Fablab Selfoss - Ársskýrsla 2021

Page 1

FABLABSELFOSS ÁRSSKÝRSLA 2021

FabLab smiðjur eru samstarfsnet smiðja sem eru búnar tækjum og tólum til þess að stunda nýsköpun. Þær eru frábær

vettvangur til nýsköpunar þar sem sköpunarfærni, -kjarkur og -kraftur eru leystir úr læðingi. Þar er nemendum og almenningi veittur aðgangur að nýjustu tækni og verkþekkingu í hönnun og sköpun.

FabLab Selfoss er staðsett í verknámshúsi Fjölbrautarskóla Suðurlands/ Hamri, þar sem smiðjan sinnir jafnt nemendum skólans sem og grunnskólanemum í Ársnessýslu ásamt öllum almenningi.

Í FabLab smiðjum fer fram þjálfun á færni sem nýtist atvinnulífinu og skapar samkeppnishæfara samfélag. FabLab smiðjur eru mikilvægar menntakerfinu og efla áhuga og færni í raungreinum ásamt verk- og tæknigreinum.

FabLab smiðjan á Selfossi hefur unnið sér sess í samfélaginu þar sem tilvist hennar gerir fólki kleift að virkja

sköpunarkraftinn, þróa nýsköpunarhugmyndir og efla tæknilæsi sitt.

FabLab Selfoss er samstarfsverkefni Héraðsnefndar Árnesinga, Fjölbrautaskóla Suðurlands, Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Háskólafélags Suðurlands og Atorku – félags atvinnurekenda á Suðurlandi. Auk þess hefur nýverið verið gerður samningur við Menntamálaráðuneyti annarsvegar og Atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti hins vegar sem koma með góðan stuðning inn í smiðjuna.

Markmið FabLab er að efla nýsköpun í samfélaginu. Til að ná markmiðum er lögð áhersla á að efla nýsköpun í menntun, styðja við vöruþróun fyrirtækja og hlúa að nýjum hugmyndum hjá fólki á öllum stigum samfélagsins. FabLab myndar þannig skemmtilegt skapandi samfélag með fjölbreyttum hópi fólks sem á það sameiginlegt að vera forvitið, lausnamiðað og hafa þor til að prófa.

ÁRSSKÝRSLA2021 SÍÐA3

Árið 2021 var litað af því ástandi sem skapaðist vegna covid19, líkt og árið 2020. Þrátt fyrir það náðist að halda smiðjunni gangandi eins og sést þegar litið er yfir árið í eftirfarandi samantekt. Mikið hefur verið rætt um hnignandi þátttöku ungs fólks í iðn-, verk- og tækninámi og hefur FabLab smiðjan það sem eitt af sínum markmiðum að vekja áhuga á þess

háttar námi með því að tengja betur

ýmislegt þvert á greinar og því má segja að smiðjan sinni ákveðnu

forvarnastarfi. Grunn- og

framhaldsskólar eru með fasta tíma inni í smiðjunni en auk þess hafa

Fræðslunet Suðurlands og Birta

Starfsendurhæfing verið með námskeið í smiðjunni ásamt því sem boðið hefur verið upp á opna tímar og námskeið fyrir almenning og fyrirtæki.

FabLab smiðjurnar eru mikilvægur þáttur til þess að stuðla að virkri þátttöku landsins í fjórðu iðnbyltingunni með

skilvirkri þjálfun nemenda, atvinnulífsins og þróun nýrrar tækni og miðlun þekkingar.

ÁRSSKÝRSLA2021 SÍÐA4
STARFSEMIN 2021

RAUTASKÓLI RLANDS/FSu

Árið 2021 fór vel af stað í FSu. Fablab Selfoss hefur boðið uppá tvo Fablab áfanga fyrir nemendur FSu. Mikilog góð ásókn var í Fablab áfangana tvo sem kallast Nýsköpun og miðlun eða NÝMI2FL05 og í framhaldsáfangann NÝMI3HF05 sem var

kenndur í fyrsta skipti árið 2020 og hefur verið kenndur samhliða grunnáfanga og eru báðir áfangar í boði á vor- og

NSKÓLAR SÝSLU

Það er misjafnt milli skóla hversu miklum tíma þeir verja í smiðjunni. Vallaskóli á Selfossi býður uppá FabLab val a nemendur Þaðan komu tveir góðir hópar seinnipart tu þeir fasta tíma á þriðjudögum í smiðjunni og voru vel nýttir í vetur milli covid lokana.

