Golf á Íslandi - 4. tbl. 2014

Page 1

Á ÍSLANDI

GOLF Á ÍSLANDI OKTÓBER 2014 4. TBL. OKTÓBER 2014. 24. ÁRG.


ÍSLENSKA SIA.IS ICE 68202 09/14

GEFÐU ÞÉR GÓÐAN TÍMA Í LONDON Verð frá 17.600* kr. Þessi ferð gefur frá 1.500 til 4.500 Vildarpunkta aðra leiðina.

Njóttu hverrar mínútu Það er ekki nauðsynlegt að hlaupa upp og niður Oxford-stræti til að kíkja í allar búðirnar. Strunsa framhjá stórmennum mannkynssögunnar í Madame Tussauds. Það sem skiptir máli er að njóta tímans. Skoða umhverfið og fólkið. Horfa á dúfurnar við Marble Arch. Eiga gæðastundir og safna minningum sem lifa.

+ Bókaðu núna á icelandair.is

* Innifalið: Flug aðra leiðina og flugvallarskattar.

Vertu með okkur


ÍSLENSKA SIA.IS ICE 68202 09/14


Þyngdarpunktur: Aftarlega á kylfuhausnum og neðst sem gefur fullkomið boltaflug og eykur fyrirgefningu og stöðugleika

Fyrir slæsara: Þyngd sett á kylfuhælinn á SF Tec týpunni sem minnkar líkurnar á höggum sem snúast til hægri og fara því bæði styttra og lengra af leið. Getur lengt slík högg um 10 metra m.v. venjulegu G30 týpuna

Nýr T9S títan höggflötur: Sterkara efni og léttara sem skilar þynnri höggfleti og meiri boltahraða

“Straight Flight Technology”: Tvær týpur af kylfuhaus. SF Tec er hannaður fyrir þá kylfinga sem að slá yfirleitt til hægri af teig

Stillanlegur: 5 stillingar á lofti kylfunnar til að ná réttri hæð á boltafluginu

Sérhannað G30 skaft: Meiri þyngd efst á skaftinu gefur möguleika á þyngri kylfuhaus sem skilar meiri krafti og þ.a.l. aukinni högglengd

©2014 PING P.O. BOX 82000 PHOENIX, AZ 85071


G30 línan fer í sölu 31. júlí (járn, blendingar, brautartré og dræverar). Trékylfurnar eru knúnar áfram með nýrri tækni sem kallast “Turbulator” (tækni í einkaeigu og því aðeins fáanleg á PING trékylfum) og gerir G30 trékylfurnar að þeim fullkomnustu frá PING til þessa. Litlar upphleyptar rákir ofan á kylfuhausnum minnka loftmótstöðu og tryggja meiri sveifluhraða og um leið lengri högg. G30 dræverinn er að auki með nýjum T9S höggfleti ásamt að vera með 5 mismunandi stillingar á lofti. Við skorum á þig að prófa G30 línuna og finna muninn. Fyrir frekari upplýsingar má kíkja á ping.com eða líta við á næsta sölustað þar sem að þú getur einnig fengið sérmælingu og prufukylfur lánaðar út á völl.


FORSETAPISTILL

Með haustkveðju, Haukur Örn Birgisson, forseti Golfsambands Íslands

Á ÍSLANDI

GOLF Á ÍSLANDI OKTÓBER 2014

Jæja, þá er fer þetta bara að verða komið hjá okkur. Golfsumarið er á enda og margir búnir að koma kylfunum fyrir í bílskúrnum eða geymslunni þar sem hætt er við að þær muni safna ryki næsta hálfa árið. Stutt golfsumar er veruleiki sem við Íslendingar þurfum að búa við, þó vissulega sé tímabilið alltaf að lengjast hjá okkur með mikilli færni golfvallastarfsmanna. Það þarf hins vegar ekki að vera neitt lögmál að með lækkandi sól og dýpri lægðum þá verðum við að hætta að leika okkur í golfi. Langt í frá. Á Íslandi er inniaðstaða til golfæfinga með því besta sem býðst. Fjölmargir golfklúbbar hafa lagt félagsmönnum sínum til afburðaraðstöðu þar sem golfkennarar eru stöðugt til taks. Flestir mega vera duglegri við að nýta sér þessa frábæru aðstöðu og eru þeir hér með hvattir til æfinga í vetur. Þá má ekki gleyma öllum skemmtilegu áfangastöðunum sem ferðaskrifstofur landsins eru farnar að bjóða kylfingum upp á yfir vetrarmánuðina. Látum kylfurnar ekki standa óhreyfðar í vetur. Nýtum veturinn til að bæta púttin og stutta spilið eða til að breyta sveiflunni. En talandi um breytingar. Ef það er ein breyting, umfram aðrar, sem ég myndi vilja fá að sjá fyrir næsta sumar þá er það brottfall svokallaðra „kvennateiga“ á íslenskum golfvöllum. Mikið leiðist mér það hugtak og það beinlínis skemmir fyrir. Golfvellir eru hannaðir með ólík getustig kylfinga í huga og þess vegna eru vellirnir mismunandi langir, allt eftir því af hvaða teigum er leikið. Eftir því sem golfvöllurinn er lengri, því erfiðari er hann. Þetta hefur samt ekkert með konur og karla að gera og því eiga teigarnir ekki að vera skýrðir í höfuðið á kynjunum. Kylfingar á ólíkum getustigum eiga að leika af ólíkum teigum og þá skiptir engu hvort þeir pissa sitjandi eða standandi. Í dag veigra karlmenn, sem eru með háa forgjöf eða eru komnir á efri ár, sér við því að leika golf af teigum sem raunverulega henta þeirra getustigi. Þeim finnst óeðlilegt að leika af „kvennateigum“ - enda eru þeir ekki konur. Þeir jafnvel skammast sín fyrir það. Ég get vel skilið þetta viðhorf. Það er hins vegar mikilvægt að breyta þessu og það er lítið mál. Kylfingar á ólíku getustigi eiga að leika af þeim teigum sem henta þeim best og veitir þeim mestu ánægjuna. Það er nefnilega ekki jafn skemmtilegt að leika af teigum þar sem enginn möguleiki er að ná inn á flöt í réttum höggafjölda. „Kvennateigurinn“ skemmir því fyrir. Það er hins vegar ekki nóg að hætta að kalla teigana karla- og kvennateiga og halda öllu öðru óbreyttu. Kynjaheiti teiganna eru nefnilega svo rótgróin í vitund flestra kylfinga að nauðsynlegt er að breyta litunum eða taka upp ný kennileiti fyrir þá. Mér er sama hvor leiðin er farin. Þannig mættu teigarnir vera svartir, bláir, hvítir, rauðir eða gylltir, nú eða heita í höfuðið á lengd vallarins af viðkomandi teig. Þannig myndi fremsti teigurinn heita 46, svo kæmi 49, þar á eftir 54 og loks teigur 59 (sem vísar til þess að völlurinn er 5900 metrar á lengd af þeim teigum). Ég er viss um að þessi breyting myndi færa fleiri kylfingum aukna ánægju og gleði í golfleik þeirra. Ég hvet því golfklúbba landsins til þess að breyta teigamerkingum sínum fyrir næsta sumar. Það er nægur tími til stefnu.

4. TBL. OKTÓBER 2014. 24. ÁRG.

Það eru ekki til neinir kvennateigar

Útgefandi/ábyrgðaraðili: Golfsamband Íslands, Laugardal, 104 Reykjavík.

Útlit og umbrot: Víkurfréttir, Páll Ketilsson og Þorsteinn Kristinsson.

Framkvæmdarstjóri: Hörður Þorsteinsson, hordur@golf.is

Auglýsingar: Stefán Garðarsson, stebbi@golf.is símar 514 4053 og 663 4656

Ritstjóri: Páll Ketilsson, pket@vf.is Textahöfundar í þessu blaði: Sigurður Elvar Þórólfsson og Páll Ketilsson. Prófarkalestur: Olga Björt Þórðardóttir. Ljósmyndir: Páll Ketilsson, Sigurður Elvar Þórólfsson, Páll Orri Pálsson, Stefán Garðarsson, Helga Magnúsdóttir og fleiri.

Blaðinu er dreift inn á öll heimili félagsbundinna kylfinga á Íslandi í 15.000 eintökum. Prentun: Ísafoldarprentsmiðja. Forsíða: Gísli Sveinbergsson með efnilegum Snag nemendum í Lindaskóla í Kópavogi. Næsta tölublað kemur út í desember.

Þýðing á erlendu efni frá Golf World og Today´s Golfers: Björn Malmquist

U.S. Kids Golfskólinn Setbergi 2014

Skráning hafin á síðustu námskeið sumarsins. Aðeins 10 börn komast að á hvert námskeið. 21.-25. júlí 18.-22. ágúst

kl. 9:00-12:00 og 13:00-16:00 kl. 9:00-12:00 og 13:00-16:00

Skráning á uskids@simnet.is Upplýsingar um verð ofl. á www.krakkagolf.is



RITSTJÓRAPISTILL

Er punktakerfið í keppnishaldinu vont? Rysjótt golfsumar er að baki en veðurguðirnir höfðu veruleg áhrif á gang mála á suðvesturhorninu en kylfingar fyrir austan og norðan voru í góðum málum. Keppnishald hjá Golfsambandi Íslands gekk ágætlega sem og hjá klúbbunum. Hápunktur í árangri er þó án efa sigur Gísla Sveinbergssonar á The Duke of York mótinu á Royal Aberdeen vellinum í Skotlandi. Hann er þriðji Íslendingurinn sem sigrar á þessu gríðarsterka alþjóðlega móti sem haldið er árlega. Keppendur eru landsmeistarar unglinga sinna þjóða og því er árangur íslensku kylfinganna sem hafa hampað sigri á undanförnum árum mjög eftirtektarverður. Gísli er á forsíðu þessa tölublaðs með krökkum úr Lindaskóla í Kópavogi sem fá reglulega golfleiðsögn með SNAG kennslufyrirkomulaginu undir leiðsögn hjá Maríu Guðnadóttur, íþróttakennara og kylfings. Það er í stefnumótun GSÍ að vinna að útbreiðslu golfíþróttarinnar, m.a. í gegnum grunnskólana. Því miður hefur orðið fækkun meðal ungmenna í golfi á undanförnum árum, hverju svo sem um er að kenna. María segir að krakkarnir séu ánægðir þegar þau fái nasaþefinn af golfi þegar þau handleiki kylfurnar í SNAG-inu í íþróttatímum í Lindaskóla. Það er hins vegar engin trygging fyrir því að þau snúi sér að golfi fyrir alvöru. Formaður Golfklúbbs Húsavíkur segir í viðtali í blaðinu að krakkar sem sótt hafi námskeið í sumar undir handleiðslu PGA leiðbeinanda hafi ekkert sést á golfvellinum eftir námskeiðin. Samkeppnin við aðrar vinsælar greinar eins og fótbolta sé mjög hörð og þar á golfið undir högg að sækja. Til þess að eðlileg endurnýjun verði í greininni og golfklúbbarnir fái nýja félaga í framtíðinni þarf virkilega að bretta upp ermar í útbreiðslunni. GSÍ þarf að leiða það starf en klúbbarnir, PGA golfkennarar og fleiri þurfa að taka þátt í átakinu. Það þarf að hjóla í málið nú þegar. Það er mjög skemmtilegt að lesa viðtal Sigurðar Elvars Þórólfssonar við sexfalda Íslandsmeistara í höggleik, þá Björgvin Þorsteinsson, Úlfar Jónsson og Birgi Leif Hafþórsson. Þeir rifja upp ýmislegt, segja frá eftirminnilegum höggum og ræða um ýmislegt eins og t.d. hvort punktakerfið í keppnishaldinu sé of fyrirferðarmikið; minnki agann í golfleiknum og ekki hafi góð áhrif á unga kylfinga að geta sett x á holuna á skorkortinu. Á hinn bóginn má hugsanlega leiða að því getum að of mikill agi geti fælt unga kylfinga frá frekar en að fjölga þeim. Það er líka mjög uppörvandi og skemmtilegt að lesa viðtal við Stefán Þorleifsson, 98 ára súperkylfing frá Norðfirði. Kallinn fór til Tenerife og lék golf með fjölskyldunni og naut sín í botn en hann náði að leika á aldrinum og keppir alltaf að því. Þetta er eitt af því mjög jákvæða við íþróttina, ungir og aldnir leika saman. Við segjum m.a. frá því í blaðinu þegar Eygló Geirdal, 70 ára golfkona úr GS, lék í fjórmenningsleikjum með 10 ára golfdömu í sveitakeppni kvenna. Hún gat verið amma allra keppenda GS í liðinu. Þetta og margt fleira í fjölbreyttu haustblaði. Páll Ketilsson ritstjóri

SMÁ SÝNISHORN AF EFNI BLAÐSINS

20

16

Golfsumarið 2014

RYDER 2014

Hvernig gekk hjá golfklúbbunum í sumar. Við fáum fréttir frá nokkrum hvernig golfsumarið gekk.

Þetta magnaðasta golfmót sem haldið er fór fram á Gleneagles vellinum í Skotlandi og Evrópa vann enn einu sinni.

26

Gísli á Duke

38

Íslandsmótið

Gísli Sveinbergsson sigraði á The Duke of York mótinu sem fram fór á Royal Liverpool vellinum í N-Skotlandi.

Það var fjör og flott golf á Íslandsmótinu í höggleik sem fram fór á Leirdalsvelli í lok júlí.

50

Sexfaldir Íslandsmeitarar Þremenningarnir og sexfaldir Íslandsmeitarar, Birgir Leifur, Úlfar og Björgvin Þorsteinsson rifja upp ýmislegt og ræða málin.

70

Haukur Örn Haukur Örn Birgisson, forseti GSÍ fer yfir nokkur mál við Golf á Íslandi þar sem stuðst er við nýja stefnumótun sem samþykkt var nýlega.

92

74

98 ára kylfingur Stefán Þorleifsson er 98 ára kylfingur á Norðfirði. Hann skellti sér til Tenerife og lék á aldrinum, 98 höggum.

Unglingamót Við fjöllum um stærstu unglingamótin, Unglingaeinvígið og tölum við unga og efnilega kylfinga.

vefverslun og kennsla

8

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


Óskum Birgi Leif ísLandsmeistara í goLfi 2014 tiL hamingju með fráBært

goLf sumar

Ecco - kringlan Steinar Waage - Smáralind Skóbúðin Húsavík Golfbúðin - Hafnarfirði GolfSkálinn - Reykjavík Skóbúðin - Keflavík

Nína - Akranesi Skóbúð - Selfoss Axel Ó - Vestmannaeyjum Skór.is - netverslun Eagle Akureyri Örninn golfverslun Reykjavík Hole In One -Reykjavík


Lið GS en í því voru tvenn pör af systrum. F.v.: Karen, Laufey, Eygló og Rakel (systir Karenar) og ungu systurnar Kinga og Zuzanna Korpak.

Risastökk hjá Gísla á heimslistanum - hinn 17 ára gamli kylfingur fór upp um 2.371 sæti á einu ári

SEXTÍU ÁR Á MILLI KEPPENDA Í SAMA LIÐI „Þetta var mjög skemmtilegt. Það voru ekki nema sextíu ár á milli okkar Kingu þannig að við náðum vel saman í fjórmenningnum,“ sagði Eygló Geirdal úr Golfklúbbi Suðurnesja en hún var í liði GS í sveitakeppni GSÍ í ágúst. Það vakti athygli og smá aðdáun þegar Eyló mætti til leiks með hinni ungu og stórefnilegu Kingu Korpak í sveitakeppninni í sumar í Mosfellsbæ. Lið GS var skipað ungum golfkonum og Eygló var hissa þegar haft var samband við hana um að vera í liðinu. „En ég sló auðvitað til og lét mig hafa það þó ég hefði þurft að spila fullt af golfi, meðal annars tvisvar tvo hringi sama daginn, sjötug kerlingin. Ég gæti verið amma þeirra allra. Þetta var auðvitað mjög gaman, Georg, kallinn minn dró fyrir mig og svo skemmdi ekki fyrir að okkur Kingu gekk vel saman,“ sagði Eygló við Golf á Íslandi og bætti því við að hún ætti nú ekki von á því að vera aftur kölluð til á næsta ári. En yrði líklega klár í slaginn ef símtalið kæmi.

Smakkaðu...

Gísli Sveinbergsson úr Golfklúbbnum Keili hefur á þessu ári tekið risastökk á heimslista áhugakylfinga. Hinn 17 ára gamli Hafnfirðingur var í sæti nr. 129 í lok september og hafði hann stokkið upp um 2371 sæti á einu ári. Alls eru 29 íslenskir karlar sem er á heimslistanum en bæði Íslandsbankamótaröð unglinga og Eimskipsmótaröðin hafa fengið aukið vægi á heimslistanum eftir að mótin urðu 54 holu mót. Í kvennaflokki er Guðrún Brá Björgvinsdóttir efst af Íslendingunum en hún hefur farið upp um tæplega 700 sæti á einu ári. Guðrún Brá er í sæti nr. 321 á heimslistanum en var í sæti nr. 995.

Efstu íslensku kylfingarnir í karlaflokki á heimslistanum:

Efstu íslensku kylfingarnir í kvennaflokki á heimslistanum eru:

129. Gísli Sveinbergsson, GK 272. Bjarki Pétursson, GB 284. Haraldur Franklín Magnús, GR 588. Kristján Einarsson, GKj. 862. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR 1201. Aron Júíusson, GKG 1325. Ragnar Már Garðarsson, GKG 1386. Andri Þór Björnsson, GR 1493. Axel Bóasson, GK 1841. Rúnar Arnórsson, GK 1991. Stefán Þór Bogason, GR 2097. Fannar Steingrímsson, GHG

321. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK 502. Sunna Víðisdóttir, GR 1150. Berglind Björnsdóttir, GR 1273. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR 1296. Signý Arnórsdóttir, GK 1791. Anna Sólveig Snorradóttir, GK 1911. Sara Margrét Hinriksdóttir, GK 1964. Ólöf María Einarsdóttir, GHD 2336. Tinna Jóhannsdóttir, GK


GJAFAKORT KRINGLUNNAR er gjöf af öllu hjarta Þú færð kortið á þjónustuborði okkar á 1. hæð, við Hagkaup eða á kringlan.is

KRINGLAN.IS

FACEBOOK.COM/KRINGLAN.IS


Lávarðaleikar GSF 2014. Stemmning á uppskeruhátíð:

Keppendur á Lávarðaleikum GSF á Hagavelli á Seyðisfirði.

19. holan leikin á flóðlýstum teig með blikkandi baugjuljós á flaggi 9. flatar Árlegir Lávarðaleikar GSF fóru fram 13. september á Hagavelli Seyðisfirði. Þátttakendur voru 32. Heiðursgestir voru sex. Leikarnir hófust kl. 10.02. Slegið var af öllum teigum samtímis eftir að ræst hafði verið út með kröftugum lúðrablæstri. Golfveður var frábært, Sv-átt, sól og stillt og hiti fór í +18 þegar best lét. Leikið var leikandi létt golf með forgjöf og sáust mögnuð fagnaðarlæti um víðan Hagavöll þegar vel tókst til við slátt og pútt. Um kvöldið buðu Lávarðar til mikillar uppskeruhátíðar í golfskála þar sem þátttakendur, girtir vel í brók að vanda, snæddu valið grillað lambakjét með fjölbreyttu mauluðu meðlæti sem þeir renndu niður með mögnuðum Lávarðadrykk. Riddarar GSF Adolf Guðmundsson nr. 16. Lárus Bjarnason nr.17 og Guðmundur Sigurðsson nr. 18 voru „innvígðir “ í hæstvirta Lávarðadeild GSF

12

af Yfir Lord og Form. Lávarða með vísan til 17. gr. 6. mgr. í Lávarðareglum frá 2006 og 2.gr í viðauka frá 2012. 19. holan „L-B Þorvaldsbrautarbani“ var leikin kl. 21.45-22.30 á flóðlýstum teig með blikkandi baugjuljós á flaggi 9. flatar. Taktfastur, kröftugur, raddaður söngur þar sem allir sungu með sínu nefi,við undirleik Hljómsveitar HÚSSINS, braust út milli Bjólfs og Strandatinds fram til kl. 23.45. Stundvíslega kl. 23.50 renndi rúta í hlað golfskála Hagavallar með Sigurð Valdemarsson við stýrið. Léttir í lundu stigu þátttakendur um borð og keyrt var inn í kaupstað. Sumir létu þar með gott heita en aðrir viðruðu sig ögn lengur í ljúfu næturlífi fjarðarins fagra sem engan svíkur. Lávarðar GSF þakka Riddurum GSF og öllum öðrum kylfingum frábært golfsumar og nú ganga þeir brattir inn í haustið og

veturinn með þann eina ásetning að leika áfram golf á meðan stætt er. Á Lávarðaleikum er leikið um 3 heiðurstitla GSF og veitt er ein tilnefning ársins. Þessi varð niðurstaðan: Meistari Lávarða GSF 2014: Sigurður Finnbogason. Meistari Riddara GSF 2014: Stefán Jóhannsson. Þorvaldsbrautarbani GSF 2014: Ólafur Ingi Mikaelsson (5.43). Tilnefning: Besti vinur Lávarða GSF 2014: Marco. Lávarðar GSF þakka eigendum Brimbergs ehf. og Óttari Magna fyrir veittan stuðning og bjóða nýja Lávarða nr. 15., 16. og 17., velkomna í hópinn F.h. Öldungaráðs Lávarða Þ.J.

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


ENNEMM / NM61546

IP símkerfi fyrir fast gjald á mánuði

Fyrirtækjaþjónusta Símans er partur af starfsemi Furu www.siminn.is

Láttu sérfræðinga okkar finna lausnina sem hentar þínu fyrirtæki Endurvinnslufyrirtækið Fura bútar sundur 2.500 bíla og fimm skip árlega. Eins og 15.000 önnur íslensk fyrirtæki treystir það á fyrirtækjaþjónustu Símans.

Starfsfólkið getur þannig einbeitt sér að sínu aðalhlutverki meðan Síminn sér um rekstur, viðhald og öryggi kerfanna.

Síminn býður fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum upp á bæði fjarskipta- og upplýsingatækniþjónustu.

Nánar á siminn.is eða í síma 800 4000.


ÞETTA ER LÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖNNNGGG

KYLFA!

OG HÚN SVIGNAR EINS OG GÓÐ VEIÐISTÖNG.

14

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


Þ

eir sem eiga í erfiðleikum með teighöggin ættu kannski að hætta að lesa núna. Karsten Maas, danskur atvinnukylfingur sem hefur sérhæft sig í sýningarhöggum, notar „dræver“ sem er 14 fet og 5 tommur, eða rétt rúmlega 4,4 metrar – og slær boltann samt beint niður miðja braut.

kylfuhausinn í meira en fjögurra metra fjarlægð, þá finnur maður fyrir því.“ Maas smíðaði skaftið sjálfur með því að líma saman sköft úr níu venjulegum kylfum, en samkvæmt reglum Guinness heimsmetabókarinnar um þetta (og þær eru til!) má kylfuhausinn ekki vera stærri en á öðrum kylfum (460 cc).

„Þetta krefst töluverðrar æfingar,“ segir Maas. Árið 2009 sló hann fyrst metið fyrir högg með lengstu kylfunni og bætti það met síðan sjálfur í fyrra. „Ef maður tekur um mitt skaftið og lyftir kylfunni, þá er hún ekkert svo þung, en haldi maður um endann, með

„Skaftið svignar gríðarlega þegar maður sveiflar kylfunni,“ segir Maas. „Í toppi baksveiflunnar fer kylfuhausinn næstum í jörðina vinstra megin; í samanburði við þetta er John Daly með mjög stutta baksveiflu! Eftir að ég slæ boltann er ómögulegt að

stöðva sveifluna, þannig að ég leyfi kylfunni að snúa mér tvisvar í hring. Þetta er ekki auðvelt – ég get bara slegið svona tíu högg í röð en þarf þá að taka pásu.“ „Þegar ég setti heimsmetið, þá sló ég boltann 180.94 jarda (165,45 metra) en hafði reyndar áður tekist að ná 246 jarda höggi (224,9 metrar). Mér tekst alltaf að hitta boltann, en höggin eru ekki alltaf góð.“ Maas stefnir ekki að því að slá eigið met á næstunni. „En ef einhverjum tekst að komast lengra, þá reyni ég væntanlega að eignast þetta met aftur.“

Hægt er að sjá sveifluna hjá Karsten hér: www.todaysgolfer.co.uk/19thhole


A

Veðrið lék stórt hlutverk á golfsumrinu 2014

nnað árið í röð var sól og blíða á Norður og Austurlandi á golfsumrinu 2014 og úrkoman var allsráðandi á Suður- og Vesturlandi. Gríðarlegur klaki var á golfvöllum landsins langt fram eftir vetri og ástand margra golfvalla því frekar Öndverðarnes, 6.braut.

dapurt í vor þegar tímabilið hófst. Golf á Íslandi heyrði hljóðið í nokkrum forsvarsmönnum golfklúbba víðsvegar um landið. Umræðuefnið var einfalt; hvernig var golfsumarið 2014 hjá ykkur?

ber og er skýringin að mestu veðurfarið að mati Garðars. „Það var blautt í Grafarholtinu og völlurinn er aðeins lengur að verða tilbúinn á vorin. Veðrið var ekkert sérstakt hérna í sumar eins og flestir vita og það er greinilegt að 9 holu valkosturinn var vinsæll í sumar. Það er aukning upp á 3.500 hringi í 9 holu spilinu í Korpunni sem er ánægjulegt,“ sagði Garðar Eyland framkvæmdastjóri GR. Katlavöllur Húsavík sumarið 2014

Öndverðarnes: „Rigningasumarið var erfitt“ „Rigningarsumarið 2014 hefur reynst okkur erfitt að mörgu leyti. Ég er ekki með nákvæmar tölur í höndunum en tilfinningin er sú að það sé 30-40% færri leiknir hringir á þessu sumri miðað við venjulegt ár. Sumarið 2013 var blautt og þungt en 2014 var enn verra,“ segir Guðmundur Hallsteinsson formaður Golfklúbbs Öndverðarness. „Völlurinn hefur ekki náð að koma vatninu frá á ýmsum stöðum og þá sérstaklega á 10., 11. og 17. braut. Við munum fara í framkvæmdir á þessum svæðum í haust og sem verða vonandi til þess að laga ástandið ef það heldur áfram að rigna svona á okkur næstu misserin.“ Það eru um 530 félagar í GÖ og segir formaðurinn að það gangi vel að fá fólk til þess að leggja hönd á plóg í sjálfboðavinnu í stærri verkefnum. Nýjar flatir hafa verið byggðar á 1. og 9. braut og þar hafa félagsmenn lagt mikla vinnu á sig. „Það mættu 64 félagar á vinnudag í vor sem er met. Það eru margir sem vilja leggja klúbbnum lið og svona hlutir efla félagsandann. Það er almenn ánægja með breytingarnar á 1. og 9. braut hjá okkar félagsmönnum og við vonum að ástandið lagist á blautustu svæðunum á vellinum eftir þær framkvæmdir sem ráðist verður í núna í haust.“

Húsavík: „Veðrið var engu líkt“

„Sumarið 2014 var engu líkt veðursfarslega séð – hitatölurnar sem voru hérna eru einstakar en því miður voru flatirnar á vellinum illa farnar eftir veturinn og það voru mikil vonbrigði. Allt annað á vellinum, brautir og gróður, var í toppstandi,“ segir Pálmi Pálmason formaður Golfklúbbsins á Húsavík Það eru um 130 félagar í GH og segir formaðurinn að það sé svipaður fjöldi og á liðnum árum. Helsta áhyggjuefnið sé að börn – og unglingar sýna golfíþróttinni lítinn áhuga. „Við fengum krakkana til þess að koma á námskeiðin sem við vorum með í samvinnu við PGA nemanda. Þegar námskeiðin voru búin sáum við ekki þessa krakka á vellinum – því miður. Samkeppnin er mikil, sérstaklega við knattspyrnuna. Katlavöllur er ekki langt frá bænum og það er ekki flöskuháls fyrir krakkana að fjarlægðin sé of mikil á völlinn.“ Mótahaldið tókst vel hjá Húsvíkingum í sumar. Golfmótið sem fór „Það hefur bara gengið ágætlega í sumar hjá okkur og það er aukning fram samhliða landsmóti 50 ára og eldri hjá UMFÍ var vel sótt og í Korpunni og aðeins fækkun í heildarspilinu á Grafarholtsvelli,“ segir Opna golfmótið á Mærudögum var einnig vel heppnað að sögn Garðar Eyland framkvæmdastjóri Golfklúbbs Reykjavíkur. „Það hefur Pálma. Aðsókn ferðamanna á Katlavöll var góð í sumar og spilaði veðrið ekki verið mikið kvartað í sumar yfir því að félagar GR komist ekki þar stærstan þátt. Pálmi segir að næsta brýna verkefni klúbbfélaga í rástímana sem eru í boði og mun fleiri nýta sér það að leika bara 9 á Húsavík sé að huga að framtíðarhúsnæði. „Golfskálinn er í raun holur. Í fyrsta sinn í sumar gátu félagsmenn sem eru utan GR skráð sig í rástíma með tveggja daga fyrirvara en félagsmenn GR geta skráð bara ónýtur – það þarf ekkert að fara í felur með það. Við þurfum að huga að þeim þætti á næstunni en ýmsar framkvæmdir hafa átt sér sig með fjögurra daga fyrirvara. Þetta hefur gengið bara býsna vel,“ stað á vellinum. Um miðjan júní var tekin í notkun vatnsdæla sem segir Garðar. Aukningin á heildarheimsóknum á Korpúlfsstaðarvöll nemur um 2.000 hringjum og er aukningin öll í 9 holu spili. Á Grafar- gjörbreytti vökvunarkerfi vallarins. Ég er ekki í vafa um að ástandið á holtsvelli er fækkun um 2.500 hringi frá maí og fram til loka septem- vellinum hefði verið mun betra ef vatnið hefði verið til staðar í byrjun maí,“ segir Pálmi Pálmason.

Golfklúbbur Reykjavíkur: „Mikil aukning í 9 holu spili“

16

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


EOS 100D

„Ég gjörsamlega elska hana“ Erna Hrund, tískubloggari

Nett myndavél sem þú hefur með þér hvert sem er. Taktu þitt næsta skref!

netverslun.is


Byggðarholtsvöllur á Eskifirði.

Eskifjörður: „Frábær sumar“ „Sumarið var frábært í einu orði sagt. Veðrið var stórkostlegt í allt sumar og það eru engar ýkjur. Völlurinn var í góðu standi og við fengum mikið af heimsóknum frá ferðamönnum,“ segir Jóhann. Um 80 félagsmenn eru í GBE sem var stofnaður árið 2009 eftir að Golfklúbbur Eskifjarðar lagðist af. „Við höfum verið með ýmsar framkvæmdir á vellinum og lengt hann í 2.600 metra. Byggðarholtsvöllur er par 36 í dag en var áður 33 og það munar miklu. Við höfum fengið 15 nýja félaga í sumar og það er heilmikil fjölgun miðað við stærð klúbbsins“ segir Jóhann Arnarson formaður Golfklúbbs Byggðarholts á Eskifirði. Brynjar Sæmundsson golfvallafræðingur hjá GrasTec hefur verið rágjafi GBE hvað vallarmálin varðar á undanförnum árum og segir Jóhann að völlurinn hafi breyst mikið frá þeim tíma. „Við þurfum að gera meira fyrir barna- og unglingastarfið hjá okkur en það er dýrt fyrir lítinn klúbb að fá kennara og leiðbeinendur á svæðið. Við erum að gera okkar besta með því að leiðbeina sjálfir en það er verk að vinna á þessu sviði.“ Jóhann segir að Byggðarholtsvöllur hafi fengið mikið hrós frá gestum á undanförnum misserum og meira að segja félagar í Golfklúbbi Norðfjarðar hafi hrósað vellinum. „Þegar það gerist þá vitum við að völlurinn er jafnvel betri en Grænanesvelli á Norðfirði,“ segir Jóhann Arnarson formaður Golfklúbbs Byggðarholts á Eskifirði.

verið óendanlega flottur í sumar. Þetta er yfirburðavöllur, þó ég segi sjálfur frá. Ég er búinn að vera hérna lengi og völlurinn hefur aldrei verið betri. “ Óskar býst ekki við því að margir vellir á Suðurlandi hafi aukið heimsóknafjöldann á rigningasumrinu 2014 frá því í fyrra, sem reyndar var einnig rigningasumar. „Ég held að margir átti sig á því að Strandarvöllur er fljótur að þorna eftir miklar rigningar. Það er ekkert vesen, flatirnar taka bara betur við og málið er dautt.“ Félagafjöldinn hjá GHR breytist lítið á milli ára en félagafjöldinn hefur verið 100 í mörg ár en Óskar segir að einn hafi bæst í hópinn. „Við erum 101 og það er fín tala. Allt saman frábært fólk sem leggur mikið á sig fyrir klúbbinn.“ Tvö stórmót á vegum Golfsambands Íslands fóru fram á Strandarvelli í sumar. Egils Gull mótið á Eimskipsmótaröðinni og Íslandsmót unglinga í höggleik á Íslandsbankamótaröðinni. Óskar segir að Golfsambandið hafi leitað mikið til GHR með mótahald í gegnum tíðina. „Það býr mikil reynsla hjá okkur hvað þetta varðar og það er góður og samstilltur hópur sem er alltaf tilbúinn að leggja sitt að mörkum til að þetta gangi upp,“ segir Óskar. Frá Strandarvelli á Hellu.

Hella: „Varnarsigur og fjölgun þrátt fyrir úrkomuna“ „Við unnum varnarsigur í sumar og það eru ívið fleiri sem léku á Strandarvelli en árið áður,“ segir Óskar Pálsson formaður Golfklúbbsins Hellu. „Það er ekki okkur að þakka, Strandarvöllur hefur

Frá Strandarvelli á Hellu 2. 18

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is



SIGURGANGAN

HÉLT ÁFRAM Sigurganga Evrópuliðsins gegn Bandaríkjunum í Ryderkeppninni hélt áfram á Gleneagles vellinum í Skotlandi. Evrópa fagnaði öruggum 16½ - 11½ sigri sem var sá þriðji í röð, sá áttundi í síðustu tíu keppnum og sá sjötti í síðustu sjö keppnum. Frá því að úrvalslið Evrópu mætti fyrst til leiks í Ryderkeppninni árið 1979 hefur Evrópuliðið unnið 11 keppnir og Bandaríkin er með 7 sigra.

Phil Mickelson og Keegan Bradley í báðum leikjunum á laugardeginum. Mickelson, sem var að taka þátt í sinni 10. Ryderkeppni, var allt annað en sáttur við þá ákvörðun. Hann sendi Watson SMS skeyti eftir 3. umferðina og vildi fá að taka þátt með Bradley í fjórmenningnum en Watson gaf sig ekki. Mickelson leyndi ekki vonbrigðum sínum á blaðamannafundi eftir keppnina þar sem hann gagnrýndi vinnuaðferðir Watson.

Paul McGinley fyrirliði Evrópuliðsins mætti með gríðarlega heilsteypt lið til leiks og sjálfstraustið „lak“ af leikmönnum Evrópu. Bandaríska liðið mætti einfaldlega ofjörlum sínum í þessari keppni. Úrslitin í fjórmenningnum (foursome) á föstudag og laugardag reyndust bandaríska liðinu dýrkeypt. Í fjórmenning leika liðsfélagarnir einum bolta til skiptis og þar náði Evrópuliðið að landa 7 stigum af þeim 8 sem voru í boði.

Í stöðunni 10-6 fyrir lokadaginn þurfti Evrópa aðeins að landa fjórum stigum til þess að halda Ryderbikarnum í sínum röðum. Bandaríska liðið fór vel af stað og var yfir í fyrstu leikjunum í tvímenningnum. Þá tók Rory McIlroy til sinna ráða og gekk frá Rickie Fowler í stórleik lokaumferðarinnar. McIlroy byrjaði með þvílíkum látum og fékk fugl, örn, fugl, par, fugl og fugl á fyrstu sex holunum og var hann fimm holur upp eftir sex holur. Fowler náði að vinna sjöundu holuna og var það eina holan sem hann vann í leiknum. McIlroy kláraði dæmið á 14. og fagnaði 5/4 sigri.

Keppnin þróaðist með þeim hætti að eftir 1. umferðina á föstudeginum va bandaríska liðið með naumt forskot 2½ - 1½ eftir fjórleikinn (fourball). Þar sem tveir léku saman í liði og betra skorið á hverri holu taldi. Bandarísku nýliðarnir Jordan Spieth og Patrick Reed rústuðu Ian Poulter og Stephen Gallacher 5/4 og það vakti athygli að Tom Watson fyrirliði bandaríska liðsins hvíldi þá Spieth og Reed í 2. umferð – og ákvarðanir Watson áttu eftir að vera umdeildar. Evrópuliðið sýndi styrk sinn í fjórmenningnum í 2. umferð og náði þar 3½ vinning af alls 4 sem í boði voru. Staðan var því 5-3 eftir fyrsta keppnisdaginn. Á laugardeginum var nánast sama uppskrift og Evrópuliðið var með 10 vinninga gegn 6 vinningum bandaríska liðsins fyrir lokaumferðina. Watson hvíldi hinn reynslumikla

Nýliðarnir Jamie Donaldson frá Wales og Victor Dubuisson frá Frakklandi léku vel í frumraun sinni og það var viðeigandi að Donaldson skyldi tryggja Evrópu stigið sem gulltryggði sigurinn á lokadeginum. „Ég get ekki lýst því hvernig mér leið eftir síðasta höggið. Ég var með réttu kylfuna og sló besta höggið sem ég hef slegið á ævinni með fleygjárninu til þess að tryggja Evrópu sigur í Ryderkeppninni. Þetta er ótrúleg tilfinning,“ sagði Donaldson eftir lokadaginn en hann sló magnað högg á 14. braut af um 100 metra færi og „klíndi“ boltanum við stöngina sem tryggði sigurinn. Lokastaðan 16½ - 11½ Evrópu í vil en maður keppninnar var án efa Justin Rose frá Englandi sem fór á kostum og tapaði ekki leik.

Rory, Gallagher, Donaldsson og Stenson fagna vel og innilega. 20

Watson hrósaði Evrópumönnum og sagði þá hafa einfaldlega leikið betur en sínir menn.

Ótrúleg tilþrif hjá Rose og Stenson Það er mat golfsérfræðinga að Ryderkeppnin á Gleneagles hafi verið ein sú besta hvað varðar gæði golfsins. Til marks um það töpuðu Bandaríkjamennirnir Matt Kuchar og Bubba Watson í fjórleik (betri bolta) á öðrum keppnisdegi mótsins þrátt fyrir að hafa fengið 9 fugla samtals. Þeir áttu ekki svar við stórkostlegum leik Justin Rose frá Englandi og Svíanum Henrik Stenson sem fengu alls 12 fugla á 16 holum. Rose og Stenson fögnuðu 3/2 sigri á 16. braut. Aldrei áður í sögu Ryderkeppninnar hafa jafn margir fuglar litið dagsins ljós en Rose fékk sjö fugla en leiknum lauk á 16. flöt. Kuchar og Watson léku einnig vel því þeir fengu samtals 9 fugla og samtals í þessum leik voru fuglarnir alls 21 sem er met í Ryderkeppninni.


- fjórmenningsleikirnir reyndust bandaríska liðinu erfiðir í Ryder-keppninni á Gleneagles vellinum í Skotlandi

Mickelson gagnrýndi Watson - McGinley nýtti sér reynsluna úr fyrri keppnum „Þeir léku betur svo einfalt er það, við þurfum að leika betur til þess að vinna þessa keppni,“ sagði Tom Watson en PGA í Bandaríkjunum hefur verið gagnrýnt fyrir þá stefnu að velja aðeins fyrirliða úr röðum fyrrum sigurvegara á risamótum. Það þrengir hringinn aðeins og til samanburðar þá hefur Írinn Paul McGinley aðeins sigrað á fjórum mótum á Evrópumótaröðinni – og aldrei á risamóti. Sú staðreynd breytti engu þegar hann var valinn til þess að gegna fyrirliðastöðunni á Gleneagles. Það sem skiptir kannski meira máli er að McGinley hefur verið varafyrirliði í síðustu tveimur keppnum og stýrt úrvalsliði Bretlands og Írlands í Seve bikarnum. Rory McIlroy, sterkasti leikmaður Evrópuliðsins, sagði á fundi með blaðamönnum að ráðleggingar sem hann fékk frá McGinley fyrir fimm áum í Seve bikarnum séu enn að nýtast honum í keppni. Og McGinley upplifði það í návígi hvernig leikmenn brugðust við ýmsum aðstæðum þegar hann var varafyrirliði í síðustu tveimur keppnum. Á meðal þess sem McGinley gerði fyrir Ryderkeppnina var að fá Sir Alex Ferguson, fyrrum knattspyrnustjóra Manchester United, GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is

í létt spjall með liðinu í æfingavikunni fyrir Ryderkeppnina. Sá fundur heppnaðist vel og fékk kylfingina til þess að sjá ýmislegt frá öðru sjónarhorni. Á meðan liðsheildin var einkenni Evrópuliðsins var „pirringur“ í herbúðum þess bandaríska. Mickelson gagnrýndi ástandið og sagði að skortur á samskiptum væri á milli leikmanna og fyrirliða. Mickelson vitnaði í

Úrslit fyrri keppna:

*Úrvalslið Evrópu mætti fyrst til leiks árið 1979 en fram að þeim tíma hafði Ryderliðið verið skipað kylfingum frá Bretlandseyjum og Írlandi: 1979: Bandaríkin (1) 17–11 Evrópa (The Greenbrier, The Greenbrier Course) 1981: Bandaríkin (2) 18½–9½ Evrópa (Walton Heath Golf Club) 1983: Bandaríkin (3) 14½–13½ Evrópa (PGA National Golf Club) 1985: Evrópa (1) 16½–11½ Bandaríkin (The Belfry, Brabazon Course) 1987: Evrópa (2) 15–13 Bandaríkin (Muirfield Village) 1989: Evrópa (3) 14–14 Bandaríkin (The Belfry, Brabazon Course) 1991: Bandaríkin (4) 14½–13½ Evrópa (Kiawah Island Golf Resort, Ocean Course) 1993: Bandaríkin (5) 15–13 Evrópa (The Belfry, Brabazon Course) 1995: Evrópa (4) 14½–13½ Bandaríkin (Oak Hill Country Club, East Course) 1997: Evrópa (5) 14½–13½ Bandaríkin (Valderrama Golf Club) 1999: Bandaríkin (6) 14½–13½ Evrópa (The Country Club, Composite Course) 2002: Evrópa (6) 15½–12½ Bandaríkin (The Belfry, Brabazon Course) 2004: Evrópa (7) 18½–9½ Bandaríkin (Oakland Hills Country Club, South Course) 2006: Evrópa (8) 18½–9½ Bandaríkin (K Club, Palmer Course) 2008: Bandaríkin (7) 16½–11½ Evrópa (Valhalla Golf Club) 2010: Evrópa (9) 14½–13½ Bandaríkin (Celtic Manor Resort, Twenty Ten Course) 2012: Evrópa (10) 14½–13½ Bandaríkin, Medinah. Fyrirliðar José María Olazábal/ Davis Love III 2014: Evrópa (11) 16 ½ – 11 ½ Bandaríkin, Gleneagles. Fyrirliðar Paul McGinley / Tom Watson. vinnulag Paul Azinger sem skipti 12 manna liðinu upp í þrjá fjögurra manna hópa og hóparnir komu sér saman um ýmsa þætti sem snéru að keppninni og komu með tillögur hvernig best væri að leysa það. Watson gerði ekkert slíkt að sögn Mickelson sem lét allt flakka á fundi með fréttamönnum eftir keppnina og var langt frá því að vera sáttur. Rose, McDowell og Garcia í myndavélabaði!

21


16,5 Evrópa:

Rory McIlroy (25 ára), N-Írland. Henrik Stenson (38 ára), Svíþjóð. Sergio García (34 ára), Spánn. Justin Rose (34 ára), England. Martin Kaymer (29 ára), Þýskaland. Graeme McDowell (35 ára), N-Írland. Victor Dubuisson (24 ára), Frakkland. Thomas Bjørn (43 ára), Danmörk. Jamie Donaldson (38 ára), Wales. Stephen Gallacher (39 ára), Skotland*. Ian Poulter (38 ára), England*. Lee Westwood (41 árs), England*. *Valdir af Paul McGinley fyrirliða

22

Jamie Donaldson innsiglaði sigur Evrópumanna.

11,5

Bandaríkin:

Jim Furyk (44 ára) Matt Kuchar (36 ára) Bubba Watson (35 ára) Phil Mickelson (44 ára) Rickie Fowler (25 ára) Jordan Spieth (21 árs) Zach Johnson (38 ára) Jimmy Walker (35 ára) Hunter Mahan (32 ára)* Keegan Bradley (28 ára)* Patrick Reed (24 ára) Webb Simpson (29 ára)* *Valdir af Tom Watson fyrirliða

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


Velkomin í Vodafone

USA Traveller

Byltingarkennd lækkun á farsímakostnaði í USA og Kanada Nú getur þú ferðast um Bandaríkin og Kanada og notað snjallsímann þinn fyrir miklu lægra verð en áður. Skráðu þig núna í Vodafone USA Traveller með því að senda sms-ið „USA“ í 1414. Vodafone


Ágúst Jensson var í innsta hring á Gleneagles og tolleraði m.a. Rory McIlroy og fleiri Ryder-leikmenn.

Ágúst á 1. teig á Gleneagles.

STÓRKOSTLEG UPPLIFUN

Fatnaður þeirra bandarísku vakti athygli.

Jack Nicklaus, sem var heiðraður af Evrópumönnum heilsar hér Ferguson, fyrrum þjálfara Man. Utd. en hann kom að „pepp-þætti“ í undirbúningi Evrópuliðsins.

„Þetta er alveg stórkostleg upplifun og alveg ótrúlega gaman að fá að taka þátt í þessu. Það voru um 40 sjálfboðaliðar sem unnu á vellinum ásamt þeim starfsmönnum sem fyrir voru, samtals um 100 starfsmenn. Ég var heppinn að fá að taka þátt enda sóttu um 400 manns um að komast í þetta verkefni og ég gleymi ekki þessum dögum. Þeir voru stórkostlegir,“ segir Ágúst Jensson, framkvæmdastóri Golfklúbbs Akureyrar, sem var í innsta hring á Gleneagles vellinum á meðan Ryderkeppnin fór fram. Ágúst var vallarstarfsmaður á Gleneagles fyrir 13 árum og sambönd hans við fyrrum samstarfsfélaga á Gleneagles urðu til þess að hann fékk að taka þátt. Ágúst segir að vinnudagarnir hafi verið langir en góður tími hafi einnig gefist til þess að fylgjast með keppninni. „Það var byrjað alla daga klukkan 5 að morgni og unnið með hléum fram til 20 á kvöldin. Það gafst því nægur tími til að horfa á golf og ekki skemmdi fyrir að hafa passa sem hleypti okkur inn á svæði sem fáir fengu að komast inn á. Við vorum því alltaf með bestu sætin. Ég var t.d. fyrir aftan 15.

flötina þegar Jamie Donaldson tryggði okkur bikarinn, það var geðveikt,“ segir Ágúst en hann fékk m.a. að tollera Rory McIlroy ásamt liðsfélögum hans úr Ryderliðinu.

Gæsahúð þegar áhorfendur stóðu upp

„Toppurinn á þessu öllu saman var þegar verðlaunaafhendingin var búin. Við sem vorum að vinna á vellinum stóðum allir á fyrsta teig þegar Ryderstrákarnir komu keyrandi með bikarinn til baka. Daninn Thomas Björn stoppaði og kom með bikarinn til okkar. Ian Poulter, Rory McIlroy og Justin Rose komu síðan til okkar og við hoppuðum og sungum með þeim, tolleruðum m.a. Rory. Það var stórkostleg stund.“ Ágúst segir það hafa verið magna upplifun þegar áhorfendur stóðu upp og þökkuðum þeim fyrir að hafa völlinn eins góðan og raun bar vitni. „Eftir að við höfðum lokið við að vinna á snemma á sunnudeginum og vorum að keyra að aðstöðu vallarstarfsmanna þá stóð alveg helling af fólki upp og klappaði fyrir okkur. Þá fékk ég gæsahúð,“ segir Ágúst Jensson.

Jordan körfuboltakappi var í stuðningsliði Bandaríkjamanna.

Fögnuður á 15. braut eftir að Donaldsson lauk leik. - Það geta fleiri en Skotar klæðst pilsum. 24

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is



Gísli á teig á Royal Aberdeen.

Gísli Sveinbergsson tryggði þriðja íslenska sigurinn á The Duke of York mótinu á hinum fornfræga Royal Aberdeen velli í Skotlandi:

Var farinn að hugsa um vallarmet McIlroy's

G

-„Gleymdi mér aðeins í fuglaveislunni“.

ísli Sveinbergsson úr Golfklúbbnum Keili var ekkert að tvínóna við hlutina á Royal Aberdeen vellinum í Skotlandi þegar hann kom sá og sigraði á The Duke of York Young Champions Trophy sem haldð var um miðjan september. Aðstandendur „Hertogamótsins“, sem nú var haldið í fjórtánda sinn, klóra sér í hausnum yfir árangri íslenskra kylfinga því áður höfðu Guðmundur Ágúst Kristjánsson GR og Ragnar Már Garðarsson GKG sigrað, árið 2012 og 2014. „Sjálfstraustið var gott fyrir mótið og ég fór með því hugarfari að vinna sigur. Það hjálpaði mikið að þeir Guðmundur

Gísli með fjölskyldu sinni sem hefur verið dugleg að styðja hann á golfvellinum.

Ágúst og Ragnar Már höfðu unnið þetta mót áður,“ sagði Gísli en hann lék frábært golf á þessum sjötta elsta golfvelli í heimi. Gísli tók forystu strax í upphafi móts og skildi andstæðinga sína eftir í reykmekki þegar hann fékk fimm fugla á fyrstu tíu holunum í öðrum hring og innsiglaði þannig sigurinn.

Keiliskappinn með Hertoga-bikarinn en hann er geymdur í einn af höllum Englandsdrottningar en prinsinn Andrews er verndari mótsins.

26

Gísli lék við hvern sinn fingur

Veðurguðirnir í Norður-Skotlandi létu illa og þurfti að stöðva leik þrisvar sinnum á Royal Aberdeen vellinum. Að endingu þurfti að stytta mótið í 36 holur og sleppa þriðja hring. Gísli lék flott golf fyrstu 18 holurnar og náði forystu í mótinu á -2 og leiddi með höggi þegar annar hringur hófst. Annar var besti kylfingur Skota, heimamaðurinn Ewen Ferguson, höggi á eftir Gísla og fleiri komu síðan skammt undan. Það mátti því gera ráð GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is

14090


SMÁRALIND 5659730 / KRINGLAN 5680800 / AKUREYRI 4627800

SMÁRALIND XL 5650304

140905_DM_Island_210x300_lh.indd 1

9/3/14 2:10 PM


Gott sumar hjá Gísla

Gísli, Haukur Örn Birgisson, forseti GSÍ, Ragnhildur Kristinsdóttir og Stefán Garðarsson, liðsstjóri.

fyrir spennandi keppni. Eftir fimm holur á öðrum hring var leik frestað vegna þoku en þá var Keiliskappinn búinn að fá tvo fugla til viðbótar og auka við forystuna. Á þriðja keppnisdegi þurfti hann að vakna kl. 5 um morguninn en þegar hefja átti leik var of mikil þoka. Nokkrum tímum síðar var hægt að hefja leik og Íslendingurinn hélt áfram að

jánsson, GR, gaf tóninn fyrir Íslendinga á mótinu árið 2010 þegar hann vann og Ragnar Már Garðarsson, GKG, vann svo árið 2012. Þetta var í fjórtánda sinn sem mótið var haldið og árangur íslenskra kylfinga magnaður. Japaninn Ren Okazaki varð annar, fjórum

„Vonandi get ég fylgt þessu eftir“ leika frábært golf og fékk þrjá fugla á næstu þremur brautum. Þá var forystan komin í sex högg og ljóst að mikið þurfti að ganga á til að Gísli tapaði þeirri forystu. „Þegar ég var kominn fimm undir par eftir tíu holur var ég ekki lengur að hugsa um sigurinn heldur vallarmetið sem Rory McIlroy á og er 7 undir. Gleymdi mér í fuglaveislunni og fór aðeins fram úr mér því ég fékk tvo skolla í andlitið en ég jafnaði mig á því og kláraði dæmið. Það var léttir að gera það því það gekk talsvert á í þessu þokurugli en ég lét það ekkert á mig fá og náði að leika gott golf.“

höggum á eftir Gísla og Mexíkaninn Eduardo Carrete ásamt ítölsku stúlkunni Carlottu Ricolfi voru á parinu 36 holurnar. Heimamenn vonuðust eftir sigri hjá sínum manni, Ewen Ferguson sem var höggi á eftir Gísla eftir fyrsta hringinn en hann lék seinni á 4 yfir pari og endaði í 5. sæti með öðrum. Skotinn hrósaði Gísla fyrir gott golf og sagði að Íslendingurinn hefði höndlað aðstæðurnar best allra.

Aðspurður um Royal Aberdeen völlinn segir Gísli að hann hafi hentað sér vel. „Ég hef verið beinskeyttur í drævunum og eins í innáhöggunum í allt sumar og var nýkominn úr titilbaráttu á Jaðarsvelli á Akureyri á Eimskipsmótaröðinni og var þannig í góðum gír. Ég hef leikið nokkuð vandræðalaust golf í sumar. Ég náði að leika þannig golf á þessu móti og kom mér því oft í góða stöðu fyrir fugli eða jafnvel örnum því ég var t.d. tvisvar í hörkufæri fyrir tveimur undir á par 5 brautum. Mér fannst völlurinn ekki mjög langur en hann refsaði þó mikið ef maður hitti ekki brautina í upphafshöggi. Það var mjög mikið af glompum, bæði á brautum og við flatir og röffið var þungt ef farið var þangað. Þetta er auðvitað mín stærsta stund hingað til á ferlinum og vonandi get ég fylgt þessu eftir,“ sagði Gísli. Til gamans má geta að heimamenn vonuðust eftir sigri síns mans, Fergusons, en hann var bæði höggleiks- og holukeppnismeistari unglinga í Skotlandi í sumar. Í viðtali við heimasíðu klúbbsins eftir mótið kom fram að Ferguson fer í haust í þrjá og hálfan mánuð í æfingabúðir, til Dubai, Flórída og S-Afríku. Keilismaðurinn er enn að klára framhaldsskóla en æfir í Hraunkotinu í vetur en fer svo í háskólanám í Bandaríkjunum að því loknu. Næsta Duke of York mót fer fram á Princess vellinum í S-Englandi í september 2015.

Gísli og Ragnhildur á Hertogamótinu.

Í reynslubankann hjá Ragnhildi

Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR stóð sig líka vel og lék á 81-75 og endaði í 35. sæti af 55 þátttakendum sem voru allir unglingameistarar sinna landa í sumar. Það segir til um styrk keppenda á þessu móti og er því enn eftirtektarverðara hvernig Íslendingum hefur gengið á mótinu síðustu sex árin. „Þetta var mjög skemmtilegt og fer í reynslubankann. Mér gekk ágætlega en var ósátt við þrjá skolla á síðustu þremur á fyrsta hringnum. Annars var þetta bara fínt,“ sagði Ragnhildur sem var búin með 13 holur í þriðja hring þegar mótið var blásið af. Það er sérstakt við mótið að keppt er í einum flokki og stúlkur og piltar því saman í mörgum hollum. Guðmundur Ágúst Krist28

Gísli með forráðamönnum klúbbsins og mótsins. GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


Framleiðum barmmerki í öllum stærðum og gerðum. Mikið úrval af bikurum og verðlaunapeningum. Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 17 eða hafið samband í síma 588-3244 fax 588-3246 netfang: isspor@simnet.is


KONUR ERU GÓÐIR DÓMARAR Sherry Shao frá Kína - einn fremsti golfdómari heims heimsótti Ísland á dögunum

S

herry Shao, frá Kína, er aðeins 32 ára gömul en hefur á fáum árum komist í fremstu röð golfdómara í heiminum en hún var hér á Íslandi í heimsókn á dögunum á vegum Aðalsteins Örnólfssonar golfdómara. Golf á Íslandi hitti Shao og ræddi við hana um golfíþróttina og hvernig það væri vera ein af fáum konum sem hafa lagt dómarastarfið fyrir sig í golfinu. Shao er hámenntuð og er með doktorsgráðu og starfar sem háskólakennari í Shenzen – og fögin sem hún kennir snúa öll að golfíþróttinni. Shao var nýlent á Íslandi þegar viðtalið var tekið í dæmigerðu haustveðri en planið var að fara á nokkra golfvelli hér á landi og skoða sig um. Viðtalið var tekið í golfskálanum á Hólmsvelli í Leiru og það blés hressilega fyrir utan og fáir voru að spila golf. „Þetta veður er mjög ólíkt því sem ég er vön að sjá í Kína en ekki ósvipað og á Englandi þar sem ég dvel fram í febrúar á næsta ári sem gestakennari,“ segir Shao en það var faðir hennar sem tók þá ákvörðun að hún færi í nám í golfvallastjórnun – og hún er þakklát fyrir þá ákvörðun. „Ég vissi ekkert um golf þegar faðir minn tók þá ákvörðun fyrir mig að senda mig í háskólanám með golf sem aðalfag. Hann taldi að það gæti opnað möguleika fyrir mig og núna fimmtán árum síðar reyndist það rétt ákvörðun. Þegar ég kom fyrst í skólann vissi ég lítið um golfíþróttina en smátt og smátt fór ég að meta það sem var í boði og á endanum elskaði ég það sem ég var að læra,“ segir Shao en hún fór í gegnum háskólanám við Shenzen sem snýr að mestu um rekstur golfvalla ásamt öðrum þáttum sem tengjast íþróttinni. Gríðarlegur vöxtur hefur verið í golfinu í Kína á undanförnum árum en Shao

30

segir að aðeins hafi hægt á vextinum þar sem kínversk yfirvöld hafa ekki gefið leyfi fyrir mörgum nýjum golfvöllum frá árinu 2004. Það er samt sem áður mikil eftirspurn eftir nýjum golfvöllum og á meðan efnahagurinn er enn í sókn þá mun það halda áfram. Shao hefur dvalið í vetur í Birmingham sem gestakennari við háskóla þar í borg – og samhliða því hefur hún nýtt tímann til þess að upplifa golfmenninguna sem ríkir á Bretlandi. „Ég reyni að spila golf þegar ég hef tíma – ég geri reyndar meira af því í Kína en mér finnst mjög gaman að spila á nýjum völlum. St. Andrews er í miklu uppáhaldi en ég hef fengið tvívegis að leika á gamla vellinum og það var stórkostleg upplifun.“ Eins og áður segir er Shao háskólakennari við Shenzen en þaðan útskrifast á bilinu 4060 nemendur árlega með prófgráðu í rekstri golfvalla – og það eru 40-50 slíkir skólar í Kína sem eru með svipaða námslínu. Það er því ótrúlegur fjöldi sem útskrifast á hverju ári með sérþekkingu í rekstri á golfvöllum og Shao segir að eftirspurnin sé enn mikil eftir fólki með slíka menntun í Kína. Shao segir að hún hafi fengið áhuga á golfreglunum þegar hún stundaði háskólanámið og hún hafi sökkt sér í fræðin og haft gaman af því. „Ég tók dómarapróf árið 2005 en það gekk ekki nógu vel en ég reyndi aftur síðar og komst í gegnum prófið,“ segir Shao en árið 2007 hafði hún lokið öllum þremur stigunum hvað varðar dómararéttindi í Kína. „Það varð til þess að ég fékk boð um að fara til R&A í Skotlandi til þess að öðlast alþjóðleg réttindi,“ segir Shao en hún hefur verið dómari á fjölmörgum mótum á Evrópumótaröðinni sem fram hafa farið í Kína á undanförnum árum. „Ég var hársbreidd frá því að vera full-

trúi Kína í dómarastéttinni á Opna breska meistaramótinu á þessi ári. Það breyttist á síðustu stundu en ég vona að ég fái tækifæri til þess að starfa á því móti síðar og risamótin eru þau mót sem við viljum öll fá að upplifa. Shao er í hópi fárra kvenna sem hafa lagt dómarastarfið fyrir sig og hún segir að yfirleitt sé hún eina konan sem sé dómari á þeim mótum sem hún starfi við. Hún segir að viðmót leikmanna á karlamótunum sé ekkert öðruvísi gagnvart henni en öðrum dómurum. „Mér hefur reyndar þótt þeir taka mér betur en mörgum öðrum – ég held að konur séu vel til þess fallnar að vera dómarar í golfi. Við kunnum oft betur á mannleg samskipti og erum oft betur til þess fallnar að leysa vandamálin sem koma upp án þess að kylfingarnir séu að missa stjórn á skapi sínu,“ segir Shao. „Það sem mér hefur þótt erfiðast er að taka út vellina og þurfa að lemja niður hæla og slíkt ef það hefur vantað. Það er ekki mín sterkasta hlið,“ segir Shao og hlær.

Aðalsteinn Örnólfsson og Shery Shao á Hólmsvelli í Leiru. GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


KJÚKLINGAÁLEGG REYKT

SPÆGIPYLSA

HUNANGSSKINKA

SILKISKORIÐ ÁLEGG FRÁ GOÐA

ENNEMM / SIA • NM63258

– gott á brauðið, í salatið eða bara eitt og sér!

SKINKA


KEILIR VARÐI TITILINN K

Birt með fyrirvara um verðbreytingar og prentvillur

klúbburinn Kjölur úr Mosfellsbæ skrifaði nýjan kafla í þessari sögu eilir varði titilinn í 1. deild karla í Sveitakeppni GSÍ með tveimur sigrum í röð 2005 og 2006, og GKG bætti titlum 2007, sem lauk á Hólmsvelli í Leiru 10. ágúst s.l. GKG lék til 2009 og 2012. úrslita gegn GK og lauk úrslitaleiknum með 3-2 sigri Árangur Golfklúbbs Borgarness vakti mikla athygli en GB endaði í Golfklúbbsins Keilis sem er annar sigursælasti klúbbur landsins þriðja sæti eftir 3/2 sigur gegn Setbergi. Þar tryggði framkvæmdaí þessari keppni sem fór fyrst fram árið 1961. Keilir hefur sigrað stjóri GB, Jóhannes Kr. Ármannsson, sigurinn á 19. holu 13 sinnum en GR er með flesta titla eða alls 24. Aðeins sex golfÍ botnbaráttunni var líka fjör. Heimamenn í GS lögðu Nesklúbbklúbbar hampað þessum titli. inn 3,5-1,5 og GR-ingar unnu Skagamenn með fullu húsi. Það var Í úrslitaleiknum vann GK þrjá tvímenningsleiki. Gísli Sveinbergshlutskipti Leynismanna frá Akranesi að falla ásamt Nesklúbbnum. son, GK, lagði Sigmund Einar Másson 2/1, Axel Bóasson, GK, hafði Nokkuð vindasamt var í Leirunni keppnisdagana en þó var minni betur gegn Alfreð Brynjari Kristinssyni 4/3. Rúnar Arnórsson, GK, vindur á lokakeppnisdeginum. vann Ara Magnússon 4/3 en þessir sigrar hjá GK voru nokkuð sannfærandi. Hjá GKG vann Birgir Leifur Hafþórsson sinn leik í úrslitunum 4/3 gegn Benedikt Sveinssyni. GKG vann fjórmenningsleikinn sem endaði á 18. flöt. Kristófer Orri Þórðarson og Aron Snær Júlíusson unnu Henning Darra Þórðarson og Birgi Björn Magnússon 2/0. Eins og áður segir er GR sigursælasti klúbburinn í þessari keppni en skiptingin er eftirfarandi: Golfklúbbur Reykjavíkur 24 titlar: Golfklúbburinn Keilir 12 titlar: Golfklúbbur Akureyrar 8 titlar: Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar 4 titlar: Sveitir Borgnesinga að ofan og GKG að neðan. Golfklúbbur Suðurnesja 3 titlar: Golfklúbburinn Kjölur 2 titlar: Fyrstu tólf árin sem keppnin fór fram skiptust GA og GR á um að sigra – en Golfklúbbur Suðurnesja skrifaði nýtt nafn á bikarinn árið 1973 og frá þeim tíma hefur GS sigraði þrívegis í þessari keppni. Golfklúbburinn Keilir sigraði í fyrsta sinn árið 1974 og er GK næst sigusælasta sveitin með alls 12 sigra. Á árunum 1974 til 1996 skiptust Keilir og GR á um að sigra í þessari keppni með tveimur undantekningum þegar GS sigraði. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar sigraði í fyrsta sinn árið 2004 og bætti við nýju nafni á verðlaunagripinn – en fram að þeim tíma höfðu aðeins GR, GA, GK og GS sigrað í þessari keppni. Golf-

Keilismenn sælir með sigurinn í Leirunni. F.v.: Birgir Björn Magnússon, Benedikt Harðarson,Axel Bóasson, Benedikt Sveinsson, Ísak Jasonarson og Björgvin Sigurbergsson, þjálfari. Fremri röð f.v.: Gísli Sveinbergsson, Henning Darri Þórðarson og Rúnar Arnórsson. 32

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


MacBook Air

..-

" verð frá

..-

Birt með fyrirvara um verðbreytingar og prentvillur

" verð frá

iPad iPad mini verð frá ..iPad Air verð frá ..-.

Verslanir á Laugavegi 182 og í Smáralind · sími 512 1300 · epli.is


1. DEILD KARLA, Á HÓLMSVELLI, GS.

4.DEILD KARLA, KÁLFATJARNARVELLI, GVS.

2. DEILD KARLA, Í KIÐJABERGI, GKB.

5.DEILD KARLA, ÞVERÁRVELLI GÞH.

1. Golfklúbbur Sauðárkróks (leika í 3. deild að ári) 2. Golfklúbbur Vatnsleysustrandar (leika í 3. deild að ári) 3. Golfklúbbur Bakkakots 4. Golfklúbbur Norðafjarðar 5. Golfklúbbur Bolungarvíkur 6. Golfklúbbur Þorlákshafnar 7. Golfklúbburinn Geysir (leika í 5. deild að ári) 8. Golfklúbburinn Mostri (leika í 5. deild að ári)

1. Golfklúbburinn Keilir 2. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar 3. Golfklúbbur Borgarness 4. Golfklúbburinn Setberg 5. Golfklúbbur Reykjavíkur 6. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar 7. Nesklúbburinn (leika í 2. deild að ári) 8. Golfklúbburinn Leynir (leika í 2. deild að ári)

1. Golfklúbburinn Kjölur (leika í 1. deild að ári) 2. Golfklúbbur Ólafsfjarðar (leika í 1. deild að ári) 3. Golfklúbbur Vestmannaeyja 4.Golfklúbbur Grindavíkur 5. Golfklúbburinn Jökull, Ólafsvík 6. Golfklúbbur Kiðjabergs 7. Golfklúbbur Akureyrar (leika í 3. deild að ári) 8. Golfklúbbur Hellu (leika í 3. deild að ári)

1. Golfklúbburinn Tuddi (leika í 4. deild að ári) 2. Golfklúbbur Sandgerðis (leika í 4. deild að ári) 3. Golfklúbburinn Þverá

3. DEILD KARLA, SVARFHÓLSVELLI, GOS.

1. Golfklúbbur Hveragerðis (leika í 2. deild að ári) 2. Golfklúbbur Selfoss (leika í 2. deild að ári) 3. Golfklúbburinn Hamar Dalvík 4. Golfklúbbur Húsavíkur 5. Golfklúbbur Ísafjarðar 6. Golfklúbburinn Vestarr 7. Golfklúbburinn Oddur (leika í 4. deild að ári) 8. Golfklúbbur Öndverðarnes (leika í 4. deild að ári)

Henning og Birgir fagna með Björgvini Sigurbergs og Axel Bóas.

Fagleg þjónusta Göngu- og hlaupagreiningar Vörur fyrir endurheimt líkamans Fjölbreytt meðferðarúrræði fagfólks Allt fyrir hlauparann Vandaðir vinnuskór

Eins og Fætur Toga - Bæjarlind 4 - 201 Kópavogi

Sími 55 77 100 - www.gongugreining.is 34

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


Í FYRSTA SINN Á ÍSLANDI:

RÍNISTAR · 24.-2 G 4 1 · R A 6. OK G N I N TÓB Ý S ER ·R 5

RPU Í HÖ

3 DA GA

ALÞJÓÐLEG GRÍNHÁTÍÐ Á HEIMSMÆLIKVARÐA

ROB DEERIN G · HARRI ET KEMSLEY JOEL DOMM ETT · SEAN MCLOU GHLIN

RICKY VELEZ · JAMES ADOM IAN ANDR EW SCHU LZ

NEW YORK’S FUNNIEST

KERRY GODLIMAN

STEPHEN MERCHANT

HANNAH ÚR GAMANÞÁTTUNUM DEREK

MEÐHÖFU NDUR THE OFFICE

JIM BREUER

BBC PRESENTS: BEST OF FEST

EINN AF 100 BESTU Í HEIMI, SAMKVÆMT COMEDY CENTRAL

ÁSAMT FYNDNASTA FÓLKI ÍSLANDS

ARI ELDJÁRN · DÓRI DNA · SAGA GARÐARS · ÞORSTEINN GUÐMUNDSSON

MIÐASALA Í FULLUM GANGI! ARVERÐI EF ÞÚ KAUPIR MIÐA Á ALLAR 5 SÝNINGARNAR* 20% ALLSHERJARAFSLÁTTUR AF HEILD EINGÖNGU FÁANLEGUR Í MIÐASÖLU HÖRPU EÐA Í SÍMA 528-5050 *

WWW.RCF.IS OG WWW.SENA.IS/RCF MIÐASALA Á MIÐI.IS, HARPA.IS, Í MIÐASÖLU HÖRPU OG Í SÍMA 528-5050 LÉTTÖL


KEILIR FAGNAÐI SÍNUM 13. ÍSLANDSMEISTARATITLI

S

igursælustu sveitirnar í sveitakeppni GSÍ áttust við í úrslitaleik 1. deildar kvenna á Hlíðarvelli í Mosfellsbæ sunnudaginn 10. ágúst. Keilir landaði Íslandsmeistaratitlinum í 13. sinn með 3½ - 1½ sigri gegn GR sem hefur oftast sigrað í þessari keppni eða alls 16 sinnum. Þetta var annað árið í röð þar sem Keilir leikur til úrslita í þessari keppni en GKG hafði betur árið 2013 í eftirminnilegum úrslitaleik. Anna Sólveig Snorradóttir og Sara M. Hinriksdóttir úr GK unnu fjórmenninginn 6/5 gegn Ragnhildi Kristinsdóttur og Sögu Traustadóttur. Þórdís Geirsdóttir, GK, vann Berglindi Björnsdóttur 3/2, Signý Arnórsdóttir, GK, hafði betur gegn Sunnu Víðisdóttur 4/2. Jafnt var í viðureign Guðrúnar B. Björgvinsdóttur, GK, og Ragnhildar Sigurðardóttur. Eini sigur GR í viðureigninni var þegar Ólafía Þ. Kristinsdóttir lagði Tinnu Jóhannsdóttur 3/2. GKj. varð í 3. sæti eftir sigur á GKG 3-2. Í liði GKj voru m.a. þrjár þekktar keppniskonur frá fyrri tíð; þær Nína Björk Geirsdóttir, Katrín Dögg Hilmarsdóttir og Helga Rut Svanbergsdóttir. Golfklúbbur Suðurnesja endaði í 5. sæti eftir sigur gegn NK 4-1. Sveit Odds vann svo GL í botnbaráttunni 3-2. Fyrst var keppt í sveitakeppni GSÍ í kvennaflokki árið 1982. Frá þeim tíma hafa aðeins fjórir klúbbar fagnað sigri en GKG rauf einokun þriggja klúbba með sigrinum í fyrra. Golfklúbbur Reykjavíkur sigraði fyrstu þrjú árin sem keppnin fór fram og Keilir náði sínum fyrsta sigri árið 1985. GR og Keilir voru einu klúbbarnir sem sigruðu í þessari keppni allt fram til ársins 1998 þegar Kjölur úr Mosfellsbæ rauf einokun þeirra. Kjölur hefur alls sigrað þrisvar sinnum, síðast árið 2007. Eins og áður segir er GKG með einn sigur en GR hefur sigrað oftast, alls 16 sinnum og kom sá titill árið 2012. Keilir er þar næst á eftir með 13 titla.

Tinna Jóhannsdóttir tekur við bikarnum úr hendi Hauks Arnar Birgissonar, forseta GSÍ.

Lokastaðan í 1. deild kvenna; Hlíðavelli GKj: 1. Golfklúbburinn Keilir 2. Golfklúbbur Reykjavíkur 3. Golfklúbburinn Kjölur 4. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar 5. Golfklúbbur Suðurnesja 6. Nesklúbburinn 7. Golfklúbburinn Oddur (leika í 2.deild að ári) 8. Golfklúbburinn Leynir (leika í 2.deild að ári)

2. deild kvenna, Hlíðarendavelli, GSS: 1. Golfklúbbur Sauðárkróks (leika í 1.deild að ári) 2. Golfklúbbur Selfoss (leika í 1.deild að ári) 3. Golfklúbbur Akureyrar 4. Golfklúbburinn Úthlíð 5. Golfklúbbur Ólafsfjarðar 6. Golfklúbburinn Vestarr 7. Golfklúbbur Hveragerðis 8. Golfklúbbur Patreks- og Ísafjarðar

Golfklúbburinn Keilir fagnaði sigri í sveitakeppni GSÍ: Efri röð frá vinstri: Karl Ómar Karlsson (liðsstjóri), Sigurlaug Jónsdóttir, Anna Sólveig Snorradóttir, Sara Margrét Hinriksdóttir, Signý Arnórsdóttir, Tinna Jóhannsdóttir. Neðri röð frá vinstri: Þórdís Geisdóttir, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Hildur Rún Guðjónsdóttir.

Golfklúbburinn Kjölur endaði í 3. sæti. Frá vinstri; Helga Rut Svanbergsdóttir, Heiða Guðnadóttir, Nína Björk Geirsdóttir, Katrín Dögg Hilmarsdóttir, Arna Rún Kristjánsdóttir, Kristín María Þorsteinsdóttir, Hanna Lilja Sigurðardóttir, Óskar Sæmann Axelsson liðsstjóri.

Golfklúbbur Reykjavíkur endaði í 2. sæti. Frá vinstri; Ragnhildur Sigurðardóttir, Ragnhildur Kristinsdóttir, Ólafía Þ. Kristinsdóttir, Berglind Björnsdóttir, Sunna Víðisdóttir, Eva Karen Björnsdóttir, Saga Traustadóttir, Halla Björk Ragnarsdóttir, David Barnwell liðsstjóri: 36

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


NÝR MITSUBISHI OUTLANDER PHEV

VIÐ FÖGNUM

35

Í DAG LÍT ÉG NÁTTÚRUNA ALLT ÖÐRUM AUGUM OG HÚN MIG

ÁRUM MEÐ ÍSLENDINGUM

Mitsubishi Outlander PHEV er fyrsti fullvaxni rafknúni fjórhjóladrifsbíllinn sem knúinn er íslenskri orku og bensíni; þitt er valið. Hann er tvíorkubíll svo að þú stingur bara í samband og sparar bensínið til betri tíma. Ef þú vilt vernda umhverfið, hvíla veskið eða fá þér öruggan fjórhjóladrifinn fjölskyldubíl er Outlander málið. Mitsubishi Outlander

Mitsubishi Outlander

PHEV (Plug-in Hybrid)

Sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn frá:

6.690.000 kr.

5.290.000 kr.

GAR STRAX!

TIL AFHENDIN

Búnaður í Outlander PHEV: 18” álfelgur, aðgerðastýri, upplýsingaskjár í mælaborði með bakkmyndavél, USB tengi og handfrjáls símabúnaður, hraðastillir með fjarlægðarskynjara, árekstravörn, akreinavari, tvískipt tölvustýrð miðstöð, upphituð framsæti, upphituð framrúða, AM/FM útvarp, CD/MP3 spilari, rafdrifnir og upphitaðir útispeglar með stefnuljósum, vindskeið að aftan með LED lýsingu, þokuljós að framan með beygjuljósum, regnskynjari á rúðuþurrkum, sjö öryggispúðar, skyggt gler í hliðar- og afturrúðu, svartir langbogar á þaki, þvottasprautur á aðalljósum, dagljósabúnaður.

HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði

FYRIR HUGSANDI FÓLK


Birgir Leifur kyssir bikarinn góða og Ólafía brosir.

BIRGIR LEIFUR OG Ó ÍSLANDSMEISTARA

Mikil eftirvænting ríkti í loftinu á Leirdalsvelli þegar Íslandsmótið í höggleik 2014 var formlega sett með versta golfhöggi mótsins – sem Gunnar Einarsson bæjarstjóri Garðabæjar sló svo eftirminnilega á 1. teig á glæsilegum golfvelli Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar. Það var margt sem gekk á í undirbúningi mótsins og þá sérstaklega erfiður vetur þar sem klakabrynja huldi Leirdalinn í marga mánuði. Það má segja að kraftaverk hafi unnist hjá starfsmönnum og sjálfboðaliðum GKG því Íslandsmótið fór fram á glæsilegum velli og umgjörð mótsins var fagmannleg. Birgir Leifur Hafþórsson hafði titil að verja á mótinu og hann sá um að kóróna glæsilegt mót hjá GKG með því að landa sjötta Íslandsmeistaratitlinum á heimavelli með nokkrum yfirburðum. Birgir Leifur lék frábært golf og sýndi að hann er enn í sérflokki. Spennan var meiri í kvennaflokknum þar sem Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR fagnaði titlinum í annað sinn – eftir harða baráttu gegn Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur úr GK. 38

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


Birgir Leifur vippar inn á 72. flöt. Fjöldi áhorfenda fylgist vel með. Á stóru myndinni púttar hann á 3. flötinni í lokahringnum.

G ÓLAFÍA ÞÓRUNN RAR 2014 Birgir sendi sterk skilaboð

Birgir Leifur gaf tóninn strax á fyrsta keppnisdeginum með glæsilegri spilamennsku þar sem hann lék á 66 höggum eða -6. Ungstirnið úr Hafnarfirði,. Gísli Sveinbergsson, kom þar næstur með flottum hring upp á 68 högg. Gísli, sem er 17 ára, og 19 árum yngri en Birgir Leifur, fékk alls sjö fugla á hringnum. Þórður Rafn Gissurarson úr GR og Sigmundur Einar Másson úr GKG komu þar næstir á pari vallar. Tólf kylfingar voru á +2 eða betra skori eftir fyrsta keppnisdaginn en það má segja að Birgir Leifur hafi rifið sig frá öllum öðrum strax á fyrsta hring. Veðrið var með ágætum á fyrsta keppnisdegi en það rigndi aðeins um tíma en hina mótsdagana var veðrið með ágætum. „Það er alltaf gott að byrja vel og bónus að fá örninn á 14. Ég og Gísli vorum að pútta vel og það fóru ansi mörg löng pútt ofaní í dag hjá okkur,“ sagði Birgir Leifur. Ég stefni á að sigra og ég er ánægður með fyrsta hringinn – pútterinn var sjóðheitur,“ sagði Gísli án þess að blikka auga.

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is

Sigmundur Einar með gamla takta

Á öðrum keppnisdegi fóru línurnar að skýrast enn frekar. Sigmundur Einar, Íslandsmeistarinn frá árinu 2006, sýndi gamla takta og lék á 67 höggum eða -4 og Þórður Rafn kom sér undir parið með flottum hring, 69 högg. „Planið var að komast í gegnum þetta og hafa gaman af þessu. Fjórir undir pari er lægsta skor sem ég hef leikið á í nokkur ár. Mig langar að vinna þetta aftur. Það er langt síðan, það er gott að geta sagt átta árum síðar að maður eigi enn mögleika,“ sagði Sigmundur Einar. Birgir Leifur gaf engin færi á sér og jók forskotið í fjögur högg með hring upp á 68 höggum. Íslandsmeistarinn var því með fjögurra högga forskot á Sigmund. Gísli missti aðeins flugið á öðrum hringnum þar sem hann lék á 73 höggum og Kristján Þór Einarsson, Íslandsmeistarinn í höggleik frá árinu 2009, kom sér á parið með hring upp á 69 högg. 39


Flugeldasýning og jöfnun á vallarmeti hjá Axel

Birgir Leifur lagði grunninn að sigrinum með frábærum þriðja hring þar sem hann tapaði ekki höggi og lék á 67 höggum. „Ég þarf að vera sókndjarfari næstu tvo daga og markmiðið er að vera grimmari og enda undir 10 höggum undir pari,“ sagði Birgir Leifur. Á sama tíma var Axel Bóasson, úr GK, með Ólafur Björn tryggði sér mikla flugeldasýningu þar sem hann blandaði 2. sætið með sér í toppbaráttuna með frábærum hring 64 lokaspretti. högg og 8 fuglar lágu í valnum hjá Íslandsmeistaranum frá árinu 2011. Axel hefur einu sinni áður leikið á -7 hér á landi og jafnaði hann vallarmet Birgis Leifs í Leirdalnum. „Ég veit ekki hvað gerist þegar maður dettur í svona gír. Ég er búinn að vera pútta vel allt mótið en í dag fór ég loksins að hitta flatirnar. Ég hef verið í tómu basli fyrstu tvo dagana og er því mjög sáttur við stöðuna fyrir lokahringinn,“ sagði Axel. og Þórður náðu ekki að nýta þetta tækifæri en munurinn á þeim var fjögur högg eftir 7 Yfirburðir Birgis Leifs eftir 54 holur voru holur – en frá þeim tíma misstu þeir báðir miklir, tólf högg undir pari og sjö högga foraf lestinni. Birgir Leifur sá reyndar um auka skot á Axel og Þórð Rafn Gissuarson sem lék muninn á ný með þremur fuglum í röð á þriðja hringinn á 68 höggum eða -3. „Þetta 12., 13. og 14. Eftir það var aldrei hætta á að var erfiðara en það lítur út fyrir að vera. Ég Birgir Leifur myndi ekki ná að landa Íslandsget alveg viðurkennt það. Það var fullt af meistaratitlinum í höggleik í sjötta sinn á slöppum höggum sem ég sló í dag en ég náði ferlinum og jafna við Björgvin Þorsteinsson að redda mér vel,“ sagði Birgir Leifur. og Úlfar Jónsson sem deildu metinu áður. Birgir Leifur fékk skolla á lokaholuna og náði Alls voru níu kylfingar á pari vallar eða betra ekki að bæta mótsmetið og endaði hann á -10 skori fyrir lokahringinn og Bjarki Péturseða 274 höggum. son átti góðan þriðja hring þar sem BorgÓlafur Björn Loftsson úr NK mjakaði sér nesingurinn lék á 66 höggum. Birgir Leifur hægt og hljóðlega í baráttuna um verðlaun á stefndi óðfluga á nýtt mótsmet á þessum tíma mótinu með fjórum fuglum á síðustu 12 holsem hann átti sjálfur ásamt Magnúsi Guðunum. Ólafur endaði í öðru sæti á -3 samtals mundssyni – en þeir eru þeir einu sem hafa eða 281 höggi og Þórður Rafn Gissurarson leikið 72 holur á Íslandsmótinu í höggleik á varð þriðji á -2 eftir lokahring upp á 74 högg. -10 samtals. Þetta er þriðja árið í röð sem Þórður endar í þriðja sæti á Íslandsmótinu. Gísli SveinbergsBirgir hársbreidd frá mótsmetinu son, Aron Snær Júlíusson úr GKG og Kristján Eins og gefur að skilja var ekki mikil spenna fyrir lokahringinn í karlaflokki. Stórslys þyrfti Þór Einarsson úr Kili deildu 4.-6. sæti á pari til ef Birgir Leifur myndi tapa niður sjö högga vallar. forskoti. Íslandsmeistarinn var lengi í gang og ólíkur sjálfum sér á fyrstu holunum og tapaði fjórum höggum á fyrstu 10 holunum en til samanburðar hafði hann aðeins tapað fimm höggum á fyrstu 54 holunum. Axel Aron Snær stóð sig vel á heimavelli.

40

Kristján Þór lék vel eins og oft í sumar.

Birgir Leifur: „Geggjuð tilfinning og sá skemmtilegasti af þeim öllum“ „Þetta er geggjuð tilfinning og örugglega skemmtilegasti Íslandsmeistaratitillinn af

Gísli blandaði sér í toppbaráttuna á fyrsta degi.

Axel jafnaði vallarmetið í Leirdalnum í þriðja hring.

Þórður Rafn var í toppbaráttunni eins og undanfarin ár.

þessum sex,“ sagði Birgir Leifur eftir sigurinn á Leirdalsvelli. „Lokahringurinn fór einkennilega af stað. Ég ákvað að vera grimmur og það gekk vel upp. Ég var að slá flott högg en misreiknaði vindinn og var alltaf með vitlausa kylfu í höndunum. Ég setti mig í óþægilega stöðu og fékk þrjá skolla á fyrstu sex holunum. Ég hélt áfram að segja við mig að vera þolinmóður og þetta myndi allt saman koma að lokum. Síðan kom annar skolli á 10. og ég sagði við sjálfan mig – hvað er að gerast! Ég hélt áfram að vera þolinmóður og síðan small þetta saman og ég fékk þrjá fugla í röð og kláraði þetta. Þessi völlur er þannig að hann er fljótur að verðlauna og refsa fyrir góð og léleg högg.“ Birgir Leifur lék ekki mikið golf í aðdraganda Íslandsmótsins en hann var liðsstjóri íslenska landsliðsins á Evrópumeistaramótinu. Íslandsmeistarinn segir að hann hafi lagt meiri áherslu á gæði í æfingarnar en magnið. „Það er sem telur fyrir mig – ég er mjög þakklátur fyrir að vera með gott teymi í kringum mig og það er markmiðið að vera á toppnum í haust þegar úrtökumótið fyrir Evrópumótaröðina fer fram. Ég vil nota tækifærið og þakka Forskoti, afrekssjóði GSÍ, fyrir stuðninginn. Þetta er frábært framtak hjá þeim og ómetanlegur stuðningur sem við erum að fá.“ Birgir Leifur segir að breiddin í íslensku golfi sé að aukast. „Það er alveg á hreinu, ég spilaði með Gísla (Sveinbergssyni) fyrstu tvo dagana og ég er hrifinn af honum sem kylfing. Hann er með gott skap og það er gott að spila með honum. Það eru frábærir strákar að koma upp og þeir geta farið eins langt og þeir vilja. Við þurfum bara að gefa þeim tækifæri að vera meira erlendis – líka yfir sumartímann á Íslandi. Ég vil líka nota tækifærið og þakka félagsmönnum, starfsmönnum og öllum í GKG sem komu að þessu Íslandsmóti fyrir sitt framlag og gera þessa daga að ógleymanlegri upplifun fyrir mig,“ sagði Birgir Leifur Hafþórsson.

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


Húsnæðislán

Ertu að hugsa um að kaupa þína fyrstu fasteign? Við lánum 1.500.000 kr. aukalega til þeirra sem eru að kaupa sér húsnæði í fyrsta skipti.* Að kaupa húsnæði er stór ákvörðun og því um að gera að vega og meta alla kosti í stöðunni. Húsnæðislánaráðgjafarnir okkar hafa víðtæka reynslu og góðan skilning á aðstæðum ungra fasteignakaupenda og geta því gefið þér góð ráð. Ræddu við húsnæðislánaráðgjafa í næsta útibúi. *Heildarlánveiting bankans að meðtöldu viðbótarláni er þó að hámarki 90% af kaupverði. Lántakandi þarf að standast greiðslumat og uppfylla aðrar útlánareglur bankans. Veittur er helmingsafsláttur af lántökugjöldum til þeirra sem eru að kaupa í fyrsta sinn. Lántakandi þarf að greiða kostnað við greiðslumat, skjalagerðargjald, þinglýsingargjald og, ef við á, kostnað við veðbanda- og lánayfirlit. Á www.islandsbanki.is getur þú reiknað mánaðarlegar afborganir, árlega hlutfallstölu kostnaðar og heildarkostnað.

islandsbanki.is

Netspjall

Sími 440 4000

Facebook

50% afsláttur af lántökugjöldum við kaup á fyrstu eign er veittur til áramóta


Lokastaða efstu kylfinga í karlaflokki: 1. Birgir Leifur Hafþórsson, GKG (66-68-67-73) 274 högg (-10) (73-71-68-69) 281 högg (-3) 2. Ólafur Björn Loftsson, NK 3. Þórður Rafn Gissurarson, GR (71-69-68-74) 282 högg (-2) 4.-6. Gísli Sveinbergsson, GK (68-73-72-71) 284 högg par 4.-6. Aron Snær Júlíusson, GKG (72-72-69-71) 284 högg par 4.-6. Kristján Þór Einarsson, GKj. (73-69-69-73) 284 högg par 7.-8. Bjarki Pétursson, GB (72-72-66-75) 285 högg (+1) 7.-8. Axel Bóasson, GK (73-71-64-77) 285 högg (+1) 9. Haraldur Franklín Magnús, GR (74-71-73-69) 287 högg (+3) 10. Guðmundur Ág. Kristjánsson, GR (80-71-70-67) 288 högg (+4) 11.-15. Sigmundur E. Másson, GKG (71-67-72-79) 289 högg (+5) 11.-15. Arnar Snær Hákonarson, GR (75-72-76-67) 290 högg (+6) 11.-15. Alfreð Br. Kristinsson, GKG (72-72-76-70) 290 högg (+6) 11.-15. Emil Þór Ragnarsson, GKG (74-73-70-73) 290 högg (+6) 11.-15. Andri Þór Björnsson, GR (73-72-69-76) 290 högg(+6)

Íslandsmeistarinn slær á 17. teig.

Valdís þrumaði aftur í golfbílinn

Valdís heilsaði upp á Pál ritstjóra og þakkaði fyrir „aðstoðina“. Fjöldi áhorfenda fylgdist með á lokadeginum.

Valdís Þóra Jónsdóttir var í toppbaráttunni á Íslandsmótinu í golfi á Leirdalsvelli. Valdís er högglöng og beinskeytt í leik sínum og á þriðja keppnisdeginum sló hún upphafshöggi sínu beint í þakið á golfbíl þar sem fréttamenn kylfingur.is voru á ferðinni. Valdís græddi um 15-20 metra á þessu höggi þar sem boltinn flaug af þaki bílsins. Þetta er í annað skiptið sem Valdís Þóra slær í golfbíl þar sem fréttamenn kylfingur.is eru á ferðinni en hún var einnig með miðið á hreinu í fyrra á Íslandsmótinu í höggleik á Korpu. Þá var bolti hennar á leið út í tré en stöðvaðist þegar Ragnar Már sló draumahöggið hann lenti í golfbílnum á 16. braut. Ragnar Már Garðarsson úr GKG fór holu í höggi í dag á 4. braut á þriðja keppnisdegi Íslandsmótsins í höggleik. Ragnar sló með 9-járni og er þetta í fyrsta sinn sem hann slær „draumahöggið“. Ragnar Már náði fugli á næstu holu en hann lék á einu höggi undir pari á hringnum.

Ólöf kylfusveinn í Leirdalnum

Ólöf María Jónsdóttir úr Keili, þrefaldur Íslandsmeistari var kylfu-„sveinn“ hjá vini sínum Gauta Grétarssyni á mótinu. Valgeir mótsstjóri, Úlfar landsliðsþjálfari og íþróttastjóri GKG og Agnar framkævmdastjóri GKG voru í eldlínunni.

Haukur Örn Birgisson, var fyrsti forseti GSÍ til að leika á Íslandsmóti í höggleik. Hann fékk viðeigandi merkingu á kylfusveinasvuntuna. 42

Hér er Haukur með Guðmundi formanni GKG og Gunnari Einarssyni, bæjarstjóra Garðbæjar.

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


Sérstakt tilboð til golfara

kr. 40.00r0tilboð!

afslátitlt3a1. ágúst 2014 Gildir

Hefur þú skoðað hvort augnlaseraðgerð gæti hentað þér og losað þig við gleraugun í daglega lífinu s.s. golfinu?

Fullt verð 350.000 kr.

Tilboðsverð 310.000 kr.

Sjónlag býður golfurum 40.000 kr. afslátt af hníflausum (Femto-LASIK) augnlaseraðgerðum í sumar. Við erum með nýjustu tæknina og nýjustu tækin. Sjónlag er eina fyrirtækið á landinu sem býður upp á sjónlagsaðgerðir sem eru algjörlega hníflausar. Hníflausar aðgerðir þýða m.a. skjótari bata og meiri gæði en með þeim aðferðum sem beitt hefur verið hér á landi hingað til.

Sjónlag augnlæknastöð var stofnuð árið 2001 og er í fararbroddi hér á landi hvað varðar tæknibúnað og þjónustu við sjúklinga. Við erum með nýjustu tækin og bjóðum ein fyrirtækja á Íslandi upp á hníflausar laseraðgerðir. Hringdu í síma 577 1001 og pantaðu tíma í forskoðun og kannaðu þína möguleika. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu okkar www.sjonlag.is Glæsibær . Álfheimar 74 . 104 Reykjavík . Sími 577 1001 . www.sjonlag.is

Við bjóðum;  Nýju tækin  Nýjustu tækni  Mikla reynslu  Gott verð  Frábæra þjónustu


Ólafía Þórunn vippar á lokaflötinni og fagnar titlinum í annað sinn.

ÓLAFÍA FAGNAÐI Í ANNAÐ SINN Það ríkti mikil spenna í kvennaflokknum á Íslandsmótinu í höggleik á Leirdalsvelli. Sunna Víðisdóttir úr GR hafði titil að verja á mótinu en hún stimplaði sig aldrei inn í baráttuna um sigurinn eftir slakan fyrsta hring. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR, Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GK og Valdís Þóra Jónsdóttir úr GL gerðu allar tilkall til Íslandsmeistaratitilsins fyrir lokahringinn. Ólafía og Guðrún voru einar eftir í baráttunni þegar kom að lokaholunum en 16. brautin reyndist Guðrúnu Brá erfið og Ólafía fagnaði sínum öðrum Íslandsmeistaratitli á ferlinum. Valdís Þóra svaf yfir sig

Fyrsti keppnisdagurinn var spennandi að öllu leyti. Valdís Þóra Jónsdóttir var nálægt því að fá frávísun strax á fyrsta degi því hún svaf yfir sig og rétt náði á teig kl. 7:30. Valdís hristi það af sér og var efst að loknum fyrsta hringum á 75 höggum ásamt hinni bráðefnilegu Ragnhildi Kristinsdóttur úr GR sem er Íslandsmeistari í holukeppni 17-18 ára. Þær voru með eitt högg í forskot á Ólafíu Þórunni og Stefaníu Kristínu Valgeirsdóttur úr GA sem kom verulega á óvart með spilamennsku sinni. Sunna Víðisdóttir úr GR, sem hafði titil að verja, byrjaði ekki vel og lék hún á 81 höggi eða +10.

Guðrún og Ólafía með vallarmet

á eftir komu Guðrún Brá á +5 og Valdís Þóra var á +6 og þessar fjórar voru í nokkrum sérflokki á þessum tímapunkti. „Þetta er bara ágætt en ég hafði sett mér það markmið að vera +5 eftir fjóra hringi og þarf að vinna það til baka,“ sagði Ólafía Þórunn. Valdís var ekki sátt við spilamennskuna og sérstaklega púttin sem voru henni erfið allt

mótið. „Ég er ekki sátt við hringinn hjá mér – ég enda á þremur yfir pari í dag en ég var með þrjú þrípútt og einn fjórpútt. Það er ekki ásættanlegt,“ sagði Valdís.

Þrír kylfingar í baráttunni eftir þriðja hringinn

Barátta þeirra þriggja; Ólafíu, Guðrúnar og Valdísar, hélt áfram á þriðja hringum. Ragnhildur Kristinsdóttir stimplaði sig úr áframh. á bls. 46.

- Guðrún Brá sótti af krafti á lokahringum Guðrún var í baráttu um titilinn en lenti í vandræðum á 16. braut í lokahringnum.

Á öðrum keppnisdegi létu Guðrún Brá og Ólafía Þórunn vita af sér. Þær bættu báðar vallarmetið af bláum teigum á Leirdalsvelli með því að leika á 70 höggum eða -1. Valdís Þóra Jónsdóttir átti gamla vallarmetið sem var 71 högg frá því á Símamótinu í ágúst 2013. „Ég var að slá mun betur í dag en í gær en ég hef verið að pútta mjög vel allt mótið. Í gær var ég að redda mér með púttunum en í dag náði ég að skora betur. Ég er mjög sátt að hafa fengið þrjá fugla í röð og það er góð tilfinning,“ sagði Ólafía Þórunn en hún deildi efsta sætinu með Ragnhildi Kristinsdóttur úr GR en þær voru báðar á +4 eftir 36 holur. Þar 44

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


stutta SPILIspili-D d & LANGA langa FERfer-D dIN in STUTTA Horfðu á heildarmyndina

HONDA CR-V KOSTAR frá kr.

5.190.000

Hvort sem þú vilt sparneytni, rými og þægindi í golfið eða fjórhjóladrif og öruggt veggrip fyrir krefjandi vegi þá er Honda CR-V fyrir þig. Bættu við hagstæðu verði og 5-stjörnu öryggi og þú sérð heildarmynd hagkvæma borgarjeppans sem hefur rakað að sér verðlaunum í öllum heimsálfum. Heildarmyndin endurspeglast í háu endursöluverði og verðlaunum sem áreiðanlegasti bílaframleiðandi heims áttunda árið í röð. Keyrðu Honda CR-V, betri 4x4 þegar á allt er litið.

honda.is/cr-v

Vatnagörðum 24-26 • Sími 520 1100 • www.bernhard.is Umboðsaðilar: Bernhard, Reykjanesbæ, sími 421 7800, Bílver, Akranesi, sími 431 1985 Höldur, Akureyri, sími 461 6020, Bragginn, Vestmannaeyjum, sími 481 1535


Lokastaða efstu kylfinga í kvennaflokki:

Valdís Þóra lék illa í lokahringnum en endaði í 3. sæti.

1. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR (76-70-74-74) 294 högg 2. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK (77-70-76-74) 297 högg 3. Valdís Þóra Jónsdóttir, GL (75-73-74-80) 302 högg 4. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR (75-71-80-77) 303 högg 5. Karen Guðnadóttir, GS T(77-76-75-79) 307 högg

(+10) (+13) (+18) (+19) (+23)

Ólafía Þórunn á teig.

baráttunni með hring upp á 80 högg. Ólafía var með tveggja högga forskot á +7 eftir hring upp á 74 högg og Valdís lék á sama skori og var á +9. Guðrún Brá færðist aðeins fjær með 76 höggum og var þremur höggum á eftir Ólafíu..

Eftirminnilegur lokahringur

Lokahringurinn í kvennaflokknum var nokkuð eftirminnilegur. Valdís Þóra lenti í miklum erfiðleikum á fyrri 9 holunum og tapaði þar 6 höggum. Forskot Ólafíu var fjögur högg eftir sex holur og útlitið var gott en eftir 9 holur var munurinn aðeins

tvö högg og allt gat gerst. Guðrún Brá setti pressu á Ólafíu með tveimur fuglum í röð á 13. og 14., munurinn aðeins eitt högg. Sami munur var á þeim þegar upphafshöggin voru sleginn á 16. teig. Guðrún Brá lenti í töluverðum vandræðum eftir annað höggið þar sem hún lenti í því að vera nánast með ósláanlegt högg. Það reyndist dýrkeypt og munurinn var þrjú högg þegar þær komu á 17. teig. Sá munur hélst út mótið og Ólafía Þórunn fagnaði sigri með því að leika á +10, eða 294 höggum, og Guðrún Brá var á 297 höggum og Valdís Þóra endaði á 302 höggum í þriðja sæti.

Sunna Víðisdóttir náði sér ekki á strik í titilvörninni.

Snjalltækjalausn fyrir veitingahús Hagkvæm afgreiðslulausn sem eykur hraða og skilvirkni fyrir veitingahúsið þitt. Þjónar geta skráð pantanir í sal með iPhone, iPod eða iPad og sent þær beint á kassa og inn í eldhús. Þetta sparar bæði tíma og vinnu.

dk POS | Snjalltækjalausnir

Veljum íslenskan hugbúnað dk hugbúnaður Bæjarhálsi 1 | 110 Reykjavík Hafnarstræti 53 | 600 Akureyri Sími 510 5800 | dk@dk.is | www.dk.is

46

Bókhaldskerfi Launakerfi Verslunarkerfi Vistun

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


Eignastýring MP banka

Áskoranir á mörkuðum hafa sjaldan verið meiri en nú. Tækifærin sem þeim fylgja geta verið dýrmæt. Njóttu ráðgjafar sér fræð­ inga við mat á fjárfestingarkostum og nýttu tækifærin á verð­ bréfamarkaði með eignastýringu MP banka. Þjónusta okkar er sniðin að þörfum viðskiptavina og við bjóðum fjölbreytt úrval fjárfestingarleiða til að ná ávöxtunarmarkmiðum hvers og eins. Nánari upplýsingar um fjárfestingarleiðir og verðskrá á www.mp.is eða í síma 540 3230.

www.mp.is

Hafðu samband einkabankathjonusta@mp.is

Kynntu þér framúrskarandi þjónustu sérfræðinga eignastýringar MP banka og fáðu kynningarfund.


FRÁBÆRT AÐ VINNA Á NÝ Viðburðaríkt ár hjá Íslandsmeistaranum; háskólagráða, Íslandsmeistaratitill og atvinnumennska. Golfárið 2014 hefur verið viðburðaríkt hjá Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur úr GR. Hún fagnaði sínum öðrum Íslandsmeistaratitli í höggleik í kvennaflokki, útskrifaðist úr hinum þekkta Wake Fores háskóla sem goðsögnin Arnold Palmer stundaði einnig nám á sínum tíma. Ólafía tók einnig ákvörðun um að gerast atvinnukylfingur eftir heimsmeistaramót áhugamanna í Japan og árangur hennar á fyrsta atvinnumótinu var mjög góður. Ólafía segir að það hafi verið góð tilfinning að sjá boltann detta ofaní holuna á 18. flöt á lokakeppnisdeginum á Íslandsmótinu í höggleik – þegar hún var beðinn um að rifja þá stund upp.

Afslöppuð og leið vel fyrir hringinn

„Það var gott að sjá boltann detta ofan í holuna í síðasta púttinu – og það er frábær tilfinning að vinna á ný,“ sagði Ólafía Þórunn. Hún var með þriggja högga forskot fyrir lokaholuna eftir að Guðrún Brá hafði

„Það var mikil pressa á mér og ég setti boltann 3-4 metra frá holunni sem var á erfiðum stað á flötinni. Það er högg sem ég man vel eftir og gefur mér sjálfstraust. Það er góð tilfinning að vinna titilinn og vonandi næ ég að upplifa þessa tilfinningu oftar í framtíðinni,“ segir Ólafía en hún þakkar fjölskyldu sinni fyrir stuðninginn.

atvinnumótinu gefur mér aukið sjálfstraust fyrir framtíðina.“ Ólafía Þórunn og Valdís Þóra Jónsdóttir eru einu atvinnukylfingarnir í kvennaflokki frá Íslandi en Valdís Þóra hefur einnig verið að leika á LET Access mótaröðinni sem er næsta deild fyrir neðan sjálfa Evrópumótaröð kvenna, LET.

„Ég þakka pabba og mömmu og allri fjölskyldu minni fyrir sigurinn. Það eru svo margir sem eiga þátt í þessu. Ég var mjög stöðug alla dagana og aldrei í miklum vandræðum. Upphafshöggin voru flest á braut og innáhöggin inn á flöt eða rétt við flötina. Ég missti reyndar sveifluna mína á fyrsta hringnum en ég lagaði það og var bara að slá ótrúlega vel síðustu dagana. Púttin hefðu mátt vera betri. Það var mikil spenna og það er skemmtilegt að vinna þannig. Með slíkum sigri sannar maður fyrir sjálfum sér að maður getur þetta. Ég og Guðrún Brá og Valdís Þóra höfum oft áður verið í svona baráttu.

Úrtökumót í Marokkó

Var ekki að slá nógu fast í boltann

Ólafía hafði tapað aðeins högglengdinni áður en hún hóf leik á Íslandsmótinu og eftir ráðleggingar frá Brynjari Eldon Geirssyni lent í vandræðum á 16. þar sem hún fékk þjálfara hennar fór allt í fyrra horf. „Ég var skramba. „Ég ætlaði bara að leika lokaholuna ekki að slá nógu fast í boltann. Ég er með stiff öruggt og ég var ekkert reið þegar ég sá að ég sköft á kylfunum og þarf að slá fastar en ég þyrfti að taka víti eftir upphafshöggið á 18. gerði og boltinn fór bara beinna og lengra en Ég hafði góðan tíma til að jafna mig á meðan áður,“ sagði Ólafía sem endaði í 13.-15. sæti ég gekk að boltanum og ég sá að RÚV gengið á sínu fyrsta atvinnumóti, LET Access mótavar að skoða boltann við tréð,“ sagði Ólafía. röðinni sem fram fór í Frakklandi í lok septHún var spennt þegar hún hóf keppni um ember. Hún lék hringina þrjá á einu höggi hádegisbil á lokahringnum en hún segir að undir pari vallar (70-71-74) sem verður að biðin eftir fyrsta högginu sé það erfiðasta. teljast góður árangur miðað við að þetta er „Þegar ég er búinn að slá fyrsta höggið líður frumraun hennar sem atvinnumaður. Ólafía tíminn hratt en það er erfiðast að bíða eftir var í góðri stöðu fyrir lokahringinn en hún því að hefja leik. Ég var afslöppuð og mér leið var í 7. sæti eftir fyrstu tvo hringina. vel fyrir hringinn.“ Ólafía var með þriggja högga forskot þegar hún hóf leik en Guðrún Frábær upplifun á fyrsta mótinu Brá náði að minnka þann mun í eitt högg „Þetta var frábær upplifun á fyrsta atvinnuþegar hún fékk tvo fugla í röð á 13. og 14. mótinu. Ég var ekki með neinar væntingar „Ég reyni að spá sem minnst í því hvernig fyrir mótið sem ég held að hafi hjálpað staðan er þegar ég er að leika – en ég vildi fá mikið. Ég stóð mig bara vel að mínu mati, fugl á 14. þar sem Guðrún Brá var að pútta ég hef bara tvisvar áður endað undir pari fyrir erni og gat jafnað við mig. Hún fékk samtals í golfmóti og að ná því þarna er bara fugl og það var mikil spenna í þessu á 15. frábært,“ sagði Ólafía sem setti pressuna teig,“ sagði Ólafía en högg mótsins að hennar til hliðar fyrir þetta mót og einbeitti sér að mati var upphafshöggið á 17. braut á lokaþví að leika golf. „Þessi niðurstaða á fyrsta keppnisdeginum. 48

Ólafía verður í Þýskalandi í vetur en hún býr þar ásamt unnusta sínum sem er Þjóðverji en þau kynntust í Wake Forest. „Ég fer til Marokkó í lok október fyrir úrtökumót Evrópumótaraðarinnar. Ég er búin að skrá mig og fá inn í mótið. Foreldrar mínir koma í heimsókn um miðjan okt, og mamma ætlar að vera aðstoðarmaður minn á úrtökumótinu sem fram fer í Marokkó. Það verður algjört ævintýri.“ Æfingaplanið er strangt hjá Ólafíu og eru æfingarnar fjölbreyttar hjá henni. „Ég æfi sex sinnum í viku golfþáttinn og tvisvar í viku er liðsæfing hjá þýska klúbbnum sem ég mæti líka á. Ég fer í yoga og líkamsræktina inn á milli og er dugleg að teygja. Brynjar Eldon er þjálfarinn minn, ég get alltaf sent á hann línu ef ég er með spurningar. Það er allt mun auðveldara í dag, ég sendi bara myndbönd á Brynjar og hann skoðar þau og kemur með ráðleggingar. Það er þýskur þjálfari hjá klúbbnum sem heitir Yusuf Sari, hann er mjög góður og hjálpar mér stundum.“ Helstu áhersluatriðin hjá Ólafíu í æfingaplaninu fram að úrtökumótinu eru púttin. „Ég er búin að bæta púttin mín mikið og vil halda áfram að bæta þau. Ég þarf aðeins að skoða sveifluna mína betur og finna eitt högg (annaðhvort fade eða draw) og halda mig við það. Núna er ég á báðum þannig að maður veit ekki við hverju á að búast þegar ég stend yfir boltanum.“ „Ég er búin að spila mjög öruggt golf í kringum parið að undanförnu og ég held að það sé góðs viti. Ég hef séð Cheyenne Woods vinna mót á Evrópumótaröðinni. Við vorum liðsfélagar hjá Wake Fores, og hún getur það get ég það líka. Ég þarf bara meira sjálfstraust. Til að vinna risamót þarf allt að detta inn á réttum tíma og ég að spila golf lífsins, en einn daginn gæti það gerst,“ segir Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


EINRÚM Hljóðdempandi sófi frá AXIS

EINRÚM sófinn er léttur og meðfærilegur og því auðvelt að búa til einangruð rými t.d. fyrir litla fundi. Bak og hliðar sófans eru úr hljóðísogandi efni sem dempar utanaðkomandi hljóð frá þeim sem í sófanum sitja. Auk þess bætir sófinn hljóðvist í opnum rýmum. EINRÚM sófinn er fáanlegur í þremur stærðum, með- og án þaks og í mörgum litaútfærslum.

Sturla Már Jónsson húsgagna- og innanhússarkitekt hannaði EINRÚM. Ráðgjöf varðandi hljóðvist: Gunnar H. Pálsson verkfræðingur.

Smiðjuvegur 9 • 200 Kópavogur • Sími 535 4300 • Fax 535 4301 • Netfang axis@axis.is • Heimasíða www.axis.is


ÁTJÁNFALDIR

ÍSLANDSMEISTARAR

Björgvin, Úlfar og Birgir Leifur, sigursælustu kylfingar Íslandsmótsins í höggleik rifja upp eftirminnileg atvik. Birgir Leifur Hafþórsson jafnaði met Björgvins Þorsteinssonar og Úlfars Jónssonar þegar hann landaði sjötta Íslandsmeistaratitlinum í höggleik á Leirdalsvelli í júlí. Það liðu 18 ár á milli fyrsta Íslandsmeistaratitilsins hjá Birgi og þeim sjötta en hann tók ekki þátt á Íslandsmótinu í mörg ár þar sem atvinnukylfingar höfðu ekki keppnisrétt. Þeim reglum var breytt árið 2003 og frá þeim tíma hefur Birgir landað fimm titlum og hann hefur hug á því að bæta metið á næsta ári þegar Íslandsmótið fer fram á hans gamla heimavelli, Garðavelli á Akranesi. Golf á Íslandi settist niður með þríeykinu sem hefur landað samtals 18 Íslandsmeistaratitlum þar sem rifjaðar voru upp gömul og ný afrek – og eftirminnilegustu atvikin dregin fram.

Fyrsta spurningin var að sjálfsögðu hver þeirra væri bestur?

Björgvin, Úlfar og Birgir eiga það allir sameiginlegt að hafa landað sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli þegar þeir voru rétt um tvítugt. Það tók Björgvin og Úlfar ekki nema sjö ár að vinna sex titla. Björgvin tók fimm í röð og Úlfar fjóra í röð.

Úlfar: „Vellirnir hafa lítið sem ekkert breyst á þessum tíma, jú þeir hafa lengst eitthvað aðeins, en ekki mjög mikið.“

50

Björgvin: „Það er ekki hægt að bera saman tímabilið á bilinu 19701980 við önnur tímabil. Þeir hafa bara jafnað metið, ekki bætt það, við skulum hafa það á hreinu. Ég er sá eini af okkur sem hefur náð þessum titli fimm sinnum í röð.“ Björgvin tók þátt í sínu 52. Íslandsmóti í röð í sumar og hann ætlar að halda áfram að bæta eigið met á meðan hann getur. „Það sem hefur breyst mest er að það vantar lokið á Íslandsbikarinn og það var á honum þegar ég skilaði honum síðast og strákarnir eiga því sökina,“ segir hann í léttum tón. „ Ég slæ lengra í dag en ég gerði þegar ég var að vinna þessa titla. Það hefur svo margt breyst í golfinu að það er ómögulegt að bera saman ólík tímabil.“

Björgvin: „Lengsti völlur sem ég hef keppt á er Jaðarsvöllur þegar GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


Úlfar: „Birgir Leifur á hvað mesta möguleika á að bæta metið af okkur þremur.“ Birgir: „Íslandsmótin hjá mér eru ekki svo mörg. Ég mátti ekki taka þátt frá 1997-2003 þar sem atvinnukylfingar höfðu ekki keppnisrétt á Íslandsmótinu. Ég kenni því um að ég hafi ekki náð sjö Íslandsmeistaratitlum í röð. Frá 2003 hefur þátttakan hjá mér verið svona „gatasigti“ því ég hef sett atvinnumótin í forgang.“

Eins og gefur að skilja eru mörg atvik sem eru eftirminnileg frá öllum þessum Íslandsmótum en það virðist sem að fyrsti titilinn sé sá eftirminnilegasti hjá þeim öllum.

Björgvin: „Mér þykir fyrsti titillinn sá eftirminnilegasti. Ég var ekki nema 18 ára og í fyrsta sinn sem ég fékk að vera með í meistaraflokki. Það er líka lengst frá okkur í tíma.“ Úlfar: „Fyrsti og síðasti titilinn eru þeir eftirminnilegustu. Sá síðasti í Grafarholtinu árið 1992 var mjög eftirminnilegur. Ég spilaði fjóra undir pari á því móti – sem var gott golf. Besta golfið sem ég hef spilað á Íslandsmóti.“ Birgir: „Fyrsti titilinn í Vestmannaeyjum árið 1996 er sá eftirminnilegasti. Hann breytti mínum ferli því það kom upp önnur staða en ég hafði áætlað. Eftir mótið komu góðir menn, Björgvin var á meðal þeirra, og buðu mér að gerast atvinnumaður í golfi – en ég hafði gert áætlanir um að fara í sama háskóla og Úlfar hafði farið í Bandaríkjunum. Sá sjötti á heimavellinum í sumar er einnig eftirminnilegur en sá fyrsti stendur alltaf mest uppúr.“ Björgvin: „Ég var í síðasta ráshópnum með Bigga á lokadeginum 1996 ásamt Þorsteini Hallgrímssyni. Við sem hér sitjum náðum aldrei að vera allir saman í lokaráshóp á Íslandsmóti.“

Björgvin, Úlfar og Birgir eru að mörgu leyti ólíkir kylfingar að eðlisfari. Úlfar og Birgir reyndu báðir fyrir sér í atvinnumennsku en það kom aldrei til greina þegar Björgvin var upp á sitt besta. Björgvin: „Atvinnumennskan kom aldrei upp á meðan ég var að vinna þessa Íslandsmeistaratitla. Sá möguleiki var mun fjarlægari á þeim tíma og ég hugsaði aldrei út í slíka hluti. Það var enginn búinn að brjóta ísinn á þeim tíma.“ Björgvin: „Úlfar var að mínu mati sá fyrsti sem var „agaður“ golfari – mun agaðri í leik sínum en allir aðrir. Hann æfði á skipulagðari hátt.“ Úlfar: „Ég var tæplega 18 ára þegar ég landaði fyrsta titlinum. Ég vissi á þeim tíma að ég ætti möguleika og var hungraður í að sanna mig.“

hann var 9 holur. Þar voru sex par 4 holur á hverjum hring sem voru yfir 400 metra langar – og það var ekkert rúll.“ Birgir: „Það er ekki hægt bera saman ólík tímabil. Það er alltaf verið að bera saman Jack Nicklaus og Tiger Woods. Hvor þeirra var betri? Það gleymist líka í þessu samanburði er að vellirnir eru orðnir mun harðari, flatirnar eru harðari og holustaðsetningarnar eru líka á erfiðari stöðum en áður. Ég finn mikinn mun á holustaðsetningum frá því ég gerðist atvinnumaður og það er alltaf verið að finna leið til þess að gera vellina aðeins erfiðari. Ef við rýnum í meðalskor kylfinga í dag miðað við það sem gerðist áður þá er ekki mjög mikill munur. Allavega ekki eins mikill munur og margir halda.“ Björgvin: „Það eru fleiri þrípútt sem koma þegar flatirnar eru mjög hraðar – en á sama tíma gætu fleiri pútt farið ofan í á betri flötum. Þetta jafnast allt saman út.

Birgir: „Ég var tæplega 20 ára þegar ég vann fyrst. Ég hefði alveg orðið brjálaður ef ég hefði ekki unnið 1996. Ég var búinn að vera í öðru sæti tvö árin þar á undan. Tapaði fyrir Sigurpáli Sveinssyni og Björgvini Sigurbergssyni. Það var aldrei efi í mínum huga að ég gæti unnið þrátt fyrir að vera ungur.“ Þeir eru allir tregir í taumi þegar þeir eru beðnir um að rifja upp helstu vonbrigðin á Íslandsmótaferlinum. Skiljanlegt þar sem meistarar muna aðeins eftir sigrum og engu öðru. Björgvin: „Ég varð annar 1972 þegar Loftur Ólafsson sigraði og í einhver skipti varð ég þriðji, en þetta eru hlutir sem maður vill ekki muna.“ Úlfar: „Ég náði öðru sætinu 1983 – rétt tæplega 15 ára. Mér fannst eins og ég hefði unnið en Gylfi Kristinsson úr GS varð Íslandsmeistari. Árið 1985 varð ég annar á eftir Sigurði Péturssyni en hann var með mikla yfirburði á því móti. Eftir það mót vissi ég hvar ég stóð og með meiri bætingu þá ætti ég að eiga möguleika.“


Úlfar og Björgvin áttu báðir möguleika á að ná þeim sjöunda í safnið og Birgir er enn að. Úlfar segir að mestu vonbrigðin hafði verið í Grafarholtinu 1993 og púttin sviku Björgvin eftir sjötta titilinn. Úlfar: „Íslandsmótið 1993 voru mestu vonbrigðin fyrir mig. Ég náði aldrei taktinum á því móti en var að spila vel á öðrum mótum þetta sumarið – einnig erlendis. Ég endaði í fjórða sæti. Í kjölfarið gerðist ég atvinnumaður og mátti ekki taka þátt í áratug eða svo.“

Björgvin: „Það voru mörg mót eftir 1978 þar sem mér fannst ég vera í stakk búinn að vinna Íslandsmótið. Það var í kringum 1980 sem ég var að spila mitt besta golf frá teig og að flöt. Púttin voru ekki góð á þessum tíma.“ Birgir: „Ég er enn að melta þann sjötta og er aðeins farinn að gæla við þann sjöunda á mínum gamla heimavelli á Garðavelli á Akranesi á næsta ári.“ Björgvin: „Ég get átt einn mjög góðan hring á fjögurra daga móti í dag – en það er verra að setja fjóra slíka saman í dag. Líklega er það æfingaleysið.“

En hvernig kylfingar voru sexföldu Íslandsmeistararnir á hátindi ferilsins?

Björgvin: „Ég var „gamblari“ og tók áhættuna í hvert sinn. Það er mismunandi „eðli“ hjá okkur hvað þetta varðar. Sú hugsun fylgdi mér alltaf að „stórkostlega höggið“ liti aldrei dagsins ljós nema að maður myndi reyna það.“ Birgir: „Ég tók miklu meiri áhættu í leik mínum þegar ég var yngri – og ég var því óstöðugur og lélegu hringirnir voru mjög lélegir. Ég var alveg rosalegur í að taka áhættuna – lét bara vaða ef ég sá smá séns að það gengi upp. Góð saga er frá því þegar Andrés Davíðsson, Björgvinb Þorsteinsson á teig árið 1979 á Jaðarsvelli.

Birgir Leifur á 18. flötinni í Eyjum.

Eftirminnilegasta höggið: Birgir Leifur Hafþórsson, fæddur 1976 Íslandsmeistaratitlar: 1996, 2003, 2004, 2010, 2013, 2014. Birgir: „Örninn sem ég fékk á öðrum keppnisdegi á 18. holu í Vestmannaeyjum 1996 er eftirminnilegasta höggið frá öllum þessum sex Íslandsmeistaratitlum. Ég endaði á 64 höggum. Púttið fór niður alla flötina og það var alltaf í. Það pútt situr enn í mér – og Björgvin var með mér í ráshóp. Ég kom mér 8 högg undir par á þessum tíma og ég vissi ekkert hvað ég var að gera. Þetta pútt setti mig í góða forystu fyrir næstu hringi.“ þjálfarinn minn, var á „pokanum“ í móti og hann kom til mín eftir hringinn og sagði. „Veistu það Biggi að ég er ekki með taugar í þetta. Þú sérð eitthvað sem ég hef aldrei látið mér detta í hug, þú ert að reyna að slá yfir vallarmörk, yfir tré og húkka inn á flötina. Ég ólst bara upp við þetta og í dag þarf maður að taka slíkar ákvarðanir af og til. Stundum verður maður að taka áhættuna og þegar það heppnast er sú tilfinning ein sú besta sem til er.“ Úlfar: „Ég var með leikskipulag sem ég hélt mér við eins og hægt var. Ég tók ekki mikla áhættu í leik mínum. Ég gerði eina heiðarlega tilraun á háskólaárunum mínum í Bandaríkjunum að breyta þessu. Ég tók eina önn þar sem ég var búinn að ákveða að taka meiri áhættu. Ef það voru meira en helmingslíkur á því að höggið heppnaðist þá tók ég áhættuna. Það gekk ekki vel – bara alls ekki.“

Eins og aðrir ungir menn áttu Björgvin, Úlfar og Birgir sér fyrirmyndir í golfinu.

Eftirminnilegasta höggið: Björgvin Þorsteinsson, fæddur 1953 Íslandsmeistartitlar: 1971, 1973, 1974, 1975, 1976, 1977.

„Ég man mjög vel eftir pútti sem ég setti niður á Jaðarsvelli árið 1971 til þess að jafna við Björgvin Hólm og komast í umspil gegn honum. Nokkur högg í þessu umspili eru einnig mér eftirminnileg og ég myndi líklega ekki leika eftir í dag. Brautirnar á Jaðri voru aðeins öðruvísi en í dag en teigurinn á 9. braut var þar sem fimmti teigurinn er í dag. Þetta var óhemjulöng par 4 hola og ég setti upphafshöggið út í röffið hægra meginn. Tek þaðan 4-tré úr vonlausri stöðu – ég tæki líklega 9-járn í slíkri aðstöðu í dag og myndi ekki detta það í hug að slá með 4-tré úr þessari legu. Höggið heppnaðist og boltinn flaug líklega um 170-180 metra. Ég vippaði síðan að holunni og setti parpúttið ofan í – og tryggði sigurinn á Íslandsmótinu.“ 52

Björgvin: „Arnold Palmer og Ben Hogan voru helstu fyrirmyndirnar þegar ég var að byrja í golfi. Síðar kemurJack Nicklaus ásamt Johnnie Miller og Tom Weiskopf. Maður las golfblöð og reyndi að „apa“ eftir því sem þeir voru að gera.“ Úlfar: „Jack Nicklaus og Tom Watson voru mikið að berjast um sigrana þegar ég fór að pæla mikið í golfinu. Síðar kom Seve Ballesteros, og stutta spilið hjá honum var það sem heillaði mig mest. Ég fylgdist vel með því hvernig hann framkvæmdi höggin í stutta spilinu og ég reyndi tileinka mér það. Síðan komu leikmenn eins og Nick Faldo og Bernhard Langer sem voru betur þjálfaðir og skipulagðari en aðrir. Þeir voru kannski ekki mest spennandi leikmennirnir á mótaröðinni en þeir náðu árangri. Þeir voru stöðugir og náðu árangri.“ Birgir Leifur: „Greg Norman var minn maður. Hann var Tiger Woods nútímans. Norman eða „Hvíti hákarlinn“ var töffari og breytti golfíþróttinn gríðarlega mikið hvað varðar áhuga almennings og sjónvarpsáhorf. Nick Faldo var aldrei spennandi leikmaður en hann var áhugaverður fyrir það að hann braut niður sveifluna og vann mikið í tækninni – sérstaklega fyrir risamótin.“ GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


Golfsveiflan sem þeir bjuggu til á unga aldri hefur fylgt þeim í gegnum tíðina en Björgvin hefur lítið reynt að breyta henni en bæði Úlfar og Birgir hafa gengið í gegnum margar breytingar. Björgvin: „Ég er nánast með sömu golfsveifluna í dag og frá því ég byrjaði í kringum árið 1962. Það var engin ástæða til þess að breyta þessari sveiflu.“

Úlfar: „Mín upplifun af golfsveiflunni hjá „Bjögga“ er að hann var alltaf góður „ballstriker“ og það þurfti ekki að breyta miklu hjá honum. Ég var sjálfur mikið að „krukka“ í sveiflunni hjá mér – með aðstoð skólafélaga. Það var enginn þjálfari sem hélt utan um ferlið og maður lenti því í allskonar rugli. Sveifla dagsins var það sem maður var alltaf að leita að. Ég var endalaust að reyna að finna eitthvað og á tímabili var maður búinn að týna því sem maður hafði og búinn að búa til eitthvað sem maður réði ekki við. Maður hafði ekki þjálfara í gegnum ferlið.“ Birgir: „Ég lenti á vegg þegar ég gerðist atvinnumaður, tæknilega var ég ekkert svakalega sterkur. Slæmu höggin mín fóru í báðar áttir og maður komst upp með það hérna á Íslandi en þegar ég fór að spila sem atvinnumaður áttaði ég mig fljótlega á því að það var ekki ásættanlegt. Ég er með „old school“ sveiflu að því leyti að takturinn er í sveiflunni hefur verið mín sterkasta hlið. Ég hef farið í gegnum ýmsar breytingar, sumt hefur alls ekki virkað vel og annað hefur virkað betur. Á seinni árum hef ég náð að blanda þessu vel saman og ég er miklu stöðugri sem kylfingur í dag en áður. Síðustu tvö ár eru bestu árin mín, meðalskorið hefur aldrei verið að lægra. Ég hefði alveg viljað fá leiðsögnina og aðstöðuna sem er í boði í dag fyrir börn og unglinga. Hæfileikarnir voru til staðar hjá mér en maður hafði ekki hundsvit á því hvað maður var að gera í golfsveiflunni. Á Akranesi var maður með eina golfsveiflu fyrir hádegi og aðra eftir hádegi.

Talið berst að ungu kynslóðinni hér á landi og það er greinilegt að meistararnir vilja að krakkar og unglingar spili meira golf í stað þess að „berja“ bolta af mottunni á æfingasvæðinu.

að við eigum að vera mun meira með höggleikskeppnina í 18 ára og yngri á Íslandi.“ Björgvin og Úlfar kinka kolli og eru sammála Birgi í þessu máli. Að lokum barst talið að leikhraðanum og þar eru menn sammála um að golfhringurinn taki alltof langan tíma í keppnisgolfinu í dag. Björgvin: „Leikhraðinn var mun betri á árum áður en ég man ekki hvenær þetta fór að versna til muna. Þegar keppnishringirnir eru komnir í 5 – 5½ tíma, þá er eitthvað að.“ Úlfar: „Þegar ég var að byrja að spila á mótaröðinni hér á Íslandi voru leiknar 36 holur á dag, tvo daga í röð. Þá voru fimm tímar á milli rástíma hjá manni og því fljótari sem maður var með fyrri 18 þá fékk maður lengri hvíld á milli umferða. Það var mikið aðhald og þriggja manna ráshópar léku 18 holur á innan við 4½ tímum. Það er glórulaust að golfhringur í keppnisgolfi taki 5 – 5½ tíma.“ Björgvin: „Ég held að það sem hafi gerst er að kylfingar eru stundum ekki að hugsa „neitt“ á milli högga. Þeir eru ekki tilbúnir þegar að þeim kemur og allt slíkt tefur mikið. Endalausar pælingar og uppstillingar á boltanum á flötinni. Þetta er að eyðileggja golfið og þessi seinagangur fer virkilega í taugarnar á mér.“ Úlfar: „Það er helsta vandamálið að kylfingar eru ekki tilbúnir. Eru ekki búnir að undirbúa höggið, fara í hanskann, velja kylfu og taka miðið, á meðan hinir eru að gera. Ég sé alltof mikið að fólk sé ekki tilbúið þegar það kemur að því.“ Birgir: „Það fer reyndar lítið í taugarnar á mér þegar ég er að spila golf. Ég rúlla bara með. Mér finnst reyndar leiðinlegt fyrir leikinn þegar menn eru lengi að spila. Maður spyr sig eftir 5 ½ tíma golfhring á Íslandsmóti hvernig slíkt getur gerst. Við leikum 18 holur í Leirdalnum á rétt rúmlega 3½ tímum og skorið er oft ekkert verra en í keppni við slíkan hraða.“ Úlfar og Ragnar á Jaðarsvelli 1990.

Úlfar: „Við erum allir það heppnir að það var mikið frjálsræði á golfvöllunum þegar við vorum ungir. Við gátum farið út að spila þegar okkur hentaði og við lærðum mikið á því. Ég var alltaf úti á velli að æfa mig og maður fékk góðan grunn á því. Það kemur alltaf að því að kylfingar vilja ná enn lengra og þá þarf oft að gera ákveðnar breytingar í sveiflunni – en þá þarf að hafa góðan kennara eða þjálfara til þess að fylgja því í gegn með manni. Við vorum ekki með slíkt þegar við vorum að alast upp.“ Björgvin: „Ég hafði golfvöllinn út af fyrir mig nánast. Ef maður var ekki góður eftir tvær holur þá fór maður til baka og byrjaði upp á nýtt. Úlfar: „Ég gerði slíkt hið sama og maður kom oft til baka á 1. teiginn til að byrja upp á nýtt.“ Birgir: „Það eru öfgar í báðar áttir í þessu. Í dag eru krakkar sem eru eyða hæfileikum sínum með því að standa á „mottunni“ alla daga og slá í stað þess að fara að spila golf. Þau eru kannski með fullkomna golfsveiflu en geta ekkert gert við hana úti á golfvelli. Við höfum allir þrír upplifað það að vera með golfvöllinn út af fyrir okkur og spiluðum út í eitt þegar við gátum.“

Höggleiksformið er að mati þeirra þriggja á undanhaldi og það er ekki góð þróun að þeirra mati. Ungir kylfingar geti unnið golfmót þrátt fyrir að hafa leikið illa á nokkrum holum í punktakeppni.

Birgir: „Ég er á þeirri skoðun að punktakerfið hafi eyðilagt mikið í afreksgolfi fyrir yngri kylfinga. Krakkar í dag alast upp við það að þau geti sett x á holuna ef hlutirnir ganga ekki upp. Mér finnst það röng skilaboð að geta sett x á holuna í staða þess að þurfa að „berjast“ fyrir hverju einasta höggi. Hitt er of auðvelt – ég hef sagt það lengi

Eftirminnilegasta höggið: Úlfar Jónsson, fæddur 1968: Íslandsmeistaratitlar: 1986, 1987, 1989, 1990, 1991, 1992. „Á Íslandsmótinu á Jaðarsvelli árið 1990 setti ég niður pútt á lokaholunni á lokadeginum sem er eitt af mínum eftirminnilegustu augnablikum. Sigurjón Arnarson og Ragnar Ólafsson voru í lokaráshópnum með mér. Á 18. flöt setti Ragnar niður um 3 metra pútt og ég var aðeins nær, rétt fyrir framan boltann hans. Ég þurfti að setja þetta pútt niður til þess að jafna við Ragnar og komast í umspil. Það sem mér fannst skemmtilegast við þetta var að loksins var ég kominn í aðstöðu fyrir þá hluti sem ég hafði æft mig í mörg ár fyrir. Ég var alltaf æfa mig í því að setja niður pútt við slíkar aðstæður – hafði ímyndað mér slíkt á æfingasvæðinu í ótal skipti. Ég hafði unnið Íslandsmeistaratitilinn þrisvar áður án þess að hafa lent í slíkri aðstöðu.“


Kristján Þór sigraði í Einvíginu á Nesinu - Samtök Einhverfra barna fengu milljón kr. styrk

S

amtök Einhverfra barna fengu eina milljón kr. afhenta eftir hið árlega góðgerðamót DHL sem fram fór á frídegi Verslunarmanna í byrjun ágúst. Einvígið á Nesinu hefur skapað sér mikla sérstöðu sem golfmót og að venju voru fjölmargir áhorfendur mættir til þess að sjá bestu kylfinga landsins í einvíginu sem fram fór í 18. sinn í sumar. Kristján Þór Einarsson, Íslandsmeistari í holukeppni 2014, og stiga-

meistari á Eimskipsmótaröðinni, stóð uppi sem sigurvegari. Í þessari keppni fellur einn leikmaður úr leik á hverri holu en leiknar eru 9 holur í Einvíginu. Alls hófu 10 kylfingar leik og alls fóru fram sex „bráðabanar“ á holunum 9 og spennan var mikil á mótinu. Kristján Þór fékk fugl á 9. holunni en þá stóðu hann og Hlynur Geir Hjartarson úr GOS einir eftir. Ólafur Björn Loftsson, klúbbmeistari Nesklúbbsins, var þriðji á þessu móti.

Kristján Þór Einarsson slær hér upphafshögg einbeittur á Nesvellinum.

Kristján Þór Einarsson með verðlaunin.

Ljósmyndir: Björgvin Frans Björgvinsson Björgvin Sigurbergsson hefur lengi verið meðal þátttakenda í Einvíginu á Nesinu.

Úrslit mótsins: 1. braut: Tinna Jóhannsdóttir GK féll úr keppni á 1. braut. 2. braut: Helga Einarsdóttir úr Nesklúbbnum féll úr keppni á 2. braut. 3. braut: Bjarki Pétursson úr Golfklúbbi Borgarness féll úr keppni á 3. braut. 4. braut: Nökkvi Gunnarsson úr Nesklúbbnum féll úr keppni á 4. braut. 5. braut: Þórður Rafn Gissurarson úr GR féll úr keppni á 5. braut. 54

6. braut: Axel Bóasson úr GK féll úr keppni á 6. braut. 7. braut: Björgvin Sigurbergsson úr GK féll úr keppni á 7. braut. 8. braut: Ólafur Loftsson úr Nesklúbbnum féll úr keppni á 8. braut. 9. braut: Hlynur Geir Hjartarson úr GOS féll úr keppni á 9. braut. rfra bar Fulltrúar Samtaka Einhve

mt sigurvegaranum. na með ávísunina góðu ása



„Pönsað“ 5-járn af 184 metra færi „Besta höggið sem ég sló á mótinu var annað höggið á 17. braut. Boltinn var í röffinu hægra megin við brautina eftir upphafshöggið. Það var góður mótvindur og ég ákvað að slá 80% högg með 5 járninu og „pönsa“ það aðeins. Ef hann yrði of stuttur þá yrði hann bara stuttur, en um leið og ég hitti hann sá ég að ég fékk smá „flyer“. Boltinn endaði á því að fljúga alla leið og endaði 4 metra frá beint fyrir aftan flaggið, ég rúllaði púttinu í fyrir fugli.“

Kristján Þór og Valdís Þóra í sigruðu örugglega á Eimskipsmótinu á Garðavelli:

KRISTJÁN ÞÓR TRYGGÐI SÉR STIGAMEISTARATITLINN

A

llar gerðir af íslensku sumarveðri voru til staðar á sjötta móti ársins á Eimskipsmótaröðinni sem fram fór á Garðavelli á Akranesi 15.-17. ágúst. Kristján Þór Einarsson úr Kili Mosfellsbæ sigraði með fimm högga mun í karlaflokki með góðri spilamennsku. Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni, sem var á heimavelli á þessu móti, var með yfirburði í kvennaflokknum og sigraði með tíu högga mun. Þetta var annar sigur Kristjáns á Eimskipsmótaröðinni en sá fyrsti hjá Valdísi. Leiknar voru 54 holur á þremur keppnisdögum og aðstæður voru nokkuð erfiðar fyrstu tvo keppnisdagana en á lokahringnum var mikil veðurblíða, sól og hægviðri. Með sigrinum tryggði Kristján sér stigameistaratitilinn á Eimskipsmótaröðinni en hann lék síðari 9 holurnar á lokahringnum á fjórum höggum undir pari. „Ég er mjög sáttur við sigurinn og mér leið vel á þessu móti. Það er gaman að vera stigameistari og ég fór langt framúr mínum markmiðum. Ég stefndi á að vera í topp fimm á sem flestum mótum sumarsins.“

56

Kristinn faðir Ólafíu Þórunnar sló á létta strengi.

2

A

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


ÞOLINMÆÐI BRUGGMEISTARA OKKAR SKILAR SÉR TIL ÞÍN. Hér fór Gunnar holu í höggi árið 2004. Eitt fullkomið högg. En það var ekkert vitni. Í 6 ár með upptökuvél og þolinmæðina að vopni hefur Gunnar mætt reglulega á völlinn. Nú vantar bara annað fullkomið högg.

2.25% ALC. VOL.

OKKAR BJÓR WORLD’S BEST STANDARD LAGER


Kristján Þór varð faðir í annað sinn rétt rúmri viku áður en mótið fór fram og hann tók ekki þátt í sveitakeppni GSÍ með Kjalarmönnum eftir að sonurinn kom í heiminn. Kristján segir að hann sé mun rólegri en áður eftir að hann varð faðir en hann er ekki að hugsa um bleyjuskipti á meðan hann er að keppa í golfi. „Ég næ alveg að kúpla mig frá bleyjuskiptunum á meðan ég er að keppa og mér líður bara mjög vel. Á meðan allt gengur vel heima þá get ég einbeitt mér 100%,“ sagði Kristján sem hafði sett sér það markmið fyrir sumarið að ná góðum árangri á Eimskipsmótaröðinni og láta verkin tala. „Mér finnst Garðavöllur mjög skemmtilegur völlur. Hér þarf maður að slá alls konar högg. Flatirnar eru mismunandi hraðar, sumar eru gamlar og aðrar nýrri, maður veit samt alveg

hvernig þetta er og það er gaman að eiga við þessar flatir. Heilt yfir er þetta skemmtilegur og krefjandi völlur. Sumar holurnar eru mjög erfiðar, en á móti kemur að það eru styttri holur sem gefa færi á sér. Skemmtilegasta holan að mínu mati er 10. holan. Sú hola hefur stundum reynst mér erfið og stundum hefur hún einnig verið góð við mig. Þetta jafnast allt út,“ bætti hann við. Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Stefán Már Stefánsson, báðir úr GR, enduðu í öðru og þriðja sæti á +2 og +4 samtals.

Fyrsti sigur Valdísar í höggleik á heimavelli

Valdís Þóra var virkilega ánægð með mótið á Akranesi þar sem hún lék á pari vallar á 54 holum. Hún var með mikla yfirburði og

Tvö högg sem stóðu upp úr hjá Valdísi „Ég sló tvö upphafshögg á lokahringnum sem voru að mínu mati bestu höggin á mótinu. Á 15. braut flaug boltinn gegn mótvindi að flötinni og ég átti 50-60 metra eftir inn á flöt. Á 17. náði ég líka að smellhitta drævið í hliðarmótvindi og boltinn flaug langt yfir skurðinn sem sker brautina,“ sagði Valdís en þrjár brautir á Garðavelli eru í uppáhaldi hjá henni. Það eru þrjár brautir sem gefa góða möguleika á fugli en refsa líka svakalega ef maður á lélegt högg. Þetta eru 2., 6. gg 15.,“ bætti Valdís við.

LOKASTAÐAN HJÁ EFSTU KYLFINGUNUM Í KVENNAFLOKKI:

LOKASTAÐAN HJÁ EFSTU KYLFINGUNUM Í KARLAFLOKKI:

1. Valdís Þóra Jónsdóttir, GL (71-74-71) 216 högg (par) 2. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR (72-8272) 226 högg (+10) 3. Karen Guðnadóttir, GS (77-77-77) 231 högg (+15) 4. Signý Arnórsdóttir, GK (76-82-75) 233 högg (+17) 5. Sunna Víðisdóttir, GR (77-82-76) 235 högg (+19) 6. Þórdís Geirsdóttir, GK (75-83-77) 235 högg (+19) 7. Tinna Jóhannsdóttir, GK (80-78-78) 236 högg (+20)

1. Kristján Þór Einarsson, GKj. (69-74-70) 213 högg (-3) 2. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR (7373-72) 218 högg (+2) 3. Stefán Már Stefánsson, GR (73-76-71) 220 högg (+4) 4.-5. Guðni Fannar Carrico, GS (70-82-72) 224 högg (+8) 4.-5. Arnór Ingi Finnbjörnsson, GR (75-7376) 224 högg (+8) 6.-7. Axel Bóasson, GK (73-76-76) 225 högg (+9) 6.-7. Sigurþór Jónsson, GB (76-74-75) 225 högg (+9)

58

sigraði með 10 högga mun. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Íslandsmeistari í höggleik 2014, varð önnur og Karen Guðnadóttir úr GS varð þriðja. Karen styrkti stöðu sína í efsta sæti stigalista Eimskipsmótaraðarinnar með þriðja sætinu og Signý Arnórsdóttir úr GK hleypti spennu í þá baráttu með því að ná fjórða sætinu. „Ég er virkilega ánægð með þetta mót. Ég hef aldrei sigrað hérna á heimavelli í höggleikskeppni og þetta var því ánægjulegt. Þolinmæði var það sem stóð upp úr á þessum þremur hringjum. Við fengum allar gerðir af veðri og þetta var skemmtileg áskorun,“ sagði Valdís Þóra sem hefur einbeitt sér að LET Access atvinnumótaröðinni í Evrópu á þessu ári. Hún leikur á úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina í lok október.

Guðmundur Ágúst varð annar.

Stefán Stefánsson varð í 3. sæti.

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


Laugarnar í Reykjavík

r i r Fy a m a lík l á s og

alla y fyrir ldun fjölsky lduna

í þí nu hv eerfi

600 kr. Ful lorðni r 130 kr. Bör n

Sími: 411 5000 • www.itr.is


ÚRSLIT EFSTU KYLFINGA Í KVENNAFLOKKI:

Tinna Jóhannsdóttir og Kristján Þór Einarsson stóðu uppi sem sigurvegarar á Goðamótinu á Jaðarsvelli

KRISTJÁN ÞÓR HAFÐI BETUR GEGN GÍSLA Þ að ríkti mikil eftirvænting hjá forsvarsmönnum Golfklúbbs Akureyrar þegar bestu kylfingar landsins mættu til leiks á Goðamótið á Jaðarsvelli. Mótið var sjöunda mótið á Eimskipsmótaröðinni og jafnframt lokamótið. Stigamót á vegum GSÍ í keppni fullorðinna hafði ekki farið fram í rúman áratug eða frá árinu 2003. Mikil spenna var í karlaflokki allt fram á lokaholuna en Kristján Þór Einarsson úr Kili tryggði sér sigur í karlaflokknum með frábærum lokahring og Tinna Jóhannsdóttir úr Keili sigraði í kvennaflokki. Kristján Þór Einarsson úr Golfklúbbnum Kili í Mosfellsbæ hafði fyrir mótið tryggt sér sigur í stigakeppninni á Eimskipsmótaröðinni – en það gerði hann með sigrinum á sjötta mótinu á Eimskipsmótaröðinni sem fram fór á Garðavelli á Akranesi. Gísli Sveinbergsson úr GK var með tveggja högga forskot á Kristján eftir fyrstu tvo hringina sem leiknir voru á laugardeginum. Gísli, sem er 17 ára gamall, lék fyrstu tvo hringina á einu höggi undir pari. Gísli var með eitt högg í forskot á Kristján Þór eftir eftir 9 holur á lokahringnum. Kristján náði að jafna við Gísla á 11. og á 13. var tveggja högga sveifla – þar sem Kristján fékk fugl en Gísli skolla. Kristján leit ekki um öxl eftir það og sigraði með þriggja högga mun á -3 samtals.

60

Tinna kunni vel við sig á Jaðarsvelli.

Þetta var þriðja mótið á Eimskipsmótaröðinni þar sem Kristján Þór stendur uppi sem sigurvegari en hann sigraði á Íslandsmótinu í holukeppni, og hann sigraði einnig á Eimskipsmótinu sem fram fór á Garðavelli á Akranesi fyrir hálfum mánuði. Kristján varð annar á Símamótinu í Borgarnesi. Kristján varð tvívegis í fimmta sæti og einu sinni í því sjöunda en hann tók þátt á öllum sjö mótunum á Eimskipsmótaröðinni. Gísli varð annar í keppninni um stigameistaratitilinn og Bjarki Pétursson varð þriðji. „Það var rosalega gaman að spila Jaðarsvöll og þessi völlur á svo sannarlega heima

1. Tinna Jóhannsdóttir, GK (75-75-77) 227 högg +14 2. Karen Guðnadóttir, GS (75-75-81) 231 högg +18 3. Sara Margrét Hinriksdóttir, GK (78-77-78) 233 högg +20 4.-5. Signý Arnórsdóttir, GK (80-77-77) 234 högg +21 4.-5. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR (75-79-80) 234 högg +21 6. Ingunn Einarsdóttir, GKG (80-80-76) 236 högg +23 7. Birta Dís Jónsdóttir, GHD (78-79-81) 238 högg +25 8. Særós Eva Óskarsdóttir, GKG (76-77-85) 238 högg +25

ÚRSLIT EFSTU KYLFINGA Í KARLAFLOKKI: 1. Kristján Þór Einarsson, GKj.(73-70-67) 210 högg -3 2. Gísli Sveinbergsson, GK (70-71-72) 213 högg (par) 3. Bjarki Pétursson, GB (70-75-71) 216 högg +3 4. Björgvin Sigurbergsson, GK (70-77-73) 220 högg +7 5. Hlynur Geir Hjartarson, GOS (75-72-74) 221 högg +8 6. Ólafur Auðunn Gylfason, GÓ (72-73-77) 222 högg +9 7. Birgir Guðjónsson, GR (73-74-76) 223 högg +10 8.-12. Eyþór Hrafnar Ketilsson, GA (76-77-73) 226 högg +13 8.-12. Stefán Þór Bogason, GR (72-77-77) 226 högg +13 8.-12. Sigurþór Jónsson, GB (72-76-78) 226 högg +13 8.-12. Ævarr Freyr Birgisson, GA (73-72-81) 226 högg +13 á Eimskipsmótaröðinni. Breytingarnar sem hafa átt sér stað á vellinum eru virkilega flottar og koma mjög vel út,“ sagði Kristján Þór eftir mótið. Hann segir að þolinmæði hafi verið lykillinn að sigrinum. „Það er mjög misjafn hraði á flötunum og margar flatir eru enn „hráar“ og boltinn skoppaði mikið. Ég vissi að þetta yrði svona og lykillinn að þessu var að láta það ekki fara í taugarnar á sér og brosa þessa í stað,“ bætti hann við.

Tinna með stáltaugar á lokahringnum - Karen stigameistari

Í kvennaflokknum á Goðamótinu var Tinna Jóhannsdóttir hlutskörpust eftir skemmtilega GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


Fáðu forskot á mótherjana

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir

Forskot er sjóður sem styður við efnilega íslenska kylfinga. Eimskip, Valitor, Icelandair Group og Íslandsbanki stofnuðu sjóðinn ásamt Golfsambandi Íslands árið 2012. Markmiðið er að styrkja framúrskarandi kylfinga sem eru að taka sín fyrstu skref út í heim atvinnumennskunnar og stefna á að komast í fremstu röð.


Bjarki Pétursson varð í 3. sæti.

rimmu gegn Karen Guðnadóttur úr GS. Þær voru jafnar fyrir lokahringinn á 8 höggum yfir pari samtals en Tinna sýndi styrk sinn á lokahringnum og sigraði með fjögurra högga mun. Árangur Tinnu á Eimskipsmótaröðinni er áhugaverður en hún var með 66,6% vinningshlutfall, tók þátt á þremur mótum, og sigraði á tveimur þeirra – þar af var annað Íslandsmótið í holukeppni. Tinna lék lokahringinn á 77 höggum eða 6 höggum yfir pari vallar og samtals +14. Karen varð önnur á +18 samtals en hún tryggði sér jafnframt stigameistaratitilinn á Eimskipsmótaröðinni í fyrsta sinn á ferlinum. Sara Margrét Hinriksdóttir úr Keili varð í þriðja sæti en það er besti árangur hennar á Eimskipsmótaröðinni. Karen náði jöfnum árangri á Eimskipsmótaröðinni á þessu ári en hún náði ekki að landa sigri í sumar – en var fimm sinnum á verðlaunapalli og þar af tvívegis í öðru sæti. „Mér finnst alltaf gaman að spila á Akureyri og landslagið og hönnun vallarins er ótrúlega skemmtilegt. Völlurinn sem slíkur er klárlega samkeppnishæfur á mótaröðinni þó að hann hafi kannski ekki verið í sínu besta ástandi. Ég skil ekki þessa endalausu fælni við að leyfa færslur á GSÍ mótum. Það er mín skoðun að leyfa hefði átt færslur á brautunum í Goðamótinu. Það þýðir samt ekki að völlurinn sé ekki samkeppnishæfur. Við búum bara á Íslandi,“ sagði Tinna þegar hún var innt eftir upplifun hennar á mótinu. Hún sagði að púttin hefðu verið vandamál fyrri hluta mótsins en hún hafi ákveðið að hætta þessu „væli“ og „girt sig í brók“. „Ég strögglaði á flötunum á laugardeginum, átti erfitt með að finna hraðann og lét það fara í taugarnar á mér því slátturinn var nokkuð þéttur alla helgina. Efir 9 holur á sunnudegi þá sagði ég sjálfri mér bara að hætta þessu væli og girða mig í brók. Það var ekki flóknara en það.“ Karen Guðnadóttir var í baráttu um sigurinn.

62

Boltinn dúndraðist í miðja stöngina og datt í holuna „Það voru mörg góð högg sem ég sló á mótinu en ef ég á að velja eitt högg sem stóð upp úr þá er það annað höggið á 6. brautinni á öðrum hringnum. Ég missti teighöggið á þessari par 3 holu upp í vindinn og endaði vinstra megin við flötina. Ég sló þaðan „lobb“ högg með 60 gráðu fleygjárninu af um 25-30 metra færi. Boltinn lenti mjög hart á flötinni, dúndraðist upp í miðja stöngina og datt síðan ofan í holuna – „léttur“ fugl staðreynd. Það eru margar skemmtilegar brautir á Jaðarsvelli og ég á erfitt með að gera upp á milli þeirra. Völlurinn var í heildina frábær og skemmtilegur að spila.“

Mikil ánægja með hvernig til tókst „Mótið gekk alveg ljómandi vel og mikil ánægja með hvernig til tókst frá okkar bæjardyrum séð og gaman að taka þátt í þessu aftur eftir svona langa bið,“ segir Ágúst Jensson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Akureyrar, en hann var ánægður með þann fjölda keppenda sem mætti til leiks á Goða-mótið á Eimskipsmótaröðinni þrátt fyrir að skólar væru byrjaðir í lok ágúst. „Það voru um 75 keppendur sem var framar okkar björtustu vonum, svona í ljósi reynslunnar og sérstaklega þar sem það voru bara 40 keppendur á Skaganum. Það var greinilega komin löngun í það hjá kylfingum að spila aftur á Jaðri. Ég held að keppendur hafi haft mjög gaman að því að koma hingað og spila og margir þeirra lýstu yfir ánægju sinni með þær breytingar sem hafa verið gerðar hér undanfarin ár og voru bara heilt yfir ánægðir með völlinn. Ég trúi því að Jaðar sé kominn aftur til að vera á mótaröðinni. Þannig að vonandi líða ekki svona mörg ár aftur, við fáum allavega Landsmótið hingað eftir tvö ár og allir hlakka mikið til,“ sagði Ágúst Jensson.

Yndislegt að horfa á teighöggið á sjöundu „Á sunnudeginum spilaðist teighöggið á 7. holu beint upp í vindinn og það var frekar mikið rok. Ég tók dræverinn og algjörlega myrti það högg. Það var yndislegt tilfinning að horfa á boltann detta í lítið draw aftur fyrir hæðina,“ sagði Tinna þegar hún rifjaði upp eftirminnilegasta högg mótsins. Að hennar mati eru þrjá holur sem standa upp úr á Jaðarsvelli – ef litið er á eftirminnilegar holur. „ Ég fæ alltaf smá fiðring þegar ég kem á 18. teig. Ég tengi það aðallega við minningar sem ég á frá þessari holu. Þarna varð ég Íslandsmeistari í unglingaflokki og þarna tapaði ég Íslandsmeistaratitli í sveitakeppni. Eftir að vellinum var breytt eru 12. og 13. uppáhaldsholurnar mínar. Breytingin á þeim hefur tekist gríðarlega vel. GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


Þú sérð um púttið Við sjáum um prentunina

Umbúðir • Bækur • Tímarit • Fyrir skrifstofuna • Bæklingar • Fjölpóstur Kynningarefni • Dagblöð • Stafrænt • Allskonar!

Suðurhraun 1 Garðabæ Sími: 595 0300 www.isafold.is


Nafn: Gun nar Árnaso n Aldur: 62 á ra Heimili : Kópavogu r

20

HRAÐASPURNINGAR

Gunnar Árnason stóð vaktina á Íslandsmótinu í höggleik á Leirdalsvelli sem ræsir – en hann kynnti keppendur til leiks af fagmennsku alla fjóra keppnisdagana. Gunnar lét það ekki duga að standa vaktina frá morgni til kvölds því hann kynnti einnig ráshópana fyrir áhorfendum þegar kylfingarnir léku 18. brautina á lokakeppnisdeginum. Golf á Íslandi fékk Gunnar til að svara laufléttum hraðaspurningum. Falinn hæfileiki: Lærði að stoppa í sokka í heimavistarskólanum. Einkunnarorð lífs þíns: Njóta lífsins lifandi. Væri til í að vera: Stöðugri leikmaður. Hjátrú í golfi: Ég held varla. Þarf að bæta mig í: Teighöggunum. Uppáhalds kylfingur í heimi: Tom Watson. Uppáhalds golfvöllur (fyrir utan heimavöll): Hulencourt „Le Vallon“ Course í Belgíu, 75 högg í Evrópumóti eldri kylfinga 2010. Högg sem mér finnst skemmtilegt að æfa: Vipp og pútt.

Uppáhaldskylfan mín: Pútterinn sem ég fékk í nándarverðlaun á 17. á Leirdalsvelli 2002.

Sætasta golfstundin: Sigur í 3. flokki í Íslandsmóti 35 ára 2008 á Kiðjabergi.

Aldur þegar „breikaði“ fyrst 100: 47 ára - byrjaði 46 ára.

Í POKANUM:

Hræddastur við: Hátt fall...

Draumahollið mitt: Tom Watson, Gary Player og Annika Sörenstam.

Lægsti 18 holu hringurinn minn: 73 í Grafarholti á lokadegi Íslandsmóts eldri kylfinga 2010.

Flatarmerkið mitt: Íslensk króna.

Uppáhalds matur: Íslenska lambið.

Uppáhalds íþróttamaður (ekki í golfi): Michael Jordan.

Uppáhalds bíómynd: James Bond myndirnar.

Tónlistin á IPODinum mínum: Á engan.

Besta golfráðið: Aldrei að gefast upp.

64

Dræver: Ping G10, styttur. Brautartré: Adams Speedline 3 tré, 15 gráður. Hálfjárn: Adams 19 og 23 gráðu. Járn: 5-P, Callaway X2 Hot. Fleygjárn: MacGregor M59, 52, 56 og 60 gráður. Pútter: Wilson Deep Red. Golfbolti: Það sem til fellur hverju sinni, Pro V1 spari. Og fleira: Pro Quip regngalli, Bushnell fjarlægðarmælir, fuglapokinn (þurrkaðir ávextir) og smáhlutir. GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


Verkfæri sem hægt er að treysta ! IR ylg 6” f kkI m y u t eld úfS SkR llum S káPum S ö a R kfæ VeR

7

skúffur

Pro Plus seria 282 verkfæri

199.900 m/vsk

skralllyklasett Skralllyklar PRO 72 tanna Stærðir 8 - 19mm vnr ibtgpaq1202

14.900

m/vsk

fullt verð 20.413

8

verkfærasett 130 stk skúffur

Pro Plus seria 322 verkfæri

239.900 m/vsk

1/4” - 3/8” - 1/2” toppar 4 - 32 mm | 5/32” - 1 1/4” lyklar 8 - 22 mm e toppar, sexkantbitar og fl. Sterk plasttaska vnr IBtgcaI130B

24.900

m/vsk

fullt verð 37.900

toPPlyklasett 94 stk

7

skúffur

vnr IBtgcaI094R

sá vinsæli 283 verkfæri

1/4” 4 - 14 mm 1/2” 10 - 32 mm Bitar og fl. Sterk plasttaska

179.900 m/vsk

14.900

m/vsk

fullt verð 25.231

verkfærasett 96 stk toppar 1/4” - 1/2” 4 - 32 mm toppar, lyklar, skrúfjárn, töng Nippillyklar og fl. Sterk plasttaska

1/4” toPPasett

vnr IBtgcaI9601

21.900

m/vsk

fullt verð 37.200

3.900

5.900

m/vsk

inu á net Bara 1.490 m/vsk

5.900

m/vsk

m/vsk

6.900

8.900

m/vsk

m/vsk

www.sindri.is / sími 575 0000 Viðarhöfða 6 - Reykjavík

I

Bæjarhrauni 12 - Hafnarfjörður

skrúfjárnsett

8.900

m/vsk

1.990

m/vsk

1.990

m/vsk


RAGNHILDUR OG TRYGGVI

ÍSLANDSMEISTARAR +35 Í EYJUM

R

agnhildur Sigurðardóttir úr GR og Tryggvi Valtýr Traustason úr GSE fögnuðu sigri á Íslandsmóti 35 ára og eldri sem fram fór í Vestmannaeyjum um miðjan júlí. Veðrið var í aðalhlutverki alla þrjá keppnisdagana en mikil þoka og úrkoma setti keppnishaldið úr skorðum. Upphaflega átti mótið að vera sameiginlegt verkefni hjá Golfklúbbi Ísafjarðar og Golfklúbbi Bolungarvíkur – en vegna vallaraðstæðna var ákveðið að færa mótið með frekar skömmum fyrirvara. Alls hófu 96 kylfingar keppni í Eyjum sem er töluvert meiri aðsókn en fyrir ári síðan þegar mótið

fór fram á Hellishólum og 64 kylfingar tóku þátt. Keppni í 1. flokki karla og kvenna var mjög spennandi. Tryggvi vann með minnsta mun eftir harða baráttu við Helga Anton Eiríksson félaga sinn úr GSE. Þórður Emil Ólafsson, formaður Golfklúbbsins Leynis á Akranesi, blandaði sér í baráttuna og sýndi að það er enn eitthvað á „tankinum“ hjá Íslandsmeistaranum í höggleik frá árinu 1997. Þórdís Geirsdóttir úr Keili hafði titil að verja í 1. flokki kvenna en aðeins munaði þremur höggum á Þórdísi og Ragnhildi þegar uppi var staðið.

LOKASTAÐA EFSTU KYLFINGA: 1. flokkur karla: 1. Tryggvi Valtýr Traustason, GSE (70-69-76)= 215 högg (+8) 2. Helgi Anton Eiríksson, GSE (75-70-71) = 216 högg (+9) 3. Þórður Emil Ólafsson, GL (70-76-72) = 218 högg (+11) 1. flokkur kvenna: 1. Ragnhildur Sigurðardóttir, GR (67-77-76) = 220 högg (+13) 2. Þórdís Geirsdóttir, GK (69-78-76) = 223 högg (+16) 3. Hansína Þorkelsdóttir, GKG (77-76-89) = 242 högg (+35) 2. flokkur karla: 1. Helgi Sigurðsson, GV (74-73-82) = 229 högg (+22) 2. Huginn Helgason, GV (76-77-84) = 237 högg (+30) 3. Eyþór Harðarson, GV (81-80-82) = 243 högg (+36)

Sigurvegarar í 2. flokki karla Helgi Sigurðsson, Huginn Helgason og Eyþór Harðarson.

2. flokkur kvenna: 1. Margrét Sigmundsdóttir, GK (83-91-93) = 267 högg (+60) 2. Sara Jóhannsdóttir, GV (85-92-93) = 270 högg (+63) 3. Katrín Harðardóttir, GV (90-100-98) = 288 högg (+81) 3. flokkur karla: 1. Halldór R Baldursson, GR (82-90-77) = 249 högg (+42) 2. Héðinn Ingi Þorkelsson, GKG (83-82-89) = 254 högg (+47) 3. Viðar Elíasson, GV (89-88-97) = 274 högg (+67)

Verðlaunahafar í 3. flokki kvenna; Rut Aðalsteinsdóttir, Írunn Ketilsdóttir og Irma Mjöll Gunnarsdóttir. 66

3. flokkur kvenna: 1. Rut Aðalsteinsdóttir, GR (98-97-102) = 297 högg (+90) 2. Írunn Ketilsdóttir, GO (103-98-102) = 303 högg (+96) 3. Irma Mjöll Gunnarsdóttir, GR (100-106-106) = 312 högg (+105) GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is



ÁSGERÐUR OG JÓN HAUKUR

STIGAMEISTARAR

L

okamót Öldungamótaraðar LEK, Samskipsmótið, fór fram á Golfvelli Vestmannaeyja um miðjan september. Að mótinu loknu, sem var það níunda á þessu ári á Öldungamótaröð LEK, lá fyrir hverjir voru fyrstu stigameistarar Öld-

ungamótaraðarinnar sem sett var á laggirnar á þessu ári. Ásgerður Sverrisdóttir (GR) og Jón Haukur Guðlaugsson (GR) voru stigahæst án forgjafar. Stigameistarar með forgjöf urðu þau Ágústa Dúa Jónsdóttir (NK) og Ragnar Gíslason (GO).

Stigahæstu í kvennaflokki án forgjafar:

Stigahæstu í karlaflokki án forgjafar:

1. Ásgerður Sverrisdóttir, 10336 stig. 2. Steinunn Sæmundsdóttir, 10200 stig. 3. María Málfríður Guðnadóttir, 10026 stig. 4. Ágústa Dúa Jónsdóttir, 8072 stig. 5. Anna Snædís Sigmarsdóttir, 7915 stig.

Stigahæstu í kvennaflokki með forgjöf: 1. Ágústa Dúa Jónsdóttir, 9737,5 stig B Steinunn Sæmundsdóttir, 8767,5 stig 3. Anna Snædís Sigmarsdóttir, 6853,8 stig 4. Sólveig Björg Jakobsdóttir, 6840,0 stig 5. María Málfríður Guðnadóttir, 6812,5 stig

1. Jón Haukur Guðlaugsson, 9925,0 stig 2. Óskar Sæmundsson, 5943,0 stig 3. Rúnar Svanholt, 5884,1 stig 4. Sæmundur Pálsson, 5852,5 stig 5. Sigurður H Hafsteinsson, 5807,5 stig

Stigahæstu í karlaflokki með forgjöf: 1. Ragnar Gíslason, 3994,3 stig 2. Rúnar Svanholt, 3854,8 stig 3. Tómas Jónsson, 3774,4 stig 4. Þórhallur Sigurðsson, 3751,2 stig 5. Jón Haukur Guðlaugsson, 3390,3 stig

Landslið LEK fyrir árið 2015: Það er ljóst hvernig skipan karlandsliða LEK, landssamtök eldri kylfinga, verða skipuð á árinu 2015. Stigalisti á Öldungamótaröð LEK ræður ferðinni í þessu vali og eru landsliðin þannig skipuð:

Landslið 55 ára án forgjafar:

Jón Haukur Guðlaugsson, GR Sæmundur Pálsson, GR Óskar Sæmundsson, GR Rúnar Svanholt, GR Skarphéðinn Skarphéðinsson, GR Óskar Pálsson, GHR

Landslið 55 ára með forgjöf: Ragnar Gíslason, GO Þórhallur Sigurðsson, GK Tómas Jónsson, GKG Jóhann Peter Andersen, GK Haraldur Örn Pálsson, GK Hafþór Kristjánsson, GK

Landslið 70 ára og eldri:

Veðrið í aðalhlutverki á Íslandsmótinu í Korpunni Íslandsmót eldri kylfinga fór fram á Korpúlfsstaðavelli 17.-19. júlí þar sem veðrið lék aðalhlutverkið. Mikil úrkoma var á meðan mótið stóð yfir en þrátt fyrir erfiðar aðstæður var hægt að ljúka keppni.

55 ára karlar:

1. Sigurður H Hafsteinsson, GR (74-77) =151 högg (+7) 2. Jón Haukur Guðlaugsson, GR (75-80) =155 högg (+11) 3. Sæmundur Pálsson, GR (77-79) =156 högg (+12) 4. Óskar Sæmundsson, GR (76-80) =156 högg (+12) 5. Björgvin Þorsteinsson, GA (74-86) =160 högg (+16)

68

50 ára konur:

1. Ásgerður Sverrisdóttir, GR (80-79) = 159 högg (+15) 2. Ágústa Dúa Jónsdóttir, NK (80-86) = 166 högg (+22) 3. Anna Snædís Sigmarsdóttir, GK (85-82) = 167 högg (+23)

65 ára konur:

1. Inga Magnúsdóttir, GK (89-105) = 194 högg (+50) 2. Þuríður E. Pétursdóttir, GKj. (92-106) = 198 högg (+54)

Í 55 ára liðunum er ekki um mikla breytingu að ræða frá 2014. Í fyrra liðinu verður sú breyting að Rúnar Svanholt leysir Snorra Hjaltason af hólmi og í síðara liðinu kemur Haraldur Örn Pálsson í stað Sigurðar Aðalsteinssonar. Í 70 ára liðinu eru meiri breytingar - aðeins Jens Karlsson og Helgi Hólm voru í liðinu á þessu ári.

3. Sigrún Margrét Ragnarsdóttir, GK (103-98) = 201 högg (+57)

70 ára karlar:

1. Haukur Örn Björnsson, GR (79-80) =159 högg (+15) 2. Guðlaugur Gíslason, GK (82-87) =169 högg (+25) 3. Sigurjón Rafn Gíslason, GK (85-85) =170 högg (+26) 4. Friðbjörn Hólm, GK (86-84) =170 högg (+26)

Íslandsmeistarar með forgjöf: 55 ára karlar: Sigurður Hafsteinsson 50 ára konur: Ágústa Dúa Jónsdóttir 65 ára konur: Inga Magnúsdóttir 70 ára karlar: Hans Jakob Kristinsson

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is

Ráðandi - auglýsingastofa ehf

Jóhann Peter Andersen, GK Sigurjón R Gíslason, GK Helgi Hólm, GSG Hans Jakob Kristinsson, GR Jens Karlsson, GK Guðlaugur R Jóhannsson, GO


GAS

Ráðandi - auglýsingastofa ehf

ALLS STAÐAR

Þú getur slakað á og upplifað öryggi við grillið með AGA gas.

Öryggi sem felst í notkun á gæðavörum AGA og góðri þjónustu þegar þú heimsækir umboðsmenn eða söluaðila til að fá áfyllingu á gashylkið. Sem stærsti söluaðili própangass á norðurlöndunum býður AGA upp á margar stærðir og gerðir gashylkja. Sérfræðingar AGA geta veitt þér góð ráð um hvaða hylki hentar best miðað við aðstæður og hvernig best er að meðhöndla própangas. Farðu á www.gas.is og finndu nálægan sölustað eða sæktu öryggisleiðbeiningar og fáðu upplýsingar um AGA gas.


„Konum hefur einnig

fjölgað gríðarlega í golfhreyfingunni á Íslandi, í dag er hlutfallið um þriðjungur“

GOLFKLÚBBARNIR ERU VIÐSKIPTAVINIR GSÍ Stærsta verkefnið er að halda í þá sem eru nú þegar til staðar segir Haukur Örn Birgisson forseti GSÍ.

F

yrir tæplega ári síðan var Haukur Örn Birgisson kjörinn forseti Golfsambands Íslands. Fyrsta árið í embættinu hefur verið viðburðaríkt og segir forsetinn að annríkið hafi verið meira en hann átti von á. „Ég kvarta ekki, ég ætla að reyna að sinna þessu eftir bestu getu og konan mín hefur nánast alið upp börnin okkar á þessum tíma ein. Ég sé fram á aðeins rólegri tíma í þessu því ég mun hætta í stjórn evrópska golfsambandsins á næstunni og þá gefst meiri tími fyrir fjölskylduna,“ segir Haukur í samtali við Golf á Íslandi. Á síðasta golfþingi var framtíðarstefna GSÍ fram til ársins 2020 samþykkt og segir forsetinn að mikil vinna liggi að baki stefnumótuninni þar sem lögð er áhersla á að öll golfhreyfingin sé að vinna saman í átt að sömu markmiðum. Stefnu Golfsambandsins Íslands má finna í heild sinni á heimasíðu sambandsins, golf.is „Á golfþingi 2011 kom tillaga frá fjórum golfklúbbum á Íslandi um að fara í stefnu70

mótun fyrir Golfsambandið. Þar átti að taka á mörgum álitamálum, s.s afreksmálum, mótahaldi ásamt fleiri þáttum. Samþykkt var á þessu golfþingi að fara í nýja stefnumótun enda voru liðin nokkuð mörg ár frá því að síðast var ráðist í slíka vinnu. Á golfþinginu var skipuð nefnd sem fór yfir þessi mál og fyrirmælin frá því til nefndarinnar var að gera könnun á meðal kylfinga á Íslandi hvað sé gert fyrir þá og einnig hvað golfklúbbar landsins vilja að gert sé af hálfu GSÍ fyrir þá. Niðurstaðan var að boða til „þjóðfundar“ sem haldinn var 24. mars 2012. Allir sem höfðu áhuga var boðið að taka þátt í þessari umræðu og um 100 manns mættu á fundinn sem var stjórnað af Gylfa Dalmann, lektor við Háskóla Íslands. Safnað var gríðarlegu magni af tillögum sem nefndin fór síðan yfir og vann úr þeim drög að stefnumótun sem lögð voru fyrir formannafund haustið 2012. Á þeim fundi var ákveðið að halda vinnunni áfram og þessi stefnumótun var því í vinnslu í um tvö ár og var loks lögð fram á Golþingi

2013,“ segir Haukur en hann leggur mikla áherslu á að GSÍ sé í þjónustuhlutverki fyrir golfklúbba landsins og eyða þurfi „við gegn þeim“ viðhorfinu sem hefur stundum verið ríkjandi í samskiptum golfklúbba og GSÍ.

„Við gegn þeim“ viðhorfið á undanhaldi

„Snemma í þessu ferli var tekin sú ákvörðun að stefnumótunarvinnan væri fyrir golfhreyfinguna í heild sinni en ekki bara Golfsambandið. Golfklúbburinn er snertiflötur fyrir hinn almenna kylfing og Golfsambandið á síðan að þjónusta golfklúbbana eins vel og mögulegt er. Það er eitt af markmiðum okkar sem erum í stjórn GSÍ þessa stundina að golfhreyfingin líti á sig sem eina heild. Það viðhorf verður vonandi ríkjandi þegar lengra líður á. „Við gegn þeim“ viðhorfið sem hefur oft verið ríkjandi á ekki að vera til og stefnumótunarvinnan gekk út á að

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


mjög mikilvægt að starfsmenn og stjórn GSÍ hitti forsvarsmenn og stjórnir golfklúbba. Þannig getum við myndað betra tengslanet og hægt er að ræða málin opinskátt – bæði það sem er gert vel og einnig það sem á gera betur. Nánast allt starfið sem unnið er í golfhreyfingunni er sjálfboðaliðastarf og hefur félagslegu hlutverki að gegna. Það er því mikilvægt að þeir sem eru að verja nánast öllum sínum frítíma í golfhreyfinguna líði vel og finnist þetta vera skemmtilegt. Þess vegna þarf að eyða togstreitu ef hún er til staðar og það verður bara gert með því að auka samskiptin. Nú má ekki skilja mig þannig að samskiptin innan golfhreyfingar séu slæm, alls ekki. Hins vegar má gera betur því þannig allir aðilar viti hvað hinir eru að gera. Þannig náum við enn betri árangri í störfum okkar.“

Dropinn holar steininn

Í stefnumótunarskýrslunni sem samþykkt var á Golfþinginu 2013 er að finna fimm helstu markmið golfhreyfingarinnar og leiðir að þeim markmiðum. Haukur segir að líta verði langt fram í tímann til þess að hægt verði að ljúka við þá vinnu sem þarf til að klára verkefnalistann.

samtvinna stefnu golfhreyfingarinnar í heild sinni.“

Fundaherferð um allt land

Bætt samskipti golfklúbba og GSÍ er eitt af stóru verkefnum næstu missera segir Haukur. „Það sem ég hef lagt áherslu á er að Golfsambandið er þjónustuaðili fyrir golfklúbbana og við eigum að líta svo á að golfklúbbarnir séu viðskiptavinir GSÍ. Við eigum að vera í því hlutverki. Liður í þessu er að auka samskipti GSÍ og golfklúbba og það er eitt af markmiðunum í stefnu golfhreyfingarinnar. Við eigum ekki að vinna í sínu hvoru horninu og hafa ólíka hagsmuni. Við eigum að stefna sameiginlega á að fjölga kylfingum, halda þeim í okkar röðum og þjónusta þá eins vel og við getum. Það gerum við með auknu samstarfi á milli golfklúbba og GSÍ. Þegar ég var sumarstarfsmaður hjá GSÍ á háskólaárunum þá upplifði ég oft „við gegn þeim“ viðhorfið sem er oft ríkjandi hugsun. Þessu þurfum við að breyta og golfhreyfingin í heild sinni þarf að vera samstíga. „Einn liður i því er að við í stjórn GSÍ höfum farið í fundaherferð um landið. Þar er rætt við forsvarsmenn klúbba sem við köllum samráðsfundi. Við höfum fundað með klúbbum á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Suðurnesjum, Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi og gerðum heiðarlega tilraun til þess að fara á Austurlandið en urðum frá að hverfa vegna veðurs. Markmiðið er að klára þessa hringferð á næstu mánuðum og endurtaka leikinn fljótt aftur. Mér finnst GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is

„Þessu verður ekki hrint í framkvæmd á einu til tveimur árum. Þetta er langtímaáætlun sem stendur fram til ársins 2020. Á hverju ári verður farið yfir stöðuna og það er skylda stjórnar GSÍ að gera grein fyrir því hvað hefur áunnist, hvað búið er að gera og framkvæma og jafnframt leggja til hver verði helstu áherslumálin á komandi ári. Það er síðan ákvörðun formannafundar og Golfþings hver forgangsröðunin verður.“

þá þurfum við að vera í stakk búin að takast á við það verkefni. Í raun og veru er stærsta verkefnið að halda í þá sem eru nú þegar til staðar.“ Það er áhugvert að rýna í finnska rannsókn sem sýnir fram á það að kylfingar í efsta forgjafarflokki eru langlíklegastir til þess að gefast upp á golfíþróttinni. Haukur segir að huga þurfi betur að þessum hópi kylfinga og þar sé hlutverk PGA golfkennara mikilvægt.

Mesta brottfallið í efsta forgjafarflokknum

„Samkvæmt finnskri könnun sem gerð var er aðalástæðan fyrir því að fólk hættir í golfi sú að það nær ekki tökum á golfíþróttinni á fyrstu árunum. Brottfall kylfinga er nánast eingöngu í efsta forgjafarflokknum, 26 og hærra. Átta af hverjum tíu sem hætta í golfi eru í þessum forgjafarflokki. Þeir sem komast niður fyrir efsta forgjafarflokkinn eru nánast komnir í golfið fyrir lífstíð. Þrátt fyrir að slík rannsókn hafi ekki verið gerð hér á landi má fastlega gera ráð fyrir svipaðri niðurstöðu. Við þurfum að beina spjótum okkar að þessum hópi kylfinga. Það verður bara gert með aukinni kennslu í samvinnu við PGA kennarana hér á landi. Það eru mikið af PGA menntuðum kennurum í dag og gríðarleg fjölgun frá því sem var hér fyrir fimm eða tíu árum síðan. PGA samtökin hafa gert ótrúlega góða hluti með aukinni menntun kennara. Útbreiðslustarfið og kynning á íþróttinni er mikið til á herðum þeirra sem eru að kenna golfið. Þeir sem byrja í golfi á fullorðinsárum eru oft óþreyjufullir eftir árangri og þessi hópur er líklegastur til þess að gefast upp og hætta eftir 1-2 ár.“

„Brottfall kylfinga er nánast eingöngu í efsta forgjafarflokknum, 26 og hærra“ Konum hefur fjölgað gríðarlega

Forsetinn segir að golfhreyfingin þurfi að vera undir það búin að það verði jafnvel fækkun í röðum GSÍ. „Í ljósi þess ótrúlega árangurs sem náðst hefur hér á landi í fjölgun kylfinga á undanförnum 15 árum, þvert á það sem hefur gerst í Evrópu og Bandaríkjunum þar sem félagsbundnum kylfingum fækkar og fleiri velja að greiða þess í stað vallargjöld, þá þarf golfhreyfingin að vera undir það búin að takast á við fækkun kylfinga ef að því kemur. Félagafjöldinn hefur staðið í stað undanfarin tvö ár sem er í raun góðar fréttir, sérstaklega ef tekið er mið af slæmu veðri undanfarin tvö sumur. Konum hefur einnig fjölgað gríðarlega í golfhreyfingunni á Íslandi, í dag er hlutfallið um þriðjungur en það eru ekki nema tíu ár síðan konur voru 10% kylfinga. Ef sú þróun sem hefur átt sér stað í Evrópu og Bandaríkjunum kemur upp hér á landi

Golfið brúar kynslóðabilið

Aukinn sveigjanleiki í félagsaðild hjá golfklúbbum er eitt af stóru verkefnum golfhreyfingarinnar segir Haukur og nýta þurfi þá einstöku möguleika sem golfíþróttin bjóði uppá. „Við þurfum líka að huga að fjölbreyttari 71


félagsaðild að golfklúbbum landsins. Bjóða upp á fleiri valmöguleika fyrir kylfinga – en þróunin hefur verið sú í mörgum löndum að kylfingar velja að greiða vallargjald í stað þess að gerast meðlimir í golfklúbbi. Golf er mjög eftirsóknaverð íþrótt á Íslandi. Þetta er fjölskyldusport þar sem afinn eða amman getur leikið með barnabarninu á sama velli og með sömu reglur. Slíkt gerir golfið að einstakri íþrótt. Golfið hefur góð áhrif á börn og einnig á eldri borgara. Rannsóknir sýna að golf lengir líf fólks, bætir heilsu og eykur vellíðan. Það er eitthvað sem ríki og sveitafélög ættu að líta til þegar kemur að stuðningi við uppbyggingu nýrra golfvalla.“

Sóknarfæri í hópi þeirra sem hafa hætt Haukur bendir á að gríðarlega margir hafi hætt í golfklúbbum á undanförnum árum og það séu sóknarfæri að ná þeim til baka í hreyfinguna.

„ Á síðustu árum hafa um 10.000 manns hætt í golfklúbbum landsins þótt aðrir og fleiri hafi komið í staðinn. Það er því gríðarlegur fjöldi fólks þarna úti í samfélaginu sem á golfsett en er hætt í golfklúbbi. Þetta fólk er enn að spila golf því rannsóknir hafa sýnt að hátt í 40.000 Íslendingar spila golf oft á ári.

Það eru bara 17.000 þeirra í golfklúbbi. Við þurfum að skoða hvernig við náum til þeirra 10.000 sem voru í félagar í golfklúbbi en eru hættir. Golfklúbbarnir og GSÍ þurfa að finna leiðir til þess að það verði áhugaverðara fyrir þetta fólk að koma í golfklúbbana á ný.

Golfið þarf að komast á ný inn í íþróttatímana

Golfhreyfingin þarf að mati Hauks að ná betri snertilfleti við grunn- og framhaldsskóla landsins. Það verði gert á haustmánuðum og í vetur. „Fyrir um tíu árum fór Golfsambandið í átak sem nefndist skólagolf. Hver og einn grunnskóli utan höfuðborgarsvæðisins keypti „skólagolfsett“ og kennari á vegum GSÍ fór síðan um landið og kenndi íþróttakennurum hvernig þeir ættu að leiðbeina skólabörnum með þessum áhöldum. Þetta viljum við endurvekja með einhverjum hætti og vonandi tekst okkur að fara af stað með þetta eftir áramót. Í þessu samhengi er verið að leggja lokahönd á handbók sem Karl Ómar Karlsson, PGA kennari, hefur haft umsjón með. Þessi handbók er til þess ætluð að nýtast golfkennurum, íþróttakennurum og 72

Sara Margrét Hinriksdóttir, ein af okkar ungu golfkonum slær úr glompu

„Ég fullyrði að við höfum aldrei átt jafn marga góða kylfinga og núna“ öðrum í golfkennslu fyrir börn og unglinga. Hún gæti þannig einnig nýst í grunn- og framhaldsskólum. Þessi handbók kemur út í haust. SNAG er einnig góður vettvangur til þess að koma golfíþróttinni inn í grunn- og framhaldsskóla. SNAG gæti verið frábær leið til þess að koma okkur á „kortið“ á ný grunnskólunum enda er mjög einfalt að setja upp SNAG þrautir inni í íþróttahúsunum og SNAG er kostur sem við þurfum að skoða mjög vel.“ Haukur bendir á að það sé mikilvægt að ná betur til yngri kynslóðarinnar og þá sérstaklega stelpna, sem virðast nálgast golfið sem „vinkonuhópíþrótt“. „Þrátt fyrir að konum hafi fjölgað gríðarlega á undanförnum árum í golfhreyfingunni er enn verk að vinna hvað varðar stúlkurnar. Það virðist vera þröskuldur hjá stelpum að byrja í golfi ef þær hafa ekki stóran vinkonuhóp í kringum sig. Strákarnir virðast eiga auðveldara með að byrja í golfi án þess að vera með vinina með sér til að byrja með. „Stelpugolfdagurinn“ sem fór fram á vegum PGA á Íslandi s.l. vor heppnaðist frábærlega Birgir Leifur hefur dregið vagninn undanfarin ár.

þar sem um 400 konur mættu á æfingasvæði GKG og prófaði sig áfram í golfinu. Við þurfum að gera betur og ná fleiri stelpum í golfíþróttina. Það er mikilvægt fyrir okkur að halda sem flestum sem lengst í golfíþróttinni. Það er hins vegar staðreynd að það er allt að 80% brottfall í íþróttum hjá unglingum. Við stöndum hins vegar betur að vígi hvað þetta varðar en margar aðrar íþróttagreinar því reynslan hefur sýnt að meirihluti þeirra sem hætta sem unglingar í golfi kemur inn í íþróttina síðar. Flestir þeirra skrá sig í gamla golfklúbbinn en við þurfum samt sem áður að gera betur fyrir unglingana og minnka brottfallið.“

Höfum aldrei átt jafn marga góða kylfinga

Þegar Haukur er inntur eftir stöðunni í afreksmálum GSÍ bendir hann á að góður árangur hafi náðst en það sé mikilvægt að ná kylfingum inn á stóru atvinnumótaraðirnar á næstu árum. „Ég fullyrði að við höfum aldrei átt jafn marga góða kylfinga og núna. Það hafa aldrei verið fleiri við nám í bandarískum háskólum og árangur okkar kylfinga á alþjóðlegum mótum hefur einnig verið mjög góður. Þar stendur árangur Gísla Sveinbergssonar upp úr. Hann er þriðji íslenski kylfingurinn sem sigrar á Duke of York unglingamótinu á síðustu fjórum árum og það vekur að sjálfsögðu mikla athygli. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að fá góðar fyrirmyndir – þar vantar okkur herslumuninn. Við þurfum að fá nokkra kylfinga inn á Evrópu eða PGA mótaröðina. Það myndi vekja mikinn áhuga á hjá ungu kynslóðinni og fjölga í yngri hópnum. Birgir Leifur Hafþórsson hefur dregið vagninn á þessu sviði undanfarin ár en við þurfum fleiri kylfinga inn á stóru atvinnumótaraðirnar,“ segir Haukur Örn Birgisson forseti GSÍ. GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


HOluR uM allT laND flugfelag.is

BÆTTu fORgJÖfiNa MeÐ OKKuR

Lokastaða Eftir að höggið ríður af hljóðna fuglarnir augnablik og eftirvæntingin hangir í loftinu. akureyri Þeir sem hafa leikið golf á Jaðarsvelli vita að þar er betra að slá styttra en of langt. Júnínóttin á holu þrjú er rétti staðurinn til að æfa sig í að hafa augun á kúlunni. Þú gætir blindast um stund af miðnætursólinni ef þú lítur upp.

L-staða Vinstri handleggur og kylfa eiga að mynda bókstafinn L áður en höggið ríður af. Taktu flugið, taktu þér stöðu og njóttu þess að leika golf um allt land.

egiLsstaðir Skömmu eftir að þú lendir á Egilsstöðum gæti kúlan þín lent á mishæðóttum brautum Ekkjufellsvallar. Ef þú þarft að slá kúlu sem er aðeins upp í móti þá er þjóðráð að auka bilið milli fótanna þar til æskilegri stöðu er náð.

pútta

L-staða

islenska sia.is FlU 63831 04/13

Hægri handleggur og kylfan mynda aftur bókstafinn L undir lok sveiflunnar. Brjóstkassinn snýr að skotmarkinu.

Tíaðu upp og s l á Ð u T il g pa NTaÐ u í Da uN Rg O M á eK Ki is á fl ug fe la g.

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is

upphafsstaða Handleggir beinir og bakið. Axlabil á milli fóta. Rassinn út og hnén eilítið bogin líkt og maður sitji á barstól.

Í huga púttarans er jörðin flöt en kúlan hnöttótt. Málið er að láta kúluna snúast frekar en að slá hana. Ýttu henni í átt að holunni því hvernig sem jarðkúlan snýst þá er það tæknin sem gildir.

faRsíMavefuR: m.flugfelag.is

pútta Hafðu minna bil á milli fótanna þegar þú púttar. Augun á boltanum. Nánar tiltekið, hafðu vinstra augað beint yfir kúlunni.

viNguMsT: facebook.com/flugfelag.islands

FlugFélag Íslands mælir með þvÍ að leika golf í sumarblíðunni. Með því að nýta þér þjónustu okkar geturðu fjölgað góðu dögunum. Við mælum með því að taka hring á Jaðarsvelli á Akureyri, Tungudalsvelli á Ísafirði, Ekkjufellsvelli á Egilsstöðum eða Grafarholtsvelli í Reykjavík. Bókaðu núna á flugfelag.is eða hafðu samband í síma 570 3030 47


Hinn 98 ára gamli Stefán Þorleifsson frá Norðfirði lék á 98 höggum og fór í eftirminnilega golfferð til Tenerife.

Markmiðið er að leika undir aldri Stefán Þorleifsson, fyrrum íþróttakennari, er einn af stofnfélögum Golfklúbbs Norðfjarðar og hann nýtir hvert tækifæri til þess að leika golf. Það vakti athygli á dögunum að Stefán lék á aldri sínum, 98 höggum, á Stefánsmóti SÚN, sem haldið er árlega honum til heiðurs á Grænanesvelli. Stefán skellti sér í haust til Tenerife með fjölskyldu sinni þar sem hann lék tvo golfhringi og er það án efa einsdæmi hjá íslenskum kylfingi á þessum aldri. Golf á Íslandi ræddi við Stefán en hann er hvergi nærri hættur að reyna að bæta leik sinn. Stefán hefur á undanförnum árum sett sér það markmið að leika 18 holur undir aldri: „Skorið var svipað á báðum hringjunum þegar ég lék á 98 höggum. Grænanesvöllur er 9 holur og þetta voru því tveir hringir. Hver einasti golfari er sífellt að reyna að bæta leik sinn og ég er engin undantekning,“ sagði Stefán en það sem heillar hann mest við golfíþróttina er að keppa við sjálfan sig.

Stefán með nafna sínum, Margréti og Gunnari á Tenerife. Efst má sjá kappann í „aksjón“ í sólinni og til hliðar á Grænanesvelli.

74

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


Icelandair hótel Hamar

ENNEMM / SÍA / NM34792

Alvöru íslenskt golfhótel

Hamarsvöllur er skemmtilegur 18 holu golfvöllur staðsettur í gullfallegu umhverfi á söguslóðum í Borgarnesi. Icelandair hótel Hamar er glæsilegt hótel þar sem gestir njóta einstakrar kyrrðar og snæða ljúfmeti sem framreitt er úr hráefni úr héraði. Af hótelinu er gengið beint út á golfvöllinn. Staðsetningin, aðstaðan og frábær tilboð á golfi og gistingu gera Icelandair hótel Hamar að draumaáfangastað golfarans, hvort sem um ræðir golfhelgi með ástinni eða heimsóknir stærri hópa. Verið velkomin á Icelandair hótel Hamar. Icelandair hótel Hamar, Borganesi Nánari upplýsingar og bókanir: icelandairhotels.is eða í síma 433 6600 REYKJAVÍK NATURA

REYKJAVÍK MARINA

Í KEFLAVÍK

FLÚÐIR

KLAUSTUR

HÉRAÐ

AKUREYRI

HAMAR


„Fyrir þá sem ná háum aldri og hafa góða heilsu þá er golfið sérlega góð og skemmtileg íþrótt.“

Stefán í golfi á Grænanesvelli .

„Það sem heillar mig mest við þessa íþrótt er það að maður er alltaf keppa, ekki endilega við aðra kylfinga heldur við sjálfan sig, að reyna sífellt að bæta leik sinn og lækka skorið. Takmark mitt síðustu árin hefur verið að reyna að spila undir aldri mínum, þó svo það hafi ekki alltaf tekist.“

Dásamleg fjölskylduferð

Eins og áður segir fór Stefán í ferðalag í haust þar sem hann lék golf í góðum félagsskap. Hann lýsir upplifuninni og ferðlaginu með eftirfarandi hætti. „Það er alltaf gaman að koma á nýja velli og glíma við þá. Völlurinn sem við spiluðum á Tenerife var mjög góður og gaman að leika golf á honum enda var félagsskapurinn einstaklega góður og skemmtilegur, en þar spiluðum við saman Gunnar Sólnes (sem á 2 Íslandsmeistaratitla) og Margrét Kristinsdóttir en þau eru tengdaforeldrar Þorleifs sonar míns. Nafni minn, Stefán Grétar

Þorleifsson, var einnig með í för. Eftirminnlegast úr þessari ferð, fyrir utan það að vera þarna 18 saman úr fjölskyldunni, var að eiga þess kost að leika golf á erlendri grundu. En það mikilvægasta var að þarna vorum við saman 18 manneskjur úr sömu fjölskyldunni og nutum samverunnar á þessum dásamlega stað.“

Grænanesvöllur er stolt okkar

Golfíþróttin hefur verið í sókn á Austurlandi á undanförnum árum og Stefán er ánægður með þróun mála. Hann byrjaði reyndar á því að leiðrétta blaðamann með vinsamlegri ábendinu að það sé bara eitt „s“ í Neskaupstaður og að hann búí í Neskaupstað en ekki á Neskaupstað. „Ég er sáttur við stöðuna eins og hún er í dag. Stolt okkar er völlurinn, bæði staðsetningin á honum og skipulag hans og ekki síst það hve vel hann hefur verið hirtur á undanförnum árum. Öll aðstaða á vellinum, bæði æfingaaðstaðan og

Nafnarnir saman, Stefán yngri og eldri.

76

golfskálinn, eru til fyrirmyndar miðað við stærð golfklúbbsins.“

Rotaðist í golfi en hélt áfram að spila

Að lokum var Stefán inntur eftir góðum ráðum fyrir kylfinga á hans aldri. „Fyrir þá sem ná háum aldri og hafa góða heilsu þá er golfið sérlega góð og skemmtileg íþrótt.“ Hann lét eina góða sögu fylgja með í lokin; en Stefán rotaðist úti á golfvellinum eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið. „Ég veit ekki hvort það þykir skemmtilegt að hafa verið rotaður í golfi, en það kom fyrir mig þegar félagi minn hafði tíað kúluna sína upp, ég stóð til hliðar við hann, ekki alveg samkvæmt reglunni, hann hitti kúluna ekki vel, hún fór svo gott sem í þvera stefnu og beint í hausinn á mér og ég steinlá! Þegar ég svo rankaði við mér úr rotinu hélt ég bara áfram að spila og spila enn,“ sagði Stefán Þorleifsson.

Stefán og Gunnar Sólnes á 19. holunni á Tenerife.

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


Saman finnum við lausnir svo þú skarir fram úr Í rekstri skiptir miklu máli að hafa forgangsröðunina í lagi og hugrekki til að fara nýjar leiðir er byggja á þekkingu á aðstæðum hverju sinni. Kynntu þér þjónustuframboð KPMG á vefsíðu félagsins eða hafðu samband í síma 545 6000 og við verðum þér innan handar. kpmg.is


María með SNAG tæki í Lindaskóla.

María með Gísla Sveinbergs og hressum krökkum.

Margir að taka sín fyrstu skref með SNAG Fyrsta SNAG leiðbeinendanámskeiðið var haldið mars 2013 og nú hafa um 80 manns fengið þjálfun í að leiðbeina með SNAG kennslufræðinni á fyrsta stigi. Þessir 80 leiðbeinendur eru úr 27 sveitarfélögum á Íslandi og eru á aldrinum 14 ára til 80 ára.

SNAG heillar á Íslandi. 80 manns úr 27 sveitarfélögum hafa tekið þjálfunarnámskeið:

EINFALDLEIKINN HEILLAÐI MARÍU „Það sem heillaði mig var þessi einfaldleiki, stórar golfkylfur, golfboltar og sniðug hjálpartæki. Þannig að allir geta lært golf á skemmtilegan hátt, byrjendur, börn, unglingar, eldri borgarar og þeir sem eru aðeins farnir að fikta við golfið,“ segir María Guðnadóttir, íþróttakennari og lágforgjafarkylfingur en hún hefur verið dugleg að kynna SNAG í Lindaskóla þar sem hún starfar.

Hvernig heyrðir þú fyrst af SNAG?

Ég sá kynningu hjá Magnúsi Birgissyni golfkennara og varð strax spennt og skellti mér á námskeið hjá honum og fékk SNAG leiðbeinendaréttindi. Það var mjög skemmtilegt og gagnlegt.

Hvernig hefur starfsemin gengið hingað til?

Ég er íþróttakennari við Lindaskóla í Kópavogi og fannst það sniðug hugmynd að skólinn myndi eignast SNAG. Ég fékk að kaupa útbúnaðinn og hef verið að kynna SNAGið fyrir nemendum skólans. Krakkarnir hafa verið mjög áhugasöm og hef ég fléttað SNAGið inní stöðvaþjálfun, þar sem 4-6 krakkar eru á hverri stöð. Dæmi um stöðvaþjálfun, er t.d. hástökk, SNAG, 78

sippþrek, skólahreystiæfingar, skjóta niður medisinbolta (handboltaæfing). Síðan er SNAGið ein stöð á íþróttadögum sem við höldum á vorin fyrir 1.-7. Bekk. Það eru allir glaðir með þetta fyrirkomulag. Síðan þegar nemendur hafa kynnst íþróttinni, er von mín að við getum boðið SNAG sem val fyrir 9.-10. bekk, stelpuhópa, strákahópa eða blandaða hópa.

Þrír af hverjum fjórum eða um 75% PGA golfkennara sem nú starfa á Íslandi hafa lokið 1. stigs SNAG leiðbeinendanámskeiði. Fyrirhugað er að bjóða þeim golfkennurum sem hafa lokið 1. stiginu upp á framhaldsnámskeið á Level 2 á næsta ári. Þar læra þeir að nýta kennslu- og hugmyndafræði SNAGsins ennfrekar í þjálfun kylfinga og afreksfólks í golfi. SNAG er nú komið í notkun hjá golfklúbbum og sveitarfélögum hringinn í kringum landið. Kennt er eftir SNAG kennslufræðinni og með SNAG búnaði í víða um landið og kennsla hafin í nokkrum grunnskólum í íþróttatímum og í valáföngum og í félagsstarfi hjá fólki á öllum aldri. SNAG er einnig að færast inn í framhaldsmenntun bæði í íþróttafræðiog kennslu. Það eru því margir að taka sín fyrstu skref í golfi með SNAG á aldrinum 2ja ára og alveg uppúr.

Hvernig hafa viðtökurnar verið?

Mjög góðar og krökkunum finnst þetta mjög gaman, þau eru sko í GOLFI.

Hefurðu einhver góð ráð fyrir aðra sem hafa áhuga taka þátt í útbreiðslu golfsins með SNAG?

Það er mjög gott að fara á námskeið, en það verður að vera einhver golfkunnátta hjá þeim sem ætla að leiðbeina í SNAGinu.

Hvenær byrjaðir þú í golfi og hver er forgjöfin?

Ég byrjaði að fikta í golfi 30 ára, en fékk svo golfbakteríuna upp úr 35 ára aldri. Þá var ég búin að eiga alla strákana mína fjóra. Forgjöfin í dag er 4,7 og er enn á niðurleið. Ég er búin að vera dugleg að æfa stutta spilið, sagði María.

Frá námskeiði með verðandi Snag leiðbeinendum í Hraunkoti í haust. GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


ÍSLENSKA SIA.IS ICE 69463 06/14

GOLFSETTIÐ FERÐAST FRÍTT!

Þú nýtur þessara hlunninda: ■ Þú greiðir ekkert gjald fyrir golfsettið þegar þú ferðast með Icelandair. ■ Þú færð ýmis tilboð á golfvöllum hér heima og erlendis og hjá samstarfsaðilum Icelandair Golfers.

Innifalið í 6.900 kr. árgjaldi er m.a.: ■ 2.500 Vildarpunktar ■ 2.000 kr. gjafabréf í Saga Shop Collection ■ 100 æfingaboltar í Básum ■ Merkispjald á golfpokann

Icelandair Golfers er klúbbur sem auðveldar þér að spila golf út um allan heim.

+ Skráðu þig í Icelandair Golfers á www.icelandairgolfers.is

Meðlimir með Premium Icelandair American Express® frá Kreditkorti greiða ekkert árgjald í Icelandair Golfers


Þessi grein er unnin upp úr lokaverkefni Nökkva Gunnarssonar við PGA golfkennaraskólann Nökkvi Gunnarsson PGA golfkennari og Ingi Þór Einarsson íþróttafræðingur og kennari í PGA golfkennaraskólanum

ÍSLENSKT GOLF Í FRAMFÖR

Það er ávallt mikill þrýstingur á íslenskum íþróttamönnum. Ætlast er til að þeir standist samanburð við erlenda íþróttamenn þrátt fyrir að þeir sitji sjaldnast við sama borð þegar kemur að umgjörð og tækifærum til að iðka íþróttina. Íslenskir kylfingar hafa aldrei náð að festa sig í sessi meðal þeirra bestu í heiminum og hefur verið haft á orði að litlar sem engar framfarir séu í gangi hjá kylfingum hér á landi og það markmið að eiga kylfinga í fremstu röð sé jafnt fjarlægt og áður. Það getur verið nokkuð erfitt að átta sig í raun á því hvort íslenskir kylfingar séu að verða betra eða ekki. Það er því fróðlegt að rýna í hver þróun á getu okkar bestu kylfinga hefur verið á síðustu árum með tilliti til batnandi aðstöðu, mikilli fjölgun iðkenda, og síðast en ekki síst mikilli fjölgun menntaðra PGA golfkennara. Ein góð leið til þess að meta árangur er að skoða skor í mótum. Til hliðsjónar höfum við Íslandsmótin í höggleik frá árinu 2001 til og með ársins 2014. Þetta er að sjálfsögðu bara einn mælikvarði af mörgum sem hægt er að nota og hægt er að benda á að veður geta verið misgóð og vellirnir miserfiðir, en þegar nægilega langt tímabil er skoðað ættu vísbendingar að koma í ljós um hvert stefnir. Árangur allra kylfinga var skráður sem fjöldi högga undir eða yfir pari í lok hvers móts. Til að meta þróun bestu kylfinga landsins frá ári til árs, var fundið út meðaltal úr skori þriggja efstu á hverju móti fyrir sig og sú þróun skoðuð á milli ára. Til að meta þróun afrekskylfinga almennt, og leggja þannig mat á breiddina var reiknað á sama hátt og áður út meðalskor allra sem lentu í sætum 4-35 hjá körlum og sætum 4-10 hjá konum. Þessi munur á fjölda karla og kvenna skýrist af því að sum fyrstu árin voru ekki fleiri en 10 konur að keppa í meistaraflokki. Til að meta hvernig þróunin væri hjá unglingunum var á sama hátt reiknað út meðalskor fyrir sæti 1-10 hjá bæði piltum og stúlkum. Einföld línuleg aðhvarfsgreining var svo notuð til að leggja mat á þróunina á milli ára. 80

1a

-4

12

-6

10

Skor miðað við par

8

y = -0,4571x + 917,9

6 4 2 0 -22000

2002

2004

2006

2008

2010

2012

2014

2016

-4 -6 -8

Ár

Mynd 1a: Meðalskor þriggja efstu karla á Íslandsmótunum í höggleik Á mynd 1a sést þróun meðalskors þriggja bestu karlkylfinganna á Íslandsmótunum. Árin 2002 og 2006 skera sig nokkuð úr en á árinu 2002 var leikið við mjög góðar aðstæður á frekar opnum velli en árið 2006 var leikið við mjög erfiðar aðstæður á þröngum velli. Svona sveiflur verða alltaf til staðar, þess vegna er ekki ráðlegt að taka of mikið mark á breytingum á milli einstakra ára, en svona sveiflur jafnast út yfir lengri tíma. Þróunin virðist vera skýr að öðru leyti, meðaltalið batnar um 0,46 högg á milli ára að meðaltali á tímabilinu sem til skoðunar var. Ef fylgnin á milli 2001 og 2010 hefði bara verið reiknuð hefðu ekki neinar framfarir komið í ljós og það er ekki fyrr en eftir 2010 að skorið tekur verulega að batna. Mynd 1b sýnir sama tímabil fyrir þrjár bestu konurnar og þar er svipaða sögu að segja, þróunin er á sama veg og hjá körlunum þó konurnar bæti sig heldur meira eða að meðaltali um 0,67 högg á ári og aftur eru framfarirnar mestar á síðustu árum.

1b Skor miðað við par

G

olf er önnur fjölmennasta íþróttagrein landsins og hefur verið í hvað mestum vexti undanfarin ár sé litið til íþrótta innan ÍSÍ. Fyrir almennan kylfing eru aðstæður á sumrin frábærar á Íslandi, það er lítið mál að komast í golfklúbb og þeir eru tiltölulega ódýrir miðað við mörg nágrannalönd okkar. Sjaldnast er erfitt að fá rástíma, allavega ef fólk er tilbúið að keyra í 20-40 mínútur. Aðstæður afrekskylfinga okkar eru samt ekki eins og best gerist erlendis og má þar nefna að golftímabilið á Íslandi er stutt, veðurfar getur verið rysjótt, vellirnir eru stuttir og frekar opnir svo eitthvað sé nefnt. Aðstaðan hefur þó batnað til muna síðustu ár, ekki síst með tilkomu æfingasvæða eins og Bása og Hraunkots snemma á þessari öld, sem gera kylfingum kleift að æfa utandyra nánast allan Nökkva Gunnarssonar Ingi Þór Einarsson ársins hring.

