Grundarfjörður

Page 1

Grundarfjörður Ljósmyndir og fróðleikur Samantekt Eiríkur Grímsson


Grundarfjörður er bær á norðanverðu Snæfellsnesi á Íslandi, í miðjum firði umkringdur fjöllum, en vestanmegin við hann liggur Kirkjufell. Bærinn er á milli Stykkishólms og Ólafsvíkur. Helstu atvinnuvegir í Grundarfirði eru sjómennska og fiskvinnsla. Skipaumferð hefur aukist til muna á Grundarfirði, enda þykja Grundarfjarðarhöfn og fjörðurinn sjálfur með eindæmum skjólgóð. Viðlegukantur norðurhafnarinnar var stækkaður árið 2002. Íbúar í Grundarfirði eru um 900. Grundarfjörður hefur verið mikilvægur verslunarstaður í margar aldir, og er það bæði því að þakka að bærinn býr yfir góðri höfn sem og legu hans mitt á Snæfellsnesinu. Elstu heimildir um verslun á Grundarfirði eru frá landnámsöld þegar skip komu í Salteyrarós (sem að öllum líkindum er þar sem nú á tímum heitir Hálsvaðall vestur við Kirkjufell). Á þessu svæði er margar fornminjar að finna, sem gefur til kynna mikil umsvif á víkingaöld. Grundarfjarðarkaupstaður var forn kaupstaður sem stóð á Grundarkampi við botn fjarðarins og hafa þar fundist rústir frá ýmsum tímum. Verslun þar jókst verulega á 15. öld og eftir einokunarverslunina óx Grundarfirði fiskur um hrygg og var verslunarstaðurinn löggiltur sem einn af sex fyrstu kaupstöðum landsins með lagasetningu árið 1786. Þá var Grundarfjarðarkaupstaður gerður að höfuðstað Vesturamtsins og átti að vera miðpunktur verslunar og þjónustu í amtinu. Þessi lög voru einkennileg vegna þess að ekki mátti stunda verslun í vesturamti nema hafa borgararéttindi í Grundarfirði. Fyrsti skipulagsuppdráttur á Íslandi og líklega sá eini hérlendis byggður með borgarskipulagi er af Grundarfjarðarkaupstað. Finna má merki um þessa byggð á Grundarkampi.

Kirkjufell


Horft yfir höfnina í Grundarfirði. Kirkjufell í baksýn

Höfnin í Grundarfriði


Kirkjan í Grundarfirði

Kaffi 59


Leiksk贸linn

G枚tumynd


Verslanir

Horft til Grundarfjarรฐar


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.