ækjaskóli á Selfossi átti fasta tíma á föstudögum í vetur hann meðal annars til þess að framleiða kjörkassa fyrir ar í skólanum ásamt bolum á kjörstjórnina.

i í Flóahreppi nýtti smiðjuna einnig vel og kom Ragnar nnari reglulega með nemenda hópa ásamt Eyjólfi kennara en hann hefur undanfarið þróað verkefni sem t á þverfaglegt samstarf tónlistar, þjóðfræði og na sem endar með því að nemendur í 5.bekk hanna og t eigið Langspils hljóðfæri í Fablab.

óli á Hvolsvelli kom í heimsókn með áhugasama ur og kynnti sér smiðjuna en vonir standa til að hægt ná til skóla utan Árnessýslu þegar covid ástandinu líkur.

ólar í Árnessýslu komu svo í styttri heimsóknir auk þess din voru nokkur stutt kennaranámskeið fyrir skólana

ÁRSSKÝRSLA2021 SÍÐA5

ALMENNUR OPNUNARTÍMI

Tvisvar í viku eru fastir tímar þar sem almenningur getur komið og fengið aðstoð við útfærslu, ráð um hinar ýmsu lausnir og aðstoð við að raungera hugmyndir sínar. Þar fyrir utan er öllum velkomið að líta við á opnunartíma

smiðjunnar og reyna starfsmenn þá að aðstoða eftir getu. Þetta er lykilþáttur í því að virkja og tengja smiðjuna við samfélagið.

ÁRSSKÝRSLA2021 SÍÐA6

SemfyrrhefurFabLabSelfossátt ímörgugóðusamstarfiviðaðilaá svæðinusemogutanþess.

SAMSTARFSVERKEFNI OG SAMSTARFSAÐILAR
ÁRSSKÝRSLA2021 SÍÐA7

ra samningur við uneytið og hins vegar neytið en þessir ingur inn í smiðjuna. haldandi öflugt starf

HÍ/

MENNTAVÍSINDASVIÐ

Unnið er að undirbúningi starfsþjálfunarverkefni fyrir kennara sem fara mun fram í FabLab smiðjum víðsvegar um landið og stefnt að því að sú þjálfun verði metin til eininga í námi á Menntavísindasviði HÍ.

SAMSTARFVIÐ

VÍSINDAGARÐA

Hugmyndir um uppbyggingu Super FabLab smiðju við Vísindagarða hafa verið kynntar og áframhaldandi samstarf er fyrirhugað við þróun hugmynda um uppbyggingu Djúptæknikjarna.

ÁRSSKÝRSLA2021 SÍÐA8

FRÆÐSLUNETSUÐURLANDSOG

BIRTASTARFSENDURHÆFING

Samstarfi við Fræðslunet Suðurlands – símenntunarmiðstöð og Birtu starfsendurhæfingu var haldið áfram árið 2021. Í byrjun júní var haldið námskeið sem stóð yfir í þrjár vikur og var alls 12 tímar, kennt tvo daga í viku. Námskeiðið var kennt á ensku fyrir og var erlenda atvinnuleitendur á svæðinu. Þetta samstarf er þýðingarmikið fyrir bæði smiðjuna og áðurnefnda samstarfsaðila þar sem það byggir upp þekkingu og færni hjá hópi fólks sem ekki hefur fundið sér farveg annarstaðar, og eykur sjálfstraust til þess að takast á við nýjar áskoranir.

FABLABÍSLAND

FabLab Selfoss er í miklu og virku samstarfi við báðar hinar sunnlensku FabLab smiðjurnar, í Vestmannaeyjum og á Höfn, en einnig er mjög virkt samstarf milli smiðjanna allra á landsvísu. Vikulegir fjarfundir voru haldnir alla miðvikudaga en það samstarf er nauðsynlegt fyrir þróun og uppbyggingu innra starfs smiðjunnar.

Fablab Bootcamp er haldið einu sinni á ári þar sem fulltrúar frá öllum smiðjunum koma saman vinna í stefnumótun, endurmenntun og hópefli og var það að þessu sinni haldið í Fablab smiðjunni á Höfn í Hornafirði. Hópurinn dvaldi í fjóra daga og mættu fulltrúar frá 8 smiðjum alls 15 manns. Reglubundnir samstarfsfundir norrænu FabLab smiðjanna eru í hverjum mánuði og stjórn norrænu FabLab smiðjanna hittist tvisvar í mánuði þar sem þekkingu er miðlað milli smiðja og farið yfir starfsemina. Árlega er jafnframt staðið fyrir norrænu bootcamp sem haldið er í mismunandi FabLab smiðjum á Norðurlöndunum. Vegna covid ástandsins fór enginn starfsmaður FabLab Selfoss á þennan viðburð árið 2021.

NETNORRÆNUFABLABSMIÐJANNA

ÁRSSKÝRSLA2021 SÍÐA9

SAMSTARFMILLI DEILDAÍFSU

Samstarf var aukið til muna á milli deilda í verknámshúsi FSu – Hamri. Má þar helst nefna að Rafiðnaðar deildin

nýtti sér tækni Fablab smiðjunnar og þá sérstaklega fræsivél til prentplötugerðar og hætti í kjölfarið að nota sýrubað sem er úreld óumhverfisvæn leið til að búa til prentplötur.

Einnig nýttu þeir sér nýju Shopbot CNC vél smiðjunnar til að fræsa út álkassa sem er svo settur saman í rafdeildinni og utan um aflgjafa sem er eitt af nemendaverkefnum annarinnar, ásamt því að vínilskeri var notaður til að gera merkingar utan á kassann.

Það er alltaf gaman þegar unnið er þvert á fög. Í

meðfylgjandi myndbandi eru það málmsmíðin og FabLab í FSu sem taka saman höndum. Nemandi í málmsmíði notaði laserskera FabLab til þess að merkja verkfærakistu sem hann smíðaði. Mjög flott útkoma á alla vegu og glæsilegur gripur.

HÉRMÁSJÁMYNDBANDAFFERLINU

FSu hefur undanfarin ár unnið að umhverfismálum í starfi skólans og tekur þátt í verkefninu Græn skref í ríkisrekstri og er Grænfánaskóli.

Nýverið ákvað skólinn í samráði við umhverfisnefnd að gefa öllu starfsfólki vatnsbrúsa Hugsunin er að fólk sé með brúsana í vinnunni og að það ýti undir vatnsdrykkju og minnki uppvask og vinnu.

Brúsarnir voru svo merktir í Fablab smiðjunni og útkoman er mjög skemmtileg. Sannkallað innanhúsverkefni sem eykur hollustu og sparar orku.

ÁRSSKÝRSLA2021 SÍÐA10

ASMUS+ DULTSONTHEMOVE

Lab Selfoss er þátttakandi í áhugaverðu Erasmus+ puverkefni. Verkefnið gengur út á að styðja við fólk í atvinnuleit sem hefur áhuga á stafrænni ningu og vill nýta sér þann áhuga til þess að efla vinnumarkaðinum og gera sig hæfari til þátttöku rænum veruleika nútímans.

efnið var þróað til að styðja við ungt atvinnulaust á aldrinum 16-29 ára sem hafa fagleg tengsl við ningar- og skapandi geira og/eða hafa faglegan a á stafrænni menningu og tækni.

ð verkefnisins er að þróa og prófa og verkfæri sem munu veita ungu fólki sjálfbær námstækifæri varðandi

i. Þetta mun hjálpa við að auka i og hæfni sem nauðsynleg er til að gera ð meira aðlaðandi starfskrafti á nútíma , og takast þannig á við atvinnuleysi

omu samstarfsaðilarnir til Íslands á

innufund en þeir eru frá Noregi, Grikklandi. Að vinnufundi loknum var ngarfundur á FabLab og fengu þeir að

iðjan hefur uppá að bjóða

NÁNARMÁLESAUMVERKEFNIÐHÉR:

ÁRSSKÝRSLA2021 SÍÐA11

HREIÐRIÐ FRUMKVÖÐLASETUR

FabLab Selfoss er stoltur samstarfsaðili Hreiðursins sem er frumkvöðlasetur, staðsett í Fjölheimum á Selfossi.

Tilgangur Hreiðursins er að styðja við og efla frumkvöðla á Suðurlandi. Auka þekkingu og vitund þeirra á sviði nýsköpunar, vöruþróunar og markaðsmála og fjölga þannig vel skilgreindum og mótuðum verkefnum á svæðinu. Slíkt gerir frumkvöðlana jafnframt hæfari til þess að sækja sér fjármagn, hvort sem er í gegnum samkeppnis- og/eða vísisjóði, sem og aðrar fjármögnunarleiðir. Markmiðið er að til verði nýjar vörur og/eða þjónusta hjá

frumkvöðlum á Suðurlandi ásamt fjölgun starfa á svæðinu.

Í Hreiðrinu er boðið upp á vinnuaðstöðu ásamt handleiðslu ráðgjafa sem mótuð er út frá þörfum frumkvöðulsins. Nokkrir frumkvöðlar geta starfað í Hreiðrinu á sama tíma og njóta því einnig jafningjastuðnings. Frumkvöðlar geta jafnframt nýtt sér ráðgjöf og þjónustu FabLabsins og ráðgjafa þess til þess að þróa og móta sínar vörur.

NÁNARIUPPLÝSINGARUMHREIÐRIÐMÁFINNAHÉR:

ÁRSSKÝRSLA2021 SÍÐA12

ÖNNUR VERKEFNI OG

KYNNINGAR

Mikilláhugihefurveriðásmiðjunninú semáður,envegnacovidlokanahefur veriðerfiðaraaðtakaámótihópumá þessuárienoftáður.Íjúníkomuþófjórir stórirhóparafframhaldskólakennurumí heimsóknogkynntusérsmiðjunaaf miklumáhuga.Einniglitunokkur

skemmtilegsamstarfs-ogþróunarverkefni dagsinsljósogmáþarhelstnefnaþau tvösemhlutuhvaðmestaathygli almennings

ÁRSSKÝRSLA2021 SÍÐA13

GAGNAMAGNIЖHLJÓÐFÆRASMÍÐI FYRIREUROVISION

Daði Freyr og Árný úr Gagnamagninu komu í Fablab Selfoss og nýttu sér smiðjuna til að búa til hluta af þeim hljóðfærum sem þau tóku með sér Eurovision keppnina 2021. Meðal þess sem þau útbjuggu var lykla/pínaóborðið ásamt öllum tökkunum sem því fylgdu Óhætt er að segja að hljóðfærin hafi komið glæsilega út á stóra sviðinu í Eurovision.

UMFJÖLLUN:RUVFRÉTT

FABLABLANGSPIL-NÝSKÖPUNAROG ÞRÓUNARVERKEFNI

Áðurnefnt langspilssmíðaverkefni Eyjólfs Eyjólfssonar, þjóðfræðings og söngvara sem hefur verið í gangi síðastliðin þrjú ár í Flóaskóla fyrir nemendur í 5 Bekk, fékk loksins á sig endanlegt efnislegt form, en verkefnið tengir saman nám í tónlist, þjóðfræði og handverki ásamt stafrænni hönnun og framleiðslu, þar sem nemendur tóku þátt í að hanna sín eigin langspil í tölvu og láta laser skera þau út í FabLab verkstæðinu á Selfossi. Þetta verkefni hefur hlotið mikla athygli þar sem áðurnefnd tenging milli ólíka námsgreina leikur lykil hlutverk.

