1 minute read

Öldungar 65

Next Article
Stjórn og nefndir

Stjórn og nefndir

Tvöfaldur sigur á Íslandsmótinu!

Advertisement

Nýr kafli var skrifaður í afrekssögu GKG þegar Aron Snær Júlíusson og Hulda Clara Gestsdóttir sigruðu tvöfalt í stærsta móti ársins, Íslandsmótinu í höggleik, sem fram fór á Jaðarsvelli hjá GA. Áður höfðu Sigmundur Einar Másson (Simmi), Birgir Leifur Hafþórsson og Bjarki Pétursson landað Íslandsmeistaratitlum fyrir GKG í karlaflokki, en Hulda Clara er fyrsti sigurvegari frá GKG í kvennaflokki. Sigrar Arons og Huldu eru sérlega sætir af þeim sökum að líkt og Simmi ólust þau upp í barna- og unglingastarfi GKG. Þau eru mikil hvatning hinna fjölmörgu ungu efnilegra kylfinga sem æfa hjá GKG. Hinsvegar, eins og allir vita þá kemur árangur í hæsta gæðaflokki ekki af sjálfu sér. Að baki árangurs Arons og Huldu liggur mikil vinna í mörg ár, þrautseigja þegar á móti blæs, jákvætt hugarfar á æfingum og á velli, góð aðstaða, góð þjálfun og ekki síst stuðningur félagsmanna og aðstandenda.

Öll sú vinna og fjárfestingar í golfvellinum, æfingaaðstöðu, þjálfun ofl., til handa hinum almenna félagsmanni jafnt sem börnum, unglingum og afrekskylfingum, verður margfalt þess virði þegar við sjáum okkar kylfinga ná sínum markmiðum og titlum.

Slíkur árangur frábærra fyrirmynda eins og Huldu Clöru og Arons Snæs fylla okkur miklu stolti!

Áfram GKG!

Enski boltinn

eins og hann á að vera

This article is from: