8. april 2011

Page 43

 Vik an sem var Leðjuslagur? „Kosinn formaður Félags leikskólakennara“ Haraldur F. Gíslason hefur verið kosinn nýr formaður Félags leikskólakennara. Haraldur hefur starfað sem leikskólakennari í mörg ár, en hann er einnig þekktur fyrir að vera trommuleikari hljómsveitarinnar Botnleðju. Styttist í fermingaraldurinn „Fólksbílaflotinn ekki verið eldri síðan 1990“ Meðalaldur skráðra fólksbíla var tæp ellefu ár í fyrra. Hefur hann ekki verið hærri frá árinu 1990.

85 ára

eg á hverjum d i u g ö s ð i - kemur v

Loksins sannir útrásarvíkingar „Skólahreysti í útrás til Finnlands“ Sigurliðinu í Skólahreysti 2011 verður boðið á Your Move-íþróttamótið í Finnlandi í lok maí og munu íslensku unglingarnir keppa þar við lið 14 finnskra skóla. Það þarf ekkert að ræða um býflugurnar og blómin „Á punginn á Friðriki“ Auður Karen Auðbjörnsdóttir er nýorðin sex ára. Hún á tíu hesta og sér sjálf um að þjálfa suma þeirra, meðal annars stóðhestinn Friðrik sem er í sérstöku uppáhaldi hjá henni. Hún segist eiga á honum punginn, því hún fær að eiga eitt folald undan honum. Forða oss frá illu „Lögreglan minnir á bingóbann um páskana“ Skemmtanir, svo sem dansleikir eða einkasamkvæmi á opinberum veitingastöðum eða á öðrum stöðum sem almenningur hefur aðgang að, eru bannaðar á ákveðnum tíma um bænadaga og páska. Hið sama gildir um opinberar sýningar og skemmtanir þar sem happdrætti, bingó eða önnur spil fara fram. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni sem minnir á umrætt bann. Hversu margir í Bretlandi og Hollandi? „Um 5% kjósenda eru með erlent lögheimili“ Kjósendur með lögheimili erlendis í kosningunum um Icesave á laugardaginn eru 11.608 eða 5,0% heildarinnar. Vildi enginn hina Selfosshnakkana? „10 hnökkum stolið á Selfossi“ Lögreglunni á Selfossi hafa engar vísbendingar borist um hver eða hverjir brutust inn í tvö hesthús á Selfossi í fyrrinótt þar sem tíu hnökkum var stolið ásamt nokkrum beislum og reiðhjálmum.

Nýttu tækifærið og njóttu. 2 fyrir 1 af Póló súkkulaðikexi Póló súkkulaðikex hefur verið framleitt frá 1960 og hefur því verið á borðum Íslendinga í yfir fimmtíu ár! Kexverksmiðjan Frón var stofnuð 12. júní 1926 og heldur því upp á 85 ára afmæli á árinu. Frón Matarkexið á þar heiðurssæti þar sem það hefur verið með frá upphafi og var fyrsta íslenska kextegundin. Þá hefur Mjólkurkexið verið á borðum Íslendinga í yfir fimmtíu ár.

www.fronkex.is


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.