MEÐFYLGJANDIMYNDSKEIÐSÝNIRÞENNANFRÁBÆRAAFRAKSTUR

Með þessu verkefni er verið að tengja saman nám í tónlist, þjóðfræði og handverki ásamt stafrænni hönnun og framleiðslu. Má því segja að hér sé um þverfaglega kennslunálgun að ræða. Í tilefni

lokatónleikanna fengu nemendurnir að bjóða til sín gestasöngvara og fyrir valinu varð að sjálfsögðu Páll Óskar Hjálmtýsson enda fáir sem eiga sinn líkan þegar kemur að því að ná til fólks á öllum aldri. Þess má geta að langspilssmíðaverkefnið hefur fengið framhaldslíf en til stendur að Félag tónmenntakennara haldi námskeið fyrir áhugasama kennara þar sem aðferðafræði verkefnisins verður kennd auk er verið að útfæra verkefnið sem námsefni fyrir nemendur í listkennsludeild við Listaháskóla Íslands

FRÉTTÍMANNLEGAÞÆTTINUMÁRÚV / LANDINN

ÁRSSKÝRSLA2021 SÍÐA14

Vinna við breytingar hófst eftir lok vorannar 2020 í FSu og kláruðust fyrripart árs 2021. Við þessa nauðsynlegu breytingu var hægt að koma bæði nýja CNC fræsaranum og laserskurðarvél smiðjunnar fyrir í sér rými og stækkaði það smiðjuna um ca. 40 fermetra auk þess sem nú er hægt að loka af þessum rýmum. Samhliða þessu var farið í að laga alla loftræstingu, rafmagn og tölvulagnir smiðjunnar og er því öll mengandi starfsemi (hljóð og lykt) farin út úr kennslurýminu. Þetta gerir það janframt að verkum að öll helstu grunntæki og aðbúnaður eru nú til staðar til þess að smiðjan geti kallast fullburða Fablab smiðja.

Nýr og fullkomin Shopbot CNC fræsari var keyptur í smiðjuna og þurfti því að ráðast í breytingar á húsnæðinu. Eftirfarandi tillögur fengust samþykktar til stækkunar

á rými smiðjunnar þar sem nýtt var rými sem áður hafði verið hugsað sem ruslageymsla.

AÐRIRTENGLAR

WWW FABLAB IS

FABLAB SELFOSS - FACEBOOK

FABLAB SELFOSS - INSTAGRAM

ÁRSSKÝRSLA2021 SÍÐA15
HÚSNÆÐI OG TÆKI
HEILDARFJÖLDI 2.979 Fjölbrautarskólinn 1180 Grunnskólar 920 Opiðhús 310 Námskeið 288 Aðrarheimsóknir 180 Þróun 101 REKSTRARKOSTNAÐUR ÁRSSKÝRSLA2021 SÍÐA16 WWW FABLAB IS FABLAB SELFOSS - FACEBOOK FABLAB SELFOSS - INSTAGRAM
Mennta- og barnamálaráðuneytið 4.000.000 Háskóla- iðnaðar og nýsköpunarráðuneytið 4.000.000 Héraðsnefnd Árnesinga 6.000.000 Fjölbrautaskóli Suðurlands 4.000.000 Sértekjur 596.000 Tekjur alls 18.596.000 Laun og launatengd gjöld 10.269.243 Gjaldfærðir lausafjármunir 2.189.591 Annar kostnaður 1.925.094 5% umsjónakostnaður HfSu 719.196 Gjöld alls 15.103.124 HEIMSÓKNIR Afkoma ársins 2022 3.492.876
2021

MagnusStephensenMagnússon

ÁRSSKÝRSLA2022
ÁRSSKÝRSLA2021
STYRKTARAÐILAR
FABLABSELFOSS WWW FABLAB IS FABLAB SELFOSS - FACEBOOK FABLAB SELFOSS - INSTAGRAM
magnus@flsis Forstöðumaður:
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.