40.tbl_2011

Page 13

13

VÍKURFRÉTTIR • FIMMTudagurinn 13. OKTÓber 2011

Fjóla Benediktsdóttir fæddist á Þórkötlustöðum í Grindavík 17. janúar 1921. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi þann 27. september 2011. Hún var dóttir Benedikts Benónýssonar frá Þórkötlustöðum í Grindavík, f. 21. júlí 1894, d. 29. júní 1953 og Magnúsu Aðalveigar Ólafsdóttur úr Grindavík, f. 23. september 1902, d. 26. október 1987. Systkini Fjólu eru: Þórlaug, f. 25 apríl 1923, látin 19. september 2001, Ólöf, f. 14. mars 1927, látin 24. september 2007, Benóný, f. 28. maí 1928, Jóhann Ragnar, f. 14. nóvember 1930, Ólöf Sigurrós, f. 3. október 1934 og Elsa, f. 20 mars 1938. Foreldrar hennar voru bæði með búskap og útróðra ásamt Guðmundi bróður Benedikts og Sigríði systur Magnúsu og bjuggu þau alla tíð í sama húsi á Þórkötlustöðum og átti hún góða æsku með þeim. Fjóla vandist allri vinnu frá unga aldri og fór í vist til Reykjavíkur. Hún lauk barnaskólaprófi og fór síðan að læra matreiðslu á hótel Skjaldbreið í Reykjavík. Fjóla giftist Ingólfi Eyjólfssyni, þau slitu samvistir. Fjóla eignaðist eina dóttur, Ingibjörgu, f. 26. nóvember 1940, maki Pétur Þórarinn Þórarinsson, f. 28. júlí 1933. Fjóla eignaðist fjögur barnabörn og sjö barnabarnabörn sem hún lifði fyrir. Þau eru: Fjóla, f. 20. nóvember 1959. Þórarinn, f. 25. febrúar 1965. Maki Þóra Hafsteinsdóttir, börn þeirra eru Ingibjörg Þóra og Klara Lind. Benedikta, f. 16. desember 1966. Maki Haukur Ingi Jónsson, börn þeirra eru Pétur Ingi og Helga Ósk. Ólafur, f. 7. febrúar 1972. Maki Lára Sif Jónsdóttir, börn þeirra eru Jón Smári, Ólöf Rut og Viktoría Fjóla. Fjóla fluttist til Keflavíkur 1941 og bjó þar alla tíð síðan. Hún vann alla almenna vinnu í fiski, síld og saltfiski. Hún vann við afgreiðslustörf stærstan hluta ævi sinnar, mest í versluninni Eddu í Keflavík. Hún starfaði með öldruðum í mörg ár þangað til heilsan fór að gefa sig og tómstundastarfið fluttist á Nesvelli. Útför Fjólu Benediktsdóttur fór fram frá Keflavíkurkirkju 7. október 2011, kl. 13. og það vissi hún og gerði hún því handa mér og fjölskyldu minni og systkinum marga fallega jólalampa og ýmislegt jólaskraut sem skreytir heimili okkar um hver jól. Ég hef alltaf verið stoltur af og þótt vænt um verk hennar og munu þau halda á lofti minningu hennar um ókomna tíð. Þann 3. febrúar 2010 fæddist okkur Láru Sif dóttir sem fékk nafnið Viktoría Fjóla í höfuðið á langömmu sinni. Fjóla amma var yfir sig stolt af litlu nöfnu sinni og að sjálfsögðu mætti hún í skírnina þrátt fyrir háan aldur og eigum við fallegar myndir af Fjólunum okkar þremur á þessum fallega degi. Amma Fjóla átti 4 barnabörn og 7 barnabarnabörn sem hún fylgdist vel með og var mjög stolt af og voru þær ófáar myndirnar af þeim sem prýddu íbúðina hennar á Ásabrautinni. Amma lenti í alvarlegu bílslysi árið 1997 og var marga mánuði á spítala en hún hristi það af sér enda líkamlega vel á sig komin. Hún varð þó aldrei alveg söm og fyrir slysið. Amma Fjóla hélt fullri heilsu lengstan hluta ævi sinnar og bjó ein á Ásabrautinni þar til fyrir rúmlega ári síðan að hún flutti á hjúkrunarheimilið Garðvang þá 89 ára gömul. Þann 17. janúar 2011 hélt hún upp á 90 ára afmælið sitt með allri fjölskyldu sinni og áttum við góða stund saman. Ég verð alltaf þakklátur fyrir mánudaginn 26. september þegar ég kom til ömmu og átti með henni notalega stund og kvaddi hana, morguninn eftir hringdi mamma svo í mig og sagði að hún hefði kvatt þennan heim á hljóðlegan og kyrrlátan hátt. Að leiðarlokum langar mig til að þakka Fjólu ömmu fyrir allar þær góðu og yndislegu stundir sem ég og mín fjölskylda áttum með henni. Minning um góða konu mun ávallt lifa með mér. Blessuð sé minning hennar. Guð blessi þig amma mín. Elsku mamma, pabbi, Fjóla, Tóti, Benný og fjölskyldur megi Guð styrkja ykkur og hugga á þessum erfiðu tímum. Missir okkar er mikill. Þinn dóttursonur Ólafur Pétursson.

Seldu bjór í stað léttöls

H

ver kannast ekki við allar dulbúnu áfengisauglýsingarnar frá bjórframleiðendum, þar sem orðinu „léttöl“ er bætt aftan við auglýsinguna. Léttölið er síðan selt úti í næstu sjoppu en sterkari drykkurinn í Ríkinu. Söluturn einn á Suðurnesjum var hins vegar með bjór til sölu á dögunum. Söluturninn hafði fengið sendingu frá framleiðanda og í sakleysi sínu var dósum af því sem talið var vera Víking léttöl raðað í kælinn. Fljótlega komu þó upp vandræði með strikamerkið á vörunni, enda var það ekki til í sölukerfi verslunarinnar. Fljótlega varð starfsfólkinu þó ljóst að þarna var um alvöru bjór að ræða en ekki léttöl. Fjórar dósir höfðu verið seldar og því einhverjir sem hafa fundið fyrir óvenju miklum áhrifum af léttölinu þann daginn.

GOTT FYRIR BÍLINN Black&Decker háþrýstidæla 110 bar

Ryk/blautsuga 15 lítrar HKV 1000w

18.900,-

15.900

1400W 360 min/lit/klst Þolir 50C heitt vatn 5 metra barki Sápubox

Deka Tjöru- og olíuhreinsir 4 lítrar

1.550

Rúðuvökvi -18°C 4 lítrar

540

Kletthálsi 7 - Reykjavík Fuglavík 18 - Reykjanesbæ Furuvöllum 15 - Akureyri

TIA-JM-3340

Bílaþvottakústur

1.795

– Afslátt eða gott verð? Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is

Ekki lenda í biðröð í haust! Settu Toyo harðskeljadekkin undir strax! Við bjóðum vaxtalaus lán frá Visa og Mastercard í allt að 12 mánuði

0 3333 42

ar

Nj

Þær eru margar minningarnar sem koma upp í hugann nú þegar mín elskulega amma, amma Fjóla, kveður þennan heim. Hann var einstaklega fallegur og sólríkur haustdagurinn sem hún amma valdi til þess að fara í langferðina miklu. Ég var svo heppinn að alast upp við að hafa Fjólu ömmu á æskuheimili mínu fyrstu 15 ár ævi minnar í Baugholtinu. Þar naut ég góðs af henni og þær voru nú ófáar brauðsneiðarnar með kæfunni og heitu kakóbollarnir sem hún gerði handa mér enda gerði hún langbesta kakó í heimi. Oft sátum við saman og horfðum á sjónvarp, lásum í bók eða hlustuðum á útvarp og hún sagði mér oft skemmtilegar sögur úr æsku sinni í Grindavík. Amma Fjóla ferðaðist mikið með okkur og fór með mér í margar útilegur í bláa tjaldvagninum okkar sem lifa í minningunni. Við fórum einnig saman til útlanda. Sérstaklega er mér minnisstæð ferð okkar fjölskyldunnar til Benidorm árið 1978 þegar ég var 6 ára og ég sé ömmu enn fyrir mér þegar hún var að kenna mér að synda í lauginni á hótelinu okkar. Þegar amma flutti svo á Ásabrautina árið 1987 kom ég til hennar nánast daglega og fékk alltaf eitthvað gott að borða hjá henni eins og góðri ömmu sæmir. Fyrst um sinn kom ég einn, svo bættist unnusta mín Lára Sif í hópinn árið 1993 og svo barnabarnabörnin Jón Smári, Ólöf Rut og Viktoría Fjóla. Við Lára Sif fluttum í Kópavoginn árið 1997 og reyndum við að koma eins oft og við gátum að heimsækja ömmu enda ómissandi að fá kakóbolla og brauð með kæfu hjá henni ásamt öðru góðgæti. Ég hef alla tíð stundað íþróttir, sérstaklega knattspyrnu og fylgdist amma Fjóla vel með mér og safnaði í úrklippubækur úr öllum blöðum þar sem fjallað var um leiki mína og færði mér svo til eignar þegar ég hætti að spila. Þetta segir meira en mörg orð um hugulsemi og væntumþykju hennar í minn garð. Eftir að amma Fjóla hætti að vinna sat hún löngum stundum og föndraði og stundaði starf eldri borgara í Reykjanesbæ af miklum áhuga og naut sín þar vel í góðra vina hópi. Ég hef alltaf verið mikið jólabarn

›› SVART ‹‹ og sykurlaust

ð arb ra ut

9

Fjóla Benediktsdóttir - minning -

ATVINNA Í BOÐI

Sorpeyðingarstöð Suðurnesja sf. óskar eftir starfsmanni í brennslustöð fyrirtækisins. Unnið er á vöktum og um er að ræða tímabundna ráðningu. Gerðar eru kröfur um menntun sem nýtist í starfið s.s. vélstjórnarréttindi og/eða menntun á sviði raf- eða vélvirkjunar. Starfsmenn í brennslustöð þurfa að hafa frumkvæði og góða samskiptahæfni, geta unnið skipulega og sjálfstætt og vera vel tölvufærir. Góð enskukunnátta er kostur. Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri í síma 421-8010 Umsóknarfrestur er til 17. október 2011 Umsóknir sendist til Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja sf., Berghólabraut 7, 230 Reykjanesbæ.


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.