35 30

y = -0,6747x + 1373,2

25 20 15

10 5

0 2000

2002

2004

2006

2008

2010

2012

2014

2016

Ár

Mynd 1b: Meðalskor þriggja efstu kvenna á Íslandsmótunum í höggleik GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is



Á mynd 2a sést hvernig meðalskor kylfinga í sætum 4-35 hefur þróast á sama tímabili. Á svipaðan hátt og áður skera árin 2002 og 2006 sig nokkuð úr en meðalskor þessara kylfinga batnar líka, eða 0,53 högg ári. Á sama hátt og áður eru mestu framfarirnar á síðustu árunum.

Mynd 2a: Meðalskor kylfinga í sætum 4-35 á Íslandsmótum karla í höggleik. 2a

Mynd 3a. Meðalskor 10 efstu drengja á unglingameistaramótunum í höggleik

30 25

3a

y = -0,5341x + 1087,8

15 10 5 0 2000

25 20

20

Skor miðað við par

Skor miðað við par

Á myndum 3a og 3b sést að unglingarnir, 18 ára og yngri, hafa bætt sig enn meira en fullorðnu kylfingarnir á þessu sama tímabili, sérstaklega frá og með árinu 2009. Tíu bestu piltar landsins eru að bæta sig að meðaltali um 1,58 högg ári á þessu tímabili og stúlkurnar um 2,80 högg á sem eru mjög miklar framfarir.

y = -1,5785x + 3179,8

15 10 5

2002

2004

2006

2008

2010

2012

2014

2016

0 2000

Ár

2002

2004

2006

2008

2010

2012

2014

2016

Ár

Mynd 2b: Meðalskor kylfinga í sætum 4-10 á Íslandsmótum kvenna í höggleik 60 50

3b

y = -1,498x + 3039,4

30 20 10 0 2000

70 60

40 Skor miðað við par

Skor miðað við par

2b

Mynd 3a. Meðalskor 10 efstu stúlkna á unglingameistaramótunum í höggleik

y = -2,8011x + 5659,1

50 40

30 20 10

2002

2004

2006

2008

2010

2012

2014

2016

Ár

0 2000

2002

2004

2006

2008

2010

2012

2014

2016

Ár

Konurnar halda áfram að sýna meiri framfarir að meðaltali en karlarnir eða 1,50 högg á milli ára eins og sjá má á mynd 2b. Þetta sýnir að breiddin í kvennagolfinu hefur aukist hratt á undanförnum árum, sérstaklega á þeim allra síðustu. Það er ýmislegt sem hefur gerst á síðustu árum sem mögulega skapar þessa jákvæðu þróun. Kylfingarnir æfa meira með tilkomu bættrar vetraraðstöðu og síðast en ekki síst hefur vel menntuðum golfkennurum fjölgað mikið með tilkomu golfkennaraskóla PGA á Íslandi, sem útskrifaði sína fyrstu nemendur árið 2008. Einnig má nefna afrekssjóð GSÍ sem gefur bestu kylfingum okkar tækifæri til að taka þátt í mikilvægum mótum erlendis, svo eitthvað fleira sé nefnt. Bætt þjálfun ætti fyrst að skila sér til unglinganna sem ennþá eru mjög móttækilegir fyrir leiðbeiningu og tilsögn. Þess vegna var líka skoðað meðalskor 10 bestu unglinganna á unglingameistaramótunum í höggleik á þessum sömu árum.

Hér hefur verið settur fram einn mælikvarði á getu íslenskra kylfinga. Sé eitthvað að marka þróun síðustu 14 ára þá fer íslenskum kylfingum mikið fram. Það er áhugavert að sjá að þegar þeir bestu í fullorðinsflokknum hjá körlunum í dag voru að spila á unglingamótum á sínum yngri árum var meðalskorið á þeim mótum um eða yfir 20 yfir pari, en er í dag komið niður í rúmlega 1,2. Hjá stúlkunum er þróunin svo ör að þær stúlkur sem eru í efstu sætunum á fullorðinsmótunum í dag eru margar hverjar stúlkur sem voru að keppast við sigurinn á unglingamótunum fyrir aðeins örfáum árum, eða eru jafnvel ennþá að því. Það verður því áhugavert að fylgjast með þessum ungu kylfingum á næstu árum þegar þeir hafa þroskast og fengið meiri reynslu í golfi. Í gegnum árin höfum við stundum átt einn og einn frábæran unglingaspilara sem hefur gert það gott á mótum erlendis en við höfum aldrei átt hóp í neinni líkingu við þennan hóp ungra drengja og stúlkna sem nú eru að koma upp í gegnum unglingaflokkana, langflest þjálfuð af góðum, vel menntuðum og metnaðarfullum þjálfurum. Fjölmargir golfklúbbar hafa nú ráðið einn eða fleiri menntaða golfkennara til starfa til að sjá um afreksþjálfun sem er þetta mjög jákvæð þróun fyrir alla golfíþróttina. Það eru mun meiri líkur á að upp úr fjölmennum hópi góðra ungra golfspilara nái einhver alla leið á toppinn og fái tækifæri til að spila reglulega á PGA mótaröðinni. Það er alls ekki svo fjarlæg hugsun að einhver af okkar ungu golfspilurum í dag nái að feta þessa leið áður en langt um líður. Samkeppnin er vissulega gríðarlega hörð á alþjóðlega vísu og leiðin er löng frá því að vera efnilegur í að vera góður á heimsvísu. Það er því mikilvægt að allir haldi áfram að róa í sömu átt og halda áfram að fjölga í þeim hópi kylfinga sem geta mögulega tekið stökkið og gerst atvinnukylfingar í fremstu röð.



GARETH

JOHNSTON

er yfirkennari á Calcot Park í Berkshire og einn af aðalþjálfurum TG Elite hópsins.

Leikskipulag

HVERNIG ER BEST AÐ HITTA FLATIRNAR Á ERFIÐUM PAR 3 HOLUM 1. Sjáðu höggið fyrir þér Á erfiðum par 3 holum er mjög gott að byrja á því að sjá boltaflugið fyrir sér þannig að boltinn sveigi í burtu frá mestu hættunni í kringum flötina. Þótt það sé glompa hægra megin, þá er það mun betra en að lenda í mýrinni til vinstri. Fyrir mér er höggið þess vegna slæv frá vinstri til hægri sem fleytir boltanum burt frá vandræðum.

3. Notaðu teiginn til að móta höggið Ég stilli boltanum upp hægra megin á teignum og það þýðir að höggstefnan er meira í burtu frá glompunni hægra megin. Það þýðir að ég þyrfti að slæva boltann meira heldur en ef ég myndi slá vinstra megin á teignum. Frá þessum stað get ég miðað rétt vinstra megin við pinnann. Ef höggið er beint þá er það fínt og ef ég slæva boltann aðeins þá er hann ennþá á flötinni.

84

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


M

estu hætturnar í kringum flatir er venjulega að finna á stuttum par 3 holum. Útsýnið af teignum hrellir þess vegna marga kylfinga og spennir þá upp, jafnvel áður en þeir hafa tíað boltann sinn. En ef þú getur metið stöðuna á raunhæfan hátt, þá sérðu að það er til högg sem skilar boltanum á flöt. Lykillinn að þessu er að sjá fyrir sér einmitt þetta högg sem skilar boltanum þangað. Þegar sú mynd er ljós, getur þú ákveðið næstu skref – hvaða kylfu á að nota, hvernig á að stilla boltanum upp á teig og hvernig sveiflan eigi að vera. Þú getur aldrei verið alveg viss um að hitta flötina, en líkurnar á því aukast hins vegar verulega ef þú beitir þessari aðferð.

TVÆR ÆFINGAR SEM ÞÚ GÆTIR PRÓFAÐ

Sláðu bolta númer 2

Högg af þessu tagi gera marga kylfinga taugaóstyrka og það getur leitt til þess að þeir „hanga“ ekki nógu lengi yfir boltanum í sveiflunni. Reyndu að hugsa þér að þú sért að slá ímyndaðan seinni bolta, beint fyrir framan vinstri fótinn. Þetta hjálpar þér ekki aðeins að fara vel í gegnum boltann, heldur einnig að ná snertingunni fyrst í boltann og síðan í grasið.

2. Vertu örugg/ur með kylfuvalið Það er mikilvægt að vera örugg/ur með höggið og hvernig það á að líta út. Stór hluti af því öryggi felst í því að velja rétta verkfærið. Mótvindur, hæðarmunur og loftkuldi gerir höggið lengra. Hafðu líka í huga hvernig boltaflugið á að vera. Slævað högg er veikara, þannig að þú skalt taka kylfu sem skilar boltanum alla leið.

Skildu slævið

Til að slæva boltann vel þarftu að miða kylfublaðinu á milli högglínunnar og sveifluferilsins. Ímyndaðu þér þetta svona: Seinni boltinn er á högglínunni. Miðaðu kylfunni á tíið sem er nær henni, en stilltu þér upp þannig að fætur, mjaðmir og axlir stefni á tíið sem er fjær. Núna ertu tilbúinn til að slá mjúkt slævað högg. GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is

85


ALLT Á FLOTI - AÐKOMUVATN

Í

hugum flestra kylfinga einkenndist nýliðið sumar af miklu votviðri. Við vonum auðvitað að næsta sumar verði okkur hagstæðara en samt er ekki úr vegi að líta á þær reglur sem gilda um aðkomuvatn á golfvellinum. Samkvæmt golfreglunum er gert ráð fyrir að kylfingar þurfi að kljást við vatn sem er í vatnstorfærum á vellinum. Allt vatn sem er utan slíkra torfæra telst vera óeðlilegt ástand vallar þar sem kylfingar eiga rétt á vítalausri lausn. Við eigum því ekki að þurfa að slá boltann úr vatni nema hann hafi hafnað í vatnstorfæru og við veljum að leika boltanum þaðan. Annars megum við fá vítalausa lausn úr aðkomuvatni, hvort sem boltinn er á flöt, á braut, í glompu eða í karga. Hvað telst aðkomuvatn? Er nóg að jarðvegurinn sé blautur og mjúkur? Nei, reglurnar segja að aðkomuvatn sé „allt tímabundið samansafnað vatn á vellinum sem er ekki í vatnstorfæru og er sjáanlegt áður en eða eftir að leikmaður hefur tekið sér stöðu“. Vatnið þarf því að vera sjáanlegt til að lausn sé heimil. Við megum taka okkur eðlilega stöðu við boltann og ef vatn er þá sjáanlegt við boltann eða fætur okkar eigum við rétt á lausn frá aðkomuvatninu.

vatni á braut. Það sem gildir er að finna þann þurra stað sem er nálægastur boltanum í aðkomuvatninu og er ekki nær holunni. Ef boltinn er í aðkomuvatni í glompu gildir sérregla sem segir að ef við viljum taka vítalausa lausn úr aðkomuvatninu verðum við að láta boltann falla innan glompunnar. Við eigum sem sagt að finna nálægasta þurra stað innan glompunnar sem er ekki nær holunni og láta boltann falla innan kylfulengdar frá þeim stað. Nú geta aðstæður verið þannig að slíkur staður finnst ekki, t.d. ef boltinn er í polli aftarlega í glompunni eða ef glompan er meira og minna öll á floti. Þá gildir að við megum vítalaust láta boltann falla innan kylfulengdar frá þeim stað innan glompunnar (þó ekki nær holunni) sem gefur skástu lausn frá aðkomuvatninu. Við þurfum semsagt ekki að taka fulla lausn frá aðkomuvatninu í glompunni ef slíkt er ekki hægt. Þá gildir einnig sú sérregla um glompur að ef truflun er af aðkomuvatni í glompu megum við láta boltann falla utan glompunnar gegn einu vítahöggi. Vítið er þá tekið á þann hátt

Við tökum lausn frá aðkomuvatni á sama hátt og frá grund í aðgerð. Við þurfum að finna næsta stað fyrir lausn þar sem við erum laus við truflun frá aðkomuvatninu og látum boltann síðan falla innan einnar kylfulengdar frá þeim stað, þó ekki nær holunni. Truflun vegna aðkomuvatns getur orðið þannig að boltinn liggi í aðkomuvatninu, að við þurfum að sveifla í gegnum aðkomuvatnið eða að við þurfum að standa í því. Í öllum tilvikum eigum við rétt á lausn að því gefnu að ekkert annað en aðkomuvatnið komi í veg fyrir að við getum yfir höfuð slegið boltann. Mikilvægt er að átta sig á að ef við kjósum að taka lausn úr aðkomuvatninu verðum við almennt að taka fulla lausn úr því, á sama hátt og þegar við tökum lausn frá göngustígum eða úr grund í aðgerð. Við þurfum því að finna nálægasta stað þar sem ekki er aðkomuvatn. Þegar rigningar eru miklar getur sá staður hugsanlega verið marga metra frá boltanum en til að fylgja golfreglunum þurfum við þá að fara á þann stað ef við kjósum að taka lausn úr aðkomuvatninu. Ef boltinn liggur í karga getur sá staður hugsanlega verið á braut og á sama hátt getum við þurft að taka lausn í karga þótt boltinn liggi í aðkomu86

að við látum boltann falla á beina línu aftan við glompuna frá holunni í gegnum staðinn þar sem boltinn lá í glompunni. Eins og fyrr segir eigum við rétt á lausn frá aðkomuvatni ef boltinn liggur í vatninu, við þurfum að sveifla í gegnum það eða að við þurfum að standa í því. Ef boltinn liggur á flötinni eigum við þar að auki rétt á lausn frá aðkomuvatni ef aðkomuvatnið er í púttlínunni okkar. Ef boltinn liggur á þurrum bletti á flötinni eigum við rétt á lausn ef pollur er á flötinni þannig að við þurfum að pútta í gegnum pollinn. Þegar boltinn er á flötinni tökum við lausn frá aðkomuvatninu þannig að við finnum nálægasta stað (ekki nær holunni) þar sem ekki er truflun frá aðkomuvatni, þ.á.m. þannig að við þurfum ekki að pútta í gegnum aðkomuvatnið. Þegar sá staður er fundinn leggjum við boltann þar. Þessi staður þarf ekki endilega að vera á flötinni, stundum er stysta leið frá aðkomuvatninu út fyrir flötina en þá leggjum við boltann samt niður.

Keppendur mega ekki fjarlægja aðkomuvatn, t.d. á flötinni. Ef þeir vilja losna við að pútta í gegnum aðkomuvatnið þurfa þeir að taka lausn úr vatninu. Mótsstjórn er hins vegar heimilt að fjarlægja aðkomuvatnið og stundum er það gert til að leikur geti haldið áfram þegar umhverfi holunnar er umflotið vatni. Athugið að dögg og hrím falla ekki undir skilgreininguna á aðkomuvatni og við verðum því einfaldlega að pútta yfir svæði sem eru þakin dögg eða hrími. Hvenær er aðkomuvatn orðið svo mikið að völlurinn telst ekki lengur leikhæfur? Þetta er matsatriði og ein af þeim erfiðu ákvörðunum sem mótsstjórnir standa stundum frammi fyrir. Reynslan segir okkur að undir slíkum kringumstæðum eru yfirleitt aldrei allir keppendur ánægðir. Þeir sem hafa verið að leika vel vilja gjarnan halda áfram og gera lítið úr þeim vandamálum sem aðkomuvatnið skapar en þeim sem hafa verið að leika illa finnst að fresta hefði átt leik fyrir löngu síðan. Þegar einhver holanna á vellinum er orðin umflotin vatni og ekki tekst að fjarlægja vatnið er þó örugglega sjálfhætt. Því er mikilvægt að mótshaldarar séu vel vakandi fyrir veðurspánni að morgni og passi að holur séu ekki staðsettar í lægðum þar sem hætt er við að vatn safnist saman ef búist er við mikilli rigningu. Í höggleik og punktakeppni er nefnilega ekki hægt að færa holuna á þurran stað ef einhver ráshópanna hefur leikið viðkomandi holu. Í holukeppni er það leyfilegt enda er hver viðureign sjálfstæð keppni og ekki nauðsynlegt að allir keppendur leiki í sömu holur. Að lokum er rétt að ítreka að sömu reglur gilda um lausn frá aðkomuvatni og um lausn frá grund í aðgerð og óhreyfanlegum hindrunum, þ.e. ef við kjósum á annað borð að taka lausn frá þessum aðstæðum verðum við að taka fulla lausn. Við megum ekki taka lausn frá göngustíg þannig að við stöndum með annan fótinn á stígnum eftir að lausn hefur verið tekin. Á sama hátt megum við almennt ekki taka lausn frá aðkomuvatni þannig að við stöndum ennþá í polli eftir að lausn hefur verið tekin. Eina undantekningin frá því er ef við getum ekki tekið fulla lausn innan glompu.

DÓMARAPISTILL Hörður Geirsson, alþjóðadómari skrifar

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is

C

M

Y

CM

MY

CY

CMY

K


C

M

Y

CM

MY

CY

CMY

K


ÁGÆTUR ÁRANGUR ÍSLANDS Á HM JAPAN

Úlfar landsliðsþjálfari og Haukur Örn forseti GSÍ og liðsstjóri með Guðrúnu, Sunnu og Ólafíu.

Í

slenska kvennalandsliðið endaði í 29.31. sæti á heimsmeistaramóti áhugamanna sem fram fór á Karuizawa völlunum í Japan dagana 3.-6. september. Alls tóku 50 þjóðir þátt á Espirito Santo Trophy eins og mótið er kallað. Keppnisvellirnir voru tveir, 5.700 metra langir, en aðstæður voru með ágætum þrátt fyrir að vellirnir væru nokkuð blautir. Ástralía fagnaði sigri á 29 höggum undir pari samtals en Ísland lék á +12 samtals. Árangur Íslands er sá besti frá upphafi ef miðað er við fjölda þátttökuþjóða. Leiknar voru 72 holur á fjórum keppnisdögum. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR, Íslandsmeistari í höggleik, lék á +6 samtals (74 -75-71-74) og Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr

Keili var á sama skori (75-72-73-74). Sunna Víðisdóttir lék á +21 samtals (75-81-78-75). Guðrún og Ólafía enduðu í 58. sæti í einstaklingskeppninni og Sunna endaði í sæti nr. 107. Kanada varð í 2. sæti, tveimur höggum á eftir Ástralíu og Kórea varð í 3. sæti. Meðal efstu þjóða voru Danmörk í 4. sæti og Svíþjóð og Bandaríkin jöfn í 5.-6. sæti. Ísland var fyrir ofan lið eins og Írland og Skotland sem eru þekktar golfþjóðir. Árið 1994 endaði Ísland í 24. sæti af alls 29 þjóðum á HM en árangur Íslands á þessu HM var sá besti ef litið er á fjölda þeirra þjóða sem tóku þátt. Úlfar Jónsson landsliðsþjálfari var með í för ásamt Hauki Erni Birgissyni forseta Golfsambandsins sem var jafnframt liðsstjóri.

Átjánda brautin er par 6.

ÁRANGUR ÍSLANDS Á HM KVENNA FRÁ UPPHAFI: 2012: 36. sæti af alls 53 þjóðum. 2010: 42. sæti af alls 52 þjóðum. 2008: 41. sæti af alls 48 þjóðum. 2006: 33. sæti af alls 42 þjóðum. 2004: Ísland tók ekki þátt. 2002: Ísland tók ekki þátt. 2000: 32. sæti af alls 32 þjóðum. 1998: Ísland tók ekki þátt. 1996: Ísland tók ekki þátt. 1994: 24. sæti af alls 29 þjóðum. 1992: Ísland tók ekki þátt. 1990: Ísland tók ekki þátt.

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is

123


Glæsilegur árangur hjá Gísla í Finnlandi og Hollandi - efnilegustu kylfingar landsins spreyttu sig á sterkum áhugamannamótum

M

argir af efnilegustu kylfingum landsins tóku þátt í sterkum áhugamannamótum í ágúst. Tveir Íslendingar kepptu á opna finnska áhugamannamótinu og en fimm reyndu sig á hollenska áhugamannamótinu. Gísli Sveinbergsson úr Keili náði frábærum árangri og varð þriðji á báðum þessum mótum en Bjarki Pétursson úr GB var einnig með á þessum mótum. Gísli lék hringina þrjá í Finnlandi á 3 höggum undir pari vallar (69-69-73) og var hann fjórum höggum á eftir sigurvegaranum Lauri Ruuska frá Finnlandi sem lék á -7 samtals (6769-70). Gísli deildi þriðja sætinu með Samuel Echikson. Bjarki lék á +9 samtals (75-74-73) og endaði hann í 25. sæti. Eins og áður segir voru fimm kylfingar frá Íslandi á Opna hollenska áhugamannamótinu þar sem fimm íslenskir kylfingar tóku þátt. Að miklu var að keppa því sigurvegarinn Lars van Meijel fékk keppnisrétt á KLM mótinu sem er hluti af Evrópumótaröðinni. Þrír af íslensku keppendunum voru með í toppbaráttunni frá upphafi en Gísli endaði í þriðja sæti en hann lék hringina

fjóra á -3 samtals og var hann sex högg á eftir sigurvegaranum. Michael Kraaij varð annar á -6. Gísli lék hringina fjóra á (7171-71-72). Bjarki Pétursson úr Golfklúbbi Borgarness varð níundi á +2 samtals (7069-77-74). Ragnar Már Garðarsson úr GKG var þriðji fyrir lokahringinn en hann lék illa þegar mest á reyndi eða 84 höggum. Ragnar Már endaði í 20. sæti á +7 samtals (69-6973-84). Ísak Jasonarson úr GK var einnig á meðal keppenda en hann komst ekki í gegnum niðurskurðinn á mótinu líkt og Ásta

bætir Gísli við en hann segir tekur það jákvæða með sér úr þessum mótum þrátt fyrir að hafa ekki náð að landa sigri. „Ég átti góðan séns á því að sigra í báðum mótunum. Get ekki annað en verið himinlifandi yfir því hvernig þetta gekk. Get tekið margt jákvætt úr báðum mótunum, var mjög stöðugur og öruggur með minn leik,“ bætti hann við.

„Mótin voru stórskemmtileg með mörgum sterkum kylfingum víðs vegar fra Evrópu“

90

Gísli er með skýr markmið og ætlar sér stóra hluti í framtíðinni.

„Mótin sem ég hef verið að fara í hafa nýst mér mjög vel og er þetta gríðarlega mikil reynsla fyrir mig sem kylfing og persónu. Mót eins og þessi tvö telja ágætlega hátt á heimslista áhugamanna og er ég kominn mun ofar þar en ég hafði nokkurn tíman von á í byrjun sumars en það er vegna þess að ég hef verið duglegur að sækja í mót erlendis. Þetta er ekki gjörólíkt en þetta er samt öðruvísi og meira krefjandi en á Íslandi. Þegar ég hef verið að fara erlendis að keppa hefur allt í kringum golfið verið í allt öðrum klassa en við erum vön hér á Íslandi, fyrir utan þegar Íslandsmótið í höggleik er í gangi en það er alltaf staðið vel að því. Það sem mér finnst vera mesti munurinn eru vellirnir, þeir eru bara í allt öðrum klassa,“ sagði Gísli.

Brandenburg

Birna Magnúsdóttir. „Mótin voru stórskemmtileg með mörgum sterkum kylfingum víðs vegar fra Evrópu,“ segir Gísli Sveinbergsson í samtali við Golf á Íslandi. „Mótið í Finnlandi var þriggja daga höggleikur með niðurskurði eftir tvo daga en mótið í Hollandi var fjórir hringir, höggleikur spilaður á þremur dögum með niðurskurði eftir tvo daga,“ segir Gísli en þrír íslenskir kylfingar voru með Gísla í för í Hollandi, þeir Bjarki Pétursson (GB), Ragnar Már Garðarsson (GKG) og Ísak Jasonarson (GK). Gísli og Bjarki héldu síðan til Finnlands. „Vellirnir voru mjög svipaðir og voru þeir báðir miklir skógarvellir þar sem auðvelt var að komast í vandræði. Veðrið lék ekki alveg við okkur félagana þarna úti og vorum við nánast alla daga í regngalla. Vellirnir voru báðir mjög flottir og í ágætu ásigkomulagi, grínin tóku vel við og héldu góðum hraða,“

G

P

t GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is

P


Brandenburg

Við færum þér lægri forgjöf

GSÍ treystir okkur fyrir öruggri dreifingu á Golf á Íslandi Póstdreifing býður upp á fjölbreytta og örugga dreifingu á blöðum og tímaritum. Við komum sendingunni í réttar hendur. Örugglega til þín. GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is

Póstdreifing | Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | www.postdreifing.is

97


FJÖR OG FLOTT GOLF Í SVEITAKEPPNI UNGLINGA

K

eppt var í sveitakeppni unglinga á þremur keppnisvöllum helgina 23.24. ágúst. Piltar 18 ára og yngri léku á Þorláksvelli í Þorlákshöfn, piltar 15 ára og yngri á Selsvelli á Flúðum. Á Öndverðarnesvelli léku stúlkur 18 ára og yngri og einnig 15 ára og yngri. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar fagnaði sigri í flokki 18 ára og yngri pilta. GKG hafði betur gegn Keili í úrslitaleiknum 3-0. Golfklúbbur Akureyrar sigraði Kjöl úr Mosfellsbæ 3-0 í leiknum um þriðja sætið. Golfklúbburinn Keilir tapaði ekki leik í flokki 18 ára og yngri í stelpnaflokki á Öndverðarnesi. GK fékk alls 11 stig en Golfklúbbur Reykjavíkur var með 9 stig og í þriðja sæti var sameiginleg sveit Golfklúbbsins Odds og Golfklúbbs Selfoss. Sameiginleg sveit Golfklúbbsins Hamars á Dalvík og Golfklúbbs Akureyrar sigraði í flokki 15 ára og yngri stelpna. Alls voru fimm sveitir sem tóku þátt Golfklúbbur Dalvíkur / Akureyri vann alls leiki sína í riðlakeppninni og hlaut alls 10 stig en Golfklúbbur Reykjavíkur varð í öðru sæti með 7 stig og Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar varð í þriðja sæti með 6 stig. Á Selsvelli á Flúðum áttust GR 1 og GKG 2 við í úrslitum í flokki 15 ára og yngri drengja og þar hafði GR betur 2/1. Þrjár sveitir léku í bráðabana um efsta sætið í B-riðli og sveit GR-1 tryggði sér efsta sætið í þeirri viðureign og komst þar með í úrslitaleikinn. Nokkra athygli vakti frammistaða B-liðs GKG sem komst alla leið í úrslitaleikinn. Sameiginleg sveit GHD/GH/GÓ/GSS sigraði Kjöl 1 í leik í um þriðja sætið þar sem úrslitin réðust á 21. holu í viðureign Ragnars Má Ríkharssonar GKj, og Arnórs Snæs Guðmundssonar úr GHD.

92

LOKASTAÐAN

18 ÁRA OG YNGRI PILTA:

1. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar 2. Golfklúbburinn Keilir 3. Golfklúbbur Akureyrar 4. Golfklúbburinn Kjölur 5. Golfklúbbur Reykjavíkur 2 6. Golfklúbbur Reykjavíkur 1 7. Golfklúbbur Hveragerðis 8. Golfklúbburinn Leynir 9. Golfklúbburinn Keilir 2 10. Golfklúbburinn Kjölur 2 11. Golfklúbbur Akureyrar 2 12. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar 13. Golfklúbbur Selfoss 14. Golfklúbbur Suðurnesja 15. Golfklúbburinn Oddur

18 ÁRA OG YNGRI STÚLKNA: 1. Golfklúbburinn Keilir 11 stig 2. Golfklúbbur Reykjavíkur 9 stig 3. Golfklúbbur Suðurnesja 4 stig 4. Golfklúbburinn Kjölur 3 stig 5. Golfklúbburinn Oddur / Selfoss 3 stig

15 ÁRA YNGRI DRENGJA:

1. Golfklúbbur Reykjavíkur 1 2. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar 3. GHD/GH/GÓ/GSS 4. Golfklúbburinn Kjölur 1 5. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar 1 6. Golfklúbburinn Keilir 1 7. Golfklúbbur Vestmannaeyja 8. Golfklúbburinn Kjölur 2 9. Nesklúbburinn 10. Golfklúbbur Reykjavíkur 2 11. Golfklúbbur Selfoss/Golfklúbbur Hveragerðis 12. Golfklúbbur Akureyrar 13. Golfklúbburinn Leynir 14. Golfklúbburinn Keilir 2 15. Golfklúbburinn Oddur 16. Golfklúbburinn Flúðir

15 ÁRA YNGRI STÚLKNA: 1. Golfklúbbur Dalvíkur / Akureyri 10 stig 2. Golfklúbbur Reykjavíkur 7 stig 3. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar 6 stig 4. Golfklúbburinn Keilir 4 stig 5. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar (2) 3 stig GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is



SPENNA OG TILÞRIF Á STRANDARVELLI Í

slandsmótið í höggleik á unglingamótaröð Íslandsbanka fór fram á Strandarvelli á Hellu 18.-20. júlí. Gríðarleg úrkoma setti svip sinn á fyrsta keppnisdaginn en 146 kylfingar tóku þátt. Aðeins 18 kylfingar náðu að ljúka við fyrstu umferðina af alls þremur áður en mótsstjórn tók þá ákvörðun að fresta leik þar sem að Strandarvöllur var óleikfær vegna bleytu. Í kjölfarið var fyrsta umferð mótsins felld niður og voru því aðeins leiknar 36 holur eða tveir keppnishringir. Veðrið var mjög gott það sem eftir var af mótinu og spennan var mikil í mörgum flokkum. Gísli Sveinbergsson úr Keili fagnaði sigri í flokki 17-18 ára pilta en hann lék samtals á fjórum höggum undir pari – eða 136 höggum og var fjórum höggum betri en næsti kylfingur. Helga Kristín Einarsdóttir úr Nesklúbbnum lék yfirvegað golf þegar hún tryggði sér titilinn í flokki 17-18 ára stúlkna.

Helga og Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR voru jafnar fyrir lokahringinn en Helga var þremur höggum betri þegar uppi var staðið. Mikil spenna var í flokki 15-16 ára á Íslandsmótinu í höggleik þar sem Fannar Ingi Steingrímsson úr Golfklúbbi Hveragerðis fagnaði sigri. Fannar er tvöfaldur Íslandsmeistari á Íslandsbankamótaröðinni en hann sigraði einnig á Íslandsmótinu í holukeppni á Urriðavelli. Arnór Snær Guðmundsson úr Golfklúbbnum Hamri á Dalvík varð annar, en hann átti eitt högg á Fannar þegar þeir komu á 17. teig en Fannar var sterkari á lokasprettinum. Fannar lék sérlega vel á fyrsta hringnum þar sem hann lék síðari holurnar á 29 höggum og samtals á 65 eða 6 höggum undir pari. Saga Traustadóttir úr GR varð í dag Íslandsmeistari í höggleik í 15-16 ára flokki en mótið fór fram á Strandarvelli á Hellu.

Saga var fimm höggum betri en Ólöf María Einarsdóttir úr Golfklúbbi Hamars á Dalvík sem og Thelma Sveinsdóttir úr GK varð þriðja. Ólöf María og Saga léku til úrslita á Íslandsmótinu í holukeppni og skiptu því um sæti á þessu móti. Keppni í flokki 14 ára og yngri stráka var gríðarlega jöfn og spennandi. Þar tryggði Ingi Rúnar Birgisson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar sér sigur með frábærum lokahring þar sem hann lék á einu höggi undir pari. Ingi Rúnar sigraði með minnsta mun en Kristófer Karl Karlsson úr Kili og Ingvar Andri Magnússon úr GR voru jafnir á 144 höggum og hafði Kristófer betur á fyrstu holu í bráðabana. Þetta er fyrsti Íslandsmeistaratitill Inga Rúnars en faðir hans er Birgir Leifur Hafþórsson, sexfaldur Íslandsmeistari í höggleik karla.

Fannar Ingi Steingrímsson kann vel við sig á Hellu. Hann lék á 4 undir pari og vann í 15-16 ára flokki drengja.

Saga Traustadóttir úr GR slær hér á 3.braut á Strandarvelli en hún sigraði í flokki 15-16 ára telpna. (2)

Helga Kristín Einarsdóttir úr Nesklúbbnum tryggði sér sigur með góðum lokahring í flokki 17-18 ára stúlkna. Hér slær hún upphafshöggið á 2. teig á Strandarvelli.

Ingi Rúnar Birgisson sigraði í flokki 14 ára og yngri í strákaflokki. Hér slær GKG-ingurinn á 8. teig á Strandarvelli. (2)

Andrea Ýr Ásmundsdóttir úr Golfklúbbi Akureyrar slær á 3. braut á Strandarvelli en hún fagnaði titlinum í 14 ára og yngri stelpna.

Það er alltaf gott að hafa eitt stykki mömmu með á golfmótum þegar vandræðin koma upp. Valur Þorsteinsson úr Kili var heppinn að hafa Ingu móður sína með í þessu tilviki.

94

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


Veðrið var erfitt á fyrsta keppnisdeginum sem síðan var felldur niður vegna úrkomu á Strandarvelli - aðeins voru leiknar 36 holur en ekki 54 eins og upphaflega var áætlað. Gísli Sveinbergsson (stóra myndin) sigrað i í flokki 17-18 ára.

14 ára og yngri strákar: (30 keppendur) 1. Ingi Rúnar Birgisson, GKG 143 högg (74-69)+3 2. Kristófer Karl Karlsson, GKj. 144 högg (72-72) +4 3. Ingvar Andri Magnússon, GR 144 högg (75-69) +4

Kristófer hafði betur í bráðabana á fyrstu holu.

14 ára og yngri stelpur: (11 keppendur) 1. Andrea Ýr Ásmundsdóttir, GA 169 högg ( 85-84) +29 2. Zuzanna Korpak, GS 173 högg (87-86) +33 3. Alma Rún Ragnarsdóttir, GKG 176 högg (87-89) +36

15-16 ára drengir: (43 keppendur) 1. Fannar Ingi Steingrímsson, GHG 136 högg (65-71) -4 2. Arnór Snær Guðmundsson, GHD 138 högg (68-70) -2 3. Kristján Benedikt Sveinsson, GA 143 högg (72-71) +3

15-16 ára telpur: (18 keppendur) 1. Saga Traustadóttir, GR 153 högg (77-76) +13 2. Ólöf María Einarsdóttir, GHD 158 högg (79-79) +18 3. Thelma Sveinsdóttir, GK 159 högg (79-80) +19

17-18 ára piltar: (39 keppendur) 1. Gísli Sveinbergsson, GK 136 högg (68-68) -4 2. Tumi Hrafn Kúld, GA 141 högg (71-70) +1 3. Kristófer Orri Þórðarson, GKG 143 högg (73-70) +3

17-18 ára stúlkur: (10 keppendur) 1. Helga Kristín Einarsdóttir NK 148 högg (75-73) +8 2. Ragnhildur Kristindsdóttir GR 151 högg (75-76) +11 3. Birta Dís Jónsdóttir GHD 152 högg (79-73) +12


VALLARMET ARONS HÁPUNKTURINN

- Vel heppnað Íslandsbankamót unglinga á Jaðarsvelli á Akureyri

15-16 ára telpur:

1. Ólöf María Einarsdóttir, GHD (85-76) 161 högg (+19) 2. Eva Karen Björnsdóttir, GR (86-78) 164 högg (+22) 3. Saga Traustadóttir, GR (86-84) 170 högg (+28)

15-16 ára drengir:

Aron Snær Júlíusson púttar hér á 9. flöt á Jaðarsvelli. Egill Ragnar Gunnarsson fylgist spenntur með.

1. Eggert Kristján Kristmundsson, GR (77-70) 147 högg (+5) 2. Kristján Benedikt Sveinsson, GA (80-72) 152 högg (+10) 3.-4. Patrekur Nordquist Ragnarsson, GR (85-69) 154 (+12) 3.-4. Hákon Örn Magnússon, GR (77-77) 154 högg (+12)

14 ára og yngri strákar: 1. Birkir Orri Viðarsson, GS (70-74) 144 högg (+2) 2. Ingvar Andri Magnússon, GR (77-73) 150 högg (+8) 3. Kristófer Karl Karlsson, GKj. (79-73) 152 högg (+10)

14 ára og yngri stelpur: 1. Zuzanna Korpak, GS (89-87) 176 högg (+34) 2. Kinga Korpak, GS (99-92) 191 högg (+49) 3. Alma Rún Ragnarsdóttir, GKG (99-95) 194 högg (+52)

17-18 ára stúlkur: Ólöf María Einarsdóttir púttar á 9. flöt og Eva Karen Björnsdóttir og Saga Garðarsdóttir fylgjast með.

F

immta mótið af alls sex á Íslandsbankamótaröð unglinga fór fram á Jaðarsvelli helgina 16.-17. ágúst. Alls hófu 109 kylfingar keppni en að venju var keppt í þremur aldursflokkum hjá báðum kynjum. Gott veður var á meðan mótið fór fram á Jaðarsvelli og aðstæður voru allar hinar bestu. Eggert Kristján Kristmundsson úr GR, Birkir Orri Viðarsson úr GS og Zuzanna Korpak úr GS náðu að landa sínum fyrsta sigri á tímabilinu í sínum flokki. Í elstu flokkunum voru leiknar 54 holur á þremur keppnisdögum en 96

36 holur á tveimur keppnisdögunum í hinum fjórum keppnisflokkunum. Mörg góð skor sáust á Jaðarsvelli á þessu móti en vallarmetið sem Aron Snær Júlíusson úr GKG setti á fyrsta keppnisdeginum af hvítum teigum stóð upp úr en hann lék á -4 eða 67 höggum. Birki Orri og Eggert Kristján léku einnig undir pari á Jaðarsvelli. Patrekur Nordquist Ragnarsson úr GR átti „sveiflu“ mótsins en hann bætti sig um 16 högg á milli fyrsta og annars keppnisdags en hann lék á 69 höggum eða -2 á síðari keppnisdeginum.

1. Helga Kristín Einarsdóttir, NK (77-78-83) 238 högg (+25) 2. Sigurlaug Rún Jónsdóttir, GK (79-82-85) 246 högg (+33) 3. Alexandra Eir Grétarsdóttir, GOS (79-87-89) 255 högg (+42)

17-18 ára piltar:

1. Aron Snær Júlíusson, GKG (67-77-72) 216 högg (+3) 2. Egill Ragnar Gunnarsson, GKG (74-79-77) 230 högg (+17) 3.-4. Ævarr Freyr Birgisson, GA (75-78-78) 231 högg (+18) 3.-4. Kristófer Orri Þórðarson, GKG (73-84-74) 231 högg (+18) GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


Í HVAÐA LIT VERSLAR ÞÚ?

www.netto.is Kræsingar & kostakjör

| Mjódd · Salavegur · Hverafold · Grandi · Akureyri · Höfn Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss |


Henning Darri Þórðarson horfir á eftir upphafshögginu á 5. braut. Aron Snær Júlíusson (minni mynd) vann í flokki 17-18 ára pilta.

HENNING DARRI LÉK BEST ALLRA

Spennandi keppni á lokamóti Íslandsbankamótaraðarinnar í Korpunni

98

röðinni í flokki 14 ára og yngri sem fram fór á Korpunni um helgina. Zuzanna hafði þar betur gegn yngri systur sinni Kinga Korpak sem fagnaði hinsvegar stigameistaratitlinum. Þetta er annað mótið í röð þar sem að Zuzanna vinnur á Íslandsbankamótaröðinni en Kinga vann fyrstu þrjú mótin og þar á meðal Íslandsmótið í holukeppni. Henning Darri Þórðarson úr Keili lék best allra á lokamótinu og endaði hann á 6 höggum undir pari af hvítum teigum í flokki 15-16 ára. Arnór Snær Guðmundsson frá Dalvík varð stigameistari en keppnin var mjög hörð um efsta sætið í þessum flokki. Henning Darri sigraði á þremur mótum á mótaröðinni, Fannar Ingi Steingrímsson úr GHG varð tvöfaldur Íslandsmeistari en hann tók ekki þátt á lokamótinu. Ólöf María Einarsdóttir frá Golfklúbbnum

Hamri á Dalvík sigraði í flokki 15-16 ára og fagnaði þar með stigameistaratitlinum. Ólöf María sigraði oftast allra á Íslandsbankamótaröðinni eða alls fjórum sinnum en Saga Garðarsdóttir úr GR sigraði á tveimur – en þær skiptu Íslandsmeistaratitlunum í holukeppni og höggleik á milli sín. Aron Snær Júlíusson úr GKG sigraði í flokki 17-18 ára á -2 samtals og hann var jafnframt stigameistari en þetta var þriðja mótið sem hann sigrar á Íslandsbankamótaröðinni. Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR sigraði í flokki 17-18 ára kvenna og var þetta þriðja mótið sem hún vinnur – en Helga Kristín Einarsdóttir úr NK vann einnig þrjú mót í þessum flokki og varð stigameistari. JANÚAR

L

okamótið á Íslandsbankamótaröð unglinga fór fram 6.-7. september á Korpúlfsstaðarvelli hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. Sjórinn og Áin voru leiknar á þessu móti og árangur efnilegustu kylfinga landsins var að venju áhugaverður. Alls hófu 110 kylfingar keppni og var leikið í þremur aldursflokkum hjá báðum kynjum. Kristófer Karl Karlsson úr Kili setti vallarmet af bláum teigum á fyrri keppnisdeginum þar sem hann lék á 68 höggum eða -4 og tapaði hann ekki höggi. Kristófer sigraði í flokki 14 ára og yngri á -1 samtals en þetta var fyrsta mótið sem hann vann í sumar á mótaröðinni. Ingvar Andri Magnússon úr GR varð stigameistari en hann varð fjórði á þessu móti. Zuzanna Korpak úr Golfklúbbi Suðurnesja sigraði á lokamótinu á Íslandsbankamóta-

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


krónur

Á AÐ LÆKKA FORGJÖFINA Í SUMAR? Fyrir 320 kall og með smá heppni gætirðu farið á fimm daga einkanámskeið hjá Bubba Watson.

HUGSAÐU

STÓRT

JANÚAR

OG SKELLTU ÞÉR Á MIÐA

FÖSTUDAGUR TIL FJÁR


Kristín María Þorsteinsdóttir horfir á eftir upphafshögginu á 4. braut á Korpunni.

17-18 ÁRA PILTAR (25 KEPPENDUR):

1. Aron Snær Júlíusson GKG (71-71) 142 högg (-2) 2. Egill Ragnar Gunnarsson, GKG (72-72) 144 högg par 3. Björn Óskar Guðjónsson, GKj. (73-72) 145 högg (+1)

17-18 ÁRA STÚLKUR (5 KEPPENDUR):

1. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR (84-76) 160 högg (+16) 2.-3. Alexandra Eir Grétarsdóttir, GOS (82-79) 161 högg (+17) 2.-3. Sigurlaug Rún Jónsdóttir, GK (79-82) 161 högg (+17)

14 ÁRA OG YNGRI STELPUR (7 KEPPENDUR): Kristófer Karl Karlsson einbeittur á 9. teig í Korpunni.

1. Zuzanna Korpak, GS (91-80) 171 högg (+27) 2. Kinga Korpak, GS (86-90) 176 högg (+32) 3. Heiðrún Anna Hlynsdóttir, GOS (95-91) 186 högg (+42)

14 ÁRA OG YNGRI STRÁKAR (32 KEPPENDUR):

1. Kristófer Karl Karlsson, GKj. (68-75) 143 högg (-1) 2. Viktor Ingi Einarsson, GR (74-72) 146 högg (+2) 3. Ragnar Már Ríkarðsson, GKj. (73-75) 148 högg (+4)

15-16 ÁRA TELPUR

(13 KEPPENDUR): Saga Traustadóttir og Ólöf María Einarssdóttir á 2. flöt.

1. Ólöf María Einarsdóttir, GHD (75-81) 156 högg (+12) 2. Saga Traustadóttir, GR (78-80) 158 högg (+14) 3. Eva Karen Björnsdóttir, GR (88-80) 168 högg (+24)

15-16 ÁRA DRENGIR

(28 KEPPENDUR):

Zuzanna Korpak slær hér á 11. teig á Korpunni. 100

1. Henning Darri Þórðarson, GK (70-68) 138 högg (-6) 2. Patrekur Nordquist Ragnarsson, GR (74-70) 144 högg (par) 3. Kristján Benedikt Sveinsson, GA (74-71) 145 högg (+1) GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


Við stöndum vörð um öflug fyrirtæki

Atlantsolía

Brim

Isavia

Með 19 sjálfsafgreiðslustöðvum, birgðastöð og fjórum olíubílum er hægt að tryggja aukna samkeppni á eldsneytismarkaði á Íslandi.

Þrír afkastamiklir frystitogarar og öflugt starfslið tryggja Íslendingum hærri útflutningstekjur af gæðahráefni.

Það þarf mikil umsvif til að tryggja öryggi á öllum flugvöllum landsins og sjá um nærri 5,5 milljóna km² flugstjórnarsvæði.

Landsbankinn

Hér er góður staður fyrir þitt fyrirtæki

Stærsta fjármálafyrirtæki á Íslandi með víðtækasta útibúanetið tryggir trausta og alhliða fjármálaþjónustu um allt land.

Traustsins verðir

Landsvirkjun Stærsta fyrirtæki landsins í orkuvinnslu vinnur 73% allrar raforku innanlands til að tryggja fólki og fyrirtækjum rafmagn.

Marel

RÚV

Össur

Eitt af stærstu útflutningsfyrirtækjum Íslands tryggir markaðnum hugvitsamlegar lausnir til vinnslu matvæla.

Til að tryggja landsmönnum fréttir, skemmtun og fróðleik þarf fjölda starfsmanna, tæknibúnað og húsnæði.

Rannsóknir og nýsköpun styrkja stoðir atvinnulífsins með framleiðslu sem tryggir að fólk geti staðið á eigin fótum.

Vörður nýtur trausts hjá öflugum íslenskum fyrirtækjum og stofnunum. Áhersla okkar á einföld og þægileg viðskipti er nokkuð sem fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum kunna að meta. Hafðu samband og fáðu tilboð í tryggingar þíns fyrirtækis.

VIÐ VILJUM KYNNAST ÞÍNU FYRIRTÆKI BETUR


Veðrið lék við kylfinga á Áskorendamótaröðinni á Hellishólum E inn af hápunktum Áskorendamótaraðarinnar á Íslandsbankamótaröð unglinga var tveggja daga mót sem fram fór á Hellishólum hjá Golfklúbbnum Þverá. Þar léku 30 kylfingar í tveggja daga móti sem fór fram samhliða Íslandsmóti unglinga í höggleik á Íslandsbankamótaröðinni á Strandarvelli á Hellu. Áskorendamótaröðin er ætluð þeim kylfingum sem vilja öðlast keppnisreynslu í höggleik áður en haldið er inn á sjálfa Íslandsbankamótaröðina. Veðrið var með ágætum báða keppnisdagana á Hellsihólum – það rigndi aðeins á laugardeginum en á sunnudeginum var „bongóblíða“ og völlurinn í góðu ástandi. Mótið á Hellishólum var fjórða mótið á Áskorendamótaröðinni af alls sex. Fimmta mótið fór fram á Katlavelli á Húsavík og lokamótið fór fram á Bakkakotsvelli í Mosfellsdal.

Otriv eldri milli eins en ly við þ Mark


Andaðu með nefinu

Loft innan fárra mínútna Ilmur af mentól og eukalyptus

Otrivin Menthol ukonserveret, nefúði, lausn. Innihaldslýsing: Xýlómetazólínhýdróklóríð 1 mg/ml. Ábendingar: Bólgur og aukin slímmyndun í nefi, kinnholum og nefkoki. Skammtar og lyfjagjöf: Fyrir fullorðna og börn eldri en 12 ára: 1 úði í hvora nös 3 sinnum á sólarhring eftir þörfum, lengst í 10 sólarhringa og ekki úða oftar en að hámarki 3 úða í hvora nös á sólarhring. Snýttu þér. Fjarlægðu glæru plasthettuna. Skorðaðu úðaflöskuna milli fingranna. Úðað er með því að þrýsta kraganum niður að flöskunni. Hallaðu höfðinu örlítið fram. Stúturinn á úðaflöskunni er settur upp í nösina. Úðað er einu sinni, um leið og andað er að sér inn um nefið. Farðu eins að í hina nösina. Ekki má nota lyfið ef þú ert með ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna, ef þú hefur gengist undir aðgerð í gegnum nefið eða munninn eða ert með þrönghornsgláku. Ráðfærðu þig við lækni áður en lyfið er notað ef þú ert: Þunguð, með barn á brjósti, næmur fyrir adrenvirkum efnum, ert með skjaldvakaóhóf, sykursýki, háþrýsting, æðakölkun, slagæðargúlp, blóðtappa í hjarta, óreglulegan eða hraðan púls, erfiðleika 103 við þvaglát, æxli í nýrnahettum, þunglyndi og ert á lyfjameðferð við því. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is Markaðsleyfishafi:Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.


ÚRSLIT FRÁ HELLISHÓLUM 19.-20. JÚLÍ 15-16 ára kk: 1. Emil Árnason, GKG 182 högg 2. Einar Sveinn Einarsson, GS 204 högg 3. Arnar Gauti Arnarsson, GK 220 högg

17-18 ára kk: 1. Guðjón Heiðar Ólafsson, GK 213 högg 14 ára og yngri: 1. Kristófer Tjörvi Einarsson, GV 160 högg 2. Aron Emil Gunnarsson, GOS 166 högg 3. Sveinn Andri Sigurpálsson, GKj. 178 högg 14 og yngri kvk: 1. Sigrún Linda Baldursdóttir, GKj. 231 högg 2. Kristín Sól Guðmundsdóttir, GKj. 244 högg 3. Thelma Björt Jónsdóttir, GK 244 högg

ÚRSLIT FRÁ KATLAVELLI 16. ÁGÚST 15-16 ára kk: 1. Agnar Daði Kristjánsson, GH 93 högg 17-18 ára kk: 1. Reynir Örn Hannesson, GH 89 högg 14 ára og yngri kk: 1. Kristófer Tjörvi Einarsson, GV 80 högg 2. Aron Emil Gunnarsson, GOS 88 högg 3. Mikael Máni Sigurðsson, GA 95 högg 14 ára og yngri kvk: 1. Guðrún Fema Sigurbjörnsd., GÓ 112 högg 2.-3. Sigrún Linda Baldursd., GKj. 121 högg 2.-3. Kristín Sól Guðmundsd., GKj. 121 högg

ÚRSLIT FRÁ BAKKAKOTSVELLI: 14 og yngri kk: 1.-2. Sveinn Andri Sigurpálsson, GKj. 81 högg 1.-2. Kristófer Tjörvi Einarsson, GV 81 högg 3. Orri Snær Jónsson, NK 82 högg 14 og yngri kvk: 1. Sigrún Linda Baldursdóttir, GKj. 97 högg 2. Thelma Björt Jónsdóttir, GK 106 högg 3. Guðrún Fema Sigurbjörnsdóttir, GÓ 106 högg 15-16 ára kk: 1. Arnar Gauti Arnarsson, GK 98 högg 2. Einar Sveinn Einarsson, GS 102 högg 104

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


SÚPERBAR GRÍPTU SÚPERBAR MEÐ ÞÉR Í GOLFIÐ!

Hráfæði - lífrænt ræktað - hreinsandi orkugefandi - bragðgott - enginn viðbættur sykur - án mjólkur glútenlaust - inniheldur ávexti, grænmeti og fleira

Níu tegundir af ofurfæðu:

bláber

hindber

rauðrófusafi

gojiber

spírulína

hörfræ

chiafræ

kínóa

hveitigras


Patrekur Nordquist Ragnarsson, Aron Snær Júlíusson, Ingvar Andri Magnússon og Björn Óskar Guðjósson spakir á flötinni.

INGVAR ANDRI SKRIFAÐI NÝJAN KAFLA Í SÖGU UNGLINGAEINVÍGISINS

S

amsung unglingaeinvígið fór fram í níunda sinn á Hlíðavelli í Mosfellsbæ í byrjun september og þar skrifaði Ingvar Andri Magnússon úr Golfklúbbi Reykjavíkur nýjan kafla í sögu mótsins. Ingvar Andri varði titilinn frá því í fyrra og er hann sá fyrsti sem afrekar slíkt. Keppnin var spennandi og sáust oft og tíðum mögnuð tilþrif en Ingvar Andri fékk m.a. fjóra fugla í röð sem er glæsilegur árangur. „Það var ótrúlega skemmtilegt að verja titilinn, eitthvað sem ég bjóst alls ekki við að gera því enginn hafði gert það áður svo tilfinningin er mjög góð. Ég var að spila mjög vel í úrslitunum, fékk fimm fugla á 9 holum, þar af fjóra í röð. Höggið sem tryggði mér að komast á lokaholuna er eftirminnilegast, annað höggið á 13. braut sem endaði metra frá pinna. Einnig var 12. holan mögnuð, þar vorum við Sigurður Arnar nálægt því að fara holu í höggi, svo setti Björn Óskar líka gott vipp í og þar með datt Aron Snær út á pari sem er svekkjandi. Unglingaeinvígið er ótrúlega skemmtilegt en líka öðruvísi mót, það

106

er heiður að fá að taka þátt með þeim bestu. Þetta mót er einn af hápunktum sumarsins. Góð stemning og flott umgjörð á móti þar sem allt getur gerst. Það er ekki auðvelt að vinna þetta mót. Eitt lélegt högg og þá ertu dottinn út eða ert heppinn að aðrir geri mistök,“ sagði Ingvar Andri við Golf á Íslandi. Mótið er boðsmót þar sem að keppendur vinna sér inn keppnisrétt með góðum árangri á Íslandsbankamótaröð unglinga, og klúbbmeistararar Kjalar eru einnig með keppnisrétt í forkeppninni.

Davíð Gunnlaugsson fagnar með Sigurði Arnari Garðarssyni eftir að hann vippaði ofaní með glæsilegu höggi. Sigurður Arnar endaði í öðru sæti.

Smá mistök - hvað er eitt g á milli vina.

Forkeppnin var með „shootout“ fyrirkomulaginu en einn keppandi féll úr leik á hverri holu þar til einn stóð eftir. Alls tóku 30 kylfingar þátt í undankeppninni, þar af 11 stúlkur, en engin þeirra komst í úrslit að þessu sinni . Alls hófu 10 kylfingar leik í úrslitum mótsins og hófst keppnin á 2. braut, og síðan voru holur 3., 4., 5., 10., 11., 12., 13, og 14. leiknar.

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is



Heimamaðurinn Björn Óskar Guðjónsson varð þriðji.

Þorsteinn Hallgrímsson frá Golfstöðinni ræðir við sigurvegarann Ingvar Andra Magnússon.

HEILDARÚRSLIT MÓTSINS 1. sæti - Ingvar Andri Magnússon GR 2. sæti - Sigurður Arnar Garðarson, GKG 3. sæti - Björn Óskar Guðjónsson GKj 4. sæti - Aron Snær Júlíusson GKG 5. sæti - Kristján Benedikt Sveinsson GA 6. sæti - Patrekur Nordquist Ragnarsson GR 7. sæti - Hákon Örn Magnússon GR 8. sæti - Kristófer Karl Karlsson GKj 9. sæti - Viktor Ingi Einarsson GR 10. sæti - Egill Ragnar Gunnarsson GKG

Sigurvegarinn Ingvar Andri Magnússon úr GR.

STYRKTARAÐILAR UNGLINGAEINVÍGISINS 2014 Samsung ÍSAM golf Subway Fasteignasala Mosfellsbæjar Golfsamband Íslands Ecco 66° norður Vífilfell

SIGURVEGARAR MÓTSINS FRÁ UPPHAFI ERU: 2005: Sveinn Ísleifsson 2006: Guðni Fannar Carrico 2007: Andri Þór Björnsson 2008: Guðjón Ingi Kristjánsson 2009: Andri Már Óskarsson 2010: Guðrún Brá Björgvinsdóttir 2011: Ragnar Már Garðarsson 2012: Aron Snær Júlíusson 2013: Ingvar Andri Magnússon 2014: Ingvar Andri Magnússon 108

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


Glansþvottalögur

Gerðu bílinn kláran fyrir veturinn Faszination Autopflege mit með SONAX bónog hreinsivörum Markenprodukten von SONAX SONAX er margverlaunað bílhreinsimerki frá Þýskalandi. SONAX býður allt sem þarf: bón fyrir allar gerðir af Lassen Sie mehr Glanz in Ihr Leben! lakki, felguhreinsi, dekkjahreinsi, sápur, svampa, vínylhreinsi, gluggahreinsi og fleiri hágæða hreinsivörur.


Staðreyndir:

FNILEGUR E G O R U G N U

Ingi Rúnar Birgisson

Golfpokinn:

„ÉG MISSI STUNDUM EINBEITINGUNA“ Hver er ástæðan fyrir að þú hófst að leika golf? „Pabbi (Birgir Leifur Hafþórsson) lét mig fá kylfur og hann kenndi mér að slá.“ Hvað er það sem heillar þig við golf? „Umhverfið heillar mig og það er gaman að slá góð golfhögg“ Hverjir eru þínir framtíðardraumar í golfinu? „Ég stefni á að verða atvinnumaður.“ Hefur þú verið að bæta þig mikið í golfinu á undanförnum árum? „Já. Ég er búinn bæta mig helling i að spila bara leikinn og slá. Forgjöfinn hefur ekki lækkað mikið en ég er mun stöðugri í golfinu en áður.“ Hver er þinn helsti kostur og galli í golfinu og hvers vegna? „Minn helsti kostur er að ég æfi mjög mikið. Minn helsti galli er að ég missi stundum einbeitinguna.“ Hvað er það sem þú ætlaðir helst að bæta í sumar? „Það var eiginlega bara allt saman.“ 110

Nafn: Ingi Rúnar Birgisson. Aldur: 14 ára. Forgjöf: 6,9. Klúbbur: GKG. Uppáhaldsmatur: Pasta Carbonara. Uppáhaldsdrykkur: Egills Kristall, Lime og Arizona. Uppáhaldskylfa: „Driver“ Ég hlusta á: Allt nema rómantíska tónlist. Besta skor: 67 högg. Rory McIlroy eða Tiger Woods? Tiger. Strand- eða skógarvellir? Skógarvellir. Besta vefsíðan: Facebook. Besta blaðið: Golf á Íslandi. Besta bókin: Engin. Besta bíómyndin: Horfi varla á bíómyndir. Horfi bara á þætti, uppáhalds þættirnir mínir eru Breaking Bad. Hvað óttastu mest í golfinu? Ekkert.

Hvert er eftirminnilegasta atvikið sem þú manst eftir úr golfi? „Þegar Hlynur vinur minn topp sjankaði boltann í 100 m hælinn og þegar ég fór holu í höggi. Ég var á 4. braut á Leirdalsvelli á unglingamótaröð GKG, Egils Kristalsmótaröðin, og sló 115 metra með 9-járni í smá hliðarmótvindi. Þetta högg gat ekki verið betra en Óðinn, Særós, Egill og Derrick þjálfari voru með mér þegar ég sló draumahöggið, “ Hvað er það vandræðalegasta sem þú hefur lent í á golfvellinum? „Hvernig ég spilaði á Íslandsbankamótaröðinni á Akranesi – það var bara vandræðalega lélegt.“ Hverjir eru uppáhalds kylfingarnir og af hverju? „Pabbi minn og Tiger Woods. „Tigerinn er skemmtilegur spilari þegar hann kemst í stuð. Pabbi minn er uppáhalds golfarinn minn útaf því ég elska hann. Pabbi er allaf rólegur, missir aldrei skapið og er vanalega með góða einbeitingu.“ Í hvaða skóla ertu og hvernig gengur í náminu?

Dræver: Titleist 913. Brautartré: Titleist 913. Járn: Titleist 913. Fleygjárn: Titleist Vokey SM4. Pútter: Titleist Scotty Cameron GoLo 5. Hanski: Foot Joy. Skór: Ecco.

„Ég er í Garðaskóla og námið gengur bara fínt.“ Hvað æfir þú mikið í hverri viku? „Vanalega æfi ég 6 daga í viku en aðeins minna núna útaf skólanum.“ Hver er uppáhalds golfvöllurinn og hvers vegna? „Cooke völlurinn í Finnlandi og BayHill.“ Hvaða þrjár golfholur á Íslandi eru í sérstöku uppáhaldi hjá þér? „14. í Korpunni (Áin), 17. á Leirdalsvelli hjá GKG og 12. á Jaðarsvelli á Akureyri.“ Hvaða golfholu myndir þú „sprengja“ í loft upp ef þú mættir ráða? „10. og 13. á Leirdalsvelli hjá GKG.“ Hvaða fjórir kylfingar skipa draumaráshópinn að þér meðtöldum? „Tiger Woods, Rory McIlroy og Arnold Palmer.“ Hver eru helstu áhugamál fyrir utan golf? „Mér finnst mjög gaman í fótbolta.“ GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is

M

V

G

O M fö

S


MIKIÐ ÚRVAL AF GRANÍT OG MARMARA

VANDAÐAR BORÐPLÖTUR Á ELDHÚS OG BAÐHERBERGI Gæði, þjónusta, reynsla og ábyrgð

Opnunartími Mánudaga - fimmtudaga kl. 9:00 -18:00 föstudaga kl. 9:00 -17:00 og laugardaga kl 10:00 - 14:00 Smiðjuvegur 48 Kópavogi Sími 557 6677 shelgason.is shelgason@shelgason.is

- Steinsmiðja síðan 1953


FNILEG E G O G UN

r Andrea Ý ttir ó d s m í r g Ás

„ÆFI AÐEINS MINNA Á VETURNA“ Hver er ástæðan fyrir að þú hófst að leika golf? “Amma og afi gáfu mér golfsett þegar ég var 8 ára. Hvað er það sem heillar þig við golf? Útiveran og félagsskapurinn Hverjir eru þínir framtíðardraumar í golfinu? Fara í golfháskóla Hefur þú verið að bæta þig mikið í golfinu á undanförnum árum? Já bætt mig mikið á þessu ári. Hver er þinn helsti kostur og galli í golfinu og hvers vegna? Kostur: keppnisskapið Galli: stuttaspilið Hvað er það sem þú ætlaðir helst að bæta í sumar? Stutta spilið Hvert er eftirminnilegasta atvikið sem þú manst eftir úr golfi? Íslandsmeistaratitlar, í höggleik á Hellu og í sveitakeppni stúlkna með GHD/GA Hvað er það vandræðalegasta sem þú hefur lent í á golfvellinum? Hef ekki lent í neinu vandræðalegu 112

Hverjir eru uppáhalds kylfingarnir og af hverju? Rory McIlroy hann er góður kylfingur Í hvaða skóla ertu og hvernig gengur í náminu? Ég er í Naustaskóla og það gengur mjög vel Hvað æfir þú mikið í hverri viku? Á sumrin fer ég flesta daga upp á völl misjafnt hvað ég æfi lengi, æfi aðeins minna á veturnar Hver er uppáhalds golfvöllurinn og hvers vegna? Istantilla á Spáni ,mér finnst það er skemmtilegur völlur Hvaða þrjár golfholur á Íslandi eru í sérstöku uppáhaldi hjá þér? 10. á Hellu,5. á Akureyri og 15. á Korpunni Hvaða golfholu myndir þú „sprengja“ í loft upp ef þú mættir ráða? 6. á Hlíðavelli GKj Hvaða fjórir kylfingar skipa draumaráshópinn að þér meðtöldum? Rory McIlroy,Stacy Lewis og Tiger Woods Hver eru helstu áhugamál fyrir utan golf? Flestar íþróttir

Staðreyndir: Nafn: Andrea Ýr Ásmundsdóttir. Aldur: 12. Forgjöf: 14,8. Klúbbur: GA. Uppáhaldsmatur: Pizza. Uppáhaldsdrykkur: Vatn. Uppáhaldskylfa: 52°. Ég hlusta á: Flest allt. Besta skor: 84. Rory McIlroy eða Tiger Woods? Rory McIlroy. Strand- eða skógarvellir? Strandvellir. Besta vefsíðan: kylfingur.is. Besta blaðið: Golf á Íslandi. Besta bókin: Engin sérstök. Besta bíómyndin: Engin sérstök. Hvað óttastu mest í golfinu? Reyni að óttast ekki neitt.

Golfpokinn Dræver: Callaway x2 Hot. Brautartré: Callaway x2 Hot. Járn: Callaway x2 Hot. Fleygjárn: Ping. Pútter: Ping. Hanski: Footjoy. Skór: Footjoy.

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is



TIL ÖRYGGIS Í 35 ÁR Á VAKT SÍÐAN 1979 Securitas er leiðandi fyrirtæki í öryggisþjónustu og forvörnum á Íslandi. Viðskiptavinir Securitas hafa í 35 ár sótt öryggi í þá staðreynd að við stöndum vaktina, allan sólarhringinn, alla daga ársins.

VÍÐTÆKT ÖRYGGI Þjónusta Securitas spannar öll svið mannaðrar gæslu og fjargæslu. Við höfum starfsstöðvar víða um landið og 400 starfsmenn Securitas þjóna meira en tuttugu þúsund viðskiptavinum, bæði einstaklingum, smærri fyrirtækjum og flestum stærstu fyrirtækjum landsins.

FJÖLBREYTT ÞJÓNUSTA Allt frá stofnun hefur Securitas lagt metnað í að tvinna saman nýjustu tækni og lipra þjónustu. Öflugt þjónustuframboð og vöruúrval Securitas miðar ávallt að því að efla forvarnir viðskiptavina og draga úr tjóni af öllum toga.


HEIMILISLÍFIÐ Securitas býður fjölbreytta þjónustu fyrir einstaklinga og fjölskyldur sem vilja huga að öryggi sínu: HEIMAVÖRN - beintengdu heimilið við stjórnstöð Securitas

MYNDAEFTIRLIT - góð yfirsýn sem eykur öryggi þitt

SUMARHÚSAVÖRN - njóttu þess að vera heima

SLÖKKVITÆKI - öryggisvörur fyrir heimilið og bílinn

ÖRYGGISHNAPPAR - hugarró fyrir þig og aðstandendur

ATVINNULÍFIÐ Securitas hefur að bjóða öryggiskerfi í fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum en jafnframt sérsniðnar lausnir fyrir mismunandi þarfir: FIRMAVÖRN - sniðin að þörfum þíns fyrirtækis BRUNAVIÐVÖRUNARKERFI smærri og stærri einingar SLÖKKVIKERFI - ásamt öflugri slökkvitækjaþjónustu VÖRUVERND - öryggislausnir sem stöðva þjófnað SKIP OG BÁTAR - öryggisbúnaður og öryggiskerfi á sjó

HEILBRIGÐISLAUSNIR sjúkrakallkerfi, öryggishnappar og umönnunarkerfi GÆSLA - mönnuð gæsla, fjargæsla og forvarnir MYNDEFTIRLIT - myndavélar, vöktun og betri yfirsýn AÐGANGSSTÝRING - fullkomið innbrota- og aðgangsstýrikerfi AKSTURSÞJÓNUSTA - sérþjálfaðir ökumenn og öryggi alla leið

Við hvetjum þig til að skoða hvernig lausnir Securitas geta aukið öryggi þitt og þinna. Kynntu þér þjónustuframboð Securitas á heimasíðu okkar www.securitas.is eða hafðu samband í síma 580-7000.


SÍA •

PIPAR\TBWA

straumurinn lá í golfið í sumar Golfíþróttin er ein vinsælasta íþróttagrein hérlendis og stunduð af fólki á öllum aldri enda frábær fjölskylduíþrótt. Eimskipafélag Íslands hefur lengi staðið þétt við bakið á golfiðkendum og lagt áherslu á að taka þátt í uppbyggingu á forvarnar- og unglingastarfi. Félagið er jafnframt aðalstyrktaraðili Eimskipsmótaraðarinnar sem er stærsti samfelldi golfviðburðurinn á árinu. Eimskip þakkar öllum þeim golfklúbbum sem tóku þátt í að halda mót innan mótaraðarinnar einkar ánægjulegt og gefandi samstarf og vonar að sem flestir kylfingar hafi notið góðra stunda á golfvöllum landsins í sumar.

Eimskip siglir með golfstraumnum

Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.eimskip.is


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.