1 minute read

Hjartans mál að taka heildrænt á málunum

„Sjálfbærni vegferð Hagkaups hófst fyrst með almennri vakningu í samfélaginu og auknum jákvæðum þrýstingi frá neytendum að fyrirtæki líkt og matvöruverslanir láti verkin tala þegar það kemur að umhverfisvernd og samfélagslegri ábyrgð. Einnig hjálpar til þegar yfirstjórn félagsins og móðurfélagsins Hagar sýna sannan áhuga á þessum mikilvæga málaflokki. Tölum um hlutina eins og þeir eru, það er engin að gera frábæra hluti né búinn að tékka í öll boxin, ekki einu sinni þeir sem eru að standa sig best. Við eigum ennþá langt í langt, en það er þó engin ástæða til að uppfyllast vonleysi. Miklu frekar eigum við að fagna þeirri vakningu sem hefur átt sér stað og nýta þann sterka meðbyr sem er í seglunum núna.

Þessi vegferð er okkur hjartans mál. Ég er svo heppinn að fá að vera á vaktinni á þessum spennandi tímum og að fá tækifæri sem stjórnandi í mínu fyrirtæki til þess að hafa jákvæð áhrif og leita nýrra leiða til að gera betur í dag en í gær.“

Hér má hlusta á viðtalið í heild sinni sem að Laufið tók við Svanberg (birt á Spotify í september 2022)

This article is from: