
2 minute read
1.1. Ákall samtímans
1. KAFLI KENNARAR Á TÍMUM AÐKALLANDI, HNATTRÆNNA OG FLÓKINNA ÁSKORANA
1.1. ÁKALL SAMTÍMANS Starf kennara er meðal mikilvægustu starfa þjóðfélagsins. Hlutverk kennara spannar vítt svið eins og kennslu, uppeldi, ráðgjöf og þróunarstarf. Kröfur sem eru gerðar til kennara eru því margvíslegar. Þeir þurfa ekki einungis að hafa góða þekkingu á málefnum kennslunnar heldur búa yfir ýmiss konar hæfni og jákvæðum eiginleikum til þess að stuðla m.a. að umburðarlyndi, jafnrétti, lýðræðislegum vinnubrögðum og menntun nemenda á einstaklingsmiðaðan hátt við fjölbreyttar og krefjandi aðstæður. Almenn menntun á að stuðla að aukinni hæfni einstaklings til að takast á við áskoranir daglegs lífs og að leysa hlutverk sín í flóknu samfélagi.
Advertisement
Þegar mannkynið stendur frammi fyrir svona stórum og flóknum áskorunum á borð við loftslagsvána, tap á líffræðilegri fjölbreytni og að framfylgja sjálfbærri þróun blasir við ný staða hjá kennurum af áður óþekktri stærð og vægi sem þeir þurfa að vinna með. Góðir og vel upplýstir kennarar eru gulls ígildi og geta jafnvel verið lykillinn að lausnum á þessum stóru vandamálum. Menntun verður að laga sig að áskorunum hvers tíma til þess að gera kennurum kleift að mennta upplýsta einstaklinga sem búa yfir getu til aðgerða og hafa tæki og tól til að fást við áskoranir samtímans. Mikið þróunarstarf hefur átt sér stað bæði á alþjóðlegum og innlendum vettvangi til að svara þessu ákalli m.a. með þróun á menntun til sjálfbærni. Og kennarar eru stoltir lykilaðilar að því að raungera þessa mikilvægu þróun í daglegri kennslu. Risastórt, aðkallandi, flókið, hnattrænt og ógnandi málefni: Í skólum er framtíðin, kynslóðin sem mun taka við þegar fram líða stundir. Framtíðin er eins og alltaf óskrifað blað nema að núna vitum við að framtíð mannkyns á Jörðinni er í hættu vegna loftslagsbreytinga og alvarlegrar hnignunar vistkerfa. Og það erum við sjálf, mannkynið, sem erum ógnvaldurinn að eigin framtíð. Miklar breytingar þurfa að eiga sér stað í samfélögum okkar ef við ætlum að ná að leiðrétta þessa stefnu og bjarga mannkyninu, sem og öllum hinum Sérhver gáfaður rugludallur getur gert hlutina stærri og flóknari. Það þarf snilligáfu og heilmikið hugrekki til að fara í gagnstæða átt.
– ALBERT EINSTEIN –
lífverunum sem við deilum Jörðinni með, fyrir horn. En hingað til virðumst við vera föst í viðjum vanans og höldum áfram óbreytt eins og ekkert væri. Tíminn er naumur og á meðan við, núverandi kynslóð fullorðinna, ræðum um nauðsynlegar breytingar frekar en að framkvæma þær, þurfum við að mennta nýja kynslóð á þann hátt að hún verði í stakk búin að finna nýjar leiðir, nýtt kerfi, nýja hugsun, nýjar stefnur og lausnir. Ekki síður um það hvernig mannkynið getur aðlagast og glímt við þær afleiðingar loftslagsbreytinga sem ekki er lengur hægt að afstýra. Menntun nýrrar kynslóðar getur því verið með mikilvægari tækifærum þess að mannkyninu takist að finna leið úr þessum ógöngum sem það er búið að koma sér í. Kennarar eru í lykilstöðu.
Áskoranirnar sem við verðum að takast á við eru flóknar, málin eru samofin og krefjast þverfaglegrar og heildstæðrar hugsunar. Vandamálin snerta heiminn allan, loftslagsbreytingar og tap á líffræðilegri fjölbreytni virða ekki manngerð landamæri. Vegna þess og vegna hnattvæðingar dugar ekki að hugsa einungis um málefnin í samhengi eigin lands eða svæðis heldur þurfum við að tileinka okkur hnattræna vitund eða alheimsvitund . Eins þurfum við að skilgreina okkur aftur sem hluta af náttúrunni og ekki bara á grunni þekkingar heldur einnig tilfinningalega, við verðum að staðsetja okkur sjálf aftur innan náttúrunnar.