
4 minute read
Plöntuskrá
skóga sem okkur kom algerlega á óvart. Okkur var skýrt frá því að tekjur af Guttormslundi um 1960 hafi verið tæpar þrjú þúsund krónur árlega þegar búið var að draga allan kostnað frá. Er þá miðað við einn hektara lands og var þá lundurinn um tuttugu ára.Þessi arður fékkst þó eingöngu með sölu á girðingarstaurum.
Við getum líka skyggnst lengra fram í tímann. Samkvæmt mælingum og útreikningum ætti heildarvöxturinn í Guttormslundi eftir 80 ár að nema um fjögur hundruð og sextíu teningsmetrum viðar á hektara.
Verðmætin aukast þó enn þegar viðnum er flett í bjálka og borð.
Hér er aðeins nefnt dæmi um arð af skógrækt á Austurlandi. En í mörgum öðrum héruðum er að vaxa upp ungskógur sem lofar góðu um framtíðina.
Atvinna
Hvarvetna veita skógar mikla vinnu. Með aukinni skógrækt á Íslandi yrði fjarmagn flutt inn í sveitir landsins þar sem náttúran ávaxtar það.
Mikil vinna er við plöntun, grisjun og hirðingu ungskógar. Hundruð unglinga um allt land starfa við garðyrkju og skógrækt sumarlangt en ættu að skipta þúsundum, því að engin störf eru hollari æskulýðnum.
Skógar sem við gróðursetjum bæta landið, efla sveitirnar, veita niðjum okkar vinnu, gera atvinnulíf þjóðarinnar fjölbreyttara og gera þjóðina færari til sjálfbjargar.
Skjól
Áhrif skjóls á allan gróður sést óvíða betur hér á landi en í Hallormsstaðaskógi. Í skógarjaðrinum eru trén veðurbarin og kræklótt. Þau eru engin skrauttré en vernda skóginn gegn veðrum og minni snjóflóðum. Þetta eru útverðir skógarins. En er lengra kemur inn
í skóginn verða trén stórvaxnari og jurtagróður fjölskrúðugri. Fuglalíf er þar einnig mun auðugra en á bersvæði.
Skjólbelti hafa sömu áhrif. Ræktun þeirra er enn skammt á veg komin en vænta má mikils af henni í framtíðinni.
Skjólbelti hafa meðal annars þessi áhrif:
Þau lægja vindinn og auka jarðvegs- og lofthitann næst yfirborði jarðar.
Skjól dregur úr uppgufun og varnar ofþornun.
Afurðir búfjár verða meiri þar sem beitt er á skýlt land.
Okkur líður betur við vinnu á skýldu landi, ekki síst við ýmiss konar jarðyrkjustörf.
Vatnsmiðlun
Um leið og snjóa leysir á vorin, hleypur vöxtur í ár og læki og þau flæða yfir landið í kring. Skriður falla úr fjallshlíðum og flytja aur og grjót niður á láglendi. En vegir og önnur mannvirki skemmast í vatnavöxtum. Þetta þekkja allir hér á landi.
Í skógivöxnum löndum er þessu annan veg farið. Snjórinn bráðnar þar mun hægar, skógarnir taka til sín mikið vatnsmagn og rætur trjánna binda jarðveginn. Allt þetta eykur jafnstreymi ánna og gerir þær meðal annars hæfari til virkjunar og fiskiræktar.
Heilsugjafi
Skógarloftið er heilnæmt, tært og hressandi. Heilsuveilt fólk flykkist því til skóganna til þess að öðlast þar nýjan þrótt. Þá sækir þangað fjöldi fólks hvíld og frið frá önnum dagsins. Og enn aðrir stunda þar skemmtanir og útilíf sem aukið getur lífsgleði og heilbrigði ef rétt er á haldið.
En nú haustar og tré og runnar í skólagarðinum breyta um svip. Laufin taka að blikna. Eitt og eitt falla þau hljóðlega til jarðar og þegar stormsveipir fara yfir falla þau í hrönnum. Sumarið hefur
kvatt, önnur árstíð tekið við en samt er engu lokið. Upphafið getur alveg eins verið hér.
Við höfum búið trjábeðinn undir vetur og hlúð að fjölæru blómunum. Í Hallormsstaðaskógi áttum við í sumar dvöl við leiki, nám og störf. Nú er veturinn einnig einráður þar. Ilmurinn frá björkinni er ekki hinn sami og þyturinn í laufi hennar heyrist ekki lengur. En grenitrén bera sitt barr, þótt vetur steypi yfir þau hvítri mjöll. Lengi sér í grænar greinar sem minna á sumarið.
Þótt vetur ríki leynist líf um allan skóg, líf sem bíður nýs sumars, nýs vaxtar.
Bókinni lýkur hér en starfinu og sögunni um skóginn er ekki lokið.
Teiknað af Jon Baldur Hliðberg

Örnefnaskrá
Árnessýsla Alaska Alpafjöll Asía Atlavík Atlavíkurstekkur Austurland Breiðamerkursandur 6, 12, 14, 46, 47, 66 Bretlandseyjar Brimnesskógur Bárðardalur Bæjarstaðaskógur Djúpá Evrópa Eyjafjörður Fljótsdalshérað Flugumýri Fálkaklettur Gatnaskógur Glóðafeykir Guttormslundur Gönguskarðsós Hafursá Hallormsstaðaskógur Hekla Jökullækur Jökulsá Kerlingará Klettafjöll Kolafjörður Kolbeinsárós Kyrrahaf Lagarfljót Landbrot Lýsishóll Mið-Evrópa Mörk Noregur Norður-Ameríka Norður-Noregur Nýiskógur Ormsstaðir Pýreneafjöll Rússland Skaftafellssýslur Skaftártungur Snæfell Suðausturland Suðurland Suðvesturland Svíþjóð Tromsfylki Vaglaskógur Vestfirðir Þingeyjarsýsla Þistilfjörður Þórsmörk
Plöntuskrá
Álmur Alaskaösp Balsamþinur 18, 22, 24, 26, 39, 41, 47, 55 Bergfura Birki Bláber Bláfjóla Blágreni Blágresi Blæösp Blóðberg Brennisóley Broddfura Broddfura Broddgreni Brönugrös Bugðupunktur Elfting Elri Fjallafura Fjallaþinur Fjallaþöll Fjalldalafífill Fura Geldingahnappur Greni Gráreynir Gulmaðra Gulrófa Gulrót Hlynur Holtasóley Holurt Hrútaberjalyng Hvítelri Hvítgreni Hvítþinur Ilmbjörk Krækilyng Lambagras Lerki Lindifura Língresi Maríustakkur Marþöll Móasef Rauðelri Rauðgreni Reynivður Reyrgresi Seljureynir Silfurreynir Sitkagreni Skógarfura Sortulyng Stafafura Svartgreni Síberíuþinur Umfeðmingur Víðir Þursaskegg Ösp
Jón jósep Jóhannesson Snorri Sigurðsson
Þetta er sagan af skóginum á Íslandi, að vísu aðeins örfáar svipmyndir af samskiptum þjóðar, lands og skóga. Þessi saga er að því leyti ólík öðrum sögum að sögulok eru jafnlangt undan þegar bókinni lýkur og er hún hefst.
En þetta er bókin ykkar, hinna ungu Íslendinga. Það eruð þið sem haldið sögunni áfram og síðan taka aðrir við af ykkur og enn aðrir af þeim.
Í fáum orðum sagt. Við viljum færa Íslandi aftur þá skóga sem það átti einu sinni, fjölga trjátegundum þess og búa öðrum gróðri yl og næði í skjóli þeirra.
Mikið verkefni bíður okkar. Til þess að geta leyst það af hendi þurfum við að læra margt. Lærdóm og þekkingu getum við sótt til þeirra sem fróðari eru, hlýtt á mál þeirra sótt námskeið og skóla. En við getum líka sótt þekkingu í okkar eigin bók.