæmdum endurnýjuðum við einnig kælieiningarnar okkar en þær voru alltof margar opnar sem vitaskuld leiðir til orkusóunar.

HérmáhorfaákynningarmyndbandfráKælitæknium framkvæmdirnaríHagkaupGarðabæ(2022)

This article is from: