Útilitakort

Page 1


ÚTILITIR

Steinn • Múr • Bárujárn • Klæðningar LITAKORT

ÚTIMÁLNING

Slippfélagið sérhæfir sig í framleiðslu á inni- og útimálningu sem hentar íslenskri veðráttu. Framleiðsluvörur Slippfélagsins hafa fengið nýtt útlit og sumar hverjar ný nöfn sem byggð eru á íslenskum mannanöfnum, eins og Skjöldur og Brynja

Nú kynnum við nýtt útilitakort þar sem litirnir falla vel að íslenskri náttúru og arkitektúr. Við höfum handvalið liti sem henta á stein, múr, bárujárn og klæðningar.

Jarðtónar, muskaðir tónar, litir sem minna á árstíðirnar, fossana okkar og hveri.

Fáðu aðstoð hjá sérfræðingum Slippfélagsins við val á litum, efnum og verkfærum.

OKKAR ÚTIMÁLNING

Skjöldur

Mött útimálning

Mött og vatnsþynnanleg akrýlmálning með frábært alkalí-, vatns- og veðrunarþol sem hentar því íslenskum aðstæðum sérlega vel. Hindrar ekki eðlilegt rakagegnumstreymi flatarins. Létt í vinnslu og þekur vel. Einkum ætluð á steinsteypu og múrhúð utanhúss bæði við ný- og endurmálun. Málningin er mjög alkalí þolin og má því setja hana beint á steypu.

Brynja

Almött útimálning og grunnur

Terpentínuþynnanleg akrýlmálning ætluð á steinsteypu og múr utanhúss. Málningin hindrar upptöku vatns en er mjög opin fyrir rakaútgufun. Hún vætir mjög vel og hefur því mjög góða viðloðun við múr og steypu. Einkum ætluð til að grunna steinsteypu og múrhúð undir útimálningu, en má einnig nota eina og sér. Vatnsþol eykst verulega, ef steinninn er baðaður fyrst með Mónósílani fyrir grunnun.

Þykkmálning

Teygjanleg undirmálning

Vatnsþynnanleg akrýlmálning sem myndar vatnsþétta og mjög teygjanlega filmu með frábært alkalí-, vatns- og veðrunarþol. Hindrar ekki eðlilegt rakagegnumstreymi flatarins. Einkum ætluð á steinsteypu og múrhúð utanhúss bæði við ný- og endurmálun. Málningin hentar einkar vel til að þétta vatnsbretti og á lítið hallandi fleti.

Hjörvi

Hálfgljáandi útimálning á þök og málmklæðningar

V atnsþynnanleg akrýlmálning með frábært vatns- og veðrunarþol. Málning með afburðaþvottheldni, litheldni og mótstöðu gegn gulnun. Málningin er auðvelt í notkun, þornar fljótt og heldur lit og gljáa sérlega vel. Einkum ætlaður á þök og málmklæðningar, bæði við ný- og endurmálun. Málningin hefur góða viðloðunareiginleika og hentar vel til endurmálunar á fleti áður málaða með alkýð- eða akrýlmálningu.

ÚTILITIR

MÁLA R A HVÍTT

MORG U NROÐI

S Ó L E Y

LAUGA R G RÆNN

RÓS R AUTT

KVÖL D ROÐI

HLÍÐA R GULUR

VÍÐI G R ÆNN

BER J A MÓ

JAÐA R B RÚNN

SAND S T EINN

BIRK I G R ÆNN

Þaklitir

Hér eru 8 litir á þök og járnklæðningar sem við mælum með.

Aðallitir

Þetta eru okkar uppáhalds aðallitir sem hafa verið valdnir af hönnunarteymi og litameisturum

Slippfélagsins

HEIÐ A R BLÁR

Meðlitir

Þegar þú hefur valið aðallit þá er komið að meðlitnum. Hægt er að velja dekkri tón sem skerpir ákveðna fleti eins og glugga.

Meðlitir geta líka verið aðallitir og öfugt.

Hér á ímyndunaraflið að ráða för.

Þetta litakort gefur þér eins góða mynd af litunum og tæknin leyfir. Athugið að birtuskilyrði, áferð flatarins og glansstig málningar hafa áhrif á endanlega útkomu málningarvinnunnar.

FJALL A G RÆNN
TIND A B LÁR
LÓN S B LÁR
SN Æ F ELL
JÖKU L B LÁMI

MEISTA R AHVÍTT

FAG R I H VER

ÞOK U G RÁR

GUF U G RÁR

MÓB R ÚNN
VETR A R GRÁR
KR A F LA STR O K KUR

Útiveggir og múraðir fletir

Nýir steinveggir

Þegar nýtt steinhús er málað er mikilvægt að allir fletir séu lausir við þau efni sem hindrað geta viðloðun. Flöturinn skal vera hreinn, þurr, fastur viðkomu og a.m.k. mánaðargamall. Á flekamótum og forsteyptum einingum eru t.d. olíuefni og sementshúð sem fjarlægja verður með háþrýstiþvotti, 150-300 bör. Veðrun til langs tíma getur gert sama gagn. Láréttir fletir eins og þakkantar, vatnsbretti undir gluggum og steypt svalahandrið þurfa sérstaka meðferð. Við nýmálun á sléttum steyptum flötum er best að tryggja viðloðun eftir sílanböðun með Brynju sem er terpentínuþynnanleg akrýlmálning, eða Steypugrunni sem er vatnsþynnanlegur. Sama gildir um viðgerða fleti á eldri húsum.

Endurmálun á steinveggjum

1. Tryggja þarf viðloðun áður en málun hefst. Fjarlægja þarf fitu, olíu, sót eða önnur óhreinindi með Maalipesu sápu og vatni. Ryk, mold og önnur óhreinindi skal fjarlægja með háþrýstiþvotti. Duftsmitandi fleti og sementshúð (t.d. á flekasteyptum einingum) skal fjarlægja með kröftugum háþrýstiþvotti. Lausa málningu skal fjarlægja með sköfu eða háþrýstiþvotti. Látið þorna eftir þvott.

2. Laus málning fjarlægð og gert við sprungur og múrskemmdir. Sprungur og múrskemmdir eru vandamál sem borgar sig að leysa í samráði við sérfræðinga á því sviði.

3. Mikilvægt er að bera Sílan á nýjan og ómálaðan stein. Úðið steinflötinn með sílanefni, efnisnotkun 3–5 lítrar á hvern fermetra. Látið sílanið standa í a.m.k. 24 klst. fyrir málun. Sílanefni eru borin á steinsteypu til að gera hana vatnsfælna og koma í veg fyrir vatnsskemmdir. Efnið smýgur afar vel inn í steininn og gefur góða vatnsvörn. Mikilvægt er að sílanbera viðgerða fleti. Varist að sílanefni komist í snertingu við gler.

4. Því næst skal grunna sílanborna steininn með 15% þynntri Brynju eða Steypugrunni. Athugið að mikilvægt er að grunna alla viðgerða fleti.

5. Að lokum eru málaðar 2 umferðir með Skyldi útimálningu eða Stormi útimálningu

6. Lárétta fletti, s.s. vatnsbretti, skal mála eftir sílanböðun með Skyldi þykkhúð

7. Málið tvær umferðir með Skyldi eða Stormi

* Nákvæmari upplýsingar um efnin er að finna á tækniblöðum á slippfélagid.is

Fargið afgangsefnum á viðeigandi endurvinnslustöð.

Bárujárn og járnklæðningar

Algengasta klæðningarefni á Íslandi er galvanhúðað bárujárn. Á seinni árum hafa bæst við fleiri gerðir, s.s. álsink, litað ál og litað stál. Öll þessi efni þarf að mála fyrr eða síðar. Mismunandi er þó, hvenær huga skal að því.

Galvanhúðað bárujárn er best að mála sem fyrst, þ.e. áður en galvanhúðin fer að láta á sjá. Veðrun getur komið að gagni sem undirbúningur fyrir málun. Veðrun er þó aðeins ætlað að fjarlægja fitu sem er á nýju galvanhúðuðu járni og getur tekið eitt til tvö ár. Hægt er að ná sama árangri með því að nota Panssaripesu þakhreinsir frá Tikkurila. Það er þess vegna úrelt aðgerð að láta galvanhúð veðrast, þar til tæring er hafin.

Aðferð

1. Fjarlægja lausa málningu t.d. með kröftugri háþrýstidælu (200-400 bör) eða sköfun.

2. Hreinsa flötinn með Panssaripesu þakhreinsi, hann fjarlægir valsaolíu, sót og önnur óhreinindi af völdum mengunar. Setjið hreinsinn á með úðabrúsa eða bursta. Skola þarf hreinsinn af. Athugið að háþrýstiþvottur er áhrifaríkur, en vinnur ekki á fitu einn og sér. Þakið þarf að þorna áður en frekari meðhöndlun á sér stað.

3. Hreinsa þarf ryð með vírburstun eða slípun.

4. Bletta þarf í ryðbletti eftir burstun með ryðvarnargrunni, t.d. Jotamastic 90

5. Grunna þarf járnið. Ef um nýja eða veðraða gavanhúð og álsink er um að ræða þá skal grunna með Fjölgrunni eina umferð. Ef um endurmálun er að ræða er í flestum tilfellum óþarfi að grunna nema við sérstakar aðstæður, breytingu á efni eða annað.

6. Málið tvær umferðir með Hjörva

* Nákvæmari upplýsingar um efnin er að finna á tækniblöðum á slippfélagid.is. Fargið afgangsefnum á viðeigandi endurvinnslustöð.

SLIPPFÉLAGIÐ

Skútuvogi 2, Reykjavík, S: 588 8000

Fellsmúla 26, Reykjavík, S: 588 8000

Dalshrauni 11, Hafnarfirði, S: 588 8000

Hafnargötu 61, Reykjanesbæ, S: 421 2720

Austurvegi 58, Selfossi, S: 482 1250

Gleráreyrum 2, Akureyri, S: 461 2760

Opið: 8-18 virka daga / 10-14 laugardaga

slippfelagid.is

SKANNAÐU MIG!

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Útilitakort by Slippfélagið - Issuu