Gróttumenn í dauðafæri
Eftir frábæra spilamennsku í síðustu leikjum hefur Gróttumönnum tekist að galopna toppbaráttuna í 2. deildinni. Nú þegar tveir leikir eru eftir er Grótta aðeins þremur stigum frá fyrsta sætinu og 2 stigum frá öðru sætinu. Nú er því komið að þér kæri Seltirningur að mæta á síðasta heimaleik Gróttu laugardaginn 14. september þar sem Grótta tekur á móti Hetti. Gróttuborgararnir verða að sjálfsögðu á sínum stað klukkan 13:00 en leikurinn hefst 14:00.