UNGVIÐIÐ
Í góðu samstarfi við skólasamfélagið GKG og skólar í Kópavogi og Garðabæ hafa byggt upp gott samstarf á undanförnum árum. Sem dæmi hafa Garðaskóli, Vatnsendaskóli og Lindaskóli verið með golfáfanga mörg undanfarin ár sem valgreinar fyrir sína grunnskólanemendur. Einnig höfum við tekið vel á móti nemendahópum og kynnt fyrir þeim golfíþróttina. Inniaðstaðan í Íþróttamiðstöðinni hefur svo sannarlega komið sér vel og gert golfíþróttina mjög áhugaverða fyrir nýja iðkendur, þar sem möguleikarnir á að setja upp skemmtilega golfleiki og þrautir í hermunum eru nær óendanlegir. Einnig höfum við þróað gott samstarf með Menntaskólanum í Kópavogi (MK)
35
og Fjölbrautarskólanum í Garðabæ (FG) en nú er hægt að stunda golf undir handleiðslu þjálfara GKG sem valgrein á afreksbrautum skólanna. Samstarf við MK hófst fyrir ári síðan en við FG núna í haust. Unglingar sem eru að huga að framhaldsnámi og hafa áhuga á að stunda sína íþrótt samhliða náminu eru hvattir til að skoða möguleikana sem MK og FG hafa upp á að bjóða. Það er spennandi valkostur að geta stundað íþróttina sína samhliða námi, bætt árangurinn enn frekar og fengið einingar til náms í leiðinni.