Grein / Article
Anna María Björnsdóttir & Snædís Björnsdóttir
STÚDENTABLAÐIÐ
Anna og Snædís kynna leikárið 2021-2022 Anna and Snædís Present the Theatre Year 2021-2022 Í leikhúsinu má alltaf finna sér eitthvað við hæfi, hvort sem það er á dimmum vetrarkvöldum eða björtum vordögum. Í ár geta leikhús gestir séð sínar uppáhalds bækur lifna við á sviði, hlegið og grátið með þekktum sögupersónum og velt fyrir sér stóru spurningunum. Fjallað verður um heimsendi, menningaráresktra, kynlífshjálpar bækur, heitar ástir, fjölskyldubönd og svo miklu meira! Við kynnum því hér með þær sýningar sem við erum spenntastar fyrir að sjá á komandi leikári, með krossaða fingur! BORGARLEIKHÚSIÐ Ein komst undan – frumsýnd í janúar Á ljúfu síðdegi sitja fjórar nágrannakonur saman í bakgarði einnar þeirra og sötra te. Hvað gæti farið úrskeiðis? Allt, ef marka má leikrit Caryl Churchill (f. 1938), Ein komst undan, sem sett verður á fjalirnar í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur næstkomandi janúar. Hvers dagslegt teboð rennur saman við hörmungar og náttúruhamfarir og skyndilega er heimsendir yfirvofandi. Og þó – er eitthvað sem fær stöðvað fjórar eldri vinkonur? Í þessu magnaða verki sameina fjórar af ástsælustu leikkonum þjóðarinnar krafta sína, þær Edda Björgvinsdóttir, Kristbjörg Kjeld, Margrét Ákadóttir og Margrét Guðmundsdóttir.
Tu jest za drago eða Úff hvað allt er dýrt hérna – frumsýnd í febrúar Leikhópurinn PóliS setur hér á svið leikandi létta sýningu um ungt par sem kemur til Íslands til þess að vinna og safna peningum fyrir brúðkaup sitt heima í Póllandi. Á ferðalaginu lendir það í ýmsum ævin týrum og hittir fyrir alls konar furðufugla. Úr verður stórfyndið leikrit um samskipti þessara tveggja vinaþjóða og menningarárekstrana og fyndnu augnablikin sem oft fylgja þeim. Sýningin fer öll fram á pólsku en fyrir íslensku- og enskumælandi áhorfendur verður textun í boði.
Umbúðalaust – frumsýningar frá desember til maí Ýmsir sviðslistahópar stíga á svið í Borgarleikhúsinu og fjalla umbúðalaust um sjóðandi heit málefni á borð við pýramídasvindl, markaðsvæðingu femínisma, kynlífshjálparbækur, mjúka karl mennsku og kósíheit auk þess að velta því fyrir sér hvað leynist í geymslum landsins. Á vísum stað – frumsýning í desember How to Make Love to a Man – frumsýning í mars 2022 Femcom – frumsýning í maí 2022 ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Framúrskarandi vinkona – frumsýnd í desember Gestir Þjóðleikhússins geta átt von á alvöru ítalskri leikhúsveislu þar sem öllu verður tjaldað til við sviðsetningu á hinum skarpgreindu vinkonum, Lilu og Elenu, sem hafa farið sigurför um heiminn. Lila og Elena alast upp í fátækrahverfi í Napólí á sjötta áratugnum og þurfa að beita öllum brögðum til þess að komast af, brjótast til mennta og berjast fyrir betra lífi í harkalegu umhverfi. Þetta er saga um flókna vináttu, heitar ástir, afbrýðisemi, sárar fórnir, æðruleysi og örvæntingu í heimi þar sem ofbeldi ræður ríkjum og réttur kvenna THE STUDENT PAPER
You can always find something appropriate in the theater, whether it be on dark winters evenings or bright spring days. This year theater goers can see their favourite books spring to life on the stage, laugh and cry with known historical figures and ponder the big questions in life. The end of the world, cultural clashes, sex help books, passinate loves, family ties and so much more will be discussed! We present here the shows that we are most excited for in the next year of theater, fingers crossed! BORGARLEIKHÚSIÐ Ein komst undan (e. One Got Away) – premiers in January On a lovely afternoon four neighbours sit together in one of their backyards and sip tea. What could go wrong? Everything, according to the play by Caryl Churchill (b. 1938), Ein komst undan, will be performed under the direction of Kristín Jóhannesdóttir in the coming January. A casual tea party blends together with calamity and natural disasters, and suddenly the end of the world is immi nent. Yet – is there anything that can stop these four old friends? In his magnificent piece, four of the most beloved actresses in Iceland gather their power. Edda Björgvinsdóttir, Kristbjörg Kjeld, Margrét Ákadóttir and Margrét Guðmundsdóttir.
Tu jest za drago (e. It’s Too Expensive Here) – premiers in February The theater group PóliS sets on the stage a light hearted show about a young couple that comes to Iceland to work and save some money for their wedding back in Poland. During their time here they get into all sorts of adventures and meet strange characters. The result is a hilarious play about the interaction between the friend nations and the cultural clashes and the funny moments that often come with them. The show is performed in polish but for icelandic and english speaking viewers there will be subtitles available. Umbúðalaust (e. Packaging Free) – premiers from December until May A variety of performance art groups with step onstage in Borgar leikhús to talk about, uncensored, piping hot subjects like pyramid schemes, feminist marketing, sex help books, soft masculinity and cosiness whilst also wondering what is being kept in the storage spaces of Iceland. Á vísum stað (e. In a Certain Place) – premieres in December How to Make Love to a Man – premiers in march 2022 Femcom – premieres May 2022 ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Framúrskarandi vinkona (e. Outstanding Friend) – premiers in December Guests of the Þjóðleikhúsið can expect a real Italian theatre party where everything will be pulled out for the staging of the tempera mental friends, Lila and Elena, who have travelled the world. They grow up in a poverty-ridden neighbourhood in Napoli in the 60s and need to pull out all the stops to survive, become educated and fight for a better life in a rough neighbourhood. This is a story about a complicated friendship, passionate love, jealousy, bitter sacrifices, fortitude and despair in a world where violence is the ruler and the rights of women are scarcely respected. A true masterpiece with many of the foremost actresses of Iceland.
64