1 minute read

MULTIS

MULTIS FJÖLFELDI - HLUTFELDI - MARGFELDI

Að geta búið til fleiri en eitt eintak af sama verki hefur lengi fylgt listamannshefðinni Margir myndlistarmenn hafa reynt sig við formið sem býður upp á annarskonar möguleika en hið einstaka verk, og er einhverstaðar á rófi á milli myndlistar og framleiðsluafurðar Verk sem unnin eru í fjölriti eru verðlögð á annan hátt, eru ódýrari og þar með gerð aðgengileg fyrir stærri hóp til eignar Verkið fer af stalli hins einstaka og verður hlutur (object) sem fleiri en einn getur átt, eru gjarnan smærri, og staðfesta gildi sitt ekki einungis með því að vera verk eftir ákveðinn listamann, heldur einnig með því að vera tölusett og áritað eintak og þá orðið hluti af stærri sögn,

Advertisement

narrativi sem er mikilvægt fyrir þann sem eignast verkið

Á sýningunni FJÖLFELDI - HLUTFELDI - MARGFELDI er sjónum beint að verkum tuttugu og átta samtímalistamanna sem hafa til lengri eða skemmri tíma unnið að gerð fjölfelda (Multiple) Til þess að listaverk geti fallið undir þá skilgreiningu þurfa verkin að vera gerð í þremur eða fleiri eintökum

Orðið HLUTFELDI kemur úr orðasmiðju Magnúsar Pálssonar en á sýningunni má finna flest af þeim verkum þar sem hann vinnur með þessum hætti Á sýningunni má finna þau verk Magnúsar sem enn eru til í fórum listamannsins og fjölskyldu hans en mörg af verkum hans eru nú í eigu safna eða í einkaeigu

Önnur verk á sýningunni eru unnin í samtali við MULTIS verkefnið yfir tveggja ára tímabil

Frekari upplýsingar er hægt að finna á vefsíðu MULTIS: multis is

This article